Morgunblaðið - 26.04.2013, Síða 37

Morgunblaðið - 26.04.2013, Síða 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2013 Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Alúð - virðing - traust Áratuga reynsla Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn ✝ HallgrímurMatthíasson fæddist á Patreks- firði 7. nóvember 1932. Hann lést á Landspítalanum 18. apríl 2013. Foreldrar hans voru Guðbjörg Steinunn Guð- mundsdóttir, f. 5.8. 1874, d. 27.6. 1967 og Matthías Pétur Guðmundsson, f. 22.2. 1888, d. 8.7. 1964. Hann var einn tólf systkina, eftirlifandi er Jón Matthíasson, f. 20.8. 1931. Hallgrímur kvæntist 17.3. 1956 Hrafnhildi Guðjónsdóttur frá Patreksfirði, f. 7.3. 1937, foreldrar hennar voru María Jóakimsdóttir og Guðjón Guð- jónsson. Börn Hallgríms og Hrafnhildar eru: 1) Guðjón, f. 1956, fyrrv. m. Ingveldur Birna Anna María og Svava Rós. 7) Hallgrímur, f. 1966, maki Maj- ken Hallgrímsson, f. 1974, börn þeirra eru Emelia, Hannah og Jonas. Barnabarnabörn Hall- gríms og Hrafnhildar eru þrett- án talsins. Hallgrímur ólst upp á Pat- reksfirði og átti þar allan sinn starfsferil. Hann stundaði sjó- mennsku frá fjórtán ára aldri. Skipstjórnarprófi frá Stýri- mannaskólanum lauk hann 1957 og starfaði sem stýrimaður á ýmsum fiskiskipum allt til árs- ins 1967 er hann hætti sjó- mennsku og hóf versl- unarrekstur með tengdaföður sínum í versluninni Kjöt og Fiskur. Hrafnhildur og Hall- grímur tóku alfarið við versl- uninni 1986 og ráku hana fram til 1998 en sama ár flytja þau frá Patreksfirði í Lækjarsmár- ann í Kópavogi. Hallgrímur var mikill áhugamaður um golf og stundaði íþróttina af kappi ásamt spilafélögum sínum í GKG. Útför Hallgríms fer fram frá Digraneskirkju í dag, 26. apríl 2013, og hefst athöfnin kl. 13. Björnsdóttir, f. 1958, börn þeirra eru Björn og Hrafnhildur. 2) Davíð Jens, f. 1957, maki Sesselja Sig- urðardóttir, f. 1962, börn þeirra eru Eyrún Anna og Matthías Pétur. 3) María Margrét, f. 1958, maki Tómas Eyjólfsson, f. 1955, börn þeirra eru Eygló, Hall- grímur og Eyjólfur. 4) Pétur Steinar, f. 1960, maki Eygló Tryggvadóttir, f. 1961, börn þeirra Sandra Lind (d. 2009) og Sunna Lind. 5) Arna, f. 1961, maki Magnar Sæten, f. 1960, börn þeirra eru Hildur, Anita og Silje. 6) Guðmundur Krist- inn, f. 1962, maki Sigurrós Birna Bjõrnsdóttir, f. 1961, börn þeirra eru Guðjón Hrafn, Nú hefur hann faðir minn fengið hvíldina sem hann þráði. Þessum vinnusama, hægláta og ljúfa manni fannst nóg komið og láir honum það enginn þótt sárt sé. Á unglingsárum þótti mér hann strangur en samt alltaf blíður í sér og gott að leita til hans. Það var ekki fyrr en mörgum árum seinna að ég sá hlutina í réttu ljósi og þau góðu gildi sem hann lagði áherslu á. Ég hef sjálfsagt ekki alltaf ver- ið honum auðveldur, þar sem ég vildi sífellt prófa mig áfram, þá sérstaklega í íþróttum sem þörfnuðust ýmiskonar útbúnað- ar sem ekki var alltaf auðvelt að útvega á stóru heimili eins og okkar. Við vorum því ekki alltaf sammála um forgangsröð- unina. Heimilisreksturinn hefur örugglega ekki alltaf verið auð- veldur, en þó var alls ekki neinn skortur á heimilinu. Það má segja að ég hafi kynnst nýrri hlið á pabba þegar hann uppgötvaði golfið. Við gát- um talað endalaust um golfið og ýmislegt tengt því. Við vorum oft skammaðir fyrir að „tala