Morgunblaðið - 31.10.2013, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 31.10.2013, Blaðsíða 41
41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2013 KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM ÁTOPPNUM Í ÁR KYNNTUÞÉRMÁLIÐ Á EGILSHÖLLÁLFABAKKA THOR-DARKWORLD3D KL.5:30-8-10:30 THOR-DARKWORLDVIP2D KL.5:30-8-10:30 BADGRANDPA KL.5:50-8-10:10 GRAVITY2D KL.5:50-8 RUSH2 KL.10:10 PRISONERS 2 KL.6-8-9 FLUGVÉLAR ÍSLTAL2D KL.6 KRINGLUNNI THOR - DARKWORLD 2D KL. 5:30 - 8 - 10:30 BAD GRANDPA KL. 5:50 - 8 - 11 DISCONNECT/HEILABROTINNKL. 5:20 - 10:10 PRISONERS KL. 8 THOR - DARKWORLD 3D KL. 5:30 - 8 - 10:30 BAD GRANDPA KL. 5:50 - 8 - 10:10 GRAVITY 2D KL. 5:50 - 8 PRISONERS 2 KL. 8:30 RUSH KL. 6 - 10:10 NÚMERUÐ SÆTI AKUREYRI THOR - DARKWORLD 3D KL. 5:30 - 8 - 10:30 BADGRANDPA KL. 8 DISCONNECT/HEILABROTINNKL. 5:20 GRAVITY 2D KL. 10:10 KEFLAVÍK THOR-DARKWORLD3D KL.8-10:20 BADGRANDPA KL.8 PRISONERS KL.10:10 THE HOLLYWOOD REPORTER  ENTERTAINMENT WEEKLY  VARIETY  LOS ANGELES TIMES  “BESTA SPENNUMYND ÁRSINS” MYNDIN SEM ALLIR FORELDRAR ÆTTU AÐ FARA Á MEÐ BÖRNUM SÍNUM SÝNDÁ UNDANDISCONNECT VARIETY  QC  THE HOLLYWOOD REPORTER  EMPIRE  98% ROTTEN TOMATOES TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á CHRIS HEMSWORTH TOM HIDDLESTON NATALIE PORTMAN ANTHONY HOPKINS EMPIRE  TOTAL FILM  VAR BARA BYRJUNIN FRÁ ÞEIM SÖMUOG FÆRÐU OKKUR JACKASS MYNDIRNAR KEMUR „BAD GRANDPA“ FRÁBÆR GRÍNMYND! ★★★★★ Los Angeles Times ★★★★★ The New York Times ★★★★★ Empire 16 12 L FRÁ RICHARD CURTIS, HANDRITSHÖFUNDI LOVE ACTUALLY, NOTTING HILL & FOUR WEDDINGS ÍSL TALT.V. - Bíóvefurinn/S&H ★★★ FRÁ LEIKSTJÓRA THE BOURNE ULTIMATUM ÞAÐ EINA SEM GILDIR HÉR ÚTI ER AÐ LIFA AF BYGGÐ Á SANNRI SÖGU 14 10 FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA -bara lúxus sími 553 2075 www.laugarasbio.is 94% á rottentomatoes! -H.S., MBL -H.V.A., FBL-V.H., DV -T.V. -Bíóvefurinn.is / Séð & Heyrt -H.A.Ó., Monitor LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar CAPTAIN PHILLIPS Sýnd kl. 6 - 9 INSIDIOUS: CHAPTER 2 Sýnd kl. 8 - 10:20 MÁLMHAUS Sýnd kl. 5:50 ABOUT TIME Sýnd kl. 9 AULINN ÉG 2 2D Sýnd kl. 6 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Með merkari tónleikum á Airwaves í ár eru tónleikar hinnar sænsku Önnu von Hausswolff í Gamla bíói í kvöld kl. 23.40. Hausswolff leikur á kirkju- orgel sem er harla óvenjulegt hljóð- færi í popptónlist og var í fyrra til- nefnd til Norrænu tónlistarverð- launanna fyrir breiðskífuna Cere- mony. Skífan sú er býsna drungaleg, tekin upp í kirkju í Gautaborg og þema hennar dauðinn. Spurð að því hvers vegna hún hafi gert dauðann að þema plötunnar segir Hausswolff að hann sé prýðilegt yrkisefni, gott sé að hefja sögu á dauðanum og jafnvel betra að enda sögu með honum. – Þú leikur á kirkjuorgel sem er harla óvenjulegt í popptónlist. Flestir tengja hljóðfærið við kirkjur, m.a. brúðkaup og jarðarfarir. Hvers vegna kaustu þetta hljóðfæri? „Með því að leika á kirkjuorgel getur maður unnið á mörgum plönum í tónlistinni og útsett heilu verkin með einu hljóðfæri. Saga hljóðfæris- ins er heillandi. Þetta er hljómur mið- alda, hljómur svartadauða og kross- ferðanna. Þetta er hljómur valdsins,“ segir Hausswolff. „Ég sækist eftir hreinleika og heiðarleika í tónlist minni þannig að hljómarnir sem ég nota eru aldrei útfærðir stafrænt. Það þarf einhver að leika tónlistina á hljóðfæri svo ég heyri gallana, mun- inn á flutningi tónlistarmannanna og tónlistarlegum persónuleika þeirra eða frumleika. Fyrir mér er þetta eins og skært ljós sem berst um myrk göng.