Morgunblaðið - 23.08.2013, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2013
Allar gerðir af brautum fyrir
rennihurðir (tré og gler),
fataskápa og innréttingar.
Brautir fyrir harmónikku-
hurðir, lyfta og renna ofl.
ALHLIÐA GÆÐA-
LAUSNIR FYRIR
RENNIHURÐIR
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Um 980 börn eru á biðlista eftir plássi á frí-
stundaheimili í Reykjavík. Þá á eftir að manna
um 60 stöðugildi til þess að sinna starfinu og
þar af 24 störf þar sem um fötluð börn er að
ræða. Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavík-
urborg er yfirleitt um 50% störf að ræða og því
má gera ráð fyrir að eftir sé að ráða um 120
starfsmenn. Alls hefur borist 3.501 umsókn um
frístundavist, auk 91 umsóknar í frístunda-
klúbba fyrir fötluð börn og ungmenni.
Marta Guðjónsdóttir, varaborgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks, telur að hægt hefði verið að
vinna á biðlistum fyrr með betra skipulagi.
„Það er dálítið undarlegt að skóla- og frí-
stundaráð hafi ekki fundað fyrr en í gær (fyrra-
dag),“ segir Marta. Ástandið sé verra nú en það
var í fyrra þegar um 781 barn var á biðlista.
Soffía Pálsdóttir, yfirmaður frístundamið-
stöðva hjá Reykjavíkurborg, segist búast við
því að hratt vinnist á biðlistum. Það helgist af
því að flestir þeir starfsmenn sem muni verða
ráðnir séu skólafólk sem sæki um þegar
stundatöflur þess liggja fyrir. Hún segir að bú-
ið sé að auglýsa eftir starfsfólki.
Fjölskyldur í verulegum vanda
Marta telur að hægt hefði verið að grípa til
ráðstafana fyrr. „Fjölmargar fjölskyldur eru í
verulegum vanda og það er of seint að skipu-
leggja þetta þegar skólarnir eru að byrja,“ seg-
ir Marta. Í fyrra tók nokkrar vikur að leysa
vandann. „Hluti af skólastarfinu er rekstur frí-
stundaheimila og maður spyr sig hvort ekki
hefði verið heppilegra að gera einhverjar ráð-
stafanir strax í vor með einhverjum hætti. Til
dæmis með því að biðja foreldra um að skrá
börn sín strax við skólalok. Þannig kemur það
ekki á óvart hve margir sækja um,“ segir
Marta. Soffía segir að fleiri hafi sótt um í ár en í
fyrra. „Það er alltaf að fjölga þeim foreldrum
sem sækja um þessa þjónustu. 95-98% barna í
fyrsta bekk nýta þessa þjónustu. Við erum í
samkeppni við aðra vinnustaði um starfsfólk en
við erum einnig að súpa seyðið af því að geta
ekki boðið fólki heilsdagsstörf,“ segir Soffía.
980 börn á biðlista í Reykjavík
Varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks telur borgina illa undirbúna og kallar eftir betra skipulagi
Bíða eftir því að skólafólkið sæki um, segir yfirmaður frístundamiðstöðva Aldrei fleiri umsóknir
Morgunblaðið/Ómar
Bið 980 skólabörn eru á biðlista eftir plássi á
frístundaheimili. Aldrei hafa fleiri sótt um.
Frístundaheimili
» 980 börn eru á biðlista eftir plássi á
frístundaheimili í vetur.
» Enn á eftir að ráða um 120 manns í 60
stöðugildi.
» Borgarfulltrúi telur að hægt hefði ver-
ið að undirbúa frístundaheimilin betur
með betra skipulagi.
» 95-98% barna í 1. bekk nýta þjón-
ustuna
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
aslaug@mbl.is
Lagt var fram bréf í borgarráði í
gær frá bankastjóra Landsbankans
hf. varðandi lóð fyrir nýjar höfuð-
stöðvar bankans. Reiturinn sem
Landsbankinn óskar eftir er reitur
fyrir framan hótel sem mun rísa við
hlið Hörpu.
Kjartan Magnússon, borgar-
fulltrúi, segir að borgarráð hafi ekk-
ert við það að athuga að Landsbank-
inn fái þennan reit, en borgarráð
vísaði ósk bankans til meðferðar hjá
Sítusi hf.
Fjórir reitir við Hörpu
Sítus hf. átti fjóra reiti við Hörp-
una. Reit eitt og tvö, en annar hefur
verið seldur til Landfesta, dóttur-
félags Arion banka. Þeir áttu kaup-
rétt og keyptu hann í mars, en þeir
eru byrjaðir að þróa það hvernig
bygging verður á þeim reit. Reitur
eitt stendur í söluferli eins og er, en
það eru Stólpar sem hyggjast
kaupa hann.
Reiturinn sem hótelið mun
standa á var seldur fyrr í
þessum mánuði til Auro In-
vestment ehf. Gerð var
krafa um að þar myndi
rísa að minnsta kosti
fjögurra stjörnu
hótel.
