Morgunblaðið - 31.10.2013, Side 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2013
✝ Helga GuðrúnGuðvarðar-
dóttir fæddist í
Sigríðarstaðakoti í
Flókadal í Fljótum
7. febrúar 1925.
Hún lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu
á Akureyri 18.
október 2013.
Foreldrar henn-
ar voru María Ás-
grímsdóttir, f. 23.
október 1896 á Barði í Fljótum,
d. 18. júlí 1994 á Akureyri, og
Guðvarður Sigurbergur Pét-
ursson, f. 2. ágúst 1895 á Kleif á
Skaga, d. 11. desember 1987 á
Akureyri. Systkini Helgu eru
Hólmfríður Ingibjörg, f. 1922,
Ásta Kristín, f. 1923, Sigurður,
f. 1926, d. 2009, Bæringur, f.
1928, Þórarinn, f. 1930, Pétur,
f. 1932, Sigurlaug, f. 1933,
Ragna, f. 1934, Hreinn, f. 1936,
og óskírður drengur, f. 1937, d.
sama ár. Hálfsystir Helgu var
Hulda Guðmundsdóttir, f. 1918,
d. 1983. Uppeldisbróðir Helgu
var Guðvarður Jónsson, f. 1916,
d. 1996.
Hinn 13. júní 1947 giftist
Helga Gunnlaugi Helga Guð-
mundssyni, f. 4. ágúst 1921, d.
28. janúar 1990. Foreldrar
Gunnlaugs voru Guðmundur
son og börn þeirra eru Pétur
Örn og Brynhildur Björk. Sam-
býlismaður Kolbrúnar er Hákon
Hafsteinsson. 3) Sverrir, f. 23.
mars 1951, í sambúð með Gunn-
hildi Frímann. Börn þeirra eru
Guðmundur Frímann, f. 1976,
Sindri Þór, f. 1980, og Helga
Guðrún, f. 1982. Eiginkona
Guðmundar er Anna Sigurbjörg
Sigurbjörnsdóttir, dætur þeirra
eru Amelía Mist og Katrín
Helga. Sambýlismaður Helgu er
Hjalti Ásgeirsson, þau eiga ný-
fæddan son. 4) Guðvarður Már,
f. 16. september 1956, kvæntur
Aðalheiði Guðmundsdóttur.
Sonur þeirra er Ólafur Dofri, f.
2001. Börn Aðalheiðar eru
Kristín Lovísa, f. 1988, og Jónas
Orri, f. 1992, Jóhannsbörn. Guð-
varður var áður kvæntur Þóru
Björk Hjartardóttur.
Helga ólst upp í Sigríðar-
staðakoti, Illugastöðum í Aust-
ur-Fljótum og Minni-Reykjum í
Flókadal. Hún fór fljótt að
vinna fyrir sér í vist og sem
kaupakona og vinnukona. Þau
Gunnlaugur hófu búskap á
Litluvöllum í Bárðardal árið
1947, en fluttu eftir eitt ár að
Hrappsstöðum í sömu sveit og
bjuggu þar í 26 ár er þau
brugðu búi og fluttu til Akur-
eyrar. Þar vann Helga sem
starfsstúlka í mötuneytum. Hún
bjó lengst af ein, því að Gunn-
laugur var lengi á Kristnesspít-
ala áður en hann lést.
Útför Helgu fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag, 31.
október 2013, kl. 13.30.
Gunnlaugsson, f.
1895, d. 1975, og
Sigríður Steinunn
Ólafsdóttir, f. 1891,
d. 1925. Börn
Helgu og Gunn-
laugs eru: 1) Guð-
mundur Víðir, f.
24. maí 1947,
kvæntur Margréti
Þorsteinsdóttur.
Dóttir hans með
Steinunni Elsu
Bjartmarsdóttur er Sif, f. 1973.