um ekkert annað en golf“ en við létum það ekki stoppa okkur, ástríða okkar á golfinu var slík. Pabbi hafði sína spilafélaga á virkum dögum og því spiluðum við ekki oft saman en þegar við gerðum það – þá var gaman, þvílíkar gæðastundir. Okkur dreymdi um að fara saman í golfferð, en af því varð ekki, við tökum golfhring „í öðru landi“ einhvern tímann seinna. Þegar litið er til baka hrann- ast upp margar minningar um þig, pabbi minn, sem eiga það sammerkt að vera ljúfar og góðar. Ég kveð þig með sökn- uði. Kveðja, Guðmundur. Í dag kveðjum við elskulegan tengdaföður minn Hallgrím Matthíasson frá Patreksfirði. Kynni mín af Hallgrími hófust um miðjan níunda áratuginn, þegar ég og Mummi sonur hans og eiginkonu Hrafnhildar Guð- jónsdóttur, rugluðum saman reytum. Mér er það ferskt í minning- unni þegar ég kom fyrst inn á heimili þeirra hjóna á Patreks- firði, hversu vel hann tók á móti mér. Hallgrímur var ein- staklega ljúfur og hæglátur maður en jafnframt mjög ákveðinn og stóð við sitt. Það var afskaplega gott og gaman að heimsækja þau til Patreks- fjarðar og eigum við fjölskyldan margar góðar minningar frá þeim tíma. Börnin okkar höfðu yndi af því að heimsækja afa og ömmu á Patró. Ekki spillti fyrir að afi átti aðalbúðina á Patró og vann þar myrkranna á milli. Við fjölskyldan minnumst þess oft hvað þeim þótti það merki- legt að í afabúð þyrfti ekkert að borga fyrir ísana sem voru ófá- ir. Hallgrímur og Hrafnhildur bjuggu lengst af á Patreksfirði en fluttu í Kópavog árið 1998. Okkur þótti virkilega gott að fá þau nær okkur, þó svo að ferð- irnar á Patró hafi verið ynd- islegar. Hallgrímur byrjaði að stunda golf síðustu árin á Patró og hélt því áfram eftir að hann flutti í Kópavog. Hann var fé- lagi í GKG og spilaði nánast daglega allt árið. Við göntuð- umst oft með það að hann væri eini atvinnumaðurinn í golfi í fjölskyldunni. En nú er komið að kveðjustund, elsku tengda- pabbi, og ég veit að nú líður þér betur. Mig langar að þakka þér fyrir allar yndislegu stundirnar sem við áttum saman og megi minning um þig lifa í hjarta mínu. Elsku tengdamamma, megi góði guð styrkja þig í sorg þinni því missir þinn er mikill. Sigurrós B. Björnsdóttir. Elsku besti afi. Orð fá því ekki lýst hversu leið við systkinin erum yfir því að þú sért farinn frá okkur og hversu mikið við eigum eftir að sakna þín. Eins og við eigum erfitt með að sætta okkur við að þú sért farinn, þá auðveldar það okkur að vita að þú ert á góðum stað og hefur það von- andi betra. Við munum aldrei gleyma góðu minningunum sem við eig- um um þig. Það tæki okkur sennilega mörg ár ef ég skrifaði niður allar þær góðu stundir sem ég átti með þér en ætla að nefna nokkrar hér. Við systk- inin komum í ófáar heimsóknir til ykkar ömmu á Patreksfjörð. Það var einn af hápunktum sumarsins þegar maður fór með mömmu og pabba til ykkar. Eitt það sem skemmtilegast var að gera hjá ykkur var að leika úti og hlaupa niður í búð til þín og fá ís og hanga tímunum sam- an með þér í búðinni. Ekki fannst okkur systkinunum leið- inlegt þegar þið fluttuð í bæinn til okkar og við fengum að hitta ykkur mun oftar. Þið voruð samt alltaf afi og amma á Patró fyrir okkur. Okkur fannst mjög gaman að koma til þín og spjalla við þig um meðal annars golf, því það var eitt af því sem þér fannst skemmtilegt