Morgunblaðið - 31.10.2013, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 31.10.2013, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2013 ✝ Sigrún Freder-iksen fæddist í Reykjavík 25. maí 1923. Hún lést á Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi 21. október 2013. Sigrún var dóttir hjónanna Guðrúnar Sigurðardóttur, húsfreyju í Reykja- vík, f. 25. sept- ember 1893, d. 17. ágúst 1987 og Guðgeirs Jóns- sonar bókbindara, f. 25. apríl 1893, d. 7. júní 1987. Systkini hennar voru Guðrún, f. 1917, d. 2000, Einar, f. 1919, d. 1999, Þorlákur, f. 1921, d. 1984, Ás- björg, f. 1924, d. 2009, Sigurður, f. 1926, d. 1983, og Jón, f. 1927. Sigrún ólst upp í Reykjavík og hlaut hefðbundna skólagöngu. Hún stundaði einnig nám við Húsmæðraskólann á Laugar- þau loks gefin saman hjá borg- arstjóranum í Nakskov. Sigrún og Willy eignuðust tvær dætur: 1) Sonja F. Jónsson, f. 2. júlí 1941, maður hennar var Sigur- björn Jónsson, f. 3. desember 1938, d. 13. ágúst 1994, hús- gagnasmiður á Akranesi. Synir þeirra eru; a) Hlynur, f. 1962, b) Bjarki, f. 1967, c) Leiknir, f. 1972. 2) Guðrún Bjerre, f. 31. maí 1944, d. 5. febrúar 2013, maður hennar var Niels Bjerre, þau skildu. Börn þeirra eru; a) Charlotte, f. 1963, b) Henrik, f. 1967 c) Jakob, f. 1978, öll búsett í Danmörku. Langömmubörnin eru 12 talsins og langalang- ömmubörnin eru 5. Sigrún bjó í 60 ár í Dan- mörku, lengst af í Hellebæk á Sjálandi. Þar starfaði hún í verksmiðju sem framleiddi vefn- aðarvörur auk húsmóðurstarfa. Árið 2001 flutti hún aftur heim til Íslands og bjó hjá dóttur sinni Sonju á Akranesi. Í janúar 2012 flutti hún á Dvalarheimilið Höfða og bjó þar til dauðadags. Útför Sigrúnar verður gerð frá Akraneskirkju í dag, 31. október 2013, kl. 14. vatni og að því námi loknu hélt hún til Danmerkur ásamt vinkonu sinni til að starfa sem aðstoðarstúlka á dönskum heim- ilum, þá 16 ára gömul. Eftir stutta dvöl í Danmörku hernámu Þjóð- verjar landið og því urðu þær innlyksa þar meðan á seinni heimsstyrj- öldinni stóð. Sumarið 1940 réð hún sig sem eldhússtúlku á hótel í Birkerød, þar kynntist hún mannsefni sínu, Willy L. Freder- iksen vefara, f. 3. desember 1919 í Nakskov á Láglandi, d. 9. janúar 1988. Þau hugðust ganga í hjónaband vorið 1941 en sök- um þess að skírnarvottorð Sig- rúnar var á Íslandi gat ekki af því orðið. Þann 8. maí 1943 voru Það var friður yfir ömmu minni þegar hún kvaddi þennan heim þann 21. október sl. Langri og viðburðaríkri ævi er lokið og margs er að minnast. Sem barn var ég þeirrar gæfu aðnjótandi að fara reglulega með mömmu og pabba, og bræðrum mínum seinna meir, til Danmerkur að heimsækja ömmu Sigrúnu og afa Willy. Þær minningar leita mikið á hugann við þessi tímamót og þótti mér hver ferð ævintýri lík- ust. Afi og amma virtust ávallt hafa nægan tíma til að sinna okkur barnabörnunum og skapa andrúmsloft sem okkur leið vel í. Það var ekki fyrr en ég var orðinn fullorðinn að ég gerði mér grein fyrir hversu sérstakt lífshlaup ömmu hafði verið. Árið 1939, þá aðeins 16 ára, sigldi hún með Gullfossi ásamt vinkonu sinni til Danmerkur en þær höfðu ráðið sig sem húshjálp á hvort sitt heimilið í Birkeröd á Sjálandi. Það má því segja