Sambýlismaður hennar er Guð-
jón Magni Einarsson, og synir
þeirra eru Einar Ingi og Bjart-
mar Ás. Börn Guðmundar og
Margrétar eru Ólafía Kristín
(Lóa Stína), f. 1980, Gunnlaugur
Víðir, f. 1983, og Þorsteinn
Helgi, f. 1989. Börn Ólafíu
Kristínar og fyrrverandi eigin-
manns hennar, Jóhanns Gunn-
ars Sigmarssonar, eru Sara
Margrét og Hrannar Örn. Sam-
býliskona Þorsteins er
Christine Elizabeth Pontiff. 2)
Sigríður Steinunn, f. 1. maí
1948, í sambúð með Pétri Odds-
syni. Börn þeirra eru Oddur, f.
1982, Helga María, f. 1983, og
Kolbrún Hulda, f. 1990. Sam-
býliskona Odds er Hildur Grét-
arsdóttir. Sambýlismaður
Helgu er Hlynur Örn Ásgeirs-
Þegar nálgast lok október-
mánaðar er veturinn farinn að
minna á sig. Á síðustu vikum og
mánuðum var einnig ljóst að
eins var um haustið í lífi tengda-
móður minnar. Þó að heilsan
væri farin að láta undan, bar
endalokin nokkuð brátt að.
Þetta er að sjálfsögðu eðlilegur
gangur lífsins og var í samræmi
við hennar óskir að þurfa ekki
að liggja ósjálfbjarga. Ég
kynntist henni ekki fyrr hún var
flutt til Akureyrar austan úr
Bárðardal eftir búsetu þar. Hún
bjó á Akureyri í á fjórða tug ára
og undi hag sínum vel eða þann-
ig skynjaði ég það. Alltaf var
manni jafnvel tekið þegar mað-
ur kom til hennar og alltaf
veizluborð. Það var því ekki
ástæða til að stoppa á matsölu-
stöðum á heimleið. Hún átti
þess kost á seinni hluta ævinnar
að fara nokkrar ferðir til út-
landa og naut þess. Mikla um-
hyggju bar hún fyrir afkomend-
um, ekki sízt barnabörnum. Má
í því sambandi nota sama orða-
lag og haft er um fjárhirðana á
Betlehemsvöllum fyrir margt
löngu; „hún gætti hjarðar sinn-
ar“. En við sólsetur lífsins er
ekki annað að gera en að þakka
fyrir sig og óska farsællar lend-
ingar á strönd hins óræða. Þar
hefur ef til vill einhver fyrir-
hyggjusamur tekið fram spil og
verið búinn að gefa.
Pétur Oddsson.
Það er mikil blessun að eiga
góða tengdamóður og þeirrar
blessunar hef ég verið aðnjót-
andi í rúmlega 35 ár. Þessi lág-
vaxna hnellna kona var mikil
gersemi. Hún var afar glettin
og hláturmild en jafnframt
sjálfstæð og föst fyrir. Hún
hlustaði vel á það sem var rætt
og rökstutt en ef það hugnaðist
henni ekki varð því ekki haggað.
Helga var ekki rík af verald-
legum auði en þeim mun ríkari
af andlegum auði. Hún var afar
fróð kona og stálminnug. Það
var hægt að fletta upp í henni
um atburði og tímasetningar og
hún hafði mjög gaman af að
velta fyrir sér hlutunum. Rétt-
lætiskenndin var afar sterk og
þar var enginn rétthærri en
annar. Þegar fjölskyldan stækk-
aði og barnabörnunum fjölgaði
varð hún besta amma í heimi.
