Morgunblaðið - 31.10.2013, Síða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2013
Ekkert er jafn gott og gott kaffi, súkkulaði og góð terta,“ segirÖrn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábáta-eigenda í nær þrjá áratugi, sem ætlar að gera sér dagamun
og leyfa sér svolítinn munað í tilefni 58 ára afmælisins í dag. Annars
hafi hann engan tíma fyrir neitt nema vinnuna og áhugamálin líði
fyrir það. „Félagsskapurinn er einstaklega gefandi og í svona hags-
munagæslu má maður aldrei sofna á verðinum.“
Örn bendir á að smábátaeigendur hafi fiskað um 800 tonn af síld í
fyrra en hafi nú fengið 500 tonn í fyrstu úthlutun og voni að ráð-
herrann bæti við það. Þeir fylgist líka mjög náið með makrílviðræð-
unum enda hafi makríllinn komið inn á slóðina hjá smábáteigendum
í fyrsta sinn í ár. Um 100 bátar hafi verið á makrílveiðum og enn
fleiri séu í viðbragðsstöðu fyrir næsta ár.
Örn segir að með því að fá makrílinn og síldina breytist starfsum-
hverfi karlanna. Fleiri fái tækifæri til að verða trillukarlar allt árið,
án þess að þurfa að kaupa sér veiðiheimildir, að undanskilinni síld-
inni sem menn leigja frá ríkinu. Menn byrji á strandveiðum á vorin,
fari á makríl í september, síðan í síldina og svo grásleppuna. „Það er
ánægjulegt að sjá unga menn koma svona inn,“ segir Örn og segir að
nú standi menn frammi fyrir því að velja hvort þeir eigi að sleppa
strandveiðunum og fara í makrílinn næsta sumar. „Það er skemmti-
leg klemma,“ segir hann. steinthor@mbl.is
Örn Pálsson framkvæmdastjóri 58 ára
Verkefni Örn Pálsson framkvæmdastjóri hefur nóg að gera.
Má aldrei sofna
á verðinum
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Karen Lind Helgadóttir, 10 ára, og
Anna Margrét Hákonardóttir, 8 ára,
héldu tombólu við verslun Samkaupa í
Hrísalundi. Þær söfnuðu 3.133 krónum
sem þær styrktu Rauða krossinn með.
Hlutavelta
Reykjavík Þórkatla fæddist 27. mars
kl. 23.48. Hún vó 3.538 g og var 51 cm
löng. Foreldrar hennar eru Tinna Ey-
steinsdóttir og Freyr Björnsson.
Nýir borgarar
Vestmannaeyjar Nökkvi Dan fæddist
14. febrúar kl. 21.10. Hann vó 3.922 g
og var 51 cm langur. Foreldrar hans
eru Þórsteina Sigurbjörnsdóttir og
Sindri Viðarsson.
Í
var fæddist í Reykjavík
31.10. 1983 en ólst upp á
Espiflöt í Reykholti í Blá-
skógabyggð (Biskups-
tungum) þar sem foreldrar
hans eru garðyrkjubændur og
stunda blómarækt:
„Ég var svo ungur þegar ég byrj-
aði að hjálpa til við blómaræktina að
ég man alls ekki eftir mínum fyrsta
vinnudegi. Þegar báðir foreldrar
manns stunda sömu atvinnu, og hún
er auk þess við heimili manns, þá
verður þetta hluti af heimilisstörfum
og daglegu amstri sem er allt í
kringum mann. Ég er alinn upp við
þessa blómaræktun og því sann-
kallað blómabarn.“
Grafísk hönnun, umhverfis- og
skipulagsfræði og ljósmyndun
Ívar var í Reykholtsskóla, lauk
stúdentsprófum frá ML 2003, lauk
Ívar Sæland, umhverfis- og skipulagsfræðingur – 30 ára
Fjölskylda Ívars Við útskrift hans frá Hvanneyri 2010, talið frá vinstri: Sveinn, Áslaug, Ívar, Eva og Axel.
Blómabarn frá Reyk-
holti í Bláskógabyggð
Skólasystkini í Danmörku Axel, Magnús, Sonja, Ívar, Daníel og Ágúst.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem
hefur hafið göngu sína í Morgun-
blaðinu. Þar er meðal annars sagt
frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæð-
ingum eða öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta
af slóðinnimbl.is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Skoðaðu úrvalið
www.jens.is Síðumúla 35
Kringlunni og
Íslensk hönnun og handsmíði - Falleg gjöf
Sérsmíðaðir skartgripir með íslenskum náttúrusteinum