Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2013, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2013, Blaðsíða 9
28.4. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9 Pabbi Bjarna Hauks Þórssonar hefur gert víð-reist og síðar Afinn hans. Verkin altso, og núer síðasta sýning Bjarna, How bo become Ice- landic in 60 minutes sem gekk afbragðs vel í Hörpu í fyrra og verður sýnd aftur í sumar, einnig á leið í víking. Gerð verður tilraun til að kenna fólki hvernig það getur orðið norskt, sænskt og tékkneskt á 60 mínútum. „Ég ætla að vísu ekki að gera það sjálfur, enda hef ég ekki hugmynd um það hvernig maður verður norskur eða tékkneskur!“ segir Bjarni Haukur í sam- tali við Sunnudagsblað Morgunblaðsins. Vert er að geta þess að sýningar á How to become Icelandic in 60 minutes hefjast á ný í Hörpu á þriðjudaginn. „Sýningarnar á síðasta ári urðu tæplega 60 og forráðamenn Hörpu vildu endilega halda áfram. Þetta var tilraun sem gekk mjög vel, sýningar í ár verða rúmlega 70 og þegar er farið að tala við mig um árið 2014,“ segir leikskáldið. Sigurður Sigurjónsson leikstýrir, höfundurinn var sjálfur á sviðinu í fyrra en Örn Árnason leysir hann af hólmi í sumar. „Ég myndi segja að hann væri fæddur í þetta,“ segir Bjarni Haukur og hlær. Hlæja að sjálfum sér Bjarni hefur sjálfur nóg að gera við að koma verkinu upp úti í heimi. „Ég útfæri það með þarlendum með- höfundum og framleiðendum; verkið verður byggt á þessari hugmynd og sniðið út frá henni. Það verður gaman að útfæra hugmyndina með öðru fólki og fróð- legt að sjá hvernig það kemur út.“ Sýningin var upphaflega hugsuð fyrir útlendinga en Bjarni Haukur segir fjölda Íslendinga einnig hafa mætt í leikhúsið virst kunna því afar vel að hlæja að sjálfum sér! „Ég er mjög stoltur af þessari sýningu; farið er í gegnum 15 reglur, mikið er um myndefni og flotta grafík og mikið lagt í hljóðið. Fyrir þá sem vita lítið er sýningin upplýsandi á margan hátt en Ís- lendingar hafa líka gaman af og það var athyglisvert að þeir hlógu oft á öðrum stöðum en útlendingar.“ Bjarni Haukur „byrjaði á þessu brölti“ skömmu fyrir aldamótin þegar hann setti upp og fór með eina hlutverkið í bandaríska Hellisbúanum við fádæma vinsældir hér heima. Sýndi hann svo í Danmörku og víðar en snéri sér síðan að öðrum verkefnum. Pabbinn hefur farið víðast af verkum Bjarna Hauks; hefur verið sýndur í 25 löndum; Noregi, Dan- mörku, Finnlandi, Svíþjóð, Eistlandi, Lettlandi, Lithá- en, Þýskalandi, Slóvakíu, Mexíkó – svo dæmi séu tek- in – og fjórar mismunandi uppfærslur hafa verið í gangi í Þýskalandi. Framundan eru landvinningar á Spáni, Ítalíu og Ísrael. Eins og á rokktónleikum Pabbinn var frumsýndur í Iðnó á því Herrans ári 2007. Bjarni var í því hlutverki við Tjörnina ótal sinnum, síðan í Óperunni og út um allt land. Nú hef- ur hann skrifað bók sem byggð er á verkinu og kem- ur út í haust bæði hér heima og í Þýskalandi. „Verk- ið var persónulegt og bókin er skálduð sjálfsævisaga,“ segir Bjarni Haukur. Afinn var settur upp í Borgarleikhúsinu í ársbyrjun 2011 og hefur einnig verið á fjölunum í Þýskalandi, Eistlandi og Slóveníu og fleiri lönd eiga von á hon- um; Noregur, Svíþjóð, Króatía og Spánn. „Það er alltaf jafn útópískt að mæta og horfa frumsýningu eigin verks erlendis. Ég hef séð kjall- arauppsetningar og setið í þúsund manna sal. Verkið þekki ég auðvitað en það er rosalega gaman að sjá hvernig aðrir gera það að sínu.“ Hann segir ekki síður gaman að vera á meðal áhorfenda og skynja upplifun þeirra. „Þegar verkið var leikið í 150. sinn í Ljubljana í Slóveníu í fyrra vildu þeir hjá leikhúsinu endilega fá mig í heimsókn og þar sem ég hafði aldrei komið þangað sló ég auð- vitað til! Í tilefni dagsins hafði sýningin verið flutt í 1.800 manna útileikhús; þetta var eins og að vera á rokktónleikum! Það var mögnuð upplifun.“ Í kvöldmyrkrinu „varð mér hugsað til Möggu Rósu í Iðnó. Það var gaman í Ljubljana en ég er ekki frá því að ég hafi verið meira skotinn í litla leikhúsinu við Tjörnina …“ Í́SLENSK LEIKLIST Í ÚTRÁS Bjarni Haukur Þórsson: „Það er alltaf jafn útópískt að mæta og horfa á frumsýningu eigin verks erlendis.“ Morgunblaðið/Ómar Viltu verða tékkneskur á 60 mínútum? BJARNI HAUKUR ÞÓRSSON HEFUR SAMIÐ BRÁÐSMELLIN VERK, SEM SLEGIÐ HAFA Í GEGN, LEIKSTÝRT OG FRAMLEITT OG LEIKIÐ Í SUMUM SJÁLFUR. ÞAU HAFA FALLIÐ FÓLKI VEL Í GEÐ VÍÐA UM HEIM OG NÚ ER ÞAÐ NÝJASTA VÆNTANLEGT Á SVIÐ Í ÚTLANDINU. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Nýttu svalirnar allt árið um kring idex.is - sími: 412 1700 - merkt framleiðsla Skjól Lumon svalagler veitir skjól gegn rigningu og roki. Mjög einfalt er að opna svalaglerið og renna því til og frá. Hljóð- og hitaeinangrun Svalaglerin veita hljóð- og hitaeinangrun sem leiðir til minni hljóðmengunar innan íbúðar og lægri hitakostnaðar. Óbreytt útsýni Engir póstar eða rammar hindra útsýnið sem helst nánast óbreytt sem og ytra útlit hússins. Auðveld þrif Með því að opna svalaglerið er auðvelt að þrífa glerið að utan sem að innan. Stækkaðu fasteignina Með Lumon svalaglerjum má segja að þú stækkir fasteignina þína þar sem þú getur nýtt svalirnar allan ársins hring. hefur svalaglerin fyrir þig! FORRÉTTUR Hvítlauksristaðir humarhalar með brauði og hvítlaukssmjöri AÐALRÉTTUR Lamba primesteik með ristuðu grænmeti, rósmarín, hunangi og bakaðri kartöflu EFTIRRÉTTUR Frönsk súkkulaðikaka með þeyttum rjóma og ferskum berjum BRUNCH Heilsu Brunch: Brauð, ostur, soðið egg, tómatur, gúrka, ávextir, sulta, kjúklingaskinka og íslenskt smjör Lúxus Brunch: Spæld egg, beikon, ostasneiðar, spægi-pylsa, brauð, kartöflur, ferskt tómatsalat, smoothie, ávextir, sulta, smjör og amerískar pönnukökur með sírópi FERSKLEIKI • GÆÐI • ÞJÓNUSTA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.