að gera. Einnig var mjög gaman að fara með ykkur upp í sum- arbústað í Svínadalnum. Fara í golf og borða góðan mat. Það var alltaf gaman að vera í kringum þig og fékkstu okkur oft til að brosa með nærveru þinni. Elsku afi okkar, við eigum eftir að sakna þín mjög mikið og kveðjum þig með miklum söknuði í hjarta okkar. Við munum minnast þín með hlýjum hug og væntumþykju, því við eigum svo margar góðar minningar um þig. Elsku amma okkar, megi guð styrkja þig á þessari erfiðu stund. Hvíldu í friði, elsku afi. Þín afabörn, Guðjón Hrafn, Anna María og Svava Rós. Nú er hann elsku afi Halli búinn að kveðja þennan heim eftir hetjulega baráttu. Margs er að minnast. Allar heimsóknirnar á sumr- in til ömmu Löbbu og afa Halla koma fyrst upp í hugann. Það var alltaf mikil tilhlökkun hjá okkur systkinunum að koma vestur. Það var algjört ævintýri fyrir okkur borgarbörnin að vera á Patró, meira frelsi ein- hvern veginn. Amma og afi tóku alltaf vel á móti okkur fjöl- skyldunni, voru alltaf jafn hlý og góð og þar gátum við verið eins og heima hjá okkur. Í minningunni var afi Halli mikið í vinnunni, í búðinni sinni Kjöti og fiski. Það var mjög spennandi að fá að koma með afa niður í búð og þá sérstak- lega eftir lokun, þá var hægt að fara í búðarleik og ekki skemmdi fyrir að fá að velja sér nammi áður en við fórum aftur heim, það var toppurinn. Eitt sumarið fyrir vestan átti ég erfitt með að sofna á kvöld- in. Afi Halli kunni ráð við því, hann gaf mér kakómalt, hann sagði það besta svefnmeðalið og það virkaði. Ég hef sennilega komið fram á hverju einasta kvöldi í þessari heimsókn og sagst ekki getað sofnað til þess að fá kakómalt hjá afa, gæða- stundir sem gleymast ekki. Margar fleiri góðar minning- ar koma upp í hugann þegar ég hugsa um afa Halla. Sumarbú- staðarferðirnar bæði fyrir vest- an og í Svínadalnum, verslunar- mannahelgarnar, golfmót fjölskyldunnar, skötuveislan á Þorláksmessu, heimsóknir í Lækjasmárann þar sem alltaf er tekið vel á móti okkur með faðmlagi og bakkelsinu hennar ömmu. Afi Halli var barngóður maður og tók ég sérstaklega eftir því er ég eignaðist dætur mínar hversu mikið hann hafði gaman af því að hafa börnin í kringum sig og hvað þau voru ánægð með hann. Þegar ég sagði Maríu minni að afi Halli væri dáinn þá sagði hún: „En hann er svo góður“. Það er svo sannarlega rétt. Afi var góður maður. Ég hef alla tíð borið mikla virðingu fyrir afa. Hann var virkilega góð fyr- irmynd. Vinnusamur, drífandi og hjartahlýr, ekki maður margra orða en samt svo hlý- legur. Í mínum huga voru afi Halli og amma Labba fyrir- myndarhjón. Mjög samrýmd og greinileg gagnkvæm virðing og ást þeirra á milli. Afi minn var mikill baráttu- jaxl. Þegar hann veiktist alvar- lega fyrir nokkrum árum og var vart hugað líf þá kom það svo sterkt í ljós hve öflugur hann var. Hann sagðist ætla að stíga upp úr þessum veikindum og það gerði hann svo sannarlega með stæl og var kominn aftur á golfvöllinn áður en við vissum af. María er búin að teikna fal- legar myndir af afa Halla þar sem hann er engill á himnum. Við þökkum fyrir þann tíma sem við fengum með afa og all- ar góðu minningarnar sem hann skilur eftir sig. Minning hans lifir í hjörtum okkar. Hvíl í friði, elsku afi, þín er sárt saknað. Þín, Eygló Tómasdóttir og fjölskylda. Halli Matt eins