Morgunblaðið - 23.08.2013, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2013
LOKADAGAR
Komdu og gerðu frábær kaup!
LÁGMÚLA 8 · REYKJAVÍK / SKEIFAN 11
VERSLANIR UM LAND ALLT
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
V
ið Árni Már Erlingsson
erum búin að vinna svo-
lítið saman á síðustu ár-
um, ég hef hjálpað hon-
um að setja upp
sýningar og við höfum verið saman í
listagrúppunni Félag, forlag og
fleira. Árni er einn af stofnefndum
Festisvalls-hátíðarinnar ásamt Sig-
urði Atla Sigurðssyni,“ segir Sig-
urrós Eiðsdóttir, nemandi við mynd-
listardeild Goldsmith-háskólans í
London, en hún verður með nokkur
verk til sýningar á Festisvalli sem
fer fram á morgun í Artíma galleríi.
Listrænt eðli frá föður
„Fyrsta hátíðin fór fram fyrir
fjórum árum og þær hafa allar verið
haldnar í Reykjavík fyrir utan eina
sem fór fram í Leipzig þar sem Árni
Már vinnur sem listamaður,“ segir
Sigurrós. Hún hefur lokið fyrsta
árinu af fjórum í námi sínu í London
en myndlistardeild Goldsmith-
háskóla er ein sú besta í Bretlandi.
„Ég vinn mest með texta og ljós-
myndir. Ég finn það síðan yfirleitt
bara út á síðustu stundu hvað það er
sem ég vil sýna á hverri sýningu fyrir
sig. Ég er til að mynda ekki ennþá
búin að finna það út hvað ég ætla að
sýna á Festisvalli. Ég er að fara að
sækja filmur úr framköllun sem ég
vonast til að geta unnið með. Það eru
ljósmyndir sem ég hef tekið síðasta
hálfa árið. Ég hef einnig gaman af
því að vinna með tungumál, til að
mynda hvernig íslenska þýðist yfir á
ensku. Ég hef unnið með að beinþýða
íslenska brandara yfir á ensku en þá
líta þeir oft á tíðum mjög furðulega
út. Ég hef því mjög gaman af því að
vinna með alls konar orðagrín,“ segir
Sigurrós. Hún kveður dvöl sína í
Menntaskólanum við Hamrahlíð
hafa mótað sig að einhverju leyti sem
listamann.
„Ég var með mjög góðan mynd-
listarkennara í MH, Louise Harris.
Hún hjálpaði mér einmitt mikið með
umsóknina inn í Goldsmith og mælti
mikið með þeim skóla. Annars held
ég að ég fái mitt listræna eðli að
mestu leyti frá föður mínum, hann er
nokkuð listrænn. Ég man eftir því að
hafa verið að skoða teikniblokkirnar
hans þegar ég var yngri og langað að
teikna eins og hann. Svo fór ég
reyndar út í eitthvað allt annað, ég
teikna og mála lítið nú orðið,“ segir
Sigurrós.
Ábyrgðin mikil í Goldsmith
Í verkum Sigurrósar má gjarn-
an finna ýmsa ádeilu og segir hún
margt spila þar inn í.
„Ég er mikill femínisti og verk
mín hafa oft á tíðum verið lituð af því.
Ég hef unnið mikið með tímarit og
hvernig kvenlíkaminn er birtur þar í
fáránlegri mynd. Síðasta árið í
Goldsmith hef ég reyndar verið mik-
ið að vinna með kaldhæðni og tungu-
mál. Í lokasýningunni minni var ég
til dæmis með tvö verk. Annað þeirra
var nokkuð gróf ljósmynd af róna
sem býr í götunni minni sem ég lét
prenta á mjög viðkvæmt efni til að
skapa ákveðna andstæðu. Ég blanda
mikið saman textum og ljósmyndum
og vinn þannig með blandaða tækni.
Ég er ekki hrifin af því að gera bara
eitthvað eitt og sér, teikna, mála eða
taka ljósmyndir,“ segir hún. Hún
segir námið í London talsvert frá-
brugðið því sem hún hefur vanist
hérna heima og að ábyrgð nemand-
ans sé meiri.
