Morgunblaðið - 18.05.2013, Síða 37

Morgunblaðið - 18.05.2013, Síða 37
sem hafði oft aðra sýn á tilveruna en hann. Við vorum jafnaldra en einhvern veginn var hann fæddur á annarri öld, svo ólík voru upp- vaxtarskilyrðin. Samt höfðu áhrif nútímans laumað sér inn í baðstof- una á Galtastöðum. Kalli hafði gaman af tónlist og eignuðust Rolling Stones í honum traustan aðdáanda. Þetta sumar var Vigdís kjörin forseti yfir Íslandi. Við sátum límd við útvarpstækið í eldhúsinu þeg- ar hún var sett í embættið. Kalli var nokkuð sáttur við kjörið en við Heiða vorum himinlifandi. Við Heiða urðum strax miklar og nánar vinkonur og ég fann að hún hafði áhyggjur hvað yrði um Kalla þegar hún félli frá, en hún lést á Sjúkrahúsinu á Egilsstöðum vorið 2001, slitin af vinnu og lífsins trakteringum Kalli hélt áfram að búa á Galta- stöðum, sinnti viðhaldi á gamla bænum og tók á móti ferðamönn- um, sem komu til að skoða þessar einstöku byggingar. Hann var góður heim að sækja og hafði gaman af að sýna fólki bæinn sinn. Fyrir nokkrum árum festi Kalli kaup á bjartri fallegri íbúð á Eg- ilsstöðum til að eiga athvarf frá einsemd vetrarins á Galtastöðum. Ég hitti hann einmitt í verslun föstudaginn áður en hann lést, þá var hann að snúa aftur í sveitina að undirbúa sumarið. Ég smellti á hann kossi, sem hann tók góðlát- lega þó kossaflangs hafi ekki verið hans ær og kýr. Mig grunaði ekki að það yrði í síðasta sinn sem ég sæi þennan sérstaka samferða- mann minn og síst gat það hvarfl- að að mér að þessi friðsemdar- maður horfinnar aldar yrði fórnarlamb ofbeldis og vitstola nú- tíma. Ég votta ættingjum og sam- ferðamönnum Kalla mína dýpstu samúð, sem og þeim ógæfumanni sem átti sök á dauða hans. Þóra Bergný Guðmundsdóttir. Við kveðjum þig með sára sorg í hjarta, söknuðurinn laugar tári kinn. Dregur ský á dagsins ásýnd bjarta, dökkur skuggi fyllir huga minn. Í miðjum leik var komið til þín kallið, klippt á strenginn þinn. Eitt af vorsins fögrum blómum fallið. (Hákon Aðalsteinsson) Takk fyrir allt Kalli minn, þín verður saknað. Guð blessi minningu þína og styrki þá sem eiga um sárt að binda vegna þessa hræðilega at- burðar. Þín litla, Aðalheiður Björt Unnarsdóttir. Það voru höfðinglegar mót- tökur sem við litla fjölskyldan fengum á Egilsstaðaflugvelli í des- ember sl. Ásamt Gulla og Elísa- betu var þar mættur brosmildur maður sem stóð og beið, teinréttur í baki og með hendur á mjöðmum. Kalli á Galtastöðum vinur fjöl- skyldunnar til margra ára var að sjálfsögðu kominn til að taka á móti útlendingunum. Hann spurði mig hátt og snjallt hvar foreldrar mínir og systur væru eiginlega? Hvort þau ætluðu virkilega ekki að taka á móti okkur? Ég brosti út í annað og sagðist hitta þau á eftir, það væri nú meira en nóg að hafa þau þrjú hér á vellinum. Um leið og farangursfæribandið fór í gang dreif Kalli sig af stað til að finna töskurnar okkar. Þar dugðu engin vettlingatök; töskunum var kippt af í flýti og svo var lagt af stað. Ég fékk smá skömm í hattinn fyrir að merkja töskurnar ekki jafn vel og mamma þegar hún kom frá Nor- egi, með eldrauðum borða. Ég brosti aftur út í annað og vissi að þetta var allt vel meint og sagðist þurfa að kippa því í liðinn sem fyrst. Það var alltaf gaman að koma í Galtastaði til Kalla. Síðast kom ég þangað sumarið 2011. Þá fórum við Jón Torfi með mömmu að taka upp rabarbara og fengum sýningu á torfbænum í leiðinni. Kalli sagði okkur af mikilli ná- kvæmni frá hverri vistarveru