Morgunblaðið - 31.10.2013, Qupperneq 11
Metnaður Í hrekkjavökupartíum Olgu leggja gestir mikinn metnað í búninga og förðun eins og sjá má hér.
nær að halda saman, þá fáum við
mikla athygli og það býður upp á
skemmtilegar uppákomur.“ Olga
segir að þau haldi stundum bún-
ingapartí þótt ekki sé hrekkjavaka.
„Þetta er þó nokkur hefð í mínum
vinahópi og alltaf jafngaman. Undir-
búningurinn er ekki síður skemmti-
legur en sjálf partíin. Ég mæli hik-
laust með þessu.“
Gestir Olgu Blóðugur læknir, dauðinn sjálfur og kríthvítur skratti.
Strákunum finnst þetta
ekkert síður skemmti-
legt en okkur stelp-
unum. Þeir leggja mik-
inn metnað í búningana.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2013
Litla leiksýningin með risastóra
hjartað er komin aftur á stjá, en
Skýjasmiðjan og Gaflaraleikhúsið
ætla að sýna hina vinsælu Hjarta-
spaða aftur nú í nóvember. Sýningin
hlaut lofsamlega dóma og var til-
nefnd til tvennra grímuverðlauna árið
2013. Aðeins verða 6 sýningar á verk-
inu að þessu sinni, sú fyrsta næsta
laugardag. Í þessu verki eru farnar
nýjar slóðir í leiklist á Íslandi en
þetta er fyrsta verkið sem leikið er
með heilgrímum án orða í sýningu í
fullri lengd. Verkið er drepfyndin en
ljúfsár kómedía sem fjallar um uppá-
tæki eldri borgara á dvalarheimilinu
Grafarbakka. Þau sanna að lífið er
ekki búið eftir áttrætt. Grímur og
Hannes hafa verið félagar á dvalar-
heimilinu og dagleg rútína þeirra er
fyrir löngu komin í fastar skorður.
Þegar Gréta flytur inn umturnast líf
þeirra og fyrr en varir hefjast óborg-
anleg uppátæki til að lífga upp á til-
veruna og drepa leiðindin þar sem
öllum brögðum er beitt. Þetta er
draumkenndur óður til elliáranna,
fullur af töfrum og ólíkindahætti sem
allir geta notið, óháð tungumáli,
heyrnartækjum og göngugrindum.
Kári ætlar að leika konu
Kári Viðarsson, leikari sem meðal
annars er þekktur fyrir uppbyggingu
sína á Frystiklefanum á Rifi á Snæ-
fellsnesi, bætist nú við hópinn og
tekur við hlutverki hjúkrunarkonu af
Álfrúnu Gísladóttur sem farin er til
náms í Bretlandi. Leikstjóri sýning-
arinnar er Ágústa Skúladóttir sem
hefur sett mark sitt á íslenskt leik-
húslíf, en hún hefur í liði með sér
leikarana Aldísi Davíðsdóttur, Orra
Hugin Ágústsson og Stefán Benedikt
Vilhelmsson.
Sýningar eru í Gaflaraleikhúsinu í
Hafnarfirði, 2. nóv, 3. nóv, 9. nóv, 10.
nóv, 23. nóv og 24. nóvember.
Miðasölusími: 565 5900 og sími í
hópasölu er 895-9919 (Hjartaspaðar)
Einnig á á midi.is og á netfanginu:
midasala@gaflaraleikhusid.is
Drepfyndin en ljúfsár kómedía
Spé Þær eru skondnar uppákomurnar á dvalarheimilinu Grafarbakka.
Hjartaspaðar fara aftur á svið
www.jonar.is film@jonar.is
Svona flytur Jón hamar Í stórum kvikmyndaverkefnum skiptir sköpumað allir hlutir skili sér á tökustað í góðu ástandi.
Þegar Jónar fluttu búnað fyrir kvikmyndina
Thor: The Dark World til landsins var úr vöndu
að ráða. Hamar Þórs er uppátækjasamur og kann
sérstaklega illa við langferðalög. Þá kom sér vel
að við áttum enn búrið sem við notuðum til að
flytja geimveruna í Prometheus til landsins.