Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2013, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2013, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.4. 2013 Græjur og tækni stíflunum í holræsakerfi borgarinnar á hverju ári. Gert er ráð fyrir að um 30 tonn af fitu verði brennd daglega, og uppfyllir það um helming af eldsneytisþörf orkuvers- ins. Restinni af eldsneytisþörfinni verður fullnægt með steikingarfeiti frá veit- ingastöðum og annarri grænmetisolíu sem fellur til við matargerð á veitingastöðum borgarinnar. Þessi fitubrennsla mun sjá um 39.000 heimilum fyrir orku, en fram- leiðslugeta orkuversins er um 130 gígavatt- stundir á ári. Stærsta vindtúrbína heims í smíðum í Danmörku Siemens vinnur nú að uppsetningu stærstu vindtúrbínu sem reist hefur verið á til- raunasvæði sínu út af Østerild í Danmörku. Túrbínan er ætluð til notkunar úti í hafi og hefur fengið nafnið B75. Nafnið er dregið af lengd spaðanna, en hver spaði er 75 metrar á lengd, sem er um 50 cm meira en hæð Hallgrímskirkjuturns, og vega þeir um 25 tonn hver. Þrír spaðar eru á hverri túrbínu, og þvermál hringsins sem þeir mynda við snúning er hvorki meira né minna en 154 metrar. Flatarmál hringsins sem spaðarnir ferðast um er 18.600 m2, sem eru um það bil tveir og hálfur knattspyrnuvöllur. Við kjör- N ú þegar dregið hefur úr spenn- unni í kringum snjallsímakapp- hlaupið er hvað mest spenna í tækniheiminum í kringum ýmis konar nettengda hluti (e. Internet of things). Fá tæknifyrirtæki hafa fengið jafn mikla at- hygli undanfarið og fyrirtækið Nest sem framleiðir nettengda hitastilla (Thermostat) fyrir heimili. Nest er eins konar snjallstillir (líkt snjallsími) sem lærir inn á notkun þína til þess að stilla hitastigið á heimilinu miðað við það sem hentar hverju sinni. Þannig lækkar Nest kyndinguna yfir daginn þegar enginn er heima, en eykur hana á kvöldin þegar heimilisfólkið sýr heim. Hún er svo lækkuð aftur yfir nóttina á meðan sofið er, en hækkuð aftur fyrir morgunmjaltir. Þá geturðu tengst hitastillinum í gegnum snjall- síma og stjórnað hitastiginu hvaðan sem er. Steikingarfeiti til raforkuframleiðslu Orkuver í austurhluta Lundúna hefur nú tekið upp á að nota feiti sem safnast hefur í Thames-ána til raforkuframleiðslu. Mikið magn af ýmiskonar feiti safnast í ána í gegn- um holræsakerfi borgarinnar. Þessi fita safn- ast saman í fitukekki í ánni, og árlega er um einni milljón punda varið til þess að hreinsa þá upp. Þá valda þessir fitukekkir um 40.000 aðstæður mun slík mylla framleiða um 6MW af orku (tæplega 1% af framleiðslugetu Kárahnjúkavirkjunar). Siemens hyggst reisa 300 slíkar myllur á næstu árum. Verða bakteríur notaðar til að framleiða dísilolíu? Vísindamenn við Exeter-háskóla hafa ræktað erfðabreytta útgáfu af ekólíbakteríunni sem breytir sykrum í fitu sem er nær sambærileg við lífdísilolíu. Vísindamenn við Brown- háskóla hafa einnig náð árangri við að vinna ensím úr streptabakteríu sem hægt er að nota sem uppistöðu í lífdísil. Enn er ekki hægt að framleiða þessa olíu í nægilegu magni til almennrar notkunar, en uppgötv- unin þykir jákvæð, þar sem hægt yrði að nota slíka olíu á allar dísilvélar án breytinga, en lífdísill framleiðir mun minna af gróð- urhúsalofttegundum en jarðefnaeldsneyti við bruna. Lífdísill hefur fram til þessa þótt óhagstæður orkugjafi, þar sem hann hefur að mestu verið framleiddur úr