Fjölskyldan og afkomendurnir
voru henni mjög dýrmæt og
þangað leituðu allir. Heimili
Helgu varð miðstöð fjölskyld-
unnar og hún var alltaf til stað-
ar fyrir alla. Þar var reitt fram
kaffi og með því um leið og ein-
hver kom og alltaf nægur tími
til að spjalla. Á jóladag safnaði
hún saman allri fjölskyldunni
hér á Akureyri og bar fram
miklar og góðar veitingar eins
og henni einni var lagið. Þess á
milli bauð hún fjölskyldunni í
kaffi eða mat ef henni fannst til-
efni til. Hún var alltaf ánægð
með að geta veitt vel og að fólk
færi pakksatt frá henni. Alltaf
var Helga boðin og búin að að-
stoða okkur ef þörf var á. Hún
spurði gjarnan hvenær ætti að
taka slátur eða gera laufabrauð
og mætti þá til að hjálpa og
vann jafnt og þétt á sinn þægi-
lega og hljóða hátt þar til verk-
inu var lokið og búið að ganga
frá. Það virtist aldrei skipta
máli þótt hún sjálf væri búin að
vinna fulla vinnuviku í erfiðu
starfi, hún virtist alltaf geta
bætt á sig vinnu en alla sína tíð
vann hún mikið, var við búskap í
áratugi og eftir að hún flutti til
Akureyrar vann hún við ýmis
þjónustustörf.
Barnabörnin og barnabarna-
börnin áttu stóran sess í lífi
hennar. Hún hafði einstakt eyra
fyrir því sem þau sögðu og gat
skemmt sér yfir skemmtilegum
setningum frá þeim en án þess
að þau yrðu þess mikið vör því
hún lét þau aldrei finna að hún
væri að hlæja að því sem þau
sögðu. Þolinmæði og hlýja
gagnvart börnum var óendanleg
og krakkarnir voru ekki háir í
loftinu þegar byrjað var að
kenna þeim að spila en helsta og
besta skemmtun Helgu var að
spila vist eða félagsvist. Um-
burðarlyndi í garð annarra
ásamt mikilli nægjusemi og
nýtni í öllu er varðaði hana
sjálfa einkenndi Helgu alla tíð
en það sem sneri að öðrum ein-
kenndist af takmarkalausu ör-
læti og höfðingsskap.
Elsku Helga, takk fyrir allt
sem þú hefur kennt mér og
þakka þér samfylgdina öll þessi
ár. Blessuð sé minning Helgu
Guðrúnar.
Margrét.
Elsku amma Helga. Dagur-
inn sem ég hef óttast lengi rann
upp hinn 18. október síðastlið-
inn þegar þú skildir við. Ég geri
mér alveg grein fyrir að þetta
er hluti af lífinu, við deyjum öll
en þrátt fyrir það hef ég aldrei
séð þig sem eina af þeim sem
deyja þótt ég hafi vitað það og
óttast. Fyrir mér áttu að vera
hluti af mínu daglega lífi þangað
til ég dey. Ég er ekki hálf
manneskja eftir að þú lést,
sárari söknuð hef ég aldrei upp-
lifað.
Það eru svo fá orð til til að
lýsa bestu ömmu í heimi. Þú
tókst mér alltaf eins og ég er og
sinntir mér svo vel. Hlustaðir á
mig, þekktir vini mína, spilaðir
við mig, leyfðir mér að prófa
mig áfram með allt mögulegt
heima hjá þér og þú hafðir svo
gaman af því.
Sú minning um þig sem lýsir
best hvernig ég sá þig er síðan
ég var átta ára. Þá var ég í
pössun hjá Siggu frænku á
Varmalandi í þrjár vikur á með-
an mamma og pabbi voru í utan-
landsferð. Mér þótti gaman hjá
henni og brallaði ýmislegt með
Oddi og Helgu Maju en samt
sem áður var ég lítil og óörugg í
þessum aðstæðum. Það rigndi
töluvert þennan tíma og í minn-
ingunni rigndi upp á hvern ein-
asta dag. Þangað til daginn sem
þú komst á Varmaland til okk-
ar. Þá skein sólin og ég man að
sólin skein líka í hjarta mínu.
Ég man að þú komst á fimmtu-
degi því ég kaus frekar að horfa
á Matlock með þér þetta kvöld
heldur en að leika mér úti í
langþráðu góðu veðri. Ég var
öruggari að fara að sofa á kvöld-
in með þig mér við hlið og svaf
vel. Ég lék mér á daginn en gat
alltaf komið inn til þín ef á
þurfti að halda. Og þú tókst mér
alltaf vel og hafðir áhuga á því
sem við vorum að bralla útivið.
