Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2013, Side 47
24.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47
botninn svolítið úr áhuganum mín megin.“
Bryndís „Athugaðu að hann er ekki að grín-
ast með andúð sína á reykingum.“
Fjölnir „Ég vil meina að Bryndís hafi opnað
fyrir að við hittumst frekar eftir sundið með
því að senda mér skilaboð á Facebook. Hún
spurði hvort ég vildi taka hana í reiðkennslu.
Hún vill alls ekki viðurkenna að hún hafi
ætlað sér neina tvíræðni en ég sá alveg í
gegnum þetta.“
Bryndís „Fjölni fannst bikiníið sem ég var í
þegar við hittumst fyrst svo hræðilegt – sem
ég viðurkenni að það var – að hann spyr mig
svona í framhjáhlaupi þegar við förum að
spjalla saman hvaða stærð ég noti af bikiníi.
Næst þegar við ákveðum að hittast í sundi,
og ég er á hlaupabrettinu áður en farið er
ofan í, er ég kölluð upp. Eða það er að segja,
ekki ég, heldur stærðin mín; 34D. Í af-
greiðslunni beið hann mín þá með nýtt bik-
iní.“
Var feiminn við Bryndísi
Bryndís var að vísu skotin í Fjölni töluvert
yngri en þegar þau hittust og hann bauð
henni upp á drykkinn. Þá var hún 14 ára
gömul og Fjölnir var 18. Sem upprennandi
íþróttamaður í snóker hékk Fjölnir á billj-
arðstofu; Billanum svokallaða. Bryndís
skrópaði í tíma í Söngskólanum til að sjá
Fjölni. Hann segist vera feginn að hafa ekki
séð hana fjórtán ára, það sé nú smáheilbrigð-
isvottorð. Fjölnir fæddist árið 1971 og Bryn-
dís er fjórum árum yngri. Í dag hjalar af-
sprengið þeirra á gólfinu. Hann heitir
Fjölnir Már en seinna nafnið er í höfuðið á
æskuvini Fjölnis sem heitir Atli Már.
Fjölnir „Ég tek það fram að Bryndís valdi
nafnið en ekki ég.“
Bryndís „Þú segir það. En já, það kom eig-
inlega ekkert annað til greina. Við vorum bú-
in að máta nokkur nöfn og Fjölnir átti best
við. Ég hef alltaf elskað nafnið. En frá því að
við hittumst þarna fyrst sem unglingar var
alltaf ákaflega hlýtt á milli okkar. Og við
getum rifjað upp ýmis atvik og ég man hvað
mér hlýnaði alltaf allri að innan þegar ég
rakst á hann en Fjölnir var bara auðvitað
alltaf á föstu. Þegar við byrjuðum saman
fannst mér hann næstum vera of flottur fyrir
mig – og af hverju var þetta að gerast allt í
einu núna, eftir öll þessi ár? Þegar ég sá
hann einu sinni þar sem hann hélt á Ólíver
litlum stóð ég mig að því að hugsa; „Já ókei,
það er þá endanlega útséð um að við verðum
nokkurn tíma par.““
Fjölnir „Bryndís vissi greinilega ekki að
þetta var gagnkvæmt. Ég man að ég fór oft
út að borða á Café Óperu, auðvitað alltaf
með einhverja kærustu í eftirdragi, og hún
þjónaði á þeim árum til borðs. Ég varð pínu
feiminn að sjá hana.“
Bryndís „Ég er mjög hissa að ég skuli ekki
hafa sullað smá sósu eða rauðvíni á kærust-
urnar!“
Fjölnir litli fæddist fyrir um fjórum mán-
uðum en fyrir á Bryndís dreng og stúlku og
Fjölnir yngri er þriðji strákurinn sem Fjöln-
ir eldri eignast. Krökkunum kemur vel sam-
an en eftir alvarleg veikindi Bryndísar sem
við ætlum að fara yfir innan skamms hafa
börnin þeirra fjögur verið meira hjá feðrum
sínum og mæðrum meðan Bryndís jafnar sig.
Bryndís „Ási, strákurinn minn, var 12 ára
þegar við Fjölnir fórum að draga okkur sam-
an og þegar ég segi honum að ég sé hrifin af
manni spyr hann mig hvað hann heiti.
„Fjölnir Þorgeirsson,“ svara ég. „Ertu ekki
að grínast mamma?! The Fjoll?“ hrópaði
hann upp yfir sig. „Hann er geðveikt kúl
mamma, æði! Hann bjargaði hesti úr vök og
lét hann stíga á lærið á sér og – í alvöru?
