Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2013, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2013, Blaðsíða 27
V ið hönnun og útlit hostelsins fengum við tækifæri til að búa til ímyndina fyrst og aðlaga hana síðan húsinu sem var mjög skemmtileg nálgun,“ segir Klara Arnalds grafískur hönnuður. En hún sá um merkingar Loft Hostel og var það um leið útskriftarverkefni hennar úr grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands. „Hönnunin er hugsuð út frá vistvænu sjónarhorni en gólfefnið á efstu hæðinni, þar sem móttakan og veitingastaðurinn er, er t.a.m. úr gömlum vörubrettum og vegg- klæðning úr sementsplötum. Þá var settur þakgluggi hér efst til að fá meiri birtu inn og efnis- og litaval er í samræmi við tekk sem var í gluggum og klæðningu í öðru hús- inu,“ segir Steinunn Halldórsdóttur innan- húsarkitekt hjá VA arkitektum sem hannaði herbergin og innréttingar. Baldur Snorrason arkitektúrnemi, sem kom að hönnun fjórðu hæðarinnar, bætir við að áhersla hafi verið lögð á íslenska hönnun í húsgagnavali. Hinn klassíski E60 stóll fékk nýtt útlit í stíl við staðinn og var lakkaður í mismunandi litum en önnur húsgögn voru smíðuð af GÁ Húsgögnum, Axis og ArcticPl- ank. Þá er húsið hannað með það í huga að fólk velji að gista á hosteli til að geta kynnst öðrum gestum og tenging sköpuð á milli gesta og lífsins í borginni. Loks má geta þess að fullkomið hjólastólaaðgengi er á hos- telinu, þar er lyfta og snagar og speglar t.a.m. í ákjósanlegri hæð. Morgunblaðið/Styrmir Kári Læsanleg munahólf eru undir kojum og auk þess lesljós og hirslur í göflum. Chemex er hæg uppáhelling þar sem notaður er þéttari filter ofan í hitaþolna glerkaröflu. Kaffið er best svart og sykurlaust með góðu biscotti. Tæknimaður hostelsins fær nú að nota innmúr- aða bankahólfið frá tímum Samvinnubankans. Uppi á Lofti LOFT HOSTEL VAR OPNAÐ NÝVERIÐ Í BANKASTRÆTINU OG GETUR STAÐSETNINGIN VART VERIÐ BETRI. MÓTTAKA HOSTELSINS ER Á FJÓRÐU HÆÐ HÚSSINS OG ÞAÐAN GETA GESTIR NOTIÐ ÖÐRUVÍSI ÚTSÝNIS YFIR MIÐBÆINN. María Ólafsdóttir maria@mbl.is Veggverkið endurspeglar útsýnið af svölunum á efstu hæðinni þar sem gestir sjá yfir hafnarsvæðið og um leið undirstrikar það lofthæðina í móttökurýminu. VISTVÆNAR ÁHERSLUR Á NÝJU HOSTELI Í MIÐBÆNUM 28.4. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27 0% VEXTIR - Húsgagnahöllin býður upp á vaxtalaus lán til allt að 12 mánaða – fyrir lifandi heimili – 99.990 FULLTVERÐ: 119.990 HAVANA HÆGINDASTÓLL Svart leður 149.990 FULLTVERÐ: 169.990 GYRO HÆGINDASTÓLL Hvítt, rautt eða svart leður 119.990 FULLTVERÐ: 139.990 GOHST HÆGINDASTÓLL Grátt, blátt, turkis og fjólublátt ákæði FÁÐU ÞÉRGOTT SÆTI! Sérlega vandaðir hægindastólar með snúningi. Leður eða áklæði. Fjölmargir litir og útfærslur. Fáguð skandinavísk hönnun www.husgagnahollin.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.