Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2013, Síða 20
*Heilsa og hreyfingMeistaranemar við HR gerðu myndband til að berjast gegn fordómum í garð geðsjúkra »23
H
laupahópur Stjörnunnar var stofnaður síð-
asta haust og tók við því góða starfi sem
Gunnar Ásgeirsson hafði um árabil unnið
undir merkjum Skokkhóps Garðabæjar.
Skráðir félagar eru um 250 talsins, þar af
um eitt hundrað virkir. Hópurinn kemur saman fjórum
sinnum í viku. Þorsteinn Geirsson, sem þjálfar byrjend-
urna í hópnum, segir hópnum skipt í fjóra hluta. Á öðrum
endanum eru algjörir byrjendur og á hinum keppnishlaup-
arar. „Þetta er allt litrófið. Hópurinn var myndaður utan
um alla áhugamenn um hlaup, hér eru allir velkomnir,“
segir Þorsteinn en lagt er í’ann frá íþróttamiðstöðinni Ás-
garði.
Hópurinn er ramminn en hver og einn meðlimur setur
sér persónuleg markmið og hleypur með sínum jafn-
ingjum. „Það er ekkert gaman fyrir óvana að hlaupa með
keppnismönnum. Þeir sitja þá bara eftir með æluna í háls-
inum og koma aldrei aftur,“ segir Þorsteinn léttur í
bragði. „Með því að skilgreina hópana fá allir tækifæri til
að hlaupa með sínum jafningjum. Fólk þarf ekki að keppa
um tíma og vegalengdir frekar en það vill.“
Að sögn Þorsteins þarf enginn að kvíða því að láta sjá
sig, byrjendum sé sýndur fyllsti skilningur og fá þeir sér-
stakt aðhald fyrstu mánuðina.
Hann segir hlauparana á öllum aldri en stærsti hóp-
urinn sé þó líklega miðaldra fólk sem noti hreyfinguna
sem þyngdarstjórnun. „Þetta er bara venjulegt fólk sem
vill gera vel við sig í mat og drykk um helgar og lætur
hlaupin koma á móti. Það eru engar öfgar í þessu. Ætli
70% hópsins séu ekki að þessu sér til gamans og ynd-
isauka. Góðir keppnismenn leynast þó inni á milli, menn
sem leggja ófáa kílómetra að baki í viku hverri.“
Þorsteinn segir Gunnar Einarsson bæjarstjóra og bæj-
aryfirvöld í Garðabæ hafa stutt vel við bakið á hópnum,
einnig fyrirtæki í bænum, og kann hann því fólki bestu
þakkir fyrir. Hann segir hópinn þó alls ekki bara fyrir
Garðbæinga, í honum séu líka Reykvíkingar, Hafnfirð-
ingar, Kópavogsbúar og jafnvel fólk utan af landi.
Þorsteinn Geirsson ásamt félögum í Hlaupahópi Stjörnunnar í Garðabæ. Allir eru velkmnir á æfingar, Garðbæingar og aðrir.
Morgunblaðið/Kristinn
GARÐBÆINGAR SPRETTA ÚR SPORI
Engin æla
í hálsinum
HLAUPAHÓPUR STJÖRNUNNAR Í GARÐA-
BÆ KEMUR SAMAN TIL ÆFINGA FJÓRUM
SINNUM Í VIKU OG ERU MEÐLIMIR AF
ÖLLUM STÆRÐUM OG GERÐUM.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Maí og júní eru miklir hlaupamán-uðir. Eins og sjá má á hlaupav-efnum www.hlaup.is eru samtals44 almenningshlaup og þríþraut-
arkeppnir sem eru með staðfesta dagsetningu
í maí og júní. Þeim fjölgar líklega en nokkrir
viðburðir eru óstaðfestir sökum þess að tíma-
setning hefur ekki verið ákveðin.
Alls eru 18 hlaup eða einhvers konar keppn-
ir þar sem hlaupið er í maímánuði. Hlaupa-
gikkir geta því valið um þrjú til fjögur hlaup á
viku og fleiri í júní en þá eru að minnsta kosti
26 almenningshlaup og þríþrautarkeppnir í
boði.
Fyrir óreynda hlaupara getur verið fín leið
til að koma sér af stað inn í sumarið að skrá sig
í styttri vegalengd í einhverju þeirra almenn-
ingshlaupa sem á dagskrá eru nú í maí. Í Breið-
holtshlaupi Leiknis hinn 9. maí er til að mynda
boðið upp á 2 km vegalengd sem hentar fyrir
óvana. Stjörnuhlaupið fer fram við Vífilsstaði
25. maí en þar er boðið upp á 3 km og 10 km
vegalengdir. Fjölda annarra hlaupa á öllum erf-
iðleikastigum má finna á hlaupadagskránni. Útihlaup eru vinsælt sport og hlaupahópar eru starfræktir víða um land, líka í Garðabæ.
Morgunblaðið/Kristinn
ALMENNINGSHLAUP SKIPTA TUGUM Í VOR OG SUMAR
Hlaupið inn í sumarið