Þá er seinasti reiturinn í eigu Sít-
usar hf., sá sem Landsbankinn hef-
ur óskað eftir að byggja á.
Að sögn Árna Geirs Pálssonar,
verkefnastjóra hjá Sítusi hf., þá hef-
ur Landsbankinn lýst yfir áhuga á
að byggja höfuðstöðvar sínar á
reitnum. „Það hefur verið ljóst að
þeir hafa haft áhuga á því, en ferlið
er ekki komið langt,“ segir Árni
Geir. Sítus hf. er að 54% í eigu rík-
isins og 46% í eigu Reykjavíkur-
borgar en stjórn Sítusar hf. tekur
ákvörðun um sölu á reitnum. Lands-
bankinn hefur nú þegar sent bréf til
borgarinnar sem gerði engar at-
hugasemdir og fer nú erindi bank-
ans því inn á borð hjá stjórn Sítusar
hf.
Ákvörðun verður síðan tekin um
hvað gert verður í framhaldinu, en
Landsbankinn á mögulega eftir að
leita líka til ríkisins eða fjármálaráð-
herra, sem er annar af tveimur eig-
endum Sítusar hf. Stjórn Sítusar hf.
gæti ákveðið að fara í almennt útboð
á reitnum, sem bankinn gæti þó
boðið í og átt mögulega besta boðið.
„Það er verið að passa upp á það
að svæðið í kringum Hörpu verði
byggt upp eins og það var hugsað í
upphafi,“ segir Árni Geir.
Landsbankinn óskar
eftir reit við Hörpu
Ekki gerðar athugasemdir við áform bankans í borgarráði
„Landsbankinn er að falast eftir lóð
fyrir höfuðstöðvar af Sítusi hf,“
segir Kjartan Magnússon, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
„Þetta var sent til borgarráðs,
svo að borgin væri með frá byrjun,
því það er stórmál fyrir borgina
hvað kemur á þennan reit,“ segir
Kjartan, en hann segir al-
mennt hafa verið rætt um
málin á Hörpu-reitnum á
borgarráðsfundi í gær.
„Það er hinsvegar athyglisvert að
það sé forgangsmál hjá ríkisbank-
anum að byggja glæsilegar höf-
uðstöðvar sem vafalaust munu
kosta stórfé,“ segir Kjartan.
Fram kemur í bókun borgarráðs
að það fagni því að uppbygging á
svokölluðum Hörpu-reit geti hafist
fljótlega og undirstrikar þá hags-
muni sem felast í því að ljúka upp-
byggingu og frágangi svæðisins í
heild á næstu árum.
Athyglisvert forgangsmál bankans
STÓRMÁL FYRIR BORGINA HVAÐ KEMUR Á ÞENNAN REIT
Kjartan
Magnússon
Hafnarsvæðið Teikningarnar á myndinni sýna rétta staðsetningu bygginganna en ekki endanlegt útlit þeirra.
1
2
Hótel
Banki
Harpa
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Mælingamenn sem
fóru að upptökum
Vestari-Jökulsár í
Skagafirði við Sátu-
jökul í gær segja að
lítið hlaup hafi hafist
í ánni í fyrradag. Þá
er sterk brenni-
steinslykt á svæðinu.
Benda athuganir
til að jarðhitavatn
hafi blandast jök-
ulvatni og lítið jök-
ulhlaup myndast.
Lítil jökulhlaup eru
þekkt á þessum
slóðum. Upptök
jarðhitavatnsins eru
í Hofsjökli, en nán-
ari staðsetning bíður frekari skoð-
unar.
Mælingamenn fóru á svæðið eft-
ir að tilkynning barst í fyrradag
um óvenjulegan grágruggugan lit í
Vestari-Jökulsánni. Þá bárust
einnig fregnir um að brennisteins-
lykt væri af ánni. Mælir Veð-
urstofunnar við Goðdalabrú stað-
festir aukið rennsli í ánni, þó það
sé ekki mikið.
Sterk brennisteinslykt er nærri
upptökum árinnar þar sem hún
kemur undan Sátujökli. Er skýr-
inganna að leita í brennisteins-
vetni sem berst með hlaupvatninu
þegar það kemur undan jöklinum.
Styrkur þess er þá svo mikill að
það getur skaðað slímhúð í augum
og öndunarvegi. Í tilkynningu
Veðurstofu er ferðafólki eindregið
ráðlagt að halda sig fjarri upp-
tökum árinnar á meðan hlaupið
stendur yfir. vidar@mbl.is
Lítið jökulhlaup í
Vestari-Jökulsá
Ferðafólk varað við því að vera ná-
lægt upptökum árinnar nærri Sátujökli
Gruggug Brennisteinslykt berst með litlu hlaupi í
Vestari-Jökulsá sem á upptök í Hofsjökli.