Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Side 46
Viðtal
46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.1. 2013
Þ
etta er án efa það hrikalegasta, viðbjóðslegasta og
hræðilegasta sem ég hef gert. En um leið það
besta,“ segir Halla Vilhjálmsdóttir. Leikkonan
hafði varla séð gönguskó né sofið í svefnpoka þeg-
ar hún ákvað að klífa hæsta fjall Norður- og Suð-
ur-Ameríku. Ferðin tók þrjár vikur en fjallið, Aconcagua í
miðjum Andes-fjallgarðinum í Argentínu, er tæplega 7.000
metra hátt. Nokkur þúsund manns reyna við fjallið á ári
hverju en Halla segir að af þeim sem reyna séu aðeins um 20
prósent sem komist upp. Hún, öllum til mikillar furðu, varð ein
af þeim sem náðu upp en ferðin reyndi á. Halla er til að
mynda tilfinningalaus í fingrum eftir frostbit en vonast til að
fingurnir fari að spila aftur með líkamanum innan nokkurra
vikna.
Áður en við vindum okkur í ferðasöguna rekur Halla at-
burðarás ársins. Margt hefur drifið á daga hennar síðan hún
tók þá ákvörðun að flytja aftur til Bretlands, þar sem hún
nam leiklist fyrir nokkrum árum. „Með áherslu á bardaga-
íþróttir sem ég tel að hafi komið mér afar vel í glímunni við
fjallið.“ Eldgosið í Eyjafjallajökli var hins vegar stór örlaga-
valdur í hennar lífi. „Ég kom heim og sagði við mömmu að
mér liði eins og ég væri að anda að mér sýru. Hún sagði mér
nú bara að herða mig og hætta þessari vitleysu. En ég ákvað
nú samt að fara til London og dvelja hjá vinum meðan gosið
stæði yfir.“
Ætlunin var að koma aftur heim en sá ásetningur beið
skipbrot. „Ég bara gleymdi mér úti og tók aldrei flugið heim.
Ég var samt á svo undarlegum tímapunkti. Ég hafði leikið í
hverjum söngleiknum á fætur öðrum og fannst ég hreinlega
hafa afgreitt þann kafla í lífi mínu. Slík vinna í London freist-
aði mín alls ekki. Mig langaði líka afskaplega mikið til að hafa
almennileg laun, sem eru ekki í boði í bresku leikhúsi.“ Sem
dæmi um söngleikjamaraþon Höllu má nefna að á einu ári lék
Halla aðalhlutverkin í Túskildingsóperunni, Hafinu bláa og
Footloose. Á sama tíma var hún einnig í sjónvarps- og kvik-
myndaverkefnum. „Síðasta eina og hálfa árið hefur því verið
talsvert öðruvísi en árin á undan. Ég hef unnið við gerð sjón-
varpsauglýsinga og í fyrirsætustörfum og því er fjárhagslegt
frelsi miklu meira og auðveldara fyrir mig að lifa í London,
sem er svo dýr borg að draga andann í.“
Sú vika hefur ekki liðið hjá Höllu þar sem hún er verk-
efnalaus en auk þess rekur hún líkamsræktarstöð í Chelsea
og er í stórum verkefnum tengdum stöðinni. „Ég er heppin
þar, ræð bara þá jógakennara sem mig langar til að kenni
mér jóga hverju sinni,“ segir Halla og hlær. „Eigendunum
kynntist ég þegar ég var í námi í London en þá ráku þau að-
eins eina líkamsræktarstöð. Þegar ég kom aftur voru þau far-
in að reka margar og ég hef auk þess unnið við að taka yfir
nýjar stöðvar og þjálfa starfsfólk og rekstraraðila. Þetta hent-
ar mér afar vel því það er alltaf skilningur á því þegar ég
þarf að hlaupa í verkefni en ég hef mikið þurft að ferðast í
kringum starfið.“
Auglýsingar eru ekki það sama og auglýsingar. Þær sem
Halla hefur leikið í, meðal annars í stórri herferð fyrir Sky-
sjónvarpsstöðina, hafa unnið til verðlauna og Halla hefur tals-
vert verið viðloðandi kómík undanfarið. Má þar nefna grínseríu
með leikstjóra Little Britain. Halla er annálaður húmoristi og
grínast með fyrirsætustörfin. Víst er að einhverjir, sem sjá ekki
spaugilegu hliðar þeirra, súpa hveljur yfir því hvernig hún lýsir
á afar skondinn hátt löngum tökum og umstangi í kringum
þær. Halla á auðvelt með að sjá spaugið í ýmsum aðstæðum.