og Hallgrím- ur Matthíasson var kallaður var fæddur og uppalinn á Patreks- firði þar sem allt daglegt líf snerist um sjósókn, fisk og fisk- vinnslu. Við þær aðstæður mót- ast hugur barna og ungmenna og leikur þeirra tekur mið af umhverfinu og því sem í boði er. Börnin leika sér í fjörunni og fljótlega er farið niður á bryggju til þess að veiða fisk. Þannig er þetta í öllum sjáv- arplássum kringum landið. Eins og margur ungur mað- urinn fór Halli snemma á sjó- inn. Eftir útskrift úr Sjómanna- skólanum í Reykjavík starfaði hann lengi sem stýrimaður og skipstjóri. Bernskuheimili Halla var á Strandgötu 3 þar sem hann ólst upp í faðmi stórrar samhentrar og umhyggjusamrar fjölskyldu. Í næsta húsi, Strandgötu 5, var yngismær að vaxa úr grasi og það er engu líkara en hann hafi verið að bíða eftir að hún yrði stór því strax þegar færi gafst þá dreif hann sig yfir og bank- aði uppá og bað hennar innilega með þeim árangri að hún sagði já og saman hafa þau verið síð- an, Hrafnhildur og Halli, í tæp sextíu ár og farnast vel og af- komendurnir eru orðnir fjöl- margir. Halli var handlaginn og dug- legur við að dytta að þegar þess þurfti og einnig að lagfæra vélar og búnað þegar svo bar undir. Á sjöunda áratugnum stundaði hann köfun með Gunn- ari Karli mági sínum og til að drýgja tekjurnar þá tóku þeir að sér að hreinsa tóg og vír úr veiðiskipum sem fengið höfðu í skrúfuna og komið inn á Patró til þess að fá aðstoð. Það var oft erfitt verk og kulsamt, sérstak- lega á veturna, því við köfun voru þeir klæddir í svokallaða blautbúninga. Eftir langa dvöl neðansjávar var oft farið upp í viðkomandi skip og fengið heitt vatn til þess að hella inn undir búninginn og fá hlýju. Fyrir mistök fékk hann í eitt skiptið svo heitt vatn inn á bert holdið að hann hlaut brunasár af. Ýmsar voru hætturnar. Eftir áratugi á sjónum fór Halli að vinna með Guðjóni tengdaföður sínum sem rak verzlunina Kjöt & Fisk á Pat- reksfirði og gerðist meðeigandi í fyrirtækinu. Samvinna þeirra gekk mjög vel og verslunin stækkaði og blómgaðist og þeg- ar Guðjón féll frá 1986 þá eign- uðust þau Hrafnhildur og Halli fyrirtækið sem þau ráku með miklum myndarbrag fram undir aldamót en þá fannst þeim nóg komið af þeirri miklu vinnu sem þessu fylgdi, seldu búðina og fluttu í Kópavog þar sem þau hafa búið síðan. Halli var félagi í Lionsklúbbi Patreksfjarðar í mörg ár. Hann var í stjórn Eyrasparisjóðs um árabil. Lítill tími hafði gefist til tóm- stunda en Halli var þó farinn að fikta við golf síðustu árin fyrir vestan og fór á fullt þegar suð- ur var komið og nægur tími til þess að stunda þessa skemmti- legu og hollu útivist. Golfið lá vel fyrir honum eins og flest annað sem hann tók sér fyrir hendur og náði hann góðum tökum á íþróttinni. Hann notaði hvert tækifæri sem gafst til þess að stunda þessa eftir- lætisiðju sína með golffélögum sínum í GKG og var farið á völl- inn allan ársins hring. Við Helga kveðjum með miklum söknuði kæran mág og svila og þökkum allar góðu samverustundirnar og áratuga vináttu. Hilmar Jónsson. Hallgrímur Matthíasson HINSTA KVEÐJA Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Hvíl í friði, elsku langafi minn. Tryggvi Hrafn. Elsku amma mín er búin að kveðja okkur, 90 ára að aldri. Hún var alveg einstök mann- eskja, alltaf virðuleg og vel