að amma hafi siglt beint inn í seinni heimsstyrjöldina því Þjóðverjar hernámu Danmörku í apríl 1940. Ég er þess fullviss að stríðsárin í Danmörku hafi mótað ömmu og gert hana að þeirri manneskju sem hún var. Hún var hörkutól og vol eða væl var henni ekki að skapi enda hafði hún þurft að berjast fyrir sínu á yngri árum. En undir skelinni var afar hjartahlý og góð kona. Bein- skeyttur húmor hennar var ein- staklega skemmtilegur og stundum örlaði á kaldhæðni. Við amma höfðum ekki oft rætt fyrstu ár hennar í Danmörku en sumarið 1997 fórum við hjónin í heimsókn til hennar en hún bjó í Helsingör á þeim tíma, við sát- um lengi og hún ræddi opinskátt við okkur þennan erfiða tíma. Þarna fyrst gerði ég mér grein fyrir hversu sérstakt lífshlaup hennar hafði verið. Amma undi hag sínum vel í Danmörku og átti þar gott líf að stríði loknu. Guðrún móðursyst- ir mín og fjölskylda hennar bjó í Danmörku og naut hún mjög samvistanna við þau. Afi Willy lést í janúar 1988, þá tók aftur við erfiður tími sem hún mætti af yfirvegun og æðruleysi. Hún hafði alltaf tekið skýrt fram að á Íslandi vildi hún hvíla þegar þar að kæmi. Árið 2001 eftir hartnær 60 ára búsetu í Danmörku flutti hún heim til Íslands, til eldri dóttur sinnar og móður minnar Sonju. Þar bjó hún þangað til að hún flutti á Dvalarheimilið Höfða í janúar 2012. Í febrúar á þessu ári lést Guð- rún dóttir hennar og var það henni mikið reiðarslag. Hún treysti sér ekki til að vera við út- för hennar í Danmörku, það var henni afar þungbært. Að leiðarlokum vil ég og fjöl- skylda mín þakka henni sam- fylgdina og umhyggjuna fyrir okkur öllum. Ég er þakklátur fyrir að amma átti gott ævikvöld hér á Íslandi. Síðast en ekki síst stöndum við öll í þakkarskuld við mömmu fyrir þá einstöku umönnun sem hún veitti henni og fyrir að vera stoð hennar og stytta alla tíð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem) Hlynur M. Sigurbjörnsson og fjölskylda. Meira: mbl.is/minningar Það er ljúft en jafnframt sárt að setjast niður og minnast Sig- rúnar frænku. Sigrún var okkur alltaf náin. Það var bara eitt ár á milli Sigrúnar og móður okkar og mikil samskipti voru á milli þeirra systra og okkar afkom- enda þeirra. Við höfum bæði eins og svo margir aðrir notið gestrisni hennar, hjá Sigrúnu sannaðist það sem oft er sagt að þar sem er hjartarúm er húsrúm. Í fyrsta sinn heimsóttum við hana og Villy á Kobberdamsvej sumarið 1967. Þar leið okkur vel og nutum þess að vera á frosk- aveiðum í garðinum þeirra. Við höfum bæði margoft seinna notið gestrisni hennar í Danmörku og það var aldrei neitt mál að droppa inn hjá henni og fá gistingu. Það var gott að eiga hana að þegar við bjuggum bæði í Danmörku og kom hún í ömmu stað fyrir þá Björgvin og Daníel. Sigrún var glaðlynd og hafði skemmtilegan húmor sem hélst til síðasta dags og var heldur ekki hrædd við að kalla hlutina sínum réttu nöfn- um. Fyrir stuttu hittum við hana hjá Sonju og það var alveg ynd- islegt að sjá hvað hún fylgdist vel með og skaut inn skemmti- legum athugasemdum. Elsku Sigrún, við munum sakna þín en minnast þín með gleði. Hildisif og Kjartan. Sigrún Frederiksen stund ótal oft í huganum og ég mun aldrei gleyma henni, brosi þínu, kækjum og yndislegheitum. Elsku Dagný, mér þykir svo vænt um þig. Passaðu upp á alla englana í kringum þig. Við sjáumst síðar. Ég bið Guð að styrkja Lars, foreldra þína, systur og fjölskyld- una alla á þessum erfiðu tímum. