Morgunblaðið - 31.10.2013, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 31.10.2013, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2013 SUÐURLAND DAGA HRINGFERÐ FLÚÐIR Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Lumarðu á dýrindis kleinuupp- skrift frá ömmu og langar til að fara út í framleiðslu á góðgætinu? Ertu búin/n að uppgötva hvernig gera á hina fullkomnu rabarbar- asultu? Sé svo, þá er ástæða að líta við hjá Matarsmiðju Matís á Flúðum og kanna hvort og hvernig hægt er að framleiða dýrðina. Þar er alhliða matvælavinnsla, þar sem hægt er að vinna matvæli í vottuðum vinnslusal og fá aðgang að sér- hæfðum tækjabúnaði. Einnig er hægt að fá þar ráðgjöf sérfræð- inga. „Það er misjafnt að hversu miklu leyti fólk vinnur matvöruna hérna, það fer eftir því hvað um er að ræða. Sumt þarf að vinna ein- göngu hér vegna þess að það er viðkvæmt, en annað er unnið að hluta til annars staðar,“ segir Ing- unn Jónsdóttir, stöðvarstjóri Mat- arsmiðjunnar. Um er að ræða samstarfsverk- efni Matís, sveitarfélagsins Hruna- mannahrepps og Háskólafélags Suðurlands. Ingunn segir að sam- bærileg aðstaða sé á Höfn, þar sem áhersla sé lögð á vinnslu matvæla úr fiski og að einnig sé vísir að matarsmiðju í Reykjavík. „Við er- um auðvitað stödd hérna í grænmetismekka Íslands þannig að hér hafa nokkrar grænmetisafurðir orðið til.“ Margt að gerast Ýmsar nýjungar hafa litið dagsins ljós í Matarsmiðjunni á Flúðum, m.a. lúpínuseyði, pestó og sultur. „Núna er t.d. verið að fram- leiða hér drykk sem heitir Ís- landus. Hann er unninn úr mysu og ýmsum íslenskum jurtum og er alfarið unninn hér, soðinn, bland- aður og tappað á flöskur. Annar drykkur var unninn hérna, vítam- índrykkurinn B.OKAY. Núna er hann kominn í það mikla fram- leiðslu að hann er kominn út úr húsi. Það er auðvitað ákaflega ánægjulegt þegar matvara útskrif- ast frá okkur, ef hugur fólks stend- ur til þess.“ Af verkefnum sem eru í þróun nefnir Ingunn lausfrystingu svo- kallaðs B-grænmetis, þ.e. þess grænmetis sem ekki stenst út- litskröfur en er með full bragð- gæði. „Annars er endalaust verið að bralla eitthvað hérna. Það er svo margt að gerast í íslenskum mat- vælaiðnaði.“ Aðstoðin sem býðst í Matar- smiðjunni snýst ekki einungis um framleiðslu á matvælunum, heldur eru þar einnig tæki til pökkunar og merkingar matvæla og veitt er ráð- gjöf varðandi umbúðir og hönnun þeirra. „Við reynum að koma til móts við fólk þar sem það er statt í ferlinu,“ segir Ingunn. Fyrir frumkvöðla Spurð hvort vakning sé í sér- hæfðri matvælaframleiðslu hér á landi segir Ingunn margt benda til þess. „Mér hefur fundist það. Líka Stöðvarstjóri Ingunn segir Matarsmiðjuna t.d. vera góðan vettvang fyrir frumkvöðla og annað hugmyndaríkt fólk. Þar sem bragðgóðar hugmyndir lifna við  Í Matarsmiðjunni er hægt að koma matvælum í framleiðslu Hjá Flúðasveppum á Flúðum eru framleidd um 600 tonn af svepp- um á ári hverju. Þar er nú unnið að því að D-vítamínbæta svepp- ina og eru slíkir sveppir vænt- anlegir á markað á næstunni. Framleiddar eru tvær teg- undir sveppa hjá fyrirtækinu, annars vegar hvítir og hins veg- ar kastaníusveppir sem eru brúnir á lit og bragðsterkari en þeir fyrrnefndu. 30 starfa hjá Flúðasveppum og tíu til viðbótar hjá garðyrkjustöðinni Jörfa sem er í eigu Flúðasveppa. Þar eru m.a. ræktaðar paprikur og tóm- atar. Lýstir í 20 mínútur „Okkur hefur tekist að auka D-vítamínmagnið með því að lýsa sveppina. Við vinnum þetta í samstarfi við Matís og þessir sveppir, með um áttföldu D- vítamínmagni, gætu hugsanlega verið komnir á markað fyrir jól,“ segir Georg Ottósson, eig- andi og framkvæmdastjóri Flúðasveppa. „Með því að borða 100 g af þessum sveppum á dag fæst um 50% af daglegri D- vítamínþörf.“ Georg segir að lýsa þurfi sveppina í um 20 mínútur í þess- um tilgangi. Kastaníusveppirnir séu móttækilegri fyrir lýsing- unni og því muni þeir fyrst koma D-vítamínbættir á mark- að. „Sveppahúðin vinnur eins og mannshúðin, hún umbreytir út- fjólubláum geislum í D-vítamín á sama hátt,“ segir Georg. Helst vítamínið í sveppunum við matreiðslu? „Já, þetta breyt- ist ekki neitt þó þeir séu eldaðir eða steiktir.“ Hann segir Íslendinga sólgna í sveppi og að þeir neyti þeirra í meiri mæli en nágrannaþjóð- irnar. „Sveppaneysla hefur auk- ist á undanförnum árum, en fjölgun ferðamanna hefur líka mikið að segja.“ Georg segist helst matreiða sveppi þannig að náttúrulegt bragð þeirra fái að njóta sín. „Annars eru endalausir mögu- leikar með sveppina, þeir passa með svo mörgu.“ annalilja@m- bl.is Um 600 tonn af Flúðasveppum á hverju ári Morgunblaðið/Styrmir Kári Garðyrkjubóndi Auk sveppa ræktar Georg ýmsar fleiri tegundir grænmetis í garðyrkjustöðinni Jörfa á Flúðum. D-vítamínbættir sveppir á döfinni Við erum stolt fyrirtæki á Flúðum Hrunamannahreppur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.