Morgunblaðið - 31.10.2013, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er vandi að velja og því meiri
þeim mun fleira sem í boði er. Verslun og
viðskipti ganga vel í dag.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú hefur tekið allt of mörg verkefni
að þér og átt nú á hættu að missa stjórn á
öllu saman. Gefðu rómantískum elskhuga
alla þína ást í stað þess að flækja málin.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú þarft ekki að vera með nein
látalæti í umgengni við aðra. Nýttu hluta
orkunnar í að færa út kvíarnar og aðrir
munu ósjálfrátt fylgja þér.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það eru ýmsir möguleikar í stöð-
unni en farðu þér hægt því að flas er ekki
til fagnaðar. Smávinna hér og þar safnast
saman og verður að einhverju sem þú mátt
vera stolt/ur af.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Fólk í umhverfi þínu er að ræna þig
orkunni með einum eða öðrum hætti –
sannkölluð sníkjudýr. Vertu því jákvæð/ur.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ert í miklu keppnisskapi og
stendur líklega uppi með pálmann í hönd-
unum. Fylgdu eigin sannfæringu.
23. sept. - 22. okt.
Vog Fullvissa þín um að eitthvað sé ófram-
kvæmanlegt er líklega skýringin á því að
það sé ekki hægt. Einhvern tímann kann að
koma til þess að þú gerir mistökin.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er engin ástæða til þess
að láta hugfallast þótt eitthvað kunni að
blása á móti um stundarsakir. En misstu
ekki móðinn, bíddu bara þar til lánið leikur
við þig á ný.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Dagurinn í dag gefur þér
ástæðu til að trúa að maðurinn sé góður
eftir allt. Láttu stoltið ekki hindra þig í að
gefa eftir.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Láttu verða af fyrirætlunum þín-
um sem tengjast yfirvöldum eða stórum
stofnunum. Talaðu hreint út við vinnu-
félaga þína og hugaðu betur að sálartetr-
inu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú gætir tekið upp á því að
setja einhvern á stall í dag og ganga
óraunsæinu á hönd. Sýndu festu og láttu
hrakspár annarra ekki verða til þess að
hrekja þig af leið.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það þýðir ekkert að sitja með hend-
ur í skauti og vorkenna sér, þótt margt sé
á döfinni. Fólk er farið að taka eftir þér og
lítur á þig sem fyrirmynd.
Manngæska“ er yfirskriftvísna eftir Pétur Stefánsson
og víst eiga þær erindi við okkur
öll:
Það að eiga gæsku góða
er gjöf sem flestir óska sér.
Hafa ást og yl að bjóða
öllum þeim sem lifa hér.
Hjúkra veikum, sorgir sefa,
sæl og glöð við yrðum þá.
Svo er ætíð sælla að gefa
en sjálfur þiggja öðrum frá.
Sérhvern dag skal góðverk gera,
gleðja þá sem eiga bágt.
Hreinn og beinn er best að vera
með bros á vör, og lifa í sátt.
„Það er erfitt að trúa, en þar
sem kirkjubækur á Jökuldal ljúga
ekki þá liggur það ljóst fyrir að
hagyrðingurinn og kennarinn,
Ragnar Ingi Aðalsteinsson frá
Vaðbrekku verður sjötugur hinn
15. janúar næstkomandi.“
Þannig hefst kveðja frá vísna-
vinunum Jónasi Ragnarssyni,
Þórði Helgasyni og Guðjóni Inga
Eiríkssyni, en þeir hafa ákveðið
að gefa út vandað afmælisrit hon-
um til heiðurs. Það verður að
stærstum hluta byggt á úrvali úr
ljóðum hans, allt frá grafalvar-
legum kveðskap yfir í gam-
ansaman. Í ritinu verður heilla-
óskaskrá og geta þeir sem gerast
áskrifendur að því fengið nafnið
birt og sent afmæliskveðju. Bóka-
útgáfan Hólar stendur að útgáf-
unni og er netfangiðholar@hola-
bok.is. Það er við hæfi að birta
gamanvísu eftir Ragnar Inga af
þessu tilefni og spurning hvernig
rita á rímorðin í annarri og
fjórðu línu:
Einn fer til rjúpna um auðnarslóð,
óðfús í kjarrið lítur.
