Morgunblaðið - 06.04.2013, Page 10

Morgunblaðið - 06.04.2013, Page 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2013 Virðing Réttlæti F í t o n / S Í A VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík, miðvikudaginn 17. apríl nk. og hefst kl. 19:30. AðalfundurVR Dagskrá Venjuleg aðalfundarstörf Innborgun í VR varasjóð Ann Fulton er konan á bak við vefsíð- una www.fountainvenuekitchen.com. Er nafnið dregið af staðnum þar sem áhugi Ann á matreiðslu kviknaði fyrst, í eldhúsinu hjá ömmu hennar á Fountain Avenue. Vefsíðan er gull- kista fyrir mataráhugafólk sem finnst gaman að blaða, skoða og pæla í uppskriftum enda er hér alveg meira en nóg af þeim. Ein nýjasta uppskriftin á síðunni er að girnilega stökkum kartöflum sem dreift er yfir parmesanosti og graslauk. Slíkt get- ur verið mjög gott í forrétt með smá- vegis sýrðum rjóma eða sem meðlæti með kjöti. Einnig má hér finna snúða með gorgonzolaosti, púrru og fleira góðgæti. Margar uppskriftirnar eru byggðar á eða innblásnar af matar- gerð ömmu Ann sem er skemmti- legur mataráhugabloggari. Vefsíðan www.fountainavenuekitchen.com Kvöldmatur Börn fá snemma áhuga á matargerð og vilja fá að vera með. Úr eldhúsinu hennar ömmu Oft vill það henda að maður van- metur sitt nánasta umhverfi því mað- ur er orðinn svo vanur því. En prófaðu að fara í alvöru spássitúr og athug- aðu hvort þú sjáir ekki eitthvað nýtt. Stundum gleymir maður t.d. að horfa upp eftir byggingum en á toppi og þökum eru oft fallegar skreytingar sem fara fram hjá vegfarendum sem skjótast á milli húsa. Í góðu veðri er líka hægt að taka með sér kaffibrúsa og kex og nýta sér að setjast á bekk rétt við húsið sitt í friðsælu umhverfi. Heima er best og getur orðið enn betra ef við nýtum okkur alla þá möguleika sem nærumhverfið hefur. Endilega… …rannsökum nærumhverfið Morgunblaðið/Ernir Rölt Njótum náttúru og umhverfis. Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is Ég var á námskeiði í skól-anum og þurfti að geraenn eitt verkefnið. Þá fórég að gúgla og datt niður á síðu þar sem kona var að sauma töskur úr snakkpokum. Það kveikti hjá mér hugmynd að prófa að búa til eina tösku úr Capri Sonne-fernum,“ segir Kristín Garðarsdóttir grunn- skólakennari sem segist þó hafa lít- inn tíma fyrir þetta áhugamál sitt sökum anna í meistaranáminu. Kristín fór í kjölfarið að skoða fleiri umbúðir og prófaði að sauma tösku úr M&M-pokum. „Mér fannst það koma rosaleg vel út. Svo er ég að prófa kaffipoka núna. Ég hef prófað að gera tösku úr snakkpokum en var ekki nógu ánægð með útkomuna svo ég henti henni.“ Töskurnar vekja athygli Eftir að Kristín uppgötvaði M&M-pokana fór hún að reyna að gera litar buddur úr þeim líka. „Fyrsta buddan sem ég gerði var al- veg rosalega ljót og þá skoðaði ég buddur hjá stelpunni minni og sá að rennilásinn stóð út fyrir og ákvað að prófa það og mér fannst það koma mjög vel út. Þetta er alveg rosalega sterkt. Capri Sonne-taskan mín er orðin þriggja ára og ég er alltaf að þvælast með hana út um allt.“ Í fyrsta skiptið sem Kristín fór með Capri Sonne-töskuna í skólann flykktust krakkarnir að henni. „Þau voru öll að stoppa mig og spyrja mig út í töskuna og báðu um að fá að gera svona sjálf og höfðu mikinn Nýtir safafernur og sælgætispoka Í litlu húsi í Hafnarfirðinum leynast gersemar gerðar úr efni sem flestir hefðu fleygt. Töskur úr djúsfernum, buddur úr sælgætispokum, hálsmen úr gömlum sníðapappír, óróar úr hnífapörum, kjólar úr gömlum karlmannsskyrtum, koddar úr slitnum lopapeysum og svo mætti lengi telja. Kristín Garðarsdóttir, grunn- skólakennari, sér fegurð í hlutum sem aðrir losa sig við. Morgunblaðið/Ómar Skyrtukjóll Kristín Garðarsdóttir saumar kjóla úr gömlum skyrtum ásamt systur sinni og segir það töluverða kúnst. Hér er hún í einum slíkum. Í tilefni af Viku franskrar tungu býður franska sendiráðið til tón- leika með franskri tónlist frá lokum 19. aldar. Verkin verða flutt af tónlistarmönnum í fremstu röð en í hópi þeirra verður virtur fiðluleikari og hljómsveitarstjóri frá París. Verndari tónleikanna er fyrrverandi forseti Íslands, frú Vigdís Finnboga- dóttir. Flutningur er í höndum þeirra Amine Kouider, fiðla, Marion Her- rera, harpa, Frédéric Raibaud, píanó og um söng sjá tenórinn Þórarinn Jóhannes Ólafsson og sópraninn Íris Hrund Þórarinsdóttir. Meðal verka á efnisskrá má nefna verkið Arabesque eftir Claude Debussy á hörpu, Fantaisie opus 124 á víólu og hörpu eftir Camille Saint-Saëns, La vie en Rose eftir þau Edith Piaf og Louiguy sungið af sópran og spilað á hörpu. Nánari upplýsingar um tónleikana má nálg- ast á vefsíðu franska sendiráðsins, www.ambafrance-is.org. Vika franskrar tungu Hljómsveitarstjóri frá París leikur á tónleikum í Hörpunni Morgunblaðið/Ásdís Tilþrif Brynhildur Guðjónsdóttir í hlutverki frönsku söngkonunnar Edith Piaf. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.