Hann er íslenski draumurinn!“
Hann Ási kom sem sagt ekki af fjöllum
þótt talsvert væri liðið frá því að Fjölnir
hafði unnið þetta frækilega björgunarafrek
árið 2009 á Reykjavíkurtjörn. Hesturinn náði
ekki að fóta sig og klifra upp úr vökinni og
heljarmennið Fjölnir sýndi snör viðbrögð og
lét fákinn stíga á lærið á sér. Eins og í Ís-
lendingasögu.
Sonurinn trúði ekki eigin eyrum
Bryndís segir að allir sem hana þekki viti að
allt gerist hratt í kringum hana. Þau Fjölnir
hófu fljótt sambúð í Hveragerði þar sem
Fjölnir hafði búið síðastliðnu sjö árin á und-
an. Þeim þótti engin ástæða til að teygja lop-
ann eða pína sig bara af því að bókin segði
það heppilegra. Þau eru þó farin að huga að
búferlaflutningum – yfir heiðina í áttina að
Reykjavík. Jafnvel í Hafnarfjörð. Starfs síns
vegna þarf Bryndís að vera nálægt bænum
og Fjölnir segir að þótt heppilegra sé að
vera á Suðurlandi vegna hestamennskunnar
geti hann ritstýrt fréttavef sínum Hesta-
fréttum hvar sem er. Hestafréttum hefur
hann ritstýrt í um átta ár og er þekktur fyr-
ir að vera fyrstur með fréttirnar úr hesta-
heiminum. Hann vinnur dag og nótt að því
að uppfæra síðuna, taka sjónvarpsviðtöl við
knapa, klippa þau til og skrifa texta.
Fjölnir „Þetta er verkefni sem ég hef lagt
sálina í. Og hestaheimurinn fyrirgefur mér
að ég er bæði les- og skrifblindur og þarna
geti slæðst inn villur því ég þekki fagið vel
og sinni þessum heimi af öllu hjarta. Auk
þess má geta þess að með því að stinga mér
út í djúpu laugina og ritstýra vefnum hefur
bæði skrif- og lesblindan lagast mikið. En ég
fann það þegar Bryndís veiktist að ég verð
að njóta aðstoðar við þetta ef eitthvað kemur
upp á og ég hef því fengið fleiri með mér í
lið undanfarið að skrifa á vefinn. Ég vil ekki
að átta ára verkefni deyi með mér ef ég get
ekki sinnt þessu lengur. Nei, Bryndís hefur
ekki farið mikið á bak. Það er ekki ráðlegt
að sitja hest ófrísk.“
Þau eru raunar mjög varkár með allt sem
tengist heilsunni þessa dagana. Þegar Bryn-
dís var komin sjö mánuði á leið fékk hún
blóðtappa í lungun. Hún var orðin mjög veik
þegar hann greindist en þar til hafði hún
fengið að heyra að hún hreyfði sig einfald-
lega ekki nóg á meðgöngunni, væri orðin það
gömul að það að ganga með barn væri ein-
faldlega erfiðara og að lokum var það orðið
svo að Bryndís þurfti að taka sér málhvíld
eftir hvert orð, slík var mæðin. Bryndís telur
að tilviljanir, Fjölnir og ein þekktasta bak-
raddasöngkona Íslands hafi bjargað lífi
hennar.
Bryndís „Þetta var svakalega erfitt. Í fyrstu
var ég endalaust móð og náði varla and-
anum. Á endanum sagði ég við ljósmóðurina
á Selfossi að þetta gæti ekki verið eðlilegt og
ég var send í bæinn í frekari rannsóknir en
líklegt þótti að þetta væri skjaldkirtillinn.
Þennan dag var Fjölnir í jarðarför þar sem
hann bar meðal annars kistuna. Þegar ég
kem upp á spítala er fyrsta manneskjan sem
ég hitti þar fyrir hún Eva Ásrún Alberts-
dóttir söngkona sem jafnframt er ljósmóðir.
Hún horfir alvarleg á mig og segir að hún
hafi enga trú á því að þetta sé skjaldkirtill-
inn og biður sérfræðing um að líta á mig. Sá
„Nei, ég er nú ekki trúaður, því miður. Ég missti trúna þegar bróðir minn dó. En ég get oft séð hvar fólki er illt og fæ stundum hugboð. Ég er mjög
tengdur hestunum mínum og finn yfirleitt á mér ef eitthvað er að í stóðinu, hvort sem einhver er fastur í girðingu eða annað.“
„Bryndís er eina söngkonan sem ég hef verið með. Hinar kunnu ekkert að syngja,“ segir Fjölnir.
Bryndís er hér á æfingu með tilraunabandi sínu; Bad Days, sem Eyvindur Karlsson er í forsvari fyrir.
* „Ég hef komið inn á geðdeild, ég veithvernig hún lítur út að
innan, og veit að þú
býður fólki ekki upp á
veru þar nema komið
sé í öngstræti.“