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Hvíl í friði. Þín frænka og vinkona, Dagbjört Steinarsdóttir. Engin orð geta lýst sorg minni yfir fráfalli Dagnýjar, æskuvin- konu minnar. Þessi harmafregn kom eins og þruma úr heiðskíru lofti og kom róti á huga minn sem erfitt er að stilla. Upp koma alls kyns tilfinningar, hugsanir og spurningar sem berjast um í brjósti mínu. Óréttlæti, sorg, reiði og uppgjöf koma upp í hugann, og spurningar eins og hvers vegna í ósköpunum svona ung og falleg kona í blóma lífsins sé tekin frá okkur svona snögglega. Á sama tíma róar það hugann og fyllir hann von og trú, að hugsa til þess að Dagný hafi þurft að sinna mik- ilvægu verkefni á öðrum stað og að fráfall hennar hafi þjónað mik- ilvægum tilgangi. Litríkari persónuleika en hana Dagnýju er erfitt að finna. Rétt- ast væri að gera um hana kvik- mynd, svo einstök var hún. Mynd- brotin hrannast upp í huganum og ég nýt þess að raða þeim í púslu- spil minninga um yndislega tíma, þá sérstaklega öll hlátrasköllin sem hún hefur veitt mér í gegnum tíðina, þau eru óteljandi mörg. Hún var nefnilega alveg sérlega fyndin, það lýsir henni vel. Hún gat endalaust kallað fram bros og hlátur hjá öllum þeim sem eru svo heppnir að hafa kynnst henni. Elsku Dagný, ég er svo rík að hafa átt þig sem vinkonu. Þú hef- ur litskreytt líf mitt með heimsins skærustu litum og minningin um þína yndislegu nærværu, fallega brosið þitt og grænu augun þín mun fylgja mér alla tíð. Ég mun hugsa um tímann okkar saman í Danmörku, um þig og Lars, svo hamingjusamt og ástfangið par. Ég mun líka oft skella upp úr þeg- ar ég rifja upp hversu uppátækja- söm þú varst, prakkarastrikin okkar í gamla daga, þá fjölda- mörgu danssnúninga sem við höf- um tekið saman og hvernig þú gast komist svo stórkostlega vel að orði, hvort sem það var á ís- lensku eða dönsku. Þú gast jafn- vel búið til nýyrði eins og „æðak- nútur“ og „bristill“ – þetta gæti enginn nema þú, elsku vinkona, og það verður sárt að lifa án þín og fá ekki að heyra fleiri slíka gull- mola. Nú ertu farin frá okkur allt of snemma og við sem eftir erum er- um fátækari án þín og kveðjum með miklum trega. Þú varst okk- ur vinkonunum rosalega dýrmæt og við gerum okkar besta í að styrkja hver aðra í sorginni með hinum óteljandi sögum sem við eigum af þér. Megi Guð vera með ykkur, elsku Grímur, Hildur, Edda, Kristín, Lars og fjölskylda. Ég þakka fyrir samleið okkar hér á jörðu, elsku Dagný, Guð geymi þig. Þín Una. