Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2013, Side 57

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2013, Side 57
24.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57 Inferno er magnað sjálfs- ævisögulegt verk eftir August Strindberg. Þýðing Þórarins Eldjárn á Inferno kom fyrst út árið 1998 og nú kemur verkið út í kilju með eftirmála Þór- arins. Í verkinu er lýst á áhrifa- mikinn hátt andlegum veik- indum rithöfundar sem virðist kominn í öngstræti í starfi og einkalífi. Þetta er gríðarlega vel rituð bók og vel þýdd. Lýsingar Strindbergs á því helvíti sem hugurinn getur skapað eru margar hverjar í senn hroll- vekjandi og hugmyndaríkar – á þann hátt að lesandanum stendur ekki fullkomlega á sama. Strindberg var auðvitað engum líkur. Ógnvekjandi helvíti hugans Bækur Kristínar Marju Baldursdóttur hafa löngum átt miklum vinsældum að fagna hér á landi sem erlendis og hlotið margvíslegar viðurkenningar. Verk hennar hafa komið út á nokkrum tungumálum, meðal annars dönsku, frönsku, ítölsku, sænsku, þýsku og hollensku og fer aðdáendahópurinn sífellt stækkandi. Nú eru það Norðmenn sem láta heillast og hefur norski útgáfurisinn Gyldendal fest sér út- gáfuréttinn á skáldsögunni Kantötu, en áður höfðu þeir keypt réttinn á Karitas – án titils og Óreiðu á striga. Útgáfustjóri Gyldendal hreifst mjög af Kantötu sem hann telur framúrskarandi vel unna og grípandi bók, stofudrama með sterkum persónum og heillandi örlögum þeirra, skrifaða af sálfræðilegu innsæi. Gyldendal er eitt fremsta forlag Norð- manna og státar af því að eiga 56 nóbelsverðlauna- hafa í sínum höfundahópi. Von er á norskri vasabrotsútgáfu á bók Kristín Marju, Karitas – án titils á næstunni, en bókin kom út í júní á síðasta ári og hlaut mikið lof gagn- rýnenda og eindregin meðmæli Herbjargar Wassmo, eins vinsælasta rithöfundar Noregs. Seinni bókin um Karitas, Óreiða á striga, er væntanleg í bókabúðir með vorinu. Kristín Marja Bækur hennar heilla Norðmenn. Morgunblaðið/Einar Falur FRAMÚRSKARANDI KANTATA Allir sannir bókaormar verða að gera sér ferð á Bókamarkað Fé- lags íslenskra bókaútgefenda í Perlunni. Í samanlagðri sögu mark- aðarins hafa aldrei verið jafnmargar bækur til sölu og nú. Þessi stærsti bókamarkaður allra tíma er líka sögulegur vegna þess að nú er hann haldinn í Perlunni í síðasta sinn. Bókamarkaður Félags bókaútgef- enda hefur í hartnær tvo áratugi átt sér vísan samastað ár hvert í hinni stórglæsilegu Perlu, efst á tindi Öskjuhlíðar. Perlan er óumdeilt eitt þekktasta kennileiti landsins og ein af táknmyndum Reykjavíkur. Á út- mánuðum ár hvert breytist hún í hof bókanna þegar yfir 10.000 bókatitlar eru þar falboðnir, öllum bókaunnendum til ómældrar gleði. Í augum tugþúsunda fjölskyldna er ferðin á bóka- markaðinn árviss stórviðburður. Og í nærri aldarfjórðung hefur ekki þurft að vefjast fyrir neinum að ferðinni er heitið í Perluna. Bókamarkaðurinn og Perlan hafa verið nánast órjúf- anleg heild. En