Morgunblaðið - 26.04.2013, Qupperneq 38
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2013
✝ Árni Gunn-arsson fæddist
á Akureyri 17.
október 1985. Hann
lést á gjörgæslu-
deild Landspítalans
í Fossvogi 14. apríl
2013, af völdum
slyss 4. apríl 2013.
Foreldrar Árna
eru Gunnar Jó-
hannes Jóhanns-
son, f. 7.11. 1957 og
Gunnlaug Steinunn Árnadóttir,
f. 7.9. 1959. Dóttir Árna er Katr-
ín Faith, f. 15.1. 2006. Móðir
hennar er Gunnhildur Péturs-
dóttir. Systkini Árna eru Jóna
Björk, f. 30.6. 1978 og Jóhann, f.
25.1. 1990. Eig-
inmaður Jónu
Bjarkar er Reynir
Hilmarsson og eiga
þau þrjú börn.
Árni ólst upp á
Akureyri og gekk í
Síðuskóla og stund-
aði síðan nám við
Verkmenntaskól-
ann á Akureyri.
Síðan lá leiðin til
Reykjavíkur þar
sem Árni bjó og starfaði síðast-
liðin ár og nú síðast hjá Löndun
ehf.
Útför Árna fer fram frá Ak-
ureyrarkirkju í dag, 26. apríl
2013, og hefst athöfnin kl. 13.30.
Elsku Árni minn. Lífið verður
aldrei eins án þín. Ég veit ekki
hvað ég á að segja eiginlega, ég
sit hér og hugsa um allt okkar
og ég kem ekki upp orði. Ef ég á
að minnast einhvers eins þá
verður það sveitahringurinn sem
við keyrðum þegar ég var í skól-
anum á Bifröst í fyrrasumar og
við töluðum um að kaupa okkur
hús einhverstaðar úti í miðri
sveit þar sem allt er svo friðsælt
og fallegt. Við keyrðum enda-
laust lengi án þess að hafa hug-
mynd um hvar við myndum
lenda eða hvert við værum kom-
in.
Ég sakna þín svo mikið og til-
hugsunin um að fá aldrei að
brosa með þér eða jafnvel rífast
við þig og kvarta í Steina er bara
ömurleg. Og ég er viss um að
eins og Steina fannst ótrúlega
pirrandi að lenda stundum á
milli okkar þegar við vorum að
rífast þá er ég viss um að hann
gæfi allt til að fá okkur sitt hvor-
um megin við sig gargandi frek-
ar en að hafa þig þarna hinum
megin og okkur hérna megin.
Við systkinin elskum þig svo
mikið, og Ívan minn, ó guð.
En eitt máttu vita, að ég ætla
að minnast þín með því að gera
það eina sem þú vildir að ég
myndi alltaf gera og ég mun
ganga þann veg með þig í hjarta
mínu að eilífu, ástin mín. Ég bið
Guð um að senda styrk til dóttur
þinnar og fjölskyldu og okkar
allra sem sitjum og horfum á eft-
ir þér.
Þín
Aníta.
Elsku Árni frændi, kúturinn
okkar.
Aldrei hefðum við trúað því að
við systur mundum sitja og
skrifa minningarorð til þín. Það
er okkur „gömlu“ óskiljanlegt að
þú sért farinn okkur frá. Við er-
um svo þakklátar fyrir allar þær
góðu og skemmtilegu minningar
sem við höfum átt saman í gegn-
um árin.
Frá blautu barnsbeini höfum
við verið góðir og nánir vinir, þú
varst okkur sem bróðir. Við
minnumst þess er við fórum í
ótal skipti í útilegur og sumarbú-
staði sem börn, þar sem einstök
hegðun okkar gaf okkur titilinn
skæruliðar.
Árið 2004 komst þú og bjóst
hjá okkur í Danmörku yfir sum-
arið, það var alveg yndislegur
tími og þú vildir helst ekki fara
aftur heim.
Svo þegar við systur bjuggum
saman í Reykjavík þá varst þú
tíður gestur og alltaf nutum við
þess að fá þig til okkar, þar sem
við hlógum og fífluðumst alltaf
mikið.
