Morgunblaðið - 31.10.2013, Side 20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2013
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Það er fínt að vera krakki á Flúð-
um, þar mættu þó vera fleiri versl-
anir og kvikmyndahús væri vel
þegið. Þetta er mat tveggja ungra
Flúðabúa, þeirra Laufeyjar Helgu
Ragnheiðardóttur, sem er í 7. bekk
í Flúðaskóla og Jónasar Guðmunds-
sonar, sem gengur í 6. bekk í sama
skóla.
„Meirihlutinn af krökkunum er
að æfa körfubolta. Íþróttafélagið
okkar heitir Hrunamenn og við æf-
um í íþróttahúsinu í skólanum,“
segir Laufey. Jónas segir fótbolta
og frjálsar einnig njóta nokkurra
vinsælda. Sjálfur æfir hann bæði
körfubolta og frjálsar og stundar
golf að sumarlagi og Laufey æfir
körfubolta.
Hvað gerið þið yfirleitt eftir
skóla? „Ég fer heim, fæ mér að
borða og fer svo á æfingu,“ segir
Laufey. „Sama hjá mér,“ segir Jón-
as. „Um helgar hittast krakkar oft
við skólann á hjólabrettum. Svo er-
um við auðvitað mikið með vinum
okkar. Stundum eru haldin partí
fyrir alla krakkana, það heitir mið-
stigsgleði.“
Hvað gerið þið í þessum partí-
um? „Bara eitthvað, sumir dansa,
sumir spila FIFA, horfa á myndir
og svoleiðis.“
Í Laufeyjar bekk eru 12 krakk-
ar og fimm í bekk Jónasar. Spurð
að því hvernig sé að vera í til-
tölulega fámennum bekk láta
krakkarnir vel af því og eru sam-
mála um að í slíkum aðstæðum sé
enn mikilvægara að öllum líði vel
saman. „Þess þarf eiginlega þegar
við erum svona fá,“ segir Laufey.
Hvað mynduð þið gera ef þið
mættuð ráða öllu á Flúðum í einn
dag? „Setja rennibraut í sundlaug-
ina. Fá betri leikvöll við skólann og
nýjar körfuboltakörfur,“ segir
Laufey. „Ég myndi setja hérna
frjálsíþróttavöll og stækka skólann,
hann er of lítill,“ segir Jónas.
Langar ykkur aldrei til þess að
fleiri krakkar byggju á Flúðum?
„Nei, alls ekki,“ segja krakkarnir í
kór. „Það er alveg nóg af skemmti-
legum krökkum á Flúðum.“
„En það mættu vera fleiri og
stærri búðir hérna,“ segir Jónas.
„Og bíó.“
„Það er nóg af
skemmtilegum
krökkum á Flúðum“
Ungir Flúðabú-
ar láta vel af lífinu
og tilverunni
Morgunblaðið/Kristinn
Laufey og Jónas Þau eru ánægð með tilveruna á Flúðum, en myndu þó
ekki slá hendinni á móti kvikmyndahúsi í bænum.
Flúðakrakkar Kátir
krakkar á leikvell-
inum við skólann
sinn, Flúðaskóla.
Árleg folaldasýning Hrossaræktarfélags Hrunamanna verður haldin á
Flúðum næstkomandi sunnudag, 3. nóvember. Þar verður keppt í merfol-
alda- og hestfolaldaflokki og áhorfendur munu einnig velja glæsilegasta
folaldið.
En hvaða skilyrði þarf folald að uppfylla til að teljast sigurstranglegt í
keppni sem þessari?
„Það þarf fyrst og fremst að vera fallega byggt og með mjúkar og góð-
ar hreyfingar,“ segir Sigurður Haukur Jónsson, gjaldkeri hrossaræktar-
félagsins. „En auðvitað ræðst þetta af smekk hvers og eins.“
Sigurður segir að von sé á 20-30 folöldum á sýninguna og að valin-
kunnir hestamenn og hrossaræktendur muni dæma þau. Sýningin verður
haldin í Reiðhöllinni á Flúðum og hefst kl. 14. annalilja@mbl.is
Folöld Nokkur þeirra folalda sem kepptu á sýningunni á Flúðum í fyrra.
Velja glæsilegasta folaldið
Farið verður á Hvolsvöll í
100 daga hringferð Morgun-
blaðsins á morgun.
Á morgun
Í gamalli kartöflugeymslu á bæn-
um Birtingaholti, í um 10 mín. akst-
ursfjarlægð frá Flúðum, er Bragginn,
leirvinnustofa og kaffihús systranna
Ernu og Ásthildar Skúladætra.
Bragginn dregur nafn sitt af hús-
næðinu, sem er gamall her-
mannabraggi sem afi systranna
keypti fyrir um 45 árum og hefur nú
heldur betur fengið nýtt líf. Erna er
sú systranna sem skapar úr leir bolla,
diska og skálar með ævintýrablæ og
á kaffihúsinu er lögð áhersla á hrá-
efni úr sveitinni. „Við bjóðum t.d. upp
á reyktan silung frá Laugarvatni,
heimabakað brauð úr korni sem
ræktað var í grenndinni og búum til
hundasúrupestó og rabarbarasafa,“
segir Ásthildur.
Bragginn er opinn allt sumarið og
við sérstök tækifæri yfir veturinn,
eins og t.d. um Safnahelgi á Suður-
landi næstu helgi og einnig verður
opið er nær dregur jólum.
Ljúffengt í Bragga Kræsingar úr
sveitinni bornar fram á leir eftir Ernu.
List og kræs-
ingar í gamalli
kartöflu-
geymslu
FLÚÐIR
DAGA
HRINGFERÐ
Fyrir þá sem
elska hönnun
Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is
PARKETFLÍSAR
þú flísar þær í botn