Morgunblaðið - 06.04.2013, Side 37
UMRÆÐAN 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2013
Nú nýverið skrifuðu
tveir samfylking-
armenn undir sam-
komulag um kaup
Reykjavíkurborgar á
landi ríkisins í Vatns-
mýrinni í þeim tilgangi
að geta lagt niður SV-
NA brautina á Reykja-
víkurflugvelli svo þar
megi sem fyrst skipu-
leggja og hefja fram-
kvæmdir á fjölmennri íbúðabyggð.
Baktjaldamakk
Hér voru á ferðinni núverandi og
fyrrverandi varaformenn Samfylk-
ingarinnar, fjármálaráðherrann sem
skrifaði undir samkomulagið fyrir
hönd ríkisins, og formaður borg-
arráðs fyrir hönd
Reykjavíkurborgar.
Það vekur furðu að
fjármálaráðherra skrif-
aði undir þetta sam-
komulag, án vitundar
og í óþökk innanrík-
isráðherra, og á sama
tíma og ráðherrann er
að útvega sér pappa-
kassa til að taka saman
pjönkur sínar á skrif-
stofunni. Á þessu stigi
málsins hljótum við því
að spyrja hver sé
ástæðan fyrir þessu samkomulagi,
einmitt nú?
Jú, þau ætla sér augljóslega að
koma aftan að borgarbúum og lands-
mönnum í þessu mikilvæga máli.
Þau ætla sér að koma í veg fyrir að
meirihluti Reykvíkinga og Íslend-
inga hafi nokkuð um það að segja,
hvort innanlandsflugvöllurinn hverfi
úr Vatnsmýrinni og hvert völlurinn
verður þá fluttur. Samkvæmt fjölda
skoðanakannana á undanförnum
misserum er meirihluti Reykvík-
inga, sem og mikill meirihluti Ís-
lendinga, hvar á landinu sem þeir
búa, þeirrar skoðunar, að flugvöll-
urinn sé best staðsettur í Vatnsmýr-
inni.
Þetta vita þau Dagur B. Eggerts-
son og Katrín Júlíusdóttir. Þau vita
einnig að samkvæmt nýlegum at-
hugunum er Hólmsheiðin nánast úti-
lokaður möguleiki fyrir innanlands-
flugvöll. Af þessu leiðir augljóslega
að innanlandsflugið mun á endanum
flytjast til Keflavíkur. Mótrök gegn
slíkri firru eru, og hafa lengi verið
yfirgnæfandi, hvað sem öllu leyni-
makki líður.
Hagsmunir Reykvíkinga
Ég hef alla tíð verið þeirrar skoð-
unar að flutningur á innanlandsflug-
inu úr Vatnsmýrinni í nánustu fram-
tíð sé afar óraunhæfur og stríði gegn
hagsmunum Reykvíkinga. Á
Reykjavíkurborg að láta frá sér allar
þær tekjur sem flugvöllurinn aflar
nú og mun meiri möguleika sem nú
eru fyrir hendi í þeim efnum? Eiga
u.þ.b.400 þúsund farþegar sem fara
um Reykjavíkurflugvöll á hverju ári
að greiða umtalsverðan kostnað í
tíma og fjármunum til að komast frá
flugvelli og í miðborg Reykjavíkur?
Eigum við að draga stórlega úr ör-
yggi sjúklinga sem koma með
sjúkraflugi af landsbyggðinni með
því að lengja ferðatíma þeirra um-
talsvert? Eiga skattgreiðendur að
leggja núna í kostnað við nýjan flug-
völl sem mun augljóslega hlaupa á
tugum milljarða króna á sama tíma
og heilbrigðiskerfið stendur á brauð-
fótum og skorið hefur verið niður í
menntakerfinu og löggæslu?
Þetta er ekki í fyrsta og ekki í
annað sinn á undanförnum fjórum
árum sem ráðamenn Samfylkingar
ætla sér með bolabrögðum og bak-
tjaldamakki að skauta með sérvisku
sína fram hjá meirihlutavilja kjós-
enda í þeirra mikilvægustu málum –
og í trássi við hagsmuni þeirra og
faglegar röksemdir. Þau sem hæst
hafa kvakað um lýðræði, gegnsæi og
fagleg vinnubrögð hafa því miður
reynst helstu andstæðingar þeirra
gilda.