„Fjögurra tíma pælingar um það hvort setja eigi maskara á
neðri augnhár eru fremur fyndnar. Sem og þær stellingar
sem sumir umsjónarmenn setja sig í. Það eru margir sem
taka sig afar hátíðlega þarna og eru eiginlega eins og stereó-
týpurnar sem maður hefur ímyndað sér að lifi og hrærist í
þessum heimi. Ljósmyndarar í spes fötum, konur í karl-
mannsfötum, grátt hár í pínulitum snúð og með hrikalegt „at-
titjúd“! Og ég þekki bið sannarlega vel, úr leikhúsunum,
þannig að ég hef samt mikla þolinmæði. En það getur verið
ákaflega erfitt að skilja af hverju það eru fjórir sem horfa á
og spekúlera, afskaplega alvarlegir, hvort einn hárlokk skuli
greiða til hægri eða vinstri.“ Halla grínast með máltíðirnar
sem eru fáar yfir daginn. Stundum er ekkert í boði fyrir fyr-
irsætuna nema einn lítill skammtur af gufusoðnum laxi – ein
Óhrædd Halla
í 7.000 metra hæð
HALLA VILHJÁLMSDÓTTIR HEFUR VERIÐ EITT MEST ÁBERANDI ANDLIT BRESKRA AUGLÝSINGA SÍÐASTA ÁRIÐ. ÞÁ REKUR LEIKKONAN EINNIG
STÓRA LÍKAMSRÆKTARSTÖÐ Í CHELSEA OG ORKUBOLTINN GERÐI SÉR LÍTIÐ FYRIR OG KLEIF HÆSTA FJALL NORÐUR- OG SUÐUR-AMERÍKU RÉTT FYRIR JÓL.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Nýleg auglýsing fyrir fæðubótarefnið maxitone.
Halla fer léttilega með hvers
kyns stökk enda hefur hún
verið afar eftirsótt í fyrir-
sætustörf tengd heilsu og lík-
amsrækt í Bretlandi.
máltíð sem duga á fyrir daginn. Halla, sem segir langar tökur
oft hreinasta bruðl á tíma, ætti kannski ekki síður heima aft-
an við myndavélarnar að rúlla upp verkefnum.
Sjónvarpsauglýsingunum landar Halla hægri vinstri en með
breyttum verkefnum er hún með nýjan umboðsmann. Ef það
er handrit nær hún öllum á sitt band. Hún segir það einnig
hjálpa að hún er íslensk. Og jú; kattliðug og er sú sérstaka
blanda að vera lítil og nett en sterk eins og bardagadvergur.
Hún getur komið tánum fyrir á hausnum, stokkið í splitt en
jafnframt fellt karlmenn í bardaga. „Enginn gerði sér vonir
um að ég næði toppnum í Argentínu. En svona gerðist þetta:
Kærastinn minn sagði mér í sumar að hann myndi klífa fjallið
í desember og ég einfaldlega óskaði honum góðrar ferðar.
Þegar ég komst að því að fara ætti í ferðina yfir jólin sagði
ég honum að það kæmi ekki til greina; hann yrði á Íslandi
með fjölskyldu minni; hans fyrstu íslensku jól. Þar sem pabbi
er búinn að safna mat allt árið og býður upp á tvær tegundir
af rjúpum, hreindýr, gæs og ég veit ekki hvað á aðfangadags-
kvöld. Harry bauðst til að færa ferðina en aðeins ef ég kæmi
með. Ég álpaðist til að segja já.“
Harry og Halla eru úr gjörólíku umhverfi, hann er kólumb-
ískur en að mestu alinn upp í Bretlandi. Harry vinnur í
breska fjármálaumhverfinu, í Barclays-fjárfestingarbank-
anum, en Halla segir þau þó eiga margt sameiginlegt. For-
eldrar þeirra hafa einnig náð vel saman og orðið vel til vina
þrátt fyrir að parið hafi verið saman í innan við ár. For-
eldrasettin hafa þannig átt stefnumót í London án þess að
börnin séu með. Foreldrar Höllu eru hinn kunni tónlist-
armaður Vilhjálmur Guðjónsson og Louisa Einarsdóttir.
Göngufólki bjargað með þyrlu
Þegar ákvörðunin hafði verið tekin um desemberferðina hélt
Halla í útivistarbúð og virti fyrir sér gönguskó í fyrsta skipti
á ævinni. Hún þurfti að fjárfesta í nokkrum pörum enda
margvíslegt klifur á dagskrá. „Fyrst og fremst tóku við rann-
sóknir og ég undirbjó mig andlega með því að fara í jóga.
Minn hæsti punktur á jörðinni fram að þessu er líklega
Öskjuhlíð. Enda þegar kom að ferðinni varð mér ljóst að ég
hafði aldrei gert foreldrum mínum verri hlut á ævinni.
Mamma benti á að ég væri svo klaufsk að ég yrði að hætta
við. Það er mjög margt í þessari ferðasögu sem þú mátt ekki
segja mömmu. Við höfðum fengið styrktaraðila í útivistarfatn-
aði hérlendis, Zo-on, en ég var auk þess með ýmislegt í för
sem hafði tilfinningalegt gildi og ég treysti. Svo sem ullarbol
mömmu, lambhúshettu frá pabba og bakpoka frá Barböru,
bestu vinkonu minni.“ Þess má geta að Fjallaleiðsögumenn
bjóða upp á ferð á Aconcagua í janúar á þessu ári og þar er
talið æskilegt að fólk hafi áður klifið í að minnsta kosti 4.000
metra hæð til að finna hvernig líkaminn virkar í hæðinni enda
háfjallaveiki helsta vandamálið í Aconcagua. Nauðsynlegt er
talið að fólk hafi klifið Hvannadalshnúk og ferðin ekki tekið
lengri tíma en 14 klukkustundir. Enda Aconcagua talsvert
erfiðara en hin hefðbundna leið á hnjúkinn.