Þú varst ljúfmenni út í eitt, og
varst alltaf tilbúinn til að gera
allt fyrir okkur gömlu frænkur
þínar, sem þú áleist sem systur
þínar.
Okkur er svo minnisstætt
þegar þú komst til okkar með
Katrínu dóttur þína í fyrsta
skipti, við höfðum aldrei séð þið
jafn stoltan.
Við höfðum svo mörg plön
saman fyrir framtíðina, þessum
plönum munum við systur fylgja
eftir og við vitum að þú munt
vera með okkur í anda.
Elsku hjartans kúturinn okk-
ar, við höfum óteljandi minning-
ar með þér, sem hjálpa okkur
núna í gegnum þennan erfiða
tíma.
Takk fyrir að hafa alltaf verið
svona yndislegur og skemmtileg-
ur. Orð fá því ekki lýst hversu
mikið við munum sakna þín. Þú
heldur áfram að lifa í hjörtum
okkar þangað til að við hittumst
á ný.
Elsku Gunnar, Gulla, Jóhann,
Jóna Björk, Katrín, ættingar og
vinir, innilegar samúðarkveðjur
til ykkar, minning um góðan
dreng lifir.
Dökkur skuggi á daginn fellur,
dimmir yfir landsbyggðina.
Köldum hljómi klukkan gellur,
kveðjustund er milli vina.
Fallinn dómur æðri anda,
aðstandendur setur hljóða.
Kunningjarnir klökkir standa,
komið skarð í hópinn góða.
Gangan með þér æviárin
okkur líður seint úr minni.
Við sem fellum tregatárin
trúum varla brottför þinni.
Þína leið til ljóssins bjarta
lýsi drottins verndarkraftur.
Með kærleiksorð í klökku hjarta
kveðjumst núna, sjáumst aftur.
(Hákon Aðalsteinsson)
Þínar frænkur,
Herdís og Halldóra Harð-
ardætur.
Elsku frændi.
Minningarnar streyma um
huga okkar á þessari erfiðu
stundu. Stórt skarð hefur mynd-
ast í barnabarnahópinn.
Þú varst fyrsti strákurinn í
hópnum. Það er óhætt að segja
að þú hafir komið með látum og
fært fjör í leikinn. Þú hafðir
endalausa orku, varst uppá-
tækjasamur og stríðnisglampinn
í augunum var aldrei langt und-
an. Við eldri frænkurnar máttum
hafa okkur allar við þegar við
pössuðum þig, þú lést okkur svo
sannarlega hafa fyrir hlutunum.
Dæmalaust sætur og krúttlegur
varstu svo í skólabúningnum
þínum í London, þá aðeins 5 ára
gamall.
Ófáum stundum var eytt í
kjallaranum hjá ömmu og afa í
Kotárgerði. Feluleikirnir og elt-
ingarleikirnir voru skemmtileg-
astir. Þú hafðir alltaf hugmyndir
um hvernig við gætum breytt
reglum leikjanna svo við yrðum
ekki leið á þeim og ekki síður til
að gera þá aðeins meira krass-
andi og fá púlsinn til að slá örar.
Á öskudögunum var aldrei
slegið slöku við. Þar nýttir þú
skipulagshæfileika þína til hins
ýtrasta, og þrjóskan hjálpaði
reyndar líka til.
Það skyldi farið yfir eins stórt
svæði og auðið var til að fá sem
mest nammi. Það þýddi ekkert
fyrir okkur hin að kvarta og
kveina, þú sást til þess að við
héldum áfram. Stundum var
hraðinn reyndar það mikill að
þegar að söngnum kom, vorum
við svo móð og másandi að við
komum varla upp orði, hvað þá
söng. En nammi fengum við, og
nóg af því.
