Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Page 45

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Page 45
hins skrítnu „þjóðaratkvæðagreiðslu“ um ófullburða uppkast að drögum að nýrri stjórnarskrá, sem enga efnislega umræðu hafði fengið, hvorki á þingi né í þjóðfélaginu. Settar voru fram óljósar spurningar, sem áttu ekki einu sinni fullkomna samsvörun í þeirri „stjórnarskrá“ sem sagt var að lægi fyrir. Þessi óprúttni leikur með „þjóðaratkvæði“ er áhrifamikil öryggisbjalla gagnvart þeim sjónarmiðum að þjóð- aratkvæðagreiðslur í stórum stíl séu lausn á meintum lýðræðishalla þjóðfélagsins. Ekki gleyma Sviss Stundum er sagt að fordæmi Sviss í almennum at- kvæðagreiðslum sé í senn lýsandi og stórkostlegt. Og fyrir gallhörðustu íhaldsmenn, sem sjá vilja sem fæstar breytingar verða á tilverunni, og síst af mannavöldum, er auðvitað von í þeirri gerð lýðræðis. Í Sviss sitja sömu flokkar í ríkisstjórn og þar hafa setið síðan árið 1948. Ráðherrarnir eru fáir og fæstir landsmenn vita samt hvað þeir heita. Þeir skiptast svo á að vera forseti í eitt ár í senn og þykir sumum hér það einnig mjög flott. Á meðan bréfritari hafði enn skrifstofu við Lækj- artorg kom konsúll Sviss á fund til hans og sagði að forseti Sviss ætti erindi til Íslands innan fárra vikna og hvort ráðherrann gæti ekki tekið á móti honum. „Það er sjálfsagt,“ var svarið, „en ég skammast mín fyrir að þurfa að viðurkenna að ég kem ekki fyrir mig hver er forseti Sviss.“ „Hafðu ekki áhyggjur af því,“ sagði konsúllinn, „það vita heldur ekki margir Sviss- lendingar.“ Sviss var seinasta landið til að veita kon- um kosningarétt. Stjórnmálamennirnir reyndu en „þjóðin“, karlarnir með kosningaréttinn, var treg í taumi. Sviss hefur vissulega farnast mjög vel fjárhagslega. Iðulega eru menn að rekja það til kerfis þeirra um þjóðaratkvæðagreiðslur. Ætli það skipti ekki meira máli að Sviss hefur fengið að vera í friði í tveimur heimsstyrjöldum, með algjörlega frítt spil á meðan eldarnir brunnu í löndunum í kring. Og á meðan fengu þarlendir bankar að ávaxta fé fyrir stríðsaðil- ana alla, fórnarlömb þeirra og fleiri og borga lítið fyr- ir. Og vegna kerfis leynireikninga um langa hríð, sem nú er nokkuð að molna undan, hafa miklir fjármunir ekki verið endurkrafnir af innstæðueigendum, því þeir voru horfnir í aðra heima og enginn vissi um fjár- muni þeirra í Sviss. Sjálfsagt hefur hin mikla íhalds- semi sem þjóðaratkvæðagreiðslurnar hafa tryggt ýtt undir stöðugleika í Sviss, en fleira hefur sem sagt komið til. Ekki gleyma Churchill Örlög Churchills og flokks hans árið 1945 eru oft nefnd til sögunnar til dæmis um hvað kjósendur geta tekið skrítinn pól í hæðina og um eitthvert mesta van- þakklæti sem þjóð hefur sýnt stjórnmálalegum leið- toga sínum. Manni, sem hún hefur jafnan síðan sagt aðspurð vera mesta Breta allra tíma. Hálfum mánuði eftir stríðslok í Evrópu taldi breski Verkamannaflokkurinn að rétti tíminn væri kominn til að hverfa út úr þjóðstjórninni um stríðsreksturinn og að kallað væri eftir nýju lýðræðislegu umboði. Íhaldsflokkurinn byggði kosningabaráttu sína nærri alfarið á ímynd formanns síns, stjórnmálajöfursins og sigurvegara stryjaldarinnar. Hvar sem Churchill fór var honum fagnað mjög af miklum fjölda manna. Að- dáunin virtist skína úr hverju andliti. „Ég finn það í mínum beinum að við erum á sigurbraut,“ sagði hann. Þetta var fyrir daga skoðanakannana. Þegar úrslitin komu upp úr kössunum vöktu þau undrun um allan heim. Stórsigur Verkamannaflokks- ins. Afhroð Íhaldsflokksins, sem var undir forystu mannsins sem almennt og af einlægni var talið að hefði bjargað heimsbyggðinni frá Hitler. Churchill var sjálfum auðvitað illa brugðið. Kona hans reyndi að hugga og sagði að vel mætti vera að í þessum úr- slitum fælist „blessun í dulargervi“. „Sé svo,“ svaraði maður hennar, „þá verður að segja að það dulargervi er afburðagott.“ Lengi síðan hafa menn talað mjög um þetta ein- staka vanþakklæti breskra kjósenda. En var þetta vanþakklæti? Langflestir Bretar elskuðu og virtu Churchill vegna þeirrar forystu sem hann sýndi þeg- ar öll sund virtust vera að lokast. En á þessu augna- bliki voru þeir ekki að kjósa um það. Þeir höfðu verið kallaðir að kjörborðinu til að kjósa um framtíðina. Fæstir þeirra efuðust um það eitt augnablik að Churchill hefði verið afburðaforingi og sannkallaður bjargvættur þjóðarinnar í stríðinu. Og flestir þeirra voru fullir þakklætis. En nú var loks að komast á frið- ur. Og meirihluti kjósenda komst að þeirri niðurstöðu með sjálfum sér að kannski væri Attlee og Verka- mannaflokkurinn vænlegri kostur við þau kaflaskil en þjóðhetja stríðsins. Það ýtti svo undir þá niðurstöðu að Churchill fótaði sig illa í hlutverki flokksforingja. Hann hafði vanist við að vera leiðtogi allra Breta og verið tekið sem slíkum. Honum urðu því á margvísleg mistök í kosn- ingabaráttunni. En andstæðingurinn gerði á hinn bóginn margt vel. Verkamannaflokkurinn lét þannig prenta óvenjuleg kosningaspjöld. Þar var ágæt mynd af Churchill og flokkurinn lét hengja hana upp á fjöldafundum hetjunnar. Undir myndinni stóð hins vegar: Hyllið Churchill! – Kjósið Verkamannaflokk- inn! Og hvort tveggja gerðu Bretar í stórum stíl. Enginn stjórnmálamaður ætti því að taka kjósand- ann eins og sjálfsagðan hlut. Fyrst Winston Churchill gat það ekki ættu smærri menn að gæta sín. Morgunblaðið/RAX 6.1. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.