Morgunblaðið - 23.08.2013, Síða 6
BAKSVIÐ
Jón Heiðar Gunnarsson
jonheidar@mbl.is
Ýmis framleiðslufyrirtæki og inn-
flytjendur eru ósáttir við svokallaða
„skanna-sölu“ hjá íslenskum versl-
unarkeðjum. Slíkt fyrirkomulag
gengur út á að verslanir greiða ein-
göngu fyrir þær vörur sem eru seld-
ar í gegnum skanna í búðinni en ekki
fyrir þær vörur sem eru afhentar.
„Ef ég afhendi 100 stykki af minni
vöru og síðan selur búðin eingöngu
80 stykki þá gufa þessi 20 stykki
bara upp í kerfinu og búðin ber enga
ábyrgð,“ segir ónefndur eigandi
matvælaframleiðslufyrirtækis á höf-
uðborgarsvæðinu. Eigandinn vill
ekki koma fram undir nafni af ótta
við að missa viðskiptavild sína hjá
stórum verslunarkeðjum.
Mjög hagkvæmt fyrir verslanir
„Búðin gerir eingöngu grein fyrir
því sem fer í gegnum búðakassa og
hvernig eigum við að gera grein fyrir
þessum hlutum sem bara hverfa inni
í búðinni og birtast aldrei á reikningi
hjá neinum,“ spyr eigandinn.
„Kostnaðurinn lendir allur á okk-
ur og mér finnst ótrúlegt að það sé á
okkar ábyrgð að borga fyrir það sem
starfsfólk verslana skemmir eða það
sem er stolið í verslunum. Þetta er
mjög hagkvæmt fyrir verslanir enda
bera birgjar alla ábyrgð og þeir
enga. Eins og ég horfi á þetta þá er
þetta bara ólöglegt.“
Eigandinn reynir ávallt að segja
nei við slíku viðskiptafyrirkomulagi.
„Við höfum fundið fyrir þessum
þrýstingi stórfyrirtækja en margir
neyðast til að samþykkja þetta og
vita ekki betur.“
Samningar á frjálsum markaði
Samtök iðnaðarins hafa sent er-
indi til Samkeppniseftirlitsins vegna
svokallaðrar „skanna-sölu“ að sögn
Ragnheiðar Héðinsdóttur matvæla-
fræðings hjá Samtökum iðnaðarins.
Hún segir Samkeppniseftirlitið ekki
telja sig geta tekið á slíkum málum
nema upp komi einstök dæmi um
beina misnotkun þar sem þeir geta
ekki skipt sér af samningum á milli
einstakra aðila á frjálsum markaði.
„Við heyrum öðru hverju frá fé-
lagsmönnum sem fá óskir frá versl-
unarkeðjum um að taka upp slíkt
fyrirkomulag,“ segir Ragnheiður.
Hún segir fyrirkomulagið vera mjög
óhagkvæmt fyrir birgja og að flestir
þeirra séu mjög á móti þessu fyr-
irkomulagi.
Þrýstingur stórfyrirtækja
„Birgjar eru almennt séð mjög á
móti þessu en það gefur hins vegar
augaleið að fyrirtæki eru í misgóðri
aðstöðu til að standa gegn þrýsingi
frá stórum viðskiptavinum. Við höf-
um heyrt dæmi þess að lítil fyrirtæki
hafi látið til leiðast að taka upp þetta
fyrirkomulag með slæmum afleið-
ingum. Hins vegar eru menn mjög
tregir til að kvarta opinberlega af
ótta við að missa viðskipti við stórar
verslunarkeðjur.
Það vill enginn ganga fram fyrir
skjöldu og segjast finna fyrir slíkum
þrýstingi enda vill enginn setja við-
skiptasambönd sín í hættu.
Ég tek bara undir það með mín-
um félagsmönnum að slíkt
fyrirkomulag hallar á þá
þar sem framleiðslufyr-
irtæki sitja uppi með
alla rýrnun sem verður
í búðinni.“
Óánægja ríkir með „skanna-sölu“
Verslanir greiða stundum eingöngu fyrir vörur sem eru skannaðar á búðarkassa Birgjar óánægðir
með að bera alla ábyrgð á rýrnun í verslunum Sendu erindi til Samkeppniseftirlitsins
Morgunblaðið/Rósa Braga
Skanni á afgreiðslukassa Ekki eru allir á eitt sáttir um hvort verslanir eigi að greiða birgjum fyrir vörur sem þeir
afhenda eða fyrir vörur sem þeir selja á búðarkassa. Erfitt er að eiga við samninga á frjálsum markaði.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2013
„Það er samningsatriði hvernig
og á hvern rýrnun fellur og það
er ekkert staðlað í slíkum samn-
ingum,“ segir Gunnar Ingi Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri
Hagkaups. Verslunin hefur not-
ast við „skanna-sölu“ samhliða
öðrum leiðum um árabil.