plöntum, og krefst mikils landsvæðis og ræktunar en gæti orðið hagstæðari kostur ef hægt er að rækta hann úr bakteríum í miklu magni. Shell mun fjármagna frekari rannsóknir í þeirri von að hægt verði að nýta þessar rannsóknir til að þróa hreinna eldsneyti og draga þannig úr útblæstri gróðurhúsaloftteg- unda. Plöntur leysa tækni af hólmi Loftgæði innandyra eru vanmetin verðmæti, enda eyðum við flest bróðurpartinum af deg- inum inni í lokuðum rýmum. Flest gerum við okkur grein fyrir mikilvægi þess að lofta út og þekkjum vel áhrif af súrefnisleysi, svo sem syfju og slen, vellulegt loft og svo fram- vegis. Færri vita að samkvæmt mælingum finnast allt að 300 skaðlegar lofttegundir í andrúmsloftinu á venjulegu heimili, og eiga uppruna sinn í ýmsum efnum sem notuð eru við framleiðslu raftækja, húsgagna og ýmiss konar hreinsiefna og málningu. Framboð af lofthreinsi- og rakatækjum hefur aukist stöð- ugt, en það er einnig hægt að nýta sér held- ur frumstæðari tækni í baráttunni fyrir góðu lofti. Undir lok níunda áratugarins lagðist Geimferðastofnun Bandaríkjanna (NASA) í miklar rannsóknir á áhrifum ólíkra plantna á loftgæði, til þess að komast að því hvers kon- ar blóm væri best að taka með út í geim. Niðurstaðan var sú að margar plöntur geta haft jákvæð áhrif á loftgæði með því að hreinsa andrúmsloftið og binda rokgjörn efni og sumar skila betri árangri en loft- hreinsitæki. Eitt og annað um græna tækni Morgunblaðið/Kristinn Í TILEFNI AF ÞVÍ AÐ DEGI JARÐAR (EARTH DAY) VAR FAGNAÐ Í SÍÐASTLIÐINNI VIKU ER VIÐ HÆFI AÐ HORFA TIL ÞESS HVERNIG TÆKNI OG VÍSINDI AF ÝMSU TAGI FÁST VIÐ UMHVERFISVANDAMÁL. Sveinn Birkir Björnsson sveinnbirkir@gmail.com Blóm eru heimilisprýði en þau geta líka hjálpað til við að hreinsa loftið. Aloe vera Það er auðvelt að rækta aloe vera-plöntur, en þær eru þekktar fyrir græðandi eiginleika sína. Færri vita að plantan hjálpar til við að hreinsa formaldehýð og bensen úr andrúms- loftinu. Formaldehýð er litlaus, lyktsterk lofttegund sem getur valið ertingu í augum og húð og er algengur ofnæmisvaldur. Það er mikið notað í ýmis efni sem má finna í máln- ingu, húsgögnum, teppum, efnavörum og lími. Styrkur þess er jafnan mun meiri innan- húss en utan. Bensen er að sama skapi lykt- arlaus, rokgjarn lífrænn vökvi sem er bæði ofnæmis- og krabbameinsvaldandi. Hann er mikið notaður við framleiðslu á plasti og asetoni og næloni. Veðhlaupari Jafnvel svæsnustu plöntuníðingum gengur erfiðlega að ráða veðhlaupara af dögum, enda plantan sérstaklega harðger. Hún gagnast ennfremur vel í að hreinsa bensen og formeldahýð, auk kolsýrings og xylene sem er ertandi efni skylt bensen, og er mikið notað í hreinsiefni, málningu, leðurvinnslu og prentun. Indíánafjöður (tannhvöss tengdamamma) Indíanafjöðrin er vinsæl pottaplanta hér á landi, en hún er þeim eiginleikum gædd að hreinsa formeldahýð og önnur eiturefni úr lofti. Friðarlilja Samkvæmt mælingu NASA er friðarliljan besta plantan þegar kemur að lofthreinsun, en hún hreinsar bæði bensen, formeldahýð og tríklóríð úr loftinu með miklum árangri. Bergflétta Víða má sjá bergfléttu vaxa utandyra, en hún er einnig vinsæl stofuplanta hérlendis. Bergflétta hefur þann ágæta kost að hreinsa bæði formeldahýð og svífandi sauragnir sem berast af salerni. Ekki amaleg aukaverkun það. NASA-SKÝRSLAN Fimm bestu loft- hreinsiplönturnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.