Jóladagur án þín verður aldr-
ei sá sami þar sem jólaboð hjá
þér hefur verið hluti af jólunum
síðan ég man eftir mér. Þar var
hangikjöt í stórum stíl, ís í eft-
irrétt, kvöldkaffi með hverri
tertunni á fætur annarri og við
barnabörnin sem eigum heima á
Akureyri gerðum leikrit þegar
við vorum yngri, spiluðum þeg-
ar við urðum eldri og nú voru
dætur okkar Muggs farnar að
setja saman sýningar fyrir okk-
ur fullorðna fólkið.
Ég er svo þakklát fyrir að
hafa tekið þá ákvörðun eftir að
ég lauk háskólanum að flytja
aftur heim til Akureyrar en það
sem réð úrslitum í þeirri
ákvörðun var að ég vildi að mín
börn fengju að kynnast þér og
umgangast þig. Sara Margrét á
mjög erfitt núna og saknar þín
mikið en það er af því að hún
fékk tækifæri til að kynnast
bestu ömmu í heimi og fyrir það
er ég svo þakklát. Ég mun svo
sannarlega halda minningu
þinni á lofti með öllum þeim
skemmtisögum sem ég á af þér,
öllum hlátursköstunum okkar
saman, öllum óteljandi spilunum
sem við spiluðum og svo má
endalaust telja. Það sem hefur
fleytt mér í gegnum síðustu
daga er að hafa verið með þér
síðustu tímana þína, fengið að
halda í höndina á þér þegar þú
lést, náð að kveðja þig rosalega
vel og verið til staðar fyrir þig á
dánarbeðnum. En mikið rosa-
lega er sárt að þurfa að kveðja
þig, sárara en orð fá lýst.
Hvíldu í friði, elsku amma.
Ólafía Kristín (Lóa).
Amma Helga var yndisleg
manneskja og engum lík. Þegar
við minnumst hennar kemur
fyrst upp í hugann gestrisni,
hlátrasköll og góðmennska. Það
var alltaf jafnskemmtilegt að
fara í heimsókn til ömmu, hvort
sem það var í barnæsku eða á
fullorðinsárum. Hún bar alls
kyns góðgæti á borð og spurði
hvort það mætti ekki bjóða okk-
ur „smá“ kaffisopa þegar borðið
var fullhlaðið. Amma sá til þess
að enginn færi svangur frá
henni.
Amma Helga var ótrúlega
hress og mikill húmoristi. Eitt
það sem stendur upp úr í minn-
ingunni um hana eru öll hlát-
ursköstin. Þá sló hún sér á lær,
sem vakti mikla kátínu meðal
nærstaddra. Amma hló ekki síð-
ur að sjálfri sér en öðrum og
gerðum við barnabörnin oft
góðlátlegt grín að ólíkum skoð-
unum hennar kynslóðar og okk-
ar.
Amma Helga hafði alltaf nóg
fyrir stafni. Henni þótti fátt
skemmtilegra en að spila fé-
lagsvist og fylgdi því oft mikið
umstang. Amma hlakkaði til
ættarmóta en þá var oftar en
ekki gripið í spil. Auk þess
prjónaði hún mikið og höfum við
í gegnum tíðina fengið ógrynni
af lopavettlingum og sokkum.
Vert er að nefna uppáhalds-
sjónvarpsþáttinn hennar ömmu,
Leiðarljós. Henni þótti mikil-
vægt að missa ekki úr þætti.
Við höfðum gaman af því þegar
amma lét okkur vita stöðu mála
í þáttunum, þrátt fyrir að við
hefðum aldrei fylgst með þeim.
Oft kallaði þetta fram hlátra-
sköll þegar hún áttaði sig á því
að við deildum ekki áhuga henn-
ar á Leiðarljósi.
