Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2013, Page 34
É
g er mikill græjukall og nýt þess að leika mér með nýtt og spennandi dót. Fá
aðeins að skoða og handfjatla,“ segir Valur Heiðar Sævarsson tónlistarmaður
en hann viðurkennir að vera frekar mikill tæknikall.
Valur segir að hann sé meira fyrir nýja tækni en þá einföldu sem var við
lýði í gamla daga. „Ég er mikið að skoða síður og finna græjur. Ég var að rekast á
Google-sólgleraugun sem mér finnst mögnuð. Þau eru mögnuð uppfinning.
Þau eru þannig að þú færð upplýsingar úr umhverfinu. Segjum að þú horfir á Big
Ben þá birtast allar upplýsingar um Big Ben í gleraugunum.
Ef maður er að labba í London og langar á kaffihús eða bar þá finna gleraugun
þann sem er næst og svo framvegis. Ótrúlegt alveg.“
Valur er ekki með samlokusíma enda maður með áhuga á græjum og hann segir að
það sé aðeins einn sími sem komi til greina. Iphone. „Hann sameinar bara allt sem ég
þarf á hverjum degi. Ég er alltaf að fá einhverjar hugmyndir og er alltaf að pæla og
það er gott að geta notað Iphone-inn í að hjálpa mér því minnið er nánast eins og
svissneskur ostur. Þetta er bara svo miklu meira en sími.“
Valur spilar töluvert póker og hann er með smáforrit í símanum þar sem hann get-
ur spilað póker og lagt peninga undir. „Þetta er nýtt áhugamál hjá mér. Að spila pók-
er og það er lúmskt gaman. Að spila alvöru póker á meðan maður bíður er þægilegt
og skemmtilegt.“ Spurður um uppáhaldsgræjuna kemur ekkert annað til greina en
síminn. „Þetta er bara orðið órjúfanlegur partur af mér. Maður er nánast nakinn ef
hann er ekki með,“ segir Valur.
iPhone-síminn minn. Stórt stökk frá úrelta
Nokia-símanum sem ég átti áður. Verð viðþols-
laus án hans enda hvílík viðbót við mitt nátt-
úrulega minni. iPadinn minn. Það er algjör bylting fyrir mann
með Alzheimer lite að fá þennan grip. Að vísu
asskoti dýr textamappa en þægileg. Síðan keypti
ég rándýrt fótstig um daginn til að geta flett
textum án þess að nota hendurnar sem kemur
sér vel þegar maður glamrar á gítarinn með.
Philips-safapressan mín sem ég keypti
dýrum dómum í einhverju átakinu og
notaði bara einu sinni. Veit að hún á
einhvern tímann eftir að sanna sig.
Pod-hátalarnir mínir, magn-
að sánd og frábært útlit.
Seagull-kassagítarinn
minn er mér alltaf hjart-
fólginn enda fátt betra en
að stunda virka hug-
leiðslu með því að spila á
gítar og raula með,
nágrönnunum til mikillar
ánægju.
Marantz-magnarinn
sem ég keypti dýrum
dómum hefur alltaf
staðið sig með prýði.
Flestar af græjunum sem Valur heldur upp á tengjast tónlist á einhvern hátt.
Morgunblaðið/Ómar
VALUR HEIÐAR SÆVARSSON
Nýtæknióður
TÓNLISTARMAÐURINN VALUR HEIÐAR SÆVARSSON ER MIKILL
GRÆJUMAÐUR. HANN HEFUR MIKINN ÁHUGA Á NÝJUSTU FRÉTTUM
OG TÍÐINDUM ÚR HEIMI TÆKNINNAR. GLERAUGU FRÁ GOOGLE
ER EITTHVAÐ SEM HEILLAR VAL SÉRSTAKLEGA ÞESSA DAGANA.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Sennheiser-heyrnartólin hafa
fylgt mér afar lengi og verið nýtt
við upptökur á nokkrum plötum,
ein af þessum græjum sem verða
bara betri með aldrinum í sam-
anburði við nýjar útgáfur.
Nýja Uber-tölvan. Nördavinirnir mínir
voru farnir að gera grín að mér svo ég
þurfti að kaupa alvöru maskínu til að geta
borið höfuðið hátt. Setti hana síðan saman
sjálfur til að vera viss um að þetta yrði í
lagi … hefði betur sleppt því.
*Græjur og tækniOlivetti blandar sér í slaginn á spjaldtölvumarkaðnum með Olipad sem er græja vikunnar »36