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Okkar dýpstu samúðarkveðj- ur sendum við Lars, Grími, Hildi, Eddu, Kristínu Maríu og öðrum aðstandendum. Megið þið finna styrk til að takast á við sorg ykk- ar. Minningar um þig, elsku Dagný, munu lifa með okkur. Þín verður sárt saknað. Þínar vinkonur, Tinna Sif og Heiða. Elsku Dagný mín, orð fá því ekki lýst hversu erfið mér þykja þessi skrif. Hvar á ég að byrja? Hvar á ég að hætta? Ég gæti skrifað heila bók um þig elsku ástin mín. Ég var svo heppin að flytja í sömu götu og þú árið 1997 þegar ég flutti í Garðabæinn, að- eins eitt hús á milli okkar. Þar hófst yndisleg vinátta okkar. Ég er svo ótrúlega þakklát fyrir að hafa kynnst þér og þinni dásam- legu persónu elsku Dagný. Mér þykja það forréttindi. Við kennd- um hvor annarri svo margt á lífs- leiðinni. Elsku Grímur, Hildur, Edda, Kristín María, Lars og aðrir aðstandendur, ég sendi ykkur mínar innilegustu samúð- arkveðjur. Ég kveð þig nú, elskan mín, með miklum trega, raulandi lög- in okkar, en aðeins þangað til við hittumst aftur hinum megin, elsku yndið mitt. Þín Helga Lára. Elsku vinkona. Það var á fallegum haustdegi þegar mér bárust þær hryllilegu fregnir að þú værir ekki lengur meðal okkar. Orð fá ekki lýst hversu sárt það var að heyra af skyndilegu fráfalli þínu. Það hef- ur ekki liðið sú mínúta sem þú hefur vikið úr huga mínum. Ég get með engu móti sætt mig við þá staðreynd að ég muni aldrei fá að njóta návistar þinnar framar. Eins fallegt og skemmtilegt lífið er þá getur það líka verið svo ósanngjarnt að það er óskiljan- legt. Tilhugsunin um framtíð án til- vista þinnar, elsku vinkona, er óraunveruleg, enda búnar að fylgjast að síðan í barnaskóla. Ótal minningar um þig hafa rifj- ast upp síðustu daga sem veitt hafa mér styrk í þessari miklu sorg sem fylgir hræðilegu dauðs- falli þínu. Það er mér sérstaklega minnisstætt þegar við Jói frændi þinn byrjuðum saman og ég varð einnig partur af yndislegri fjöl- skyldu ykkar. Mér þótti svo dýr- mætt að eiga þig einnig að í gegnum fjölskyldu ykkar Jóa og hversu gaman það ávallt var að mæta í fjölskylduboðin, vitandi að við myndum einnig hittast þar. Margar eru minningarnar bæði úr grunn- og menntaskóla og þó mig langi, þá er hér eigi pláss til að þylja þær allar upp. Það er þó óhætt að segja að við höfum gengið saman í gegnum frábærlega skemmtileg ung- lingsár sem einkenndust af mikl- um hlátri, gleði og uppátækja- semi. Ofarlega í huga mér eru síð- ustu fjögur ár okkar saman sem námsmenn í Danmörku, en sá tími þroskaði okkur öll. Allt í einu vorum við orðin fullorðin og farin að takast á við framtíðar- drauma okkar. Mikið sem við Jói vorum stolt af þér fyrir að vera svo frökk að fara ein í háskóla á Jótlandi. En það var augljóst að þú varst í þínu rétta umhverfi. Þú naust þín innilega og hvort sem við sáum þig blómstra. Það er mér minnisstætt þegar þú kynntir okkur fyrir þínum elsku- lega Lars og hversu vænt okkur þótti um hvað við náðum öll vel saman. Þær eru margar eftir- minnilegar samverustundirnar sem þú, ég og Jói, sem og Lars, áttum saman víðsvegar um Kaupmannahöfn. Mikið þykir mér vænt um öll þau skemmti- legu spjallkvöld sem við áttum saman, hlátrasköllin góðu og hvað gleðin tók oft öll völd. Aldrei mun ég gleyma þínum einstaklega fallegu augum, hlýjunni, lífsgleðinni, tryggð- inni, trúnni og traustinu sem einkenndi fas þitt og návist, elsku vinkona. Vináttu okkar mun ég varðveita sem gersemi um alla eilífð í hjarta mínu, þar mun ég halda þér mér nær, þangað til leiðir okkar liggja saman á ný. Ég yrki til þín kveðju ljóð sem ég svo tileinka þér ég leita djúpt í minninganna sjóð og hugsa um gleðina