Morgunblaðið - 23.08.2013, Síða 27
FRÉTTIR 27Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2013
Sérsmíðaðar baðlausnir
Speglar • Gler • Hert gler
Öryggisgler • Litað gler • Bílspeglar
Sandblástur • Álprófílar
Máltöku- og uppsetningaþjónusta
Við leggjum metnað
okkar í að bjóða sérhæfðar
og vandaðar lausnir á
baðherbergi.
Við bjóðum upp á
sérsmíðaða spegla,
sturtuklefa og sturtu-skilrúm.
Þá erum við komnir með nýja
útgáfu af ljósaspeglunum
okkar vinsælu.
Á nýrri heimasíðu okkar
glerslipun.is er gott yfirlit yfir
það sem er í boði. Auk þess
bjóðum við alla velkomna
í Vatnagarða 12 þar sem
fagfólk veitir góða þjónustu
og allar þær upplýsingar sem
þarf.
Vatnagarðar 12 | Sími 588 5151 | Fax 588 5152 | glerslipun.isSTOFNAÐ 1922
idex.is - sími 412 1700
framl.- sölu- og þjónustuaðili
Schüco á Íslandi
- merkt framleiðsla
• Íslensk framleiðsla, framleitt af Idex
álgluggum ehf.
• Hágæða álprófílkerfi frá Schüco
• Schüco tryggir lausnir og gæði
• Þekking og þjónusta
• Áralöng reynsla
Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi
tegundum bygginga
ÁLGLUGGAR
- þegar gæðin skipta máli
www.schueco.is
Þessi fagurgræni og myndarlegi afríski bolafroskur lét
fara vel um sig á vigtinni í dýragarðinum í Lundúnum á
miðvikudag en þá fór fram árleg mæling íbúa garðsins.
Dýrin stór og smá eru vigtuð og stærð þeirra skrásett
en upplýsingunum er deilt með dýragörðum út um all-
an heim. Tilgangurinn er öðrum þræði að gera görð-
unum kleift að bera saman upplýsingar og gögn um
þúsundir dýra í útrýmingarhættu. holmfridur@mbl.is
Árleg mæling íbúa í dýragarðinum í Lundúnum
AFP
Áhyggju- og streitulaus á vigtinni
Réttarhöld hófust í gær yfir Bo
Xilai, fyrrverandi leiðtoga komm-
únistaflokksins í stórborginni
Chongquing í Kína, en hann hefur
verið ákærður fyrir mútuþægni og
fjárdrátt og fyrir að hafa misbeitt
valdi sínu til að hylma yfir morðið á
breska kaupsýslumanninum Neil
Heywood, sem kona Bos, Gu Kailai,
var dæmd fyrir í fyrra.
Bo, sem hefur ekki sést opinber-
lega í 18 mánuði, neitaði sök og sagði
m.a. vitnisburð konu sinnar hlægi-
legan. Hann tók fyrir að hafa þegið
mútur að upphæð 1,1 milljón júön
frá kaupsýslu-
manninum Tang
Xiaolin og bar því
við að hann hefði
játað gegn vilja
sínum við yfir-
heyrslur. Þá
sagði hann rangt
að hann hefði
þegið fjármuni og
gjafir að andvirði
20,7 milljón júön, þar á meðal villu í
suðurhluta Frakklands, frá Xu
Ming, stjórnarformanni fyrirtækja-
samsteypunnar Shide Group.
Mál Bos hefur vakið gríðarlega at-
hygli í Kína en hann var áður ein af
vonarstjörnum kommúnistaflokks-
ins og átti m.a. sæti í stjórnmálaráði
flokksins, æðstu valdastofnun hans.
Búist var við að hann yrði skipaður í
fastanefnd ráðsins, sem tekur allar
lykilákvarðanir í kínverskum stjórn-
málum.
Á ferli sínum vakti Bo athygli fyr-
ir viðleitni sína til að endurvekja
hefðir frá stjórnartíð Mao en hann
sendi m.a. embættismenn til starfa í
sveitum landsins og skikkaði verka-
fólk til að syngja byltingarsöngva.
Þverneitaði sakargiftum
Réttarhöld hefjast yfir vonarstjörnu kommúnistaflokks-
ins, Bo Xilai Ásakaður um mútuþægni og yfirhylmingu
Bo Xilai
Nýendurkjörinn forseti Zimbabwe,
Robert Mugabe, sór embættiseið
frammi fyrir þúsundum fagnandi
stuðningsmanna í gær.
Fylgismenn mótframbjóðanda
hans, Morgans Tsvangirais, halda
því fram að kosningarnar hafi verið
ólögmætar og sagði William Hague,
utanríkisráðherra Bretlands, í gær
að hann teldi að sjálfstæð rannsókn á
ásökunum um kosningasvik þyrfti að
fara fram til að úrslit kosninganna
gætu talist trúverðug. „Það liggja
fyrir áreiðanlegar sannanir fyrir því
að þessar kosningar hafi ekki upp-
fyllt viðmið Þróunarsambands ríkja í
suðurhluta Afríku né zimbabwesk
kosningalög,“ sagði í yfirlýsingu frá
ráðherranum.
Í innsetningarræðu sinni kallaði
Mugabe vestræn ríki sem gagn-
rýndu kosningar landsins „ógeðsleg“
og sagðist harma „siðferðilega var-
mennsku“ þeirra.
Harmar „siðferði-
lega varmennsku“
Róbert Mugabe sór embættiseið
AFP
Forseti Morgan Tsvangirai hefur ásakað Mugabe um stórfelld kosningasvik.