„Boxið“ við Jóhann á Mallorca
er okkur minnisstætt. Þú byrj-
aðir auðvitað með miklum yfir-
burðum og kýldir Jóhann hvað
eftir annað í gólfið. En smám
saman leyfðir þú Jóhanni að ná
yfirhöndinni svo lítið bæri á og í
lokin léstu þig detta við laflaust
högg Jóhanns sem rifnaði af
stolti yfir að hafa sigrað stóra
bróður sinn. Þú varst svo óeig-
ingjarn á athyglina og passaðir
vel upp á að litli bróðir fengi líka
að njóta sín.
Við minnumst líka allra þeirra
aðfangadags- og gamlárskvölda
sem stórfjölskyldan átti saman.
Yndislegar stundir og góðar
minningar.
Elsku frændi, við söknum þín
sárt. Þú hafðir góða nærveru. Þú
varst einlægur, hógvær og gjaf-
mildur.
Er sárasta sorg okkur mætir
og söknuður huga vorn grætir
þá líður sem leiftur úr skýjum
ljósgeisli af minningum hlýjum.
(H.J.H.)
Elsku Gunni, Gulla, Jóhann,
Jóna og Katrín, við vottum ykk-
ur okkar dýpstu samúð. Minning
Árna lifir í hjörtum okkar.
Elva Björg, Kolbrún,
Lena, Steinunn, Selma
og Sigurður.
Fallinn er frá frændi minn,
Árni Gunnarsson, langt fyrir
aldur fram. Mig setti hljóðan er
ég fékk þær fréttir að frændi
minn hefði lent í alvarlegu slysi
og væri ekki hugað líf. Lífið tek-
ur oft óvæntar stefnur og ekki
alltaf fyrirséð hvernig það end-
ar.
Að hryggjast og gleðjast
hér um fáa daga,
að heilsast og kveðjast.
– Það er lífsins saga.
(Páll J. Árdal)
Mig langar að minnast frænda
míns Árna Gunnarssonar í fáein-
um orðum. Margs er að minnast
og gleðjast er hugurinn reikar
aftur í tímann. Snemma kom í
ljós mikill áhugi Árna á sveitinni
og ófáar stundirnar dvaldi hann
hjá Gunnu ömmu í Víðiholti og
frændfólki. Árni talaði alltaf um
það að í sveitinni væri mjólk-
urgrauturinn það besta sem
hægt væri að fá og átti helst
ekki annað að borða. Árni sótti
mjög í það að taka þátt í því sem
var að gerast hverju sinni í sveit-
inni. Skrölti með frændum sín-
um í dráttarvél við heyannir og
önnur verk. Ófáar stundir við
fjósið skítugur uppfyrir haus, á
hestbaki með frændum og við
veiðskap niður við Helgá.
Frændrækinn var Árni og vildi
aldrei missa af viðburðum er
tengdust frændgarðinum, hvort
heldur var um jólaboð, afmæli
eða Víðiholtskarnival. Segja má
að Árni hafi verið fylginn sér, á
köflum jafnvel töluvert þrjóskur.
En alltaf var stutt í brosið og
kímnina.
Nú hefur frændi kvatt þennan
heim en skilur eftir sig margar
ljúfar minningar.
Víða er kalt í hörðum heimi,
klippt á lífsins naflastreng.
Í hjarta mínu ætíð geymi
minningu um góðan dreng.
(Einar Hafliðason)
Eftir stendur minning um
ljúfan og glaðlegan pilt.
Elsku Katrín, Gunni, Gulla,
Jóna Björk og Jóhann, okkar
bestu samúðarkveðjur úr sveit-
inni.
Megi Guð styrkja ykkur í
sorginni.
Jóhann Rúnar Pálsson og
fjölskylda.
Það er ekki til nóg af bleki í
heiminum til þess að skrifa allt
það fallega og skemmtilega um
þig, Árni okkar.
