Morgunblaðið - 31.10.2013, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2013
Veitingahúsið
Noma í Kaup-
mannahöfn baðst
í gær afsökunar
á bréfi sem
ólaunuðum lær-
lingum þess var
sent, en þar voru
þeir varaðir við
því að þeir yrðu
settir á svartan lista, sem sendur
yrði á aðra veitingastaði, ef þeir
brytu reglur veitingahússins. Tals-
maður Noma sagði að bréfið hefði
verið sent fyrir „mistök eins starfs-
manns“, veitingahúsið hefði aldrei
sett lærlinga á svartan lista eða hót-
að þeim því. Noma hefur notið mik-
illar virðingar, er með tvær Michel-
in-stjörnur, og margir ungir
matreiðslumenn hafa starfað þar
launalaust í von um að það verði
þeim til framdráttar síðar.
DANMÖRK
Noma biðst afsök-
unar á hótun
Lögreglan í Peking hefur verið sök-
uð um fordóma í garð kvenna vegna
tilkynningar á netinu þar sem al-
geng „mistök kvenbílstjóra“ eru tí-
unduð. „Handbremsan er yfirleitt
notuð til að halda bílnum kyrrum.
Margar konur byrja oft að aka bíln-
um í flýti án þess að losa handbrems-
una. Þetta eykur viðnám við bílinn
og veldur meiri eldsneytisnotkun,“
segir m.a. í tilkynningunni. Konur
eru þar einnig sagðar vera mjög hik-
andi í umferðinni vegna þess að þær
rati ekki, auk þess sem þær eigi í
vandræðum með gírskiptingar.
KÍNA
Lögreglan móðgar
kvenbílstjóra
Fyrrverandi starfsmenn bandarísku
leyniþjónustunnar trúa því ekki að
Barack Obama Bandaríkjaforseti
hafi ekki vitað af því að Þjóðar-
öryggisstofnunin (NSA) hafi hlerað
síma Angelu Merkel og annarra
þjóðarleiðtoga. Allir æðstu menn
stjórnkerfisins sverja af sér vitneskju
um njósnirnar en tímaritið Foreign
Policy hefur eftir fyrrverandi ráð-
gjöfum Hvíta hússins og leyniþjón-
ustustarfsmönnum að afsakanir
þeirra séu hlægilegar.
Bandaríkjaforseti er æðsti yfir-
maður NSA en bæði hann og þing-
menn sem eiga að hafa yfirumsjón
með starfsemi stofnunarinnar segjast
ekkert hafa vitað um njósnir um
fjölda þjóðarleiðtoga vinaríkja
Bandaríkjanna.
Í raun útilokað
Að sögn Foreign Policy þarf NSA
ekki samþykki forsetans fyrir því
hvaða viðfangsefni verði fyrir valinu
eða hvaða aðferðum sé beitt við
njósnir. Hann fær daglegar tilkynn-
ingar um gang mála frá leyniþjónust-
unni en þar er aðaláhersla lögð á
hugsanlega ógn við öryggi Banda-
ríkjanna, t.d. grunsemdir um hryðju-
verk eða kjarnorkuáætlun Írans.
Fyrrverandi starfsmaður Hvíta
hússins, sem ekki kemur fram undir
nafni, segir þó í samtali við Foreign
Policy að það sé í raun útilokað að
forsetinn hafi ekki vitað af því ef
bandarískar stofnanir njósni skipu-
lega um þjóðarleiðtoga, þar sem
markmiðið hafi verið að halda forset-
anum upplýstum um diplómatísk
samskipti. una@mbl.is
Trúa ekki að
Obama hafi
ekkert vitað
Fimmtíu brúðhjón voru gefin saman í fjöldabrúðkaupi
sem fram fór í gær í Bishkek, höfuðborg Mið-Asíuríkis-
ins Kirgisistan. Brúðkaupið fór fram á vegum ríkis-
stjórnar landsins sem sá brúðhjónunum meðal annars
fyrir fatnaði og hringum.
Stjórnin segir að markmiðið með þessu framtaki sé
að styðja ungt fólk, sem hafi ekki efni á brúðkaupi, efla
fjölskyldugildi og vekja athygli á mikilvægi hjóna-
bandsins. Brúðhjónin fimmtíu voru valin úr hópi 110
para sem sóttu um að fá að taka þátt í brúðkaupinu.
Um 20 brúðhjón voru gefin saman í sams konar brúð-
kaupi árið 2011 og 35 á síðasta ári.
AFP
Fjöldabrúðkaup í þágu fjölskyldugilda
FAGLEG
RÁÐGJÖF OG
FRÍ LEGU-
GREINING
Komdu í heimsókn, prófaðu
legugreininguna, og fáðu faglega
ráðgjöf um val á heilsudýnum,
án skuldbindinga!
RúmGott · Smiðjuvegi 2 (við hliðina á Bónus) · Kópavogi · Sími 544 2121
Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-16 · www.rumgott.is
SÉRHÆFUM OKKUR Í SMÍÐI Á HEILSURÚMUM
20-
50%
AFS
LÁT
TU
R A
F Ö
LLU
M
HE
ILS
UR
ÚM
UM
Gefðu þér
góðan svefn
· Jólatilboð · Jólatilboð ·