til- höfð og ávallt góður gestgjafi. Það er ekki annað hægt en að líta á hana sem fyrirmynd, því hún var alltaf hörkudugleg og lét ekkert stoppa sig, samanber þegar hún dreif sig í nám á fimmtugsaldi og tók bílpróf. Amma fylgdist alltaf vel með, bæði þjóðfélagslegum efn- um sem og fréttum innan fjöl- skyldunnar. Hún kunni betur en nokkur annar skil á ætt- fræði okkar og gat rakið skyld- leika okkar við aðra aftur í fleiri ættliði. Allt var þetta náskylt okkur í Ásta Ólafsdóttir ✝ Ásta Ólafs-dóttir fæddist á Látrum í Aðalvík 21. nóvember 1922. Hún lést á Land- spítala við Hring- braut 10. apríl 2013. Útför Ástu fór fram frá Áskirkju 18. apríl 2013. hennar augum. Ekki höfðum við vit á því framan af hversu dýrmæt þessi þekking var, því það er svo margt sem maður kann ekki að meta fyrr en á fullorð- insárum. Þegar ég var lít- il kunni ég best að meta að fara í næturgistingu til hennar með Dóru systur og láta dekra við okkur. Þá var mælikvarðinn á lífsgæðin að- allega hversu mikið nammi við máttum fá, eða hversu marga brie-osta Dóra mátti borða ein- tóma. Sem betur fer vitkast maður með aldrinum og fer að kunna að meta það hversu gaman það var að spjalla við hana ömmu, því hún kunni þá list að hlusta, auk þess sem hún var jákvæð og skilningsrík. Hún hallmælti aldrei neinum, sama hver átti í hlut. Þegar foreldrar okkar tóku áratug í að skilja og taka saman aftur, reyndi hún alltaf fyrst og fremst að sýna því skilning og dæma engan. Hún hafði mikla kímnigáfu og fannst ekkert dásamlegra en að horfa á næstu kynslóðir fæð- ast og vaxa úr grasi. Ég var ekki alveg nógu snögg að þessu að hennar mati, og hún hvatti mig eindregið til að drífa mig í að fjölga mannkyninu, með eða án vitneskju eiginmannsins. Sem betur fer samþykkti hann þó barneignir, þannig að það kom ekki til slíkra klækja. Mér hefur alltaf fundist erf- itt að eignast mín börn svo langt frá fjölskyldunni, því það er svo langt á milli heimsókna að fjölskyldan nær ekki að kynnast þeim almennilega. Enda spurði amma mig í hvert sinn sem ég var á landinu, hve- nær ég kæmi aftur. En hún skildi vel af hverju það var ekki hægt, og sagði hún mér það oft að hana hefði alltaf sjálfa dreymt um að fara þessa leið í lífinu. Þessar aðstæður gerðu það þó að verkum að hún náði ekki að sjá yngsta afkvæmið mitt, sem mér finnst svolítið sárt. Hún hefði haft gaman af að sjá litla strákinn í hópnum. Heilsu ömmu fór hrakandi síðustu ár og við vorum fegin að hún skyldi fá að fara áður en hún varð alveg rúmföst. Það skipti hana svo miklu máli að komast út á meðal fólks og geta verið með okkur á merkisdög- um í fjölskyldunni. Ég er stolt af því að hafa fengið nafnið hennar og mun reyna að bera það í hennar anda. Hvíldu í friði, elsku amma, þín verður sárt saknað. Ásta Theódórsdóttir. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Við kveðjum með söknuði ömmu, tengdaömmu og lang- ömmu Ástu Ólafsdóttur frá Látrum í Aðalvík. Eftir sitja minningar um góða konu sem lifði tímana tvenna og hafði frá mörgu að segja, en hlustaði líka af athygli og áhuga. Hún var mannvinur og fylgdist með okkur, afkomendum sínum, af ástúð og kærleika. Þú munt lifa innra með okkur alla tíð. Lárus Rafn Halldórsson, Helga Dröfn Jónsdóttir og Heiða Rún Lárusdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.