Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2013, Blaðsíða 33
28.4. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
Morgunblaðið/Árni Sæberg
* Forrétturinnvar skot-helt, ítalskt ljúf-
meti en Þórunn
hætti við að gera
litlar kökur úr
geitarosti þar
sem mörgum
finnst slíkur ost-
ur ekki góður.
2 Chiabatta brauð
2 bréf af góðri hráskinku
handfylli af ferskri basiliku, smátt
söxuð
smátt söxuð steinselja
2 stk ferskur mozzarella ostur
2 hvítlaukar
ólífuolía
Aðferð
Skerið brauðið í sneiðar, berið hvit-
lauk á sneiðarnir og smá ólífuolíu.
Grillið síðan sneiðarnar í tvær mínútur
á hvorri hlið, annað hvort í ofni eða á
pönnu. Rífið niður hráskinkuna og setj-
ið á brauðið ásamt basiliku og mozz-
arellaostinum. Setjið brauðið því næst
inn í um 180° heitan ofn í nokkrar mín-
útur rétt til að bræða ostinn. Stráið
steinseljunni loks yfir áður en brauðið
er borið fram.
Grillað brauð
með hráskinku
og mozzarella
FYRIR 6-8 MANNS
2 pokar ferskt tagliatelle
2 pokar klettasalat
50 gr smjör
5 hvítlauksrif
1 flaska truffluolía
2 box shiitake-sveppir
2 box kastaníu-sveppir
2 box portabello-sveppir
Salt og pipar
1 kg humar
1 dl hvítvín
1 peli rjómi (má sleppa)
1 poki steinselja, smátt
söxuð
1 stk góður parmesan ost-
ur
Aðferð
Setjið smjörið á pönnu og
steikið í því smáttskorinn hvít-
laukinn og sveppina í 15 mín-
útur. Bætið því næst 2 msk af
truffluolíu saman við og rjóm-
anum og látið sjóða í nokkrar
mínútur.
Humarinn er steiktur á ann-
ari pönnu með hvítlauk, smá
hvítvíni og salt og pipar. Á
meðan er tagliatelle soðið
samkvæmt leiðbeiningum og
síðan velt upp úr truffluolíunni.
Pastað er sett á disk og kletta-
salati, sveppablöndu, humar,
ferskum parmesan og stein-
selju stráð yfir. Athugið að ef
villl má líka mýkja klettasalatið
svolítið í sveppablöndunni.
Tagliatelle með
sveppum, humar,
klettasalati og truffluolíu
Síðan 1844 hefur Kahla framleitt vandað postulín
sem fer jafn vel í hendi og hillu. Kahla hefur unnið
til fjölda verðlauna og er alltaf við hæfi hvort sem
það er í matarboði með öllum vinahópnum eða yfir
sunnudagskaffinu með ömmu.
laugavegi 47, opið mán.- fös. 10-18, lau. 11-17 www.kokka.is kokka@kokka.is
Arfur