nú er komið að leiðarlokum. Þar sem Perlan hefur verið seld Reykjavíkurborg liggur fyr- ir að Bókamarkaðurinn verður ekki haldinn þar framar. Perlan hýsir nú Bókamarkað Félags ís- lenskra bókaútgefenda í síðasta sinn. Óvíst er um framtíðarstaðsetningu markaðarins.. STÆRSTI BÓKAMARKAÐUR ALLRA TÍMA Bókamarkaðurinn er haldinn í Perlunni í síðasta sinn. Hinir fjöl- mörgu aðdá- endur norska glæpasagna- höfundarins Jo Nesbø bíða alltaf spenntir eft- ir næstu bók þessa frá- bæra höfundar. Nú fá íslenskir lesendur Brynhjarta, rúmlega 700 blaðsíðna spennubók og ekki er að spyrja að viðtökum því bókin fór samstundis í fyrsta sæti metsölulista Eymundsson. Þarmeð hafa allar sjö bækur Nesbø sem þýddar hafa verið á íslensku náð fyrsta sæti met- sölulistans. Jo Nesbø á toppnum með Brynhjarta Illska, helvíti, spenna og svefn NÝJAR BÆKUR VERÐLAUNABÓKIN ILLSKA EFTIR EIRÍK ÖRN NORÐDAHL ER KOMIN ÚT Í KILJU OG HIÐ FRÆGA VERK INFERNO EFTIR STRINDBERG RATAR SÖMULEIÐIS Í KILJUÚTGÁFU. HINN NORSKI NESBØ SKUNDAR SVO Á TOPP MET- SÖLULISTANS MEÐ NÝJA SPENNUBÓK. ÞEIR SEM ÞRÁ GÓÐAN SVEFN FÁ SVO BÓK VIÐ HÆFI. Skáldsagan Illska eftir Eirík Örn Norðdahl hlaut Íslensku bók- menntaverðlaunin 2012 og Bóksalaverðlaunin sem besta skáldverk þess árs. Sagan er komin út í aðgengilegri kilju. Ein aðalpersóna bókarinnar er Agnes Lukauskaite sem hefur gert helförina að miðpunkti lífs síns og sú þráhyggja leiðir hana á fund ísfirska nýnasistans Arnórs. Verðlaunabókin Illska í kilju Sofum betur – Vöknum endurnærð á hverjum morgni er bók eftir Karen Williamson þar sem hún kynnir 52 aðferðir sem leggja fólki lið í baráttunni gegn viðvarandi svefnvanda. Fátt er jafn lýjandi og að glíma við svefnleysi sem hefur margvíslegar afleiðingar. Þeir sem stríða við langvarandi andvökur, martraðir, þráláta fótaóeirð eða kæfisvefn eiga að leita ráða í þessari bók. Viltu sofa betur og endurnærast? * „Afstaðan til Guðs stundum eins ogkennarans: maður horfir niður í borðplötuna til að verða ekki tekinn upp.“ Pétur Gunnarsson BÓKSALA 13.-19. FEBRÚAR Allar bækur Listinn er byggður á upplýsingum Eymundsson 1 Brynhjarta - kiljaJo Nesbø 2 Fimmtíu skuggar frelsis - kiljaE.L. James 3 Illska - kiljaEiríkur Örn Norðdahl 4 Iceland Small World - small ed.Sigurgeir Sigurjónsson 5 Að velja gleðiKay Pollak 6 Lilli klifurmús og hin dýrin íHálsaskógi Thorbjörn Egner 7 Risasyrpa - Hetjur AndabæjarWalt Disney 8 Ástir - kiljaJavíer Marías 9 ÓsjálfráttAuður Jónsdóttir 10 Iðrun - kiljaHanne-Vibeke Holst Kiljur 1 BrynhjartaJo Nesbø 2 Fimmtíu skuggar frelsisE.L. James 3 IllskaEiríkur Örn Norðdahl 4 ÁstirJavier Marías 5 IðrunHanne-Vibeke Holst 6 AriasmanTapio Koivukari 7 Hin ótrúlega pílagrímsgangaHarolds Fry Rachel Joyce 8 Rigning í nóvemberAuður Ava Ólafsdóttir 9 IndjáninnJón Gnarr 10 JójóSteinunn Sigurðardóttir MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR Auðurinn er afl þeirra hluta sem gera skal.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.