Því viljum við segja nokkur
vel valin orð um þig sem lýsa þér
eða minna okkur á þig: orðhepp-
inn, grallari, fyndinn, grjótharð-
ur, handsome, yndislegur, dug-
legur, pabbi, góðmenni,
uppátækjasamur, geislandi, ein-
stakur, trygglyndur, ljúfur,
körfuboltasnillingur, framúr-
skarandi, frábær, sterkur,
Queen, spennandi, útsjónarsam-
ur, vinur vina sinna, kurteis,
þrjóskur, Arsenal, Orlando Ma-
gic, skemmtilegur, hugljúfur,
skapandi, Turkish pepper, já-
kvæður, hress, svalur, sniðugur,
æðislegur, hárprúður, bílstjóri,
Síðuskóli, Subaru Justy, sann-
gjarn, Woods, stundvís, rétt-
sýnn, Íslandsmeistari, raungóð-
ur, glaðlyndur, rafmagnsleysi.
Okkur þykir sárt að missa þig
og söknum þess öll að rökræða
við þig um hlutina. Þú varst eng-
um líkur og munt alltaf eiga sér-
stakan sess í hjarta okkar, elsku
Árni.
Birkir Halldórsson, Brynjar
Valþórsson, Eggert Ármann
Ármannsson, Fannberg Jen-
sen, Fanney Reyes Laxdal,
Fanney Sigurðardóttir,
Gunnar Máni Hermannsson,
Kolbrún Ýrr Bjarnadóttir,
Máni Frímann Jökulsson,
Nadine Día Júlíusdóttir og
Svavar Árni Halldórsson.
Elsku besti Árni minn, ég trúi
varla að þú sért farinn, þín er
svo sárt saknað, þú varst besti
og traustasti vinur sem til var.
Ég var farinn að hlakka svo til
að koma og fara að gera með þér
allt það sem við vorum búnir að
tala um að gera saman. Ég á eft-
ir að hugsa til þín allt mitt líf og
sakna þess ótrúlega mikið að
geta ekki hitt þig. Þetta er svo
ótrúlega ósanngjart og óraun-
verulegt að þú sért farinn en ég
trúi að þú sért á betri stað og
takir vel á móti mér, elsku vinur
minn, þegar ég kem.
Þinn vinur,
Steindór (Steini).
Elsku Árni, mig langar að
byrja á að þakka þér fyrir að
hafa fengið að kynnast þér og
fyrir allan þann tíma sem við
höfum varið saman.
Þú varst sannur vinur og það
var alltaf hægt að fá þig með sér
að gera eitthvað skemmtilegt og
treysta á þig.
Ég er líka virkilega þakklátur
fyrir að hafa fengið að hitta þig á
páskadag og að hafa farið á
rúntinn með þér og kíkt svo á
þig aftur um kvöldið með Jó-
hönnu.
Þú varst svo skemmtilegur,
góður pabbi og kraftmikill mað-
ur.
Það er margt sem maður hef-
ur lært af þér og ég þekkti þig
þannig að þú sagðir alltaf það
sem þér fannst.
Þykir óendanlega vænt um
þig og minninguna um þig mun
ég geyma í hjarta mér það sem
ég á eftir ólifað.
Þinn vinur að eilífu,
Daníel Páll Snorrason.
Árni Gunnarsson HINSTA KVEÐJA
Er sólin gyllir ský á lífsins vegi
þú sefur rótt að liðnum þínum
degi.
Í hljóðri bæn ég sendi kveðju
mína
en englar himins breiða vængi
sína.
Úr silfurböndum sveig af rósum
flétta
og leggja yfir hinstu hvílu þína.
(Helga Jóh.)
Þegar þú ert sorgmæddur, skoð-
aðu þá aftur huga þinn, og þú
munt sjá, að þú grætur vegna
þess, sem var gleði þín.
(Kahlil Gibran)
Guð blessi minningu
þína, elsku vinur.
Helga og Guðbergur.
Elsku besta amma mín og
langamma. Nú ert þú farin og
söknuðurinn er mikill. Það
verður skrítið fyrir mig og
langömmubörnin að koma til
landsins og fara ekki upp á Eir
til langömmu Mundu. Sitja
saman, horfa á Esjuna, heyra
allar sögurnar þínar og borða
saman nammi. En minningarn-
ar eru svo góðar og margar.