og hverjum hlut sem stóð þar til sýn- is. Þetta var skemmtileg ferð sem ég er í dag þakklát fyrir að hafa komist í. Þetta líf er stundum einkenni- legt, og oftar en ekki skilur maður hvorki upp né niður. En eitt er ég þó viss um, að þegar minn tími kemur þá bíður þar maður, tein- réttur í baki með hendur á mjöðm- um og tekur vel á móti mér. Já Kalli minn, ég verð búin að merkja töskurnar. Við sendum ættingjum og vin- um Kalla okkar innilegustu sam- úðarkveðjur og megi góður Guð styrkja okkur öll í sorginni. Soffía, Jón Torfi og Ylfa Kristín. Með fáum orðum kveð ég góðan vin og samstarfsmann, Karl Jóns- son frá Galtastöðum fram í Hró- arstungu. Fyrir hönd Þjóðminja- safns Íslands er honum þakkað mikilsvert framlag til þjóðminja- vörslunnar og varðveislu torf- húsaarfs Íslands. Fundum okkar Karls bar fyrst saman sumarið 2000 þegar ég heimsótti hann og skoðaði torfbæ- inn á Galtastöðum fram undir hans leiðsögn. Síðan þá höfum við oft farið yfir málin saman í góðri samvinnu og vináttu. Karl var góður samstarfsmaður Þjóð- minjasafnsins um verndun bæjar- ins. Karl var afar fróður og áhuga- samur um varðveislu torfhúsanna sem hann þekkti betur en nokkur annar og tók vel á móti gestum með fróðleik og leiðsögn um hinn merka minjastað. Honum var sér- staklega umhugað um varðveislu- gildi húsanna og sögu þeirra. Karl bjó yfir reynslu og þekk- ingu sem var ómetanleg við skrán- ingu og viðgerðir bæjarhúsanna. Samvinna við staðkunnuga er ein- mitt forsenda þess að varðveita megi sem best heimildir um sögu- legar byggðaminjar á borð við torfhúsið á Galtastöðum. Karl var einnig góður samstarfsmaður þeirra handverksmanna og sér- fræðinga þjóðminjavörslunnar sem komið hafa að viðgerðum og verndun bæjarins á liðnum ára- tugum. Torfbærinn á Galtastöðum fram er einstakur og á rætur í fornri hefð sem einkennist af því að hin torfklædda baðstofa liggur samsíða hlaðinu. Þar er fjósbað- stofa sem reist var árið 1882 þar sem niðri er fjós en baðstofa er yf- ir. Þannig nýttist ylurinn frá kún- um til húshitunar. Fyrrum mun hafa verið tvíbýlt á jörðinni. Bær- inn á Galtastöðum fram hefur ver- ið hluti af húsasafni Þjóðminja- safnsins frá 1976 og tilheyrir húsasafni þess sem er mikilsverð- ur safnkostur í eigu Þjóðminja- safns Íslands. Allt frá þeim tíma hefur safnið átt í afar góðri sam- vinnu við Karl og áður einnig við móður hans, Aðalheiði Sigurðar- dóttur sem lést árið 2001. Karl var starfsmaður safnsins á liðnum sumrum og tók á móti gestum samhliða vinnu við viðhald bæjar- ins. Þar vann hann gott starf. Karl var rólyndur maður og ná- kvæmur. Hann var afar vel að sér um sögu bæjarins og bjó yfir góð- um skilningi á því vandasama verkefni sem varðveisla torfhúsa felur í sér. Hann mat mikils áhuga Þjóðminjasafns á verndun bæjar- ins og var mikilsvert að finna þann góða vilja sem einkenndi allt hans fas. Karl hitti ég síðast á Galtastöð- um í ágúst á liðnu ári. Við spjöll- uðum saman góða stund og fórum yfir viðgerðir húsanna. Það var ánægjuleg stund sem mun lifa í minningunni. Með þökk kveð ég góðan mann sem lagði mikið af mörkum til varðveislu þjóðararfs sem fólginn er í hinum látlausa torfhúsaarfi og þar með þjóð- minjavörslu á Íslandi. Fyrir hönd Þjóðminjasafns Íslands vottum við fjölskyldu Karls samúð okkar. Heiðruð sé minning Karls Jóns- sonar frá Galtastöðum fram í Hró- arstungu. Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður. MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2013 ✝ Arndís EggerzSigurðardóttir (Didí Sigurðar) fæddist á Nauteyri við Ísafjarðardjúp 10. september 1924. Hún lést á Hjúkrunarheim- ilinu Ísafold í Garðabæ 10. maí 2013. Foreldrar henn- ar voru Sigurður Pálsson, bóndi og hreppstjóri á Nauteyri, f. á Prestbakka við Hrútafjörð 4. aprí l 1897, d. 23. júní 1973 og Sigríður Ein- arsdóttir, f. 18. ágúst 1897, d. 28. mars 1925. Fósturmóðir Sig- urveig Jónsdóttir, f. 23. október 1900, d. 26. nóvember 1991. Systkini Arndísar eru Sigríður, f. 1927, d. 25. júní 2001, gift Gunnari Péturssyni. Páll, f. 1928, kvæntur Hólmfríði Páls- dóttur. Helga Guðrún, f. 1934, d. 5. júlí 1991, gift Geir Guð- brandssyni, d. 23. nóvember 2000 og Elínborg, f. 1941, gift Guðbirni Ingasyni, d. 16. októ- ber 2009. 29. desember 1957 giftist Arndís Ólafi Gunnari Bjarna- syni, f. á Efri-Vaðli á Barða- strönd 10. desember 1930, d. 17. nóvember 2001, foreldrar hans voru hjónin Bjarni Þórarinn Ólafsson, f. á Hlaðseyri við Pat- reksfjörð 7. október 1903, d. 27. febrúar 1998, og Sigríður Valdís Elíasdóttir, f. í Rauðsdal á Barðaströnd 16. september 1909, d. 2. ágúst 1994. Börn Arn- dísar og Ólafs eru: 1) Bjarni Val- ur, blikksmiður í Reykjavík, f. 15. mars 1958, maki Anna Sig- marsdóttir, f. 20. maí 1959, börn þeirra eru, a) Ólafur Ingi, f. 27. febrúar 1990, b) Berglind Sess- elja, 5. janúar 1993, c) Sigmar Jóhann, f. 8. apríl 1999, og d) Arnar Hörður, f. 8. apríl 1999. 2) Sig- urður, bóndi á Brúsastöðum í Vatnsdal í A-Hún, f. 26. september 1959, maki Gróa Lár- usdóttir, f. 5. des- ember 1958, börn þeirra eru, a) Áki Már, f. 28. júlí 1983, d. 2. janúar 2004, b) Arndís Eggerz, f. 4. maí 1989, sambýlismaður er Elvar Freyr Pálsson, f. 20 júlí 1988. 3) Ólafur Örn, rafvirkjameistari starfar hjá Ístak Noregi, f. 22. júní 1961, maki Maria Beatriz Fernandes, f. 18. október 1966, sonur þeirra er Daniel Fern- andes, f. 13. maí 1990, 4) Sig- urveig Jóhanna, starfsmaður á öldrunarheimili, f. 11. júlí 1963, maki Árni Long vélvirki, verk- stjóri hjá ÍAV, f. 6. maí 1962, synir þeirra eru a) Ólafur Gunn- ar, f. 19. júní 1982, maki Katrín Guðlaugsdóttir, f. 5. júní 1982. Börn þeirra eru Gabríel, f. 22. maí 2009, Ísak Breki, f. 12. nóv- ember 2011, b) Árni Theodór, f. 19. mars 1985, maki Kristín Óm- arsdóttir, 5. mars 1980, börn þeirra eru Alexander Árni, f. 28. apríl 2006 og Tinna, f. 8. októ- ber 2010. c) Davíð Long, f. 28. febrúar 1990. 5) Páll Rúnar, starfsmaður Rio Tinto Alcan, 16. júní 1965, maki Nili Ben Ezra, f. 6. nóvember 1964, börn þeirra eru a) Adam, f. 6. ágúst 1989, b) Emil, f. 5 maí 1993. Útför Arndísar Eggerz Sig- urðardóttur fer fram frá Pat- reksfjarðarkirkju í dag, 18. maí 2013, kl. 14. Jarðsett verður í Brjánslækjarkirkjugarði. Elsku amma. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Blessuð sé minning þín, elsku amma. Þín nafna, Arndís Sigurðardóttir. Það má segja að við bræðurnir höfum alist upp á tveimur heim- ilum þegar við bjuggum á Patró. Annars vegar hjá ömmu Dídí og afa á Brunnum 11 og svo vorum við stundum heima hjá mömmu og pabba. Við munum varla eftir því að amma hafi ekki verið heima, tilbúin að taka á móti okk- ur og alltaf var snúist í kringum mann eins og maður væri forset- inn sjálfur. Flesta skóladaga fórum við heim til ömmu og afa í hádegis- mat. Þar var alltaf veisla með al- vöru íslenskum mat og eftirrétti og einnig eftir skóla fengum við mjólk og kökur, af þeim var sko alltaf nóg. Og þegar