Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2013, Page 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2013, Page 37
og snjallsímar nýtast hins vegar ágætlega til þess, enda með- færilegri en tölvuskjár. Smáforrit á borð við Pocket og Instapaper eru til þess gerð að gera texta sem læsilegastan með því að birta einungis texta, ekki auglýsingar eða myndir eða annað sem truflað getur lesturinn. Þá bjóða þau upp á að breyta leturgerð, leturstærð, spássíum og línubili með einföld- um hætti til gera lesturinn sem ánægjulegastan. Það er jafnan ein- falt að tengja þessi forrit við Go- ogle Reader og þegar þú rekst á grein sem þig langar að lesa, en nennir ómögulega að skrolla í gegnum á tölvuskjánum, þá er hægur leikur að vista hana til að lesa síðar á símanum í góðu tómi. Það er jafnframt hægt að tengja flesta samfélagsmiðla við Google Reader og framendaþjónustur á borð við Feedly og Flipboard. Með því er hægt að deila áhuga- verðum síðum þar sem maður er staddur, án þess að opna til þess sérglugga fyrir Facebook eða aðr- ar þjónustuveitur. Þannig má með einföldum hætti byggja upp sér- sniðið safn af áhugaverðu efni, birta það á þann máta sem best hentar, á því tæki sem best hent- ar, geyma til að lesa síðar eða deila með öðrum, allt með einni og sömu þjónustuveitunni. AFP Spjaldtölvur og snjallsímar nýtast vel til þess að lesa lengri greinar og hægt er að nota smáforrit á borð við Pocket og Instapaper til að gera textann sem læsilegastan. 24.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37 ABC – Alphabet Phonics er smá- forrit ætlað börnum á aldrinum 3-6 ára en í því læra þau bókstafina með hlustun. Auk þess geta börnin sjálf talað inn á forritið og tekið rödd sína upp en sá eiginleiki for- ritsins hefur slegið í gegn hjá ung- viðinu. Forritið má meðal annars nálgast ókeypis á vefsíðunni appland.is. BÓKSTAFIRNIR App fyrir leik- skólaaldurinn Segulljóð er forrit ætlað til ljóða- gerðar og leiks með tungumálið. Í því er hægt að semja ljóð og örsög- ur, tækifæriskveðjur og fleira til. Þá er hægt að breyta útliti ljóðanna svo sem letri, litum og bakgrunni. Þá er útgáfustarfsemi möguleg en hægt er að birta ljóðin á vefsíðunni segulljod.is. Fáanlegt fyrir iPad, iPod touch og iPhone. SKAPANDI SMÁFORRIT Ljóðagerð í símanum Avocado er smáforrit sem hentar efnilegum pörum vel. Forritið er hannað fyrir tveggja manna tal þar sem auðvelt er að deila mynd- böndum, myndum og ýmsu öðru. Einnig er hægt að búa til lista yfir hluti sem gaman væri að gera sam- an. Avocado er hægt að nálgast í App Store fyrir iPhone og hjá Go- ogle Play Store fyrir Android-tæki. Smáforrit fyrir tilhugalífið SPJALLAÐ OG DEILT Smáralind | Sími 512 1330 Laugavegi 182 | Sími 512 1300 Konudagurinn er á sunnudaginn iPad mini Verð frá: 59.990.- Gefðu elskunni þinni gjöf sem gleður

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.