Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2013, Blaðsíða 42
*Fjármál heimilannaNeytandi vikunnar segir vel hægt að spara í innkaupum til heimilisins með því bara að hugsa
Björn Þorláksson blaðamaður, nemi og
rithöfundur, býr á Akureyri ásamt þrem-
ur börnum; Karítas, tvítugri heims-
reisupíu, Starkaði, 5 ára og Sól, 2 ára.
Hann segir að neyslukostnaður heimilis-
ins hlaupi á mörgum tugum þúsunda á
mánuði.
Hvað áttu alltaf
til í ísskápnum?
Ekki venjulega mjólk eins og svo margir
myndu svara, því krílin yngstu eru með
ofnæmi fyrir henni sem þýðir að áhersla á
mjólkurneyslu annarra fjölskyldumeðlima
er á undanhaldi. En það er nánast alltaf til
appelsínusafi, rísmjólk, kjötálegg og af-
gangar!
Hvað fer fjölskyldan með í mat og
hreinlætisvörur á viku?
Þetta er stór fjölskylda og lítrinn af rís-
mjólk kostar frá 400 og upp í 700 krónur
eftir búðum, þannig að það kostar sitt að
vera með ofnæmi. Neyslan hleypur á
mjög mörgum tugum þúsunda mán-
aðarlega, við skárum reyndar allan mun-
að við trog þegar við þurfum þess fyrst
eftir hrunið og búum enn að því í inn-
kaupum. Til gamans get ég nefnt að ég
hætti að borga fyrir hársnyrtingu um
skeið og rakaði sjálfur á mér skallann.
Hvar er helst verslað?
Til skiptis í Nettó og Bónus en það hef-
ur dregið saman með Hagkaupum og hin-
um. Svo kaupum við nammi á laug-
ardögum og stundum einhverja vitleysu í
nálægri Strax búð við Byggðaveginn, þar
er frábært starfsfólk.
Hvað freistar helst
í matvörubúðinni?
Maður hefur nú ekki efni á að velta fyr-
ir sér endalausum freistingum. Nauð-
þurftir kosta sitt. En við reynum að kaupa
sem minnst inn af unnum matvörum
þannig að gott kjöt, góður fiskur og góðir
ávextir freista alltaf.
Hvernig sparar þú
í heimilishaldinu?
Aðallega með því að hugsa.
Hvað vantar helst
á heimilið?
Það vantar sárlega nýja þvottavél.
Eyðir þú í sparnað?
Já, við leggjum til hliðar 10.000 kall á
mánuði og grípum svo í neyðarsjóðinn
eftir þörfum.
Skothelt sparnaðarráð
Að kaupa ekki það ódýrasta alltaf held-
ur velta fyrir sér næringu, endingu og
hvort manni muni þykja vænt um efnis-
legan hlut. Það getur reynst dýrt að spara
um of!
NEYTANDI VIKUNNAR BJÖRN ÞORLÁKSSON
Vantar nýja þvottavél á heimilið
Björn Þorláksson segist leggja fyrir í hverjum mánuði til að
eiga fyrir óvæntum útgjöldum. Þannig sé hægt að mynda
sjóð til að grípa í eftir þörfum.
Skapti Hallgrímsson
* ASÍ gefur neytendum kost á þvíað senda inn ábendingar um hækkað
eða lækkað vöruverð á síðunni
Vertu á verði. Þar má meðal annars
finna eftirtaldar ábendingar:
* Katrín bendir á verðhækkun íBónus á Ísafirði. Blaðlaukur hefur
hækkað um 150% á 7 vikna tímabili.
Úr 298 kr þann 2. mars í 639 kr.
þann 21. apríl.
* Daníel bendir á mikla verð-hækkun í Bauhaus. Þar var Bonde-
steinn á 59 kr stykkið þann 8. júní
2012 en kostaði 103 kr. þann 13.
apríl sem gerir tæplega 75% hækk-
un.
* Kolbrún segir frá talsverðrihækkun í Söstrene Grene, Smára-
lind, á lakkrís. Poki af Panda lakkrís
kostaði 335 kr þann 5. apríl en viku
seinna hafði verðið hækkað í 375
krónur eða um 40 krónur pokinn.
* Oddur bendir á að rúnnstykkikosti 50 krónur alla daga í Bernhöft-
sbakaríi. Annars staðar er verðið á
þeim á bilinu 100-125 krónur.
púkinn
Aura-
Hækkar og
lækkar
Allir viðskiptabankar hafa nú tekið upp svokölluð
hraðbankagjöld þannig að þeir sem ekki eru við-
skiptavinir bankans greiða tiltekið gjald fyrir út-
tekt úr hraðbanka.
Misjafnt er hversu há þóknunin er sem við-
skiptavinur greiðir, en gjaldið er frá 95 krónum
upp í 150 krónum.
Hæst er gjaldið hjá Landsbankanum. Þeir sem
ekki eru viðskiptavinir Landsbankans greiða 150
krónur fyrir úttekt úr hraðbönkum bankans. Ar-
ion banki rukkar aðra en viðskiptavini um 110
krónur fyrir hverja úttekt en hjá Íslandsbanka
greiða þeir sem ekki eru viðskiptavinir 95 krónur
fyrir að taka út reiðufé úr hraðbanka.
Margs konar aukagjöld
Bankarnir innheimta gjöld af ýmsum toga. Hér
ertu tilgreind nokkur atriði af handahófi af
heimasíðum bankanna.
Landabankinn innheimtir 95 krónur fyrir þá
þjónustu að staða og færslur á reikningi sé lesin
upp í síma af starfsmanni.
Arion banki innheimtir 990 krónur fyrir taln-
ingu á mynt ef fjárhæð er lægri en 30.000 krón-
ur.Ekki er innheimt gjald fyrir talningu úr spari-
baukum barna né fyrir viðskiptavini Arion
banka.Íslandsbanki rukkar 125 krónur fyrir inn-
legg á reikninga í öðrum bönkum en í Íslands-
banka.
Þegar sýslað er með peningana sína er því
ástæða til að kynna sér verðskrár vel áður en
hafist er handa við úttektir, talningu eða milli-
færslur.
ÁSTÆÐA ER TIL AÐ KYNNA SÉR VERÐSKRÁ BANKANNA
Hraðbankaúttektir að-
eins fríar í eigin banka
AÐ TAKA PENINGA ÚT ÚR HRAÐBANKA ANNARS BANKA EN EIGIN VIÐSKIPTABANKA
KOSTAR FRÁ 95 KRÓNUM UPP Í 150 KRÓNUR FYRIR HVERJA ÚTTEKT
Morgunblaðið/ÞÖK