það var ekki beint í leiðinni var bara tekinn krókur til að komast í faðm ömmu og afa. Mjög oft kepptumst við um að fá að gista þar líka. Þá var gjarnan spilað á spil með ömmu og voru ófá spilin sem við spiluðum með ömmu Dídí. Við bræður eigum margar ógleymanlegar minningar um ömmu Dídí og munum minnast hennar fyrir hlýja nærveru henn- ar og ró. Hún hafði alltaf nægan tíma fyrir okkur, okkur leið alltaf jafn vel með henni og aldrei reiddist hún okkur svo við mun- um eftir. Betri vin er ekki hægt að hugsa sér. Það gerir okkur að betri mönnum að hafa átt Dídí sem ömmu og hún mun alltaf vera stór fyrirmynd í okkar lífi. Hvíl í friði, elsku amma, minn- ing þín lifir með okkur. Takk fyr- ir allt sem þú hefur gefið okkur. Ólafur Gunnar Long, Árni Theodór Long og Davíð Long. Arndís Eggerz Sigurðardóttir ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, MARTA FANNEY SVAVARSDÓTTIR, Víðidal Skagafirði, lést á Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki miðvikudaginn 15. maí. Jarðsungið verður frá Víðimýrarkirkju laugar- daginn 25. maí kl. 14.00. Stefán Gunnar Haraldsson, Svavar Haraldur Stefánsson, Ragnheiður G. Kolbeins, Pétur Helgi Stefánsson, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, Jóhanna Sigríður Stefánsdóttir, Einar Örn Einarsson, Margrét S. Stefánsdóttir, Ólafur Hafsteinn Einarsson, ömmu- og langömmubörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, MARGRÉT GUÐBJÖRNSDÓTTIR, Jaðarsbraut 33, Akranesi, andaðist miðvikudaginn 15. maí. Útförin fer fram frá Akraneskirkju miðviku- daginn 22. maí kl. 14.00. Tryggvi Björnsson, Helga Bjarnadóttir, Bryndís Tryggvadóttir, Áki Jónsson, Guðbjörn Tryggvason, Þóra Sigurðardóttir, Tryggvi Grétar Tryggvason, Þórey Þórarinsdóttir og ömmubörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, LAUFEY GUÐBRANDSDÓTTIR, er látin. Berent Th. Sveinsson. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞÓRUNN BERGSDÓTTIR fyrrverandi skólastjóri, sem lést laugardaginn 11. maí, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 22. maí kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Akureyrar og Heimahlynningu Akureyrar. Guðrún Jónína Friðriksdóttir, Steinar Smári Tryggvason, Steingrímur Friðriksson, J. Freydís Þorvaldsdóttir, Guðný Friðriksdóttir, Hrefna Þórunnardóttir, Yrsa Hörn Helgadóttir, Gunnar Gíslason, Ylfa Mist Helgadóttir, Haraldur Ringsted og barnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, HILMAR G. JÓNSSON, andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn 12. maí. Útför fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðju- daginn 21. maí kl. 11.00. Elísabet Jensdóttir, Jens Hilmarsson, Sigfríð Margrét Bjarnadóttir, Jón Rúnar Hilmarsson, Alexandra Chernyshova, Guðlaug Jóna Hilmarsdóttir, Jón Þór Antonsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, LILIAN AGNETA MÖRK GUÐLAUGSSON, Furugrund 1, Reykjavík, lést á Landspítala Landakoti mánudaginn 13. maí. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 21. maí kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Sæmundur Guðlaugsson. ✝ Elskuleg systir, JÓHANNA TRYGGVADÓTTIR, áður til heimilis Sörlaskjóli 86, sem lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund laugardaginn 11. maí, verður jarð- sungin frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 21. maí kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Jóna Tryggvadóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.