Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2013, Síða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2013, Síða 19
Ólöf er í meistaranámi í hnattrænum tengslum við HÍ og var að vinna að lokaverk- efni sínu og að taka námskeið í fjarnámi á meðan á ferðalaginu stóð. „Þetta var smá strembið, ég þurfti að taka þátt í umræðutím- um einu sinni í viku sem voru í hádeginu á föstudögum á Íslandi en þá var klukkan ellefu um kvöld hjá okkur.“ Ólöf tók þátt í tímunum í gegnum Skype. „Það var svolítið strembið að láta það ganga upp því á ferðalaginu vorum við ekki alltaf með símasamband og hvað þá netsamband.“ Ólöf er hrifin af heimalandi eiginmannsins og langar að ferðast meira um Ástralíu. „Þetta var alveg frábært og við munum pott- þétt fara aftur og þá einhvern annan hring. Þetta eru svo langar vegalengdir og ekki hægt að gera allt á stuttum tíma. Þetta var bara fyrsta ferðin af mörgum.“ Þau lærðu samt eitt af þessu ferðalagi. „Ég held að við verðum með aðeins stærri bíl næst. Það var ekki einu sinni hægt að sitja uppréttur á rúminu! Við lærðum af þeirri reynslu og næst fáum við okkur bíl sem hægt er að standa uppréttur í.“ Stórbrotið landslag við Great Ocean Road og klettana sem kenndir eru við postula. Langt inni í landi er fátt að sjá á jafnvel nokkurra klukkutíma keyrslu en upplifunin er samt sterk. Það er fátt ástralskara en kóalabjörn. Í námubænum sérstaka Cooper Pedy þar sem fólkið býr að miklu leyti neðanjarðar. 24.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is Bessi Hönnuður: Erla Sólveig Óskarsdóttir Hægt að velja um lit og áferð að eigin vali Verð frá kr. 52.600 Gylfaflöt 16-18 • Skata Hönnuður: Halldór Hjálmarsson Fæst í beyki, eik og tekk Verð frá kr. 22.125 Sindrastóll Hönnuður: Ásgeir Einarsson Afmælisútgáfa, 50 stólar fram- leiddir, sérmerktir og númeraðir Verð stóll kr. 162.000 skemill kr. 48.000 Íslensk hönnun og framleiðsla

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.