Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2013, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2013, Blaðsíða 20
*Heilsa og hreyfingMeistaranemar við HR gerðu myndband til að berjast gegn fordómum í garð geðsjúkra »23 H laupahópur Stjörnunnar var stofnaður síð- asta haust og tók við því góða starfi sem Gunnar Ásgeirsson hafði um árabil unnið undir merkjum Skokkhóps Garðabæjar. Skráðir félagar eru um 250 talsins, þar af um eitt hundrað virkir. Hópurinn kemur saman fjórum sinnum í viku. Þorsteinn Geirsson, sem þjálfar byrjend- urna í hópnum, segir hópnum skipt í fjóra hluta. Á öðrum endanum eru algjörir byrjendur og á hinum keppnishlaup- arar. „Þetta er allt litrófið. Hópurinn var myndaður utan um alla áhugamenn um hlaup, hér eru allir velkomnir,“ segir Þorsteinn en lagt er í’ann frá íþróttamiðstöðinni Ás- garði. Hópurinn er ramminn en hver og einn meðlimur setur sér persónuleg markmið og hleypur með sínum jafn- ingjum. „Það er ekkert gaman fyrir óvana að hlaupa með keppnismönnum. Þeir sitja þá bara eftir með æluna í háls- inum og koma aldrei aftur,“ segir Þorsteinn léttur í bragði. „Með því að skilgreina hópana fá allir tækifæri til að hlaupa með sínum jafningjum. Fólk þarf ekki að keppa um tíma og vegalengdir frekar en það vill.“ Að sögn Þorsteins þarf enginn að kvíða því að láta sjá sig, byrjendum sé sýndur fyllsti skilningur og fá þeir sér- stakt aðhald fyrstu mánuðina. Hann segir hlauparana á öllum aldri en stærsti hóp- urinn sé þó líklega miðaldra fólk sem noti hreyfinguna sem þyngdarstjórnun. „Þetta er bara venjulegt fólk sem vill gera vel við sig í mat og drykk um helgar og lætur hlaupin koma á móti. Það eru engar öfgar í þessu. Ætli 70% hópsins séu ekki að þessu sér til gamans og ynd- isauka. Góðir keppnismenn leynast þó inni á milli, menn sem leggja ófáa kílómetra að baki í viku hverri.“ Þorsteinn segir Gunnar Einarsson bæjarstjóra og bæj- aryfirvöld í Garðabæ hafa stutt vel við bakið á hópnum, einnig fyrirtæki í bænum, og kann hann því fólki bestu þakkir fyrir. Hann segir hópinn þó alls ekki bara fyrir Garðbæinga, í honum séu líka Reykvíkingar, Hafnfirð- ingar, Kópavogsbúar og jafnvel fólk utan af landi. Þorsteinn Geirsson ásamt félögum í Hlaupahópi Stjörnunnar í Garðabæ. Allir eru velkmnir á æfingar, Garðbæingar og aðrir. Morgunblaðið/Kristinn GARÐBÆINGAR SPRETTA ÚR SPORI Engin æla í hálsinum HLAUPAHÓPUR STJÖRNUNNAR Í GARÐA- BÆ KEMUR SAMAN TIL ÆFINGA FJÓRUM SINNUM Í VIKU OG ERU MEÐLIMIR AF ÖLLUM STÆRÐUM OG GERÐUM. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Maí og júní eru miklir hlaupamán-uðir. Eins og sjá má á hlaupav-efnum www.hlaup.is eru samtals44 almenningshlaup og þríþraut- arkeppnir sem eru með staðfesta dagsetningu í maí og júní. Þeim fjölgar líklega en nokkrir viðburðir eru óstaðfestir sökum þess að tíma- setning hefur ekki verið ákveðin. Alls eru 18 hlaup eða einhvers konar keppn- ir þar sem hlaupið er í maímánuði. Hlaupa- gikkir geta því valið um þrjú til fjögur hlaup á viku og fleiri í júní en þá eru að minnsta kosti 26 almenningshlaup og þríþrautarkeppnir í boði. Fyrir óreynda hlaupara getur verið fín leið til að koma sér af stað inn í sumarið að skrá sig í styttri vegalengd í einhverju þeirra almenn- ingshlaupa sem á dagskrá eru nú í maí. Í Breið- holtshlaupi Leiknis hinn 9. maí er til að mynda boðið upp á 2 km vegalengd sem hentar fyrir óvana. Stjörnuhlaupið fer fram við Vífilsstaði 25. maí en þar er boðið upp á 3 km og 10 km vegalengdir. Fjölda annarra hlaupa á öllum erf- iðleikastigum má finna á hlaupadagskránni. Útihlaup eru vinsælt sport og hlaupahópar eru starfræktir víða um land, líka í Garðabæ. Morgunblaðið/Kristinn ALMENNINGSHLAUP SKIPTA TUGUM Í VOR OG SUMAR Hlaupið inn í sumarið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.