Það var alltaf gaman að vera
nálægt ömmu Helgu. Hana ein-
kenndi mikil gleði og hlýja. Sem
dæmi um það má nefna hvað
hún sýndi vinum okkar mikinn
áhuga. Hún kynntist mörgum
þeirra á menntaskólaárum okk-
ar á Akureyri og spurði reglu-
lega upp frá því hvað á daga
þeirra hefði drifið.
Já, hún amma Helga var svo
sannarlega besta amma í heimi
og er því erfitt að kveðja. En
við erum þó lánsöm að eiga svo
margar góðar minningar um
hana.
Oddur, Helga María og
Kolbrún Hulda.
Elsku Helga, þú sem varst
alltaf svo hlý og góð og tókst
okkur systkinunum strax sem
þínum eigin barnabörnum. Okk-
ur þykir mjög vænt um það og
munum sakna þess að eiga þig
að. Það var alltaf svo notalegt
að koma til þín í Þórunnar-
strætið sem og að fá þig í heim-
sókn til okkar. Þú varst svo
skýr og stutt í hláturinn fram á
síðustu stundu og svo hafðir þú
svo góða nærveru. Hvíldu í friði.
Kristín Lovísa og
Jónas Orri.
Helga Guðrún
Guðvarðardóttir
✝
Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
AÐALHEIÐAR SVAVARSDÓTTUR,
Gullsmára 7,
Reykjavík,
sem lést föstudaginn 25. október, verður í
Kópavogskirkju föstudaginn 1. nóvember
kl. 13.00.
Ólafur Tryggvason, Halla Stefánsdóttir,
Svavar Tryggvason, Aðalbjörg Jóhannesdóttir,
Sigrún Tryggvadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
SIGURÐUR HÓLM ÞORSTEINSSON,
Hjallabraut 33,
Hafnarfirði, lést á Sólvangi
í Hafnarfirði
sunnudaginn 27. október.
Sálumessa verður sungin í Dómkirkju Krists konungs í Landa-
koti mánudaginn 4. nóvember klukkan 11.00.
Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Sagnfræðisjóð
Björns Þorsteinssonar við Háskóla Íslands: 0111-26-5712.
Kennitala 571292-3199 eða í síma 525-4000.
Torfhildur Steingrímsdóttir,
Guðrún Unnur Martyny, Donald Martyny,
Ólafur Sigurðsson, Anna Bergsteinsdóttir,
Pétur Már Sigurðsson, Stefanía Úlfarsdóttir,
María Sigurðardóttir, Örn Gíslason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
ÁSMUNDUR ÞORSTEINSSON,
Sunnuvegi 4,
Þórshöfn,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
fimmtudaginn 24. október.
Útför hans fer fram frá Þórshafnarkirkju laugardaginn
2. nóvember kl. 13.00.
Jarðsett verður í Skeggjastaðakirkjugarði.
Svava Benediktsdóttir,
Magni Benedikt Ásmundsson,
Þorsteinn Jóhann Ásmundsson,
Heiðbjört Ósk Ásmundsdóttir, Sigurður Jakobsson,
Karl Þór Ásmundsson, Arnfríður Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
JÓHANNA MAGNÚSDÓTTIR,
Hvanneyrarbraut 44,
Siglufirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar
sunnudaginn 27. október.
Magnús B. Jónasson, Margrét Maronsdóttir,
Ævar B. Jónasson, Guðlaug Friðriksdóttir,
Sigrún J. Jónasdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HALLDÓRA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Hamraborg 30,
lést mánudaginn 28. október og verður
jarðsungin frá Kópavogskirkju mánudaginn
4. nóvember kl. 13.00.
Alfons Hannesson, Bonita L. Hannesson,
Valgerður Hannesdóttir, Haraldur Helgason,
Svandís Hannesdóttir, Elías B. Árnason,
Jóhanna Benný Hannesdóttir, Elfar Eiðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ELÍN INGVARSDÓTTIR
frá Húsatóftum,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
mánudaginn 28. október.
Útförin fer fram frá Skálholtskirkju laugar-
daginn 9. nóvember kl. 13.00.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.