Alls konar drunur og hávær hljóð
heyrast þegar hann skýtur.
Hallmundur Kristinsson bregð-
ur á leik í limru:
Sveigjanlegt svipmót að mestu,
sveipað einurð og festu.
Ég leik við mitt fag
og limran í dag
er líklega ein af þeim bestu!
Þá Ármann Þorgrímsson að
gefnu tilefni:
Vafasöm mörg þeirra verk tel
og vart þarf að efa að sterk él
ganga hér oft
því görótt er loft
Þau gera ekki svona hjá Merkel.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af manngæsku,
Merkel og stórafmæli
Í klípu
„ÞAÐ HEFUR HÆGT Á
FRAMLEIÐSLUNNI UNDANFARIÐ.
ÞAR KEMUR ÞÚ TIL SKJALANNA.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HVAÐ ÞARF ÉG AÐ SEGJA ÞÉR OFT AÐ
HRINGJA EKKI Í MIG Í VINNUNA?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... í hverju orði sem
ég rita til þín.
HVERNIG VAR
HRÓLFUR Á SÍNUM
YNGRI ÁRUM?
HANN VAR
MYNDARMAÐUR MEÐ
MIKINN SJARMA!
EN EFTIR AÐ VIÐ GIFTUMST ER ÞAÐ AÐAL-
LEGA MAGINN Á HONUM SEM ER MIKILL.
AF HVERJU ER
ALLT KRUMPAÐ?
VIÐ KÖLLUM
ÞAÐ „ODDA-
ÁHRIFIN“.
Einn samstarfsmaður og stórvinurVíkverja er haldinn þeim galla
að hann er anti-sportisti. Samt fellur
hann ekki inn í það ósanngjarna og
ranga mót sem samfélagið hefur búið
til af slíku fólki, þar sem hann er í
þokkalegu formi og stundar líkams-
rækt af miklum móð. Víkverji á því
oft til að gleyma því að hann sé anti-
sportisti, og byrjar að tala við hann
um fótboltann eins og ekkert sé. Vík-
verji fær þá kalda tusku í andlitið
þegar hann áttar sig á því að til-
gangslítið er að ræða við manninn
um þessi mál, hann hefur einfaldlega
ekki áhuga.
x x x
Um daginn var hins vegar eins ogvinur Víkverja hefði fengið
mikla hugljómun. Hann hafði horft á
El Clasico með Barca og Real um
helgina, og tjáði Víkverja stoltur að
núna „fattaði“ hann hvað það væri
við fótboltann sem karlmenn fíluðu.
Jú, nefnilega knúsin sem fylgja í
kjölfar hvers einasta marks. „Þetta
er svo einfalt,“ sagði hann, „þeir eru
bara á höttunum eftir knúsi“. Lagði
vinurinn til að knattspyrna yrði hér
eftir kölluð „knúsbolti“. Sá hann
fyrir sér að vinsældir íþróttarinnar
myndu aukast stórum ef sá háttur
yrði á.
x x x
Við allt þetta rifjaðist það upp fyrirVíkverja, að í fyrsta sinn sem
hann man eftir sér að horfa á knús-
bolta var þegar Frakkarnir sigruðu á
Evrópumeistaramótinu árið 1984. Í
minningunni, sem raunar er ansi
dauf og áhrifagjörn, kjössuðust
Frakkarnir og knúsuðust sem mest
þeir máttu í hvert sinn sem boltinn
endaði í netinu. Kannski er því eitt-
hvað til í þessu hjá vini Víkverja. Við
sportidjótarnir viljum bara knús.
x x x
Knúsboltasamband Íslands fær svoað sjálfsögðu að híma í skamm-
arkrók dagsins. Víkverji getur þó
ekki hugsað sér að vera fúll of lengi.
Það er komið nóg af neikvæðum
straumum í tengslum við knúsbolta-
landsliðið okkar. Fyrst kom auglýs-
ingahléið og svo miðasölufíaskóið.
Athyglin ætti þó að vera á frábærum
árangri landsliðsins. víkverji@mbl.is
Víkverji
Eins og faðir sýnir miskunn börnum
sínum, eins hefur Drottinn sýnt mis-
kunn þeim er óttast hann.
(Sálmarnir 103:13)