Morgunblaðið - 26.04.2013, Síða 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2013
VORHREINSUN
avegur 40, 101 Reykjavík
olcano@volcanodesign.is
www.volcanodesign.is
S: 5880100
Laug
v40%
Humarhúsið
101 Reykjavík · humarhusid@humarhusid.is
Amtmannsstíg 1 sími: 561·3303
Þegar njóta á
kvöldsins...
Sóttvarnaeftirlit Taívans staðfesti á
miðvikudag að 53 ára gamall taív-
anskur karlmaður, sem hafði verið
við vinnu í borginni Suzhou í Kína,
sýndi einkenni H7N9-fuglaflensunn-
ar. Maðurinn hefði legið inni á spít-
ala frá 16. apríl og ástand hans væri
alvarlegt en stöðugt.
Fram kom í heilbrigðisvísinda-
tímaritinu The Lancet í gær að kín-
verskir vísindamenn hefðu staðfest
að vírusinn bærist í menn úr fiðurfé
en að enn sem komið væri benti ekk-
ert til þess að hann smitaðist manna
á milli.
Sérfræðingar Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar, WHO, segja vírus-
inn sérstaklega hættulegan og hafa
stjórnvöld víða í Asíu biðlað til borg-
ara sinna um að hlíta leiðbeiningum
WHO, s.s. að forðast snertingu við
lifandi fiðurfé.
Í Japan, Suður-Kóreu, Hong
Kong og á Filippseyjum hafa stjórn-
völd m.a. gripið til þess ráðs að nota
hitanema til að bera kennsl á ferða-
menn með hita en gert er ráð fyrir að
margir verði á faraldsfæti í næstu
viku, í kringum dag verkalýðsins.
Fyrsta tilfellið utan
meginlands Kína
H7N9 smitast
frá fiðurfé í menn H7N9 fuglaflensan
112 tilfelli
23 dauðsföll
Heildarfjöldi smitaðra 25. apríl
Tilkynnt um fyrsta tilfellið utan meginlands Kína sl. miðvikudag
Heimild: ríkisfjölmiðlar/opinber gögn/WHO
H7N9
Afbrigði H7 inflúensu-
vírusa sem berast
milli fugla
Tilkynnt var um fyrstu dauðsföllin
af völdum H7N9 í febrúar en
þetta mun vera í fyrsta sinn sem
vitað er að afbrigðið finnist í mönnum
Talið er að vírusinn smitist frá fiðurfé
í menn en ekki er vitað til þess að
hann hafi borist manna á milli
SJANGHÆ
33/12
JIANGSU
24/4
HENAN
4
SHANDONG
1
PEKING
1
ANHUI
4/1 ZHEJIANG
44/6
1
TAÍVAN
KÍNA
Einkenna sjúkdómsins
varð vart hjá manni í
Taívan, þremur dögum
eftir að hann snéri aftur
frá Jiangsu-héraði í Kína
Alls eru nú 92 fangar af 166 í Guant-
anamo-fangelsinu í hungurverkfalli.
Þar af fá sautján næringu í æð og
tveir hafa verið lagðir inn á spítala en
eru ekki í lífshættu, að sögn tals-
manns fangelsisins, Samuel House.
Með hungurverkfallinu eru fangarnir
að mótmæla því að vera haldið í fang-
elsinu án ákæru og réttarhalda.
Nokkrir fangar hófu hungurverk-
fall 6. febrúar síðastliðinn en síðan
hefur fjöldinn varið vaxandi. David
Remes, lögmaður fimmtán fanganna,
segir að fangelsisyfirvöld hafi framan
af ekki viljað viðurkenna að fangarnir
væru í hungurverkfalli og raunveru-
legur fjöldi sé nær því að vera 130.
Í samtali við fréttaveituna AFP við-
urkenndi talsmaður fangelsisins,
House, að tveir fangar hefðu gert til-
raun til sjálfsvígs 13. apríl síðastlið-
inn, þegar um sextíu fangar voru
fluttir úr sameiginlegum klefum í ein-
staklingsklefa. Aðeins tíu til fimmtán
fangar væru enn í sameiginlegum
klefum.
Talsmaðurinn sagði marga fangana
neita að fara eftir reglum fangelsis-
ins. „Sumir þeirra hafa haldið áfram
að kasta saur, þvagi og blóði að vörð-
unum,“ sagði hann. Um leið og fang-
arnir sýndu tilhlýðilega hlýðni við
reglurnar yrðu þeir fluttir aftur í
sameiginlega klefa.
AFP
Fangar Aðgerðasinnar í Bandaríkjunum efndu til mótmæla fyrr í mán-
uðinum þar sem þeir fóru m.a. fram á að fangelsinu yrði lokað.
92 fangar af 166
í hungurverkfalli
Dzhokhar og Tamerlan Tsarnaev,
bræðurnir sem grunaðir eru um
sprengjuárásina í Boston-
maraþoninu, hugðust keyra frá
Boston til New York og nota þær
sprengjur sem þeir áttu eftir þar.
Michael Bloomberg, borgarstjóri
New York-borgar, sagði í gær að
á flótta undan lögreglunni síðast-
liðinn fimmtudag hefðu bræðurnir
skyndilega ákveðið að aka til New
York og nota þær sprengjur sem
þeir höfðu með sér í stolinni
Mercedes-bifreið til að gera árás á
Times Square.
Sagði Bloom-
berg þetta
skelfilega
áminningu um
að borgin væri
enn skotmark
hryðjuverka-
manna.
Áætlun bræðr-
ana varð að
engu þegar bif-
reiðin varð bens-
ínlaus og eigandi hennar slapp og
hringdi í lögreglu.
Foreldrar Dzhokhar og Tamerl-
an ræddu við blaðamenn í borg-
inni Makhachkala í Rússlandi í
gær þar sem Zubeidat Tsarnaeva
sakaði bandarísk stjórnvöld um að
hafa myrt son sinn.
„Hann var lifandi! Af hverju
þurftu þeir að drepa hann? Af
hverju? Þeir náðu honum lifandi,“
sagði móðir drengjanna um hand-
töku og dauða eldri sonar síns Ta-
merlan. Þá ítrekaði hún að synir
hennar væru saklausir. „Ég veit
eitt, að börnin mín gerðu þetta
ekki,“ sagði hún og harmaði að
hafa flutt til Bandaríkjanna.
Dzhokhar
Tsarnaev
Hugðu á árás á Times Square