„Það eru kannski fjörutíu mis-
munandi vinnusmiðjur og ef mann
langar að læra að gera eitthvað
ákveðið þarf maður bara að sjá til
þess sjálfur að maður fari. Annars er
ég bara fjóra daga vikunnar í stúd-
íóplássinu mínu að vinna að því sem
ég vil skapa. Við hittum kennarann
einu sinni til tvisvar á önn til að tjá
henni hverju við erum að vinna að og
af hverju. Svo erum við með yfirferð
einu sinni á önn og þá þarf hver og
einn að útskýra fyrir stærri hópi
hvers vegna viðkomandi sé að gera
það sem hann er að gera. Þá er mað-
ur svolítið berskjaldaður hvað gagn-
rýni varðar en það er allt bara upp-
byggilegt,“ segir hún.
Mikið um að vera í London
Meðal þeirra sem hafa numið
við listadeild Goldsmith-háskólans
eru þeir Damien Hirst, Lucien
Freud og Steve McQueen og segir
Sigurrós gaman að fá að feta í fót-
spor þeirra.
„Einn dag í viku förum við á
milli listasafna og lærum að gagn-
rýna list og listamenn. Margir lista-
menn sem koma úr Goldsmith eru
mjög bitrir yfir því að hafa ekki náð
jafnlangt og þessir tilteknu lista-
menn. Það er samt bara mjög gaman
Blandar saman
ljósmyndum og lýrík
Festisvall er árlegur viðburður þar sem mynd- og tónlistarmenn sýna verk sín. Sig-
urrós Eiðsdóttir, listnemi í Goldsmith-háskólanum í London, er ein þeirra sem eiga
verk á sýningunni en hún segir talsverðan mun á listaflórunni hér heima og úti.
Listaverk Sigurrós reynir oft að nota andstæður í verkum sínum.
Í hljómsveitinni Bad Days eru miklir
gleðipinnar en hljómsveitin spilar
svokallaða indí-popp-þjóðlagatónlist.
Hún mun koma fram í tvígang á
morgun á Menningarnótt. Fyrri tón-
leikarnir verða kl 18.20 í Víkinni, Sjó-
minjasafninu í Reykjavík, en seinni
tónleikarnir verða kl. 20.30 í
hvalaskoðunarbátnum Christinu sem
stendur við Café Haiti við höfnina.
Meðlimir eru Eyvindur Karlsson, sem
sér um söng og gítarspil, Hallur Guð-
mundsson plokkar bassann, Guðjón
Guðjónsson lemur húðir, Símon
Hjaltason leikur á mandólín og raf-
magnsgítar og Hjalti Stefán Krist-
jánsson sér um restina.
Vefsíðan www.reverbnation.com/baddaysmusic
Ljósmynd/Hjalti St. Kristjánsson
Bad Days Sprelligosarnir í hljómsveitinni njóta þess að spila saman.
Spila á hvalaskoðunarbáti
Skemmtileg dagskrá verður á morg-
un á Menningarnótt í IÐU við Lækj-
argötu. Kl. 16-18 ætlar Helgi Einars-
son götulistamaður og graffari að
skapa verk fyrir framan verslunina og
allir geta fylgst með ferlinu. Kl. 16
mun Guðjón Ragnar Jónasson þýð-
andi lesa úr bókinni Mennirnir með
bleika þríhyrninginn, bók um líf sam-
kynhneigðra í fangabúðum nasista.
Kl. 18 spilar Soffía Björg angur-
væra þjóðlagaskotna popptónlist
sem hittir beint í hjartastað.
Kl. 18.45 spilar tónlistarmaðurinn
Einar Lövdahl efni af nýútgefinni
plötu sinni, Tímar án ráða.
Endilega …
… njótið graffs
og söngs
Morgunblaðið/Eggert
Einar Lövdahl Spilar á morgun.
Í dag kl. 18 verður fyrri sýningin á
dansviðburðinum SCAPE of GRACE í
Listasafni Íslands í Hafnarhúsinu.
Fólkið á bak við SCAPE of GRACE eru
þau Hallvarður Ásgeirsson og Saga
Sigurðardóttir. Þau vinna m.a. út frá
sambandi tónlistar og líkama. Þau
sem koma að verkinu með þeim eru:
Katrín Gunnarsdóttir, Kristinn Guð-
mundsson, Sigurður Arent Jónsson,
Védís Kjartansdóttir, Alexander
Roberts, Ásgerður Gunnarsdóttir og
Elsa María Blöndal. Seinni sýningin
verður á sunnudag kl. 18.
Dansviðburður í dag á Reykjavík Dance Festival
Samband tónlistar og líkama
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.