Morgunblaðið - 31.10.2013, Síða 1
F I M M T U D A G U R 3 1. O K T Ó B E R 2 0 1 3
253. tölublað 101. árgangur
SKEMMTILEG
FRÖNSKUKENNSLA
ÓVÆNTUR
SAMDRÁTTUR Á
BÍLAMARKAÐI
GAMAN AÐ HALDA
HREKKJAVÖKU-
SAMKVÆMI
VIÐSKIPTABLAÐ OLGA GALDRANORN 10
12 SÍÐNA AUKABLAÐ
UM FRANSKA DAGA
ÁRA
STOFNAÐ
1913
–– Meira fyrir lesendur
FYLGIR MEÐ
MORGUNBLAÐINU
Í DAG
Morgunblaðið/Ásdís
Sveppir Með lýsingu er hægt að auka D-
vítamínmagn þeirra allt að áttfalt.
Hjá Flúðasveppum er nú unnið að
því að auka D-vítamínmagn í svepp-
um. Það er gert með því að lýsa
sveppina og gangi áætlanir eftir
munu þessir vítamínbættu sveppir
fást í verslunum fyrir jólin.
Að sögn Georgs Ottóssonar, eig-
anda og framkvæmdastjóra Flúða-
sveppa, er þetta unnið í samstarfi
við Matís og til þess að ná þessu
fram þarf að lýsa sveppina í um 20
mínútur. „Ég frétti af þessu frá
Bandaríkjunum fyrir um einu og
hálfu ári og hef síðan þá verið að
gera tilraunir með þetta. Niður-
stöðurnar lofa góðu,“ segir Georg.
„Það er örlítið magn D-vítamíns í
sveppum, en með því að lýsa þá er
hægt að áttfalda magnið.“ »18
Vítamínbættir
Flúðasveppir vænt-
anlegir á markað
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Ennþá logaði í flutningaskipinu Fern-
öndu þegar varðskipið Þór kom að því
á tíunda tímanum í gærkvöldi.
Slökkvibyssur varðskipsins voru not-
aðar til þess að kæla skipið að utan-
verðu. Taka átti ákvörðun nú í morg-
un um björgunaraðgerðir.
Flutningaskipið er að líkindum
ónýtt eftir eldinn, sem blossaði upp
um miðjan dag í gær, að mati Ólafs
Williams Hands, upplýsingafulltrúa
Eimskips, sem er umboðsaðili skips-
ins hér á landi. Hann segir að skip-
verjarnir ellefu, sem þyrla Landhelg-
isgæslunnar bjargaði frá borði, hafi
verið í losti eftir hremmingarnar.
Aðstæður á hafi úti voru slæmar í
gær, hvasst og talsverð ölduhæð.
„Það var svolítið hvasst og þung
alda þannig að skipið valt mikið, um
20°. Það er stórt dekk á skipinu svo
það var auðvelt að renna til,“ segir
Guðmundur Ragnar Magnússon,
stýri- og sigmaður hjá Landhelgis-
gæslunni, sem seig niður í skipið.
Skipverjarnir höfðu flúið út á þilfar
skipsins. Flestir þeirra voru í björg-
unargalla eða vesti en nokkrir höfðu
ekki komist í það vegna eldsins. Þá
hindraði eldurinn þá í að komast að
björgunarbátum. „Þeir voru allir við
nokkuð góða heilsu. Sumum var
brugðið og það var greinilegt þegar
maður kom um borð að þeim leist
ekki á þetta. Það varð léttara yfir
mönnum þegar þeir voru komnir um
borð í þyrluna,“ segir Guðmundur.
MSluppu óhultir úr eldinum »2
Bjargað af brennandi skipi
Eldur kom upp í flutningaskipinu Fernöndu Áhöfnin
slapp óhult Taka ákvörðun um björgunaraðgerðir í dag
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Sjávarháski Skipverjar höfðu flúið út á þilfar skipsins út af eldinum sem geisaði innanborðs þegar þyrla Landhelgisgæslunnar kom á vettvang.
Eldur í skipi
Surtsey
Landeyjahöfn
Heimaey
Fernanda
Lo
ft
m
yn
di
re
hf
.
Í matslýsingu vegna umhverfis-
mats kerfisáætlunar Landsnets
fyrir næstu tíu ár eru bornir saman
ýmsir valkostir við uppbyggingu
meginflutningskerfis raforku og
áhrif þeirra á umhverfið.
Sem dæmi um valkosti má nefna
ákvarðanir um spennu á flutnings-
kerfinu, ákvarðanir um loftlínur og
jarðstrengi og ákvarðanir um
leiðaval. Allt er þetta borið saman
við svonefndan núllkost, það er að
segja að ekki verði ráðist í neinar
framkvæmdir í flutningskerfi
Landsnets. Landsnet ákvað að
gera umhverfismat á nýrri kerf-
isáætlun sinni í kjölfar úrskurðar
umhverfisráðuneytisins þar sem
krafist var mats á slíkum áætlun-
um.
Við umhverfismatið verður
fjallað um áhrif framtíðaruppbygg-
ingar meginflutningskerfis raforku
og helstu framkvæmda sem í henni
felast. „Vönduð vinnubrögð af
þessu tagi munu vonandi leiða til
betri sáttar um nauðsynlega upp-
byggingu flutningskerfisins,“ segir
Guðmundur Ingi Ásmundsson, að-
stoðarforstjóri Landsnets. »4
Skoða valkosti
Landsnet undirbýr umhverfismat
Sala á nýjum fólksbílum hefur
dregist saman um 4,5% það sem af
er ári samanborið við sama tímabil í
fyrra, þvert á væntingar forsvars-
manna stærstu bílaumboðanna.
„Ég var bjartsýnn fyrir ekki svo
löngu þegar ég vissi að það kæmi
ný ríkisstjórn til valda,“ segir Geir
Gunnarsson, forstjóri Bernhard.
„En því miður eru ekki jákvæð
merki neins staðar.“ »Viðskipti
Óvæntur samdrátt-
ur á bílamarkaði
Um næstu áramót taka gildi lög
um endurnýjanlegt eldsneyti í sam-
göngum á landi. Byggjast lögin á
tilskipun frá ESB og fela m.a. í sér
að lögð er sú skylda á seljendur
eldsneytis hér á landi að minnst
3,5% orkusölunnar verði af endur-
nýjanlegum uppruna frá og með
árinu 2014. Hlutfallið fari í 5% árið
2015 og 10% árið 2020. Samhliða
verði hlutfall endurnýjanlegrar
orku í heild 20% í landinu.
Glúmur Jón Björnsson, fram-
kvæmdastjóri efnarannsóknastof-
unnar Fjölvers, segir að lögin muni
hafa áhrif á eldsneytisverð. Neyt-
endur þurfi að kaupa dýrara elds-
neyti en rýrara að gæðum með inn-
fluttum
íblöndunar-
efnum. Hann
bendir á að hlut-
fall endurnýjan-
legrar orku sé
um 75% á Íslandi
og því langt um-
fram þau 20%
sem tilskipun
ESB kveður á
um. „Skattar
verða felldir niður af þessum 3,5%.
Við það verður ríkið af um 800
milljóna króna tekjum. Þessir pen-
ingar munu ekki skila sér til neyt-
enda vegna þess hve kostnaðurinn
eykst við innkaupin.“ »4
Ríkið verður af 800 milljónum króna í nýj-
um lögum um endurnýjanlegt eldsneyti
Bensíndropinn gæti
hækkað í verði.