Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2013, Page 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2013, Page 15
kennslu hans. Sigurbjörn Einarsson biskup var mér eins og annar faðir og við áttum mörg sterk samtöl um ævina um trúmál, heimspeki, listir og lífið. Engel „Gagga“ Lund var mikil áhrifakona í lífi mínu. Innra með mér geymi ég lífsspeki frá öllu þessu fólki sem ég gríp oft til, ekki síst þegar ég er að komast í gegn- um andlegan snjóskafl.“ Víkjum aðeins að einkalífinu og manninum þínum, Knut Ødegård. „Knut er norskur, skáld og rit- höfundur og ótrúlega næm mann- eskja. Þetta var ekki menntaskóla- ást eins og ég verð vitni að alla daga með mínu kórfólki því við Knut vorum orðin vel fullorðin þeg- ar við kynntumst. Við höfum gengið góðan veg saman í nær 33 ár. Við eigum mjög margt sameiginlegt og bæði lærðum við guðfræði sem ungt fólk, þannig að við erum samtals eiginlega einn guðfræðingur. Við kynntumst í tengslum við hátíð- arsamkomu í Niðarósi þar sem þýð- ing Knuts á Lilju, hinu stórkostlega kvæði Eysteins munks, var flutt. Knut var afar áhugasamur um Ísland og íslensku alveg frá því hann var ungur maður og var búinn að þýða töluvert úr íslensku, eins og til dæmis Fljótt fljótt sagði fugl- inn eftir Thor Vilhjálmsson áður en við kynntumst. Thor hafði sagt mér frá Knut og sagði hann vera eitt af höfuðskáldum Norðmanna. Ég sá fyrir mér Ibsen eða Björnson, eld- gamalt skáld sem ætti erfitt um gang. En Knut var sannarlega ekki þannig. Hann talaði reyndar ís- lensku eins og frá 14. öld en það var svo mamma sem kenndi honum að tala mjög góða nútímaíslensku. Nú er Knut að þýða öll Eddukvæðin fyrir sérstaka norska hátíðarútgáfu og fyrsta bindið með Hávamálum og Völuspá kemur út núna í maí.“ Þrautseigja og gleði Hvað hefur tónlistin gefið þér? „Tónlistin er samtvinnuð tilveru minni og andardrætti og gerir mig að mér. Það kostar mikið að ná árangri, kannski meira með hverju ári. Þrautseigja og gleði er lykillinn að kórstarfinu. Það þarf að æfa og æfa, hafa þolinmæði og úthald svo jafnvel lítið lag sé flutt vel. Það er óvenju- legt á tímum þegar menn geta með því að ýta á einn takka strokað út það sem þeir gerðu og breytt öllu. Ég get ekki ýtt á takka á kórnum og eytt út því sem ekki hljómar vel. Ýtt síðan á annan takka og fengið velhljómandi kór. Það er gott þegar vakin er athygli á góðu starfi ungs fólks og verk- efnum þess. Það fer oft hljótt um það miðað við margt annað. Í starfi mínu með ungu fólki hef ég upplifað stórkostlega samheldni og séð manneskjuna þrá að standa sig, ná betri árangri og vilja jafnvel fara fram úr eigin getu. Ég hef líka fundið þetta unga fólk verða snortið á þann hátt sem aldrei er hægt að útskýra. Það finnur eitthvað innra með sér í samhljómi sem er svo miklu meira en tónninn sjálfur. Það finnur þennan manneskjulega sam- hljóm. Mér þykir ótrúlega vænt um að upplifa það.“ Morgunblaðið/Kristinn 24.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 Vatnagörðum 24-26 • Sími 520 1100 • www.bernhard.is Umboðsaðilar: Bernhard, Reykjanesbæ, sími 421 7800 • Bílver, Akranesi, sími 431 1985 • Höldur, Akureyri, sími 461 6020 • Bragginn, Vestmannaeyjum, sími 481 1535 Halló, Vetur. við bjuggum okkur undir komu þína með skynvæddu fjórhjóladrifi. *B es ti 4 x4 bí ll ár si ns sa m kv æ m tT ot al 4 x4 M ag az in e. HALLÓ. MEIRA NÝTT. www.honda.is/cr-v Með CR-V erum við vel undirbúin þegar snjórinn kastar til okkar tækifærum. Skynvætt stöðugt vaktandi fjórhjóladrif reiknar út þörfina á gripi og dreifir aflinu aðeins í þau dekk sem þurfa þess. Á meðan brekku-hraðastjórnandinn hjálpar þér að halda fullri stjórn og mýkt niður brekkuna, án þess að þú þurfir að bremsa. Fjórða kynslóð Honda CR-V setur ný viðmið í ferðaþægindum, gæði innréttinga og gagnsemi í akstri. Náðu taki á vetrinum. Lifðu meira nýtt, keyrðu Honda CR-V. Besta 4x4 bíl ársins*.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.