sem þú gafst mér. Víst er hún stutt þessi lífsins braut og aldrei ljóst hvar endirinn er stundum er leiðin mikil þraut og enginn veit hvað hann úr býtum ber. Alltaf var gleði og hlátur við hönd þegar við vorum saman þannig við tryggðum okkar vinar bönd það fannst mér alltaf gaman. Nú eru þessar stundir farnar frá en þú hverfur ekki úr huga mér bros þitt og hlátur ég alltaf mun þrá og rifja þá upp stundirnar með þér. (Haraldur Sævinsson) Lína Ágústsdóttir. Kveðja. Við fæðumst til að ferðast meira, fæðing, dauði er ferðalag. Margra bíður sultur, seyra, en sumum gengur allt í hag. Öll við fáum okkar kvóta, meðlæti og mótlæti. Flest við munum einnig hljóta okkar skerf af ástinni. Farðu í friði, góði vinur, þér fylgir hugsun góð og hlý. Sama hvað á okkur dynur, aftur hittumst við á ný. Úr hjarta mínu hverfur treginn er ég hugsa um hlátur þinn. Bros þitt veitti birtu veginn, betri um stund varð heimurinn. Farðu í friði, góði vinur, þér fylgir hugsun góð og hlý. Þar til heimsins þungi dynur þokar okkur heim á ný. Sólin skín á sund og voga, sumar komið enn á ný. Horfið burt í bláum loga stjörnublik á bak við ský. Farðu í friði, góði vinur, þér fylgir hugsun góð og hlý. Sama hvað á okkur dynur, aftur hittumst við á ný. Farðu í friði, góði vinur, þér fylgir hugsun góð og hlý. Þar til heimsins þungi dynur þokar okkur heim á ný. (Magnús Eiríksson) Megi Guð og góðar vættir vernda og styrkja ástvinina alla. Hvíl í friði, elsku Dagný okk- ar. Guðrún, Steinar og fjölskylda. Það eru mikil forréttindi fyrir okkur að hafa fengið að kynnast Dagnýju. Hún var glæsileg, falleg, dug- leg, metnaðarfull og hæfileika- rík, bókstaflega iðaði af lífi. Það er því sárt að sjá á eftir henni langt fyrir aldur fram. Við þökkum fyrir þann tíma sem við áttum með henni. Við vottum fjölskyldu Dag- nýjar okkar dýpstu samúð. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson) Ágústa og Ernst Backman. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu, systur og mágkonu, GUÐRÍÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR Laufvangi 18, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir færum við öllum þeim sem komu að umönnun í veikindum hennar. Alf H. Pedersen, Helene H. Pedersen, Einar Hjaltason, Guðmundur Þórir Pedersen, Berglind Einarsdóttir, Anita Sigurveig Pedersen, Sigurður Einar Marelsson, Hafdís, Þórhallur Ísak, Hugrún, Sylvía Rós, Sóley Katrín, Óttar Freyr, Sindri Marel og Örvar Hrafn, Þuríður Guðmundsdóttir, Kristján B. Kristjánsson. ✝ Hugheilar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts og útfarar elsku hjartans eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, MARGRÉTAR GUÐNÝJAR MAGNÚSDÓTTUR, Lágseylu 25, Njarðvík. Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæsludeildar Landspítalans við Hringbraut fyrir góða umönnun og hlýlegt viðmót. Björn Björnsson, Steinunn Ása Björnsdóttir, Gunnar Magnússon, Björn Björnsson, Þórdís Kristinsdóttir, Sigríður Björnsdóttir, Þorsteinn Valur Baldvinsson, Magnús Sigurður Björnsson, Bryndís Skúladóttir, Salbjörg Björnsdóttir, Jón Snævar Jónsson, Stefanía Helga Björnsdóttir, Arnbjörn Arnbjörnsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.