“ – Leitarðu innblásturs í einhverja tiltekna tónlist? „Þegar ég var að vinna í þessari plötu hlustaði ég mikið á bardúns- málm og þá mest á Earth og Barn Owl. Ég sótti líka innblástur í kvik- myndatónlist, t.d. tónlist Goblin við Suspiria og tónlist Björn Isfäldt við Bróður minn Ljónshjarta. Einn af mínum mestu áhrifavöldum er organ- istinn og tónskáldið Jan Welmers. Verk hans Litanie hefur verið mér innblástur og hvatning í mörg ár.“ Fyllt upp í rými Hausswolff stundaði nám í arkí- tektúr en segist hafa hætt því vegna anna. Spurð að því hvort arkitektúr og tónlist eigi eitthvað sameiginlegt, hvort þekking hennar á arkitektúr hafi einhver áhrif á tónlistina svarar Hausswolff: „Byggingarlist og tónlist eiga það sameiginlegt að búa til landslag með byggingum og að fylla upp í rými. Ég held að þekking mín á arkitektúr hafi áhrif á sýn mína á tón- list. Ég velti samsetningum mikið fyrir mér þegar ég er að semja og teygjanleika þeirra. Hvernig er hægt að gera eitthvað áhugavert þrátt fyr- ir að það sé algjörlega kyrrstætt? Í arkitektúr snýst það um að finna réttu efnin og lýsinguna þannig að það þjóni markmiðinu. Í tónlist snýst það um að finna rétta hljóminn og rýmið. Þó strúktúrinn breytist ekk- ert þá gerir skynjunin það.“ – Mér skilst að þú sért með ferða- orgel í farteskinu? „Það er í rauninni ekki orgel held- ur hljóðgervill. Hann er að vísu kall- aður C2 orgel og hljómurinn er stór- kostlegur, bestu orgel-hljóðdæmi sem ég hef nokkurn tíma heyrt. Það væri sannkallaður draumur að geta einhvern daginn ferðast um með al- vöru kirkjuorgel. Alveg eins og Björk!“ segir Hausswolff. – Eru einhverjar hljómsveitir að spila á Airwaves sem þú mátt ekki missa af? „Nokkrir í hljómsveitinni minni leika í Tempel og hún leikur á sama sviði og ég og á sama degi! Ég hef aldrei séð þá hljómsveit á tónleikum þannig að ég hlakka virkilega til þess að sjá hana tæta upp sviðið.“ Dauðinn gott yrkisefni  Sænska tónlistarkonan Anna von Hausswolff heldur tón- leika í Gamla bíói í kvöld  Kirkjuorgel heillandi hljóðfæri Miðaldahljómur Anna von Hausswolff leikur á kirkjuorgel, hljóðfæri sem er ekki algengt í popptónlist. www.annavonhausswolff.com María Margrét Jóhannsdóttir mariamargret@mbl.is Tilbury er tiltölulega ung hljómsveit en hún var stofnuð sumarið 2010 og hana skipa Þormóður Dagsson, Kristinn Everts- son, Örn Eldjárn, Magnús Trygva- son Eliassen og Guðmundur Ósk- ar Guðmundsson. Á miðvikudag kom út þeirra önnur breiðskífa sem ber heitið Northern Comfort. „Við verðum með tvenna tónleika á Airwaves-hátíðinni um helgina, á föstudag og sunnudag. Við ætlum að nota tækifærið og frumflytja tvö ný lög en alls verða spiluð fjögur lög af nýju plötunni í bland við eldri lög,“ segir Þormóður. „Við leyfum okkur að leika okkur meira á nýju plötunni til dæmis með slagverk og hljóðgervla. Þá er um að ræða meira hljómsveitarverk en fyrri plata okkar er. Við höfum náð að spila lögin meira til á æfingum og tónleikum en lög fyrri plötu okk- ar Exorcise voru meira eins og „demó“ sem við tókum upp beint í hljóðveri og náðum þá kannski ekki að spila lögin til sem skyldi.“ Hvíld eftir Airwaves Útgáfutónleikar Tilbury verða síðan í lok nóvember. „Við ætlum að leyfa fólki að hvíla sig örlítið eftir alla tónlistarviðburðina á Airwaves og höfum þess vegna tónleikana ekki fyrr en í lok nóvember,“ segir Þormóður en þess má geta að Til- bury verður með tónleika á Airwa- ves-hátíðinni á föstudag í Gamla bíói og á sunnudag á Gamla gaukn- um. Leikur „Við leyfum okkur að leika okkur meira á nýju plötunni til dæmis með slagverk og hljóðgervla,“ segir Þormóður Dagsson um plötu Tilbury. Meiri leikur  Ný plata og tónleikatvenna Tilbury

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.