„Þróunin hefur verið sú að
starfsfólki á gólfi hefur fækkað
síðastliðin ár og það færist í
vöxt að smásalar bera sjálfir
ábyrgð á sínum vörum inni í
versluninni, þetta er einfaldlega
hluti af þeirri þróun,“ segir
Gunnar. Hann segir slíkt fyr-
irkomulag vera þekkt víða um
heim.
„Oft á tíðum er smásalinn að
fá lægri álagningu heldur en
ekki þar sem búðin þarf oft ekki
að gera ráð fyrir kostnaði við
birgðageymslu. Útfærslan á
þessu fer eftir samningum við
hvern og einn.“ Hann segir
þessa leið vera eina birting-
armynd af mörgum í viðskiptum
og hann telur „skanna-sölu“
hafa færst í aukana á árunum
eftir efnahagshrunið. „Þetta var
leið til að dreifa fjárbindingunni
og smásalinn tók þá aukinn þátt
í þeim kostnaði sem felst í að
láta vörur með lítinn veltu-
hraða liggja í versl-
unum.“
Hann segir suma
smásala sjá hag sinn í
slíku fyrirkomulagi og
aðra ekki. „Þetta hef-
ur reynst þeim vel
sem eru duglegir að
fylgjast með sinni
vöru í búðinni.“
Samnings-
atriði
AUKNING EFTIR HRUN
Gunnar Ingi
Sigurðsson
Umdeilt
» „Skanna-sala“ gengur út á
að greiða birgjum eingöngu
fyrir þær vörur sem eru skann-
aðar á búðarkassa.
» Smásalar eru ósáttir við að
bera ábyrgð á öllum þjófnaði
og rýrnun sem verður inni í
búðinni.
» Samtök iðnaðarins sendu
erindi til Samkeppniseftirlits-
ins vegna málsins en það getur
lítið gert.
Frjósemi er mikil í menningarhúsinu
Hofi á Akureyri. Listin blómstrar og
konurnar einnig; þrjár voru með ung-
börn með sér í vinnunni í gær, sú fjórða
eignaðist dóttur í fyrrakvöld og enn
ein á von á sér!
Freyja Dögg Frímannsdóttir verk-
efnastjóri er komin til starfa eftir
barnsburðarleyfi en framkvæmda-
stjóri Hofs, Ingibjörg Ösp Stef-
ánsdóttir, og verkefnastjórinn Lára
Sóley Jóhannsdóttir snúa senn aftur.
Mæta þó þegar á einstaka fund, eins og
í gær, enda verið að leggja lokahönd á
skipulagningu vetrarins.
Árni Gunnar Magnússon, sonur Ingi-
bjargar Aspar, er rúmlega sjö mánaða,
Kata Orradóttir og Freyju Daggar
tæplega ellefu mánaða og dóttir Láru
Sóleyjar, Hulda Margrét Hjaltadóttir,
rúmlega sex mánaða.
Dóttir Freyju Daggar er í aðlögun
hjá dagmömmu og því ekki í fullri vist-
un, faðirinn hefur ekki tök á því að
hafa barnið með í vinnuna og Freyja
Dögg er alsæl með að geta haft dótt-
urina með sér á skrifstofunni. Verk-
efnastjórinn, Heiðrún Grétarsdóttir,
eignaðist dóttur í Reykjavík í gær og
svo má geta þess að Hulda Sif Her-
mannsdóttir, starfsmaður Akureyr-
arstofu – sem er með aðsetur í Hofi –
er ólétt og á von á sér í desember.
Meðalaldurinn óvenjulágur á fundum í menningarhúsinu Hofi á Akureyri þessa dagana
Barnalán í
menning-
arhofinu
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Blessað barnalán Samstarfskonurnar þrjár í Hofi; frá vinstri: Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir með Árna Gunnar Magnússon, rúmlega sjö mánaða, Freyja
Dögg Frímannsdóttir með Kötu Orradóttur, tæplega ellefu mánaða, og Lára Sóley Jóhannsdóttir með Huldu Margréti Hjaltadóttur, rúmlega sex mánaða.