Meirihlutinn læðist bakdyramegin
Eftir Mörtu
Guðjónsdóttur »Eiga skattgreið-
endur að leggja
núna í kostnað við nýjan
flugvöll sem mun aug-
ljóslega hlaupa á tugum
milljarða króna?
Marta Guðjónsdóttir
Höfundur er varaborgarfulltrúi.
Ekki get ég ímyndað mér að nokkurt
íslenskt heimili hafi kjark í sér til að
kjósa VG, Samfylkinguna eða Bjarta
framtíð í næstu
kosningum. Það er
alltaf að koma bet-
ur og betur í ljós
að það var aldrei
vilji hjá velferð-
arstjórninni til
raunhæfra að-
gerða í skulda-
málum heimilanna
af einhverjum
óskiljanlegum
ástæðum og þetta verður að rannsaka.
Var það tengt ESB eða var önnur
ástæða? Þess í stað vísa þau varn-
arlausum heimilum þúsundum saman
á dómstóla landsins, eða á guð og
gaddinn, algerlega að óþörfu og það
sorglega við þetta er að það átti auð-
vitað að taka á þessum málum strax
eins og þetta fólk lofaði með skjald-
borg heimilanna. Það var hægt að fara
ótal leiðir sem ég hef margoft talið upp
hér áður. Þetta fólk gæti ekki rekið
hænsnabú í hálfan mánuð án þess að
setja það beint á hausinn.
Þar fóru fjögur ár beint út um
gluggann að óþörfu og er þetta með
algjörum ólíkindum. Velferðarstjórnin
má eiga það að þau eru góð í almanna-
tengslum og einhverjum spunadansi
en þar með er það upptalið því þetta
fólk kann ekkert til verka. Ekkert.
Þetta fer næst því að flokkast sem
landráð.
Hér á landi ríkir neyðarástand í
þessum málum, þar sem þúsundir
berjast fyrir lífi sínu og framtíð. Er
ekki fullt tilefni til að okkar ágætu
fréttamenn á RÚV kynntu sér þessi
mál frá A-Ö eftir hrun? Ég vil t.d.
benda þeim á eignarhald Seðlabank-
ans og dótturfélaga hans á Dróma.
Mætti ekki kíkja á það?
Staða heimilanna í dag er ekkert
endilega eins og hún er vegna hruns-
ins heldur fyrst og fremst vegna
heimskulegra vinnubragða velferð-
arstjórnarinnar. Svo er til fólk sem
kallar það lýðskrum og ábyrgðarleysi
að tala eða skrifa um að þýfinu skuli
skilað. Er það sama fólkið og vildi
borga IceSave?
Gott fólk. Skjaldborgin var aldrei
byggð, hún var bara innantómt orð.
Fornleifafræðingar framtíðarinnar
munu því aðeins finna hana að við
byggjum hana sjálf í næstu kosn-
ingum. Ég vil benda á flokka sem
berjast fyrir heimilin eins og t.d.
Flokk heimilanna, Hægri-græna og
Framsóknarflokkinn, en meiri spurn-
ing er hvar Sjálfstæðisflokkurinn
stendur.
Að gefnu tilefni vil ég að lokum
þakka þau skilaboð og símtöl sem ég
hef fengið frá fólki sem bendir mér á
að fara með mín mál til umboðsmanns
skuldara frekar en að skrifa þessar
greinar í blöðin undanfarin fjögur ár
vegna lánamála heimilanna. Við þetta
fólk vil ég segja að ég skulda hvorki
erlent né verðtryggt lán en ég hef séð
hvert stefnt hefur fyrir tugi þúsunda
Íslendinga síðustu fjögur ár með að-
gerðarleysi í boði þessarar skaðræðis-
velferðarstjórnar.
Það tapa allir á því að ekki var tekið
strax á málefnum heimilanna; lífeyr-
issjóðirnir, Íbúðalánasjóður, bank-
arnir og, ekki síst, þjóðin sjálf undir
forystu velferðarstjórnarinnar.
HALLDÓR ÚLFARSSON,
Mosfellsbæ. doriulfars@gmail.com
Finna fornleifafræðingar skjaldborgina?
Frá Halldóri Úlfarssyni
Halldór Úlfarsson
Bréf til blaðsins
Ármúla 38 | Sími 588 5011 | Opið: virka daga 11-18, laugard. 12-14
MEÐ FJARSTÝRINGU
Verð nú 39.990,-
Verð áður 64.500,-
Verð nú 39.990,-
Verð áður 64.500,-
MEÐ FJARSTÝRINGU
fermingargjöfin...