Við höfum gert svo margt
skemmtilegt saman. Þú kennd-
ir mér á píanó, spilaðir við mig
badminton, við fórum á skíði, í
sund og fjölda veiðiferða í
Norðurá og Iðu svo ekki sé
minnst á allar sumarbústaða-
Guðmunda Peter-
sen Stefánsdóttir
✝ GuðmundaPetersen Stef-
ánsdóttir fæddist í
Reykjavík 25. júní
1921. Hún lést á
Hjúkrunarheim-
ilinu Eir 7. mars
2013.
Jarðarför Guð-
mundu fór fram frá
Áskirkju 12. mars
2013.
ferðirnar í Brekku-
kot með ykkur afa
Gunnari. Þó að ég
hafi búið í Noregi
síðustu ár vorum
við duglegar að
hafa samband í
gegnum síma og
Skype þar sem þú
klappaðir lang-
ömmubörnunum í
gegnum skerminn.
Við hittumst líka
oft þegar við vorum á landinu
og þú varst dugleg að koma til
Sandefjord að heimsækja okk-
ur. Dóttur mína eignaðist ég á
afmælisdaginn þinn 25. júní og
þið hélduð oft upp á daginn
ykkar saman, bæði hér og í
Noregi. Upp úr stendur stór-
afmæli þitt þegar þú varst ní-
ræð, Eva systir þrítug og
Emilia mín níu ára. Takk fyrir
allt, elsku besta amma mín og
langamma, söknuðurinn á eftir
að verða mikill en ég veit að þú
varst sátt og tilbúin að fara til
afa Gunnars.
Birna, Viktor, Emilia
og Oliver.
Elsku afi Jón.
Þú hefur kvatt þennan heim
og skilur eftir þig góðar minn-
ingar. Ég mun sakna þín og er
mjög þakklátur og glaður að
hafa átt þig sem afa. Ég sé eftir
því að hafa aldrei sagt það beint
við þig en vona að þú hafir vitað
það. Þú kenndir mér svo margt.
Við tefldum margoft og spilast-
undirnar sem við áttum með
öðrum fjölskyldumeðlimum eru
óteljandi. Minningarnar eru
óteljandi. Það var gaman að
koma til ykkar ömmu í Hafn-
arfjörðinn því þá vissi maður að
spilakvöld væri framundan og
eitthvert góðgæti fékk maður
alltaf hjá ömmu. Það var samt
ósjaldan sem þessi kvöld enduðu
á því að ég sofnaði í sófanum al-
veg búinn á því. Þú hafðir alltaf
Jón Rafn
Guðmundsson
✝ Jón Rafn Guð-mundsson
fæddist í Reykjavík
19. apríl 1928.
Hann andaðist á
Hrafnistu í Hafn-
arfirði 7. apríl
2013.
Útför Jóns Rafns
fór fram frá Hafn-
arfjarðarkirkju 16.
apríl 2013.
áhuga á því hvað
maður var að gera,
mættir á handbolta-
leiki og varst oft að
spyrja út í skólann.
Það var alltaf gam-
an að ræða við þig
um allt milli himins
og jarðar. Þeir sem
þekktu til þín vita
vel að alltaf varstu
til í góðar rökræð-
ur.
Það var líka gaman að því
þegar þið amma komuð norður
til okkar, hvort sem það var á
Húsavík eða Akureyri. Ég man
sérstaklega eftir því þegar þið
amma komuð til Akureyrar eitt
skipti og þú bauðst okkur
Nonna bróður á rúntinn. Við
Nonni urðum að láta okkur
hverfa niður í aftursætunum
þegar þú tókst vitlausa beygju
og fórst öfugum megin á Drottn-
ingarbrautinni og amma
skellihló í framsætinu.
Þegar ég hitti þig síðast var
ég með hann Ragnar Starra
með mér og er ég mjög ánægð-
ur að þú náðir að hitta hann. Til
allra minninganna hugsa ég með
gleði í hjarta. Elsku afi minn,
hvíldu í friði.
Atli Þór.
VirðingReynsla & Þjónusta
Allan sólarhringinn
www.kvedja.is
571 8222
82o 3939 svafar
82o 3938 hermann
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna
upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á
Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að
hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför
er á mánudegi eða þriðjudegi).
Minningargreinar