Morgunblaðið - 31.10.2013, Side 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2013
Kópavogsbær og Listaháskóli Ís-
lands hafa gert með sér sam-
komulag um að útskriftarsýningar
meistaranema í myndlist og hönnun
verði haldnar í Gerðarsafni, lista-
safni Kópavogs. Meistaranám í
myndlist og hönnun við LHÍ hófst
haustið 2012 og brautskráir skólinn
fyrstu nemendur námsbrautanna
tveggja næsta vor. Fyrsta útskrift-
arsýning meistaranemanna verður
því haldin í apríl. Samningurinn
nær til þriggja ára.
„Mikil ánægja er með samning-
inn og er talið að hann auki enn veg
skapandi greina og efli um leið
menningarlífið í Kópavogi,“ segir
m.a. í tilkynningu frá Kópavogsbæ.
Þar er haft eftir Ármanni Kr. Ólafs-
syni bæjarstjóra að Gerðarsafn sem
og Salurinn og þau önnur menning-
arhús sem standa á Borgarholtinu,
bjóði upp á ýmsa möguleika fyrir
skapandi listafólk. „Vonandi er
þetta fyrsta skrefið að frekara sam-
starfi við LHÍ,“ segir Ármann.
Undirritun Kristján S. Jónsson, deildarforseti myndlistardeildar LHÍ, Fríða
Björk Ingvarsdóttir, rektor LHÍ, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópa-
vogs, Karen E. Halldórsdóttir, formaður lista- og menningarráðs, og Sigrún
Birgisdóttir, deildarforseta hönnunar- og arkitektúrdeildar LHÍ.
Útskriftarsýning-
ar í Gerðarsafni
LHÍ semur við Kópavogsbæ
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„Öll mín verk eru meira og minna um
tímann,“ segir pólska myndlistar-
konan Alicja Kwade. Við stöndum á
gólfi sýningarsalar i8 gallerísins við
Tryggvagötu, þar sem sýning hennar
Fastastjörnur og önnur skilyrði
verður opnuð klukkan 17 í dag. Við
horfum á stórgrýti, nær hálft tonn að
þyngd, sem snýst um sjálft sig á gólf-
inu. Þetta er verkið „Stjörnudagur
(+ þrjár mínútur og 55,9 sekúndur)“
og grjótið snýst ofur hægt í gagn-
stæða átt við möndulsnúning jarðar
og lýkur einum hring á 23 klukku-
stundum, 56 mínútum og 4,099 sek-
úndum. Í rauninni erum það við sem
snúumst kringum hnullunginn og
hann er kyrr.
„Hugtakið tími er annars mjög op-
ið,“ segir þessi kvika unga kona sem
hefur vakið verulega athygli fyrir
listsköpun sína á undanförnum árum.
Hún starfar í Berlín og hefur haldið
einkasýningar í virtum söfnum og
galleríum beggja vegna Atlantshafs-
ins. Þá hlaut hún Robert Jacobsen-
verðlaunin árið 2010 og Pipenbrock-
verðlaunin fyrir skúlptúra sína árið
2008. „Tíminn tengist svo mörgu í lífi
okkar, hvernig við lifum lífinu og
hvernig samfélagið er sett upp. En
fyrir mig er tíminn eitthvert mikil-
vægasta formið sem við mótum eftir
okkar höfði, til að skapa okkar eigin
veruleika. Það er grunnur sem við
búum við; vísar klukkunnar eru um
leið ásýnd þessa veruleika. Tuttugu
og fjórir tímar eru í sólarhring og eft-
ir tiltekinn fjölda þeirra er komið ár.“
Staðfesting á tímanum má sjá í
gamalli klukku á einum veggnum og
þarna eru líka hversdagsleg form úr
okkar daglega veruleika sem hafa
eins og lekið af vegg niður á gólf.
„Já, verkin mín eru mikið um
formin í veruleikanum, og hvernig
við gerum þennan veruleika byggi-
legan. Hér eru nokkrir hversdags-
legir hlutir orðnir bognir; en er ein-
hver sannleikur sem segir hvernig
þeir eiga að líta út? Við getum verið
ansi íhaldssöm hvað slíkt varðar.“
Kwade segir að vissulega sé mik-
ilvægt fyrir okkur mennina að hafa
ákveðinn strúktúr og hrynjandi í um-
hverfi okkar, annars væri erfitt að
hafast við á þessari fleytu sem við
siglum á gegnum lífið. En hún tekur
þessa þætti inn í sýningarsalinn og
umbreytir þeim.
„Ég er ekki rithöfundur, ég er
heldur ekki heimspekingur eða tón-
skáld. Ég verð að skapa áþreifanleg
listaverk – það er mín skylda. Ég
verð sífellt að finna sem skírustu leið-
irnar til að sýna fólki mína sýn á
heiminn og það sem ég er að hugsa
um. Auðvitað hef ég áhuga á því að
skapa fallega og hrífandi hluti, en ég
reyni líka að fara sem beinustu leið
að því, á minn hátt,“ segir hún.
„Verð að skapa
áþreifanleg listaverk“
Á sýningu Alicja Kwade í i8 er tíminn eitt viðfangsefna
Morgunblaðið/Einar Falur
Snúningur Myndlistarkonan Alicja Kwade á hringferð kringum stórgrýtið
á gólfi salarins. „Öll mín verk eru meira og minna um tímann,“ segir hún.
… Heilsurækt fyrir konur
Þarabakki 3 ~ 109 Reykjavík ~ sími 566 6161 ~ curves.is
Inga Hildur Yngvadóttir
- 48 ára snyrti- og fótaaðgerðafræðingur.
Ég er búin að vera í Curves í 7 ár og líkar mjög vel ég mæti
alltaf 3 í viku. Mér finnst gott að ráða hvenær ég kem og
hversu oft . Mér finnst mikill kostur að þurfa ekki að stilla
tækin og að ég sé að taka á öllum helstu vöðvahópum. Mér
líður mjög vel á eftir og ekki er verra að halda kílóunum
í skefjum og vera styrkari og liprari. Frábær stöð sem er
bara fyrir konur og þarna er skemmtilegt starfsfólk og mjög
góður andi.
Oddný Sigríður Nicolaidóttir – 82 ára
Ég byrjaði að æfa í Curves vorið 2009. Æfingarnar henta mér
afar vel. Ég mæti 4x í viku og held þannig líkamanum í góðu
formi þrátt fyrir gigt og fleira sem fylgir mínum aldri. Eftir
skurðaðgerð nýlega fór ég í 6 vikna geislameðferð og meðan
á meðferðinni stóð stundaði ég líkamsræktina 4x í viku.
Félagsskapurinn, stuðningurinn og ekki síst það frábæra
starfsfólk sem Curves hefur upp á að bjóða er ómetanlegt.
Þarna hef ég eignast góðar vinkonur og sleppi helst aldrei úr
tíma. Stærsti kosturinn er að ég get mætt þegar mér hentar.
Æfingin hjá okkur
tekur aðeins 30 mínútur
Hringdu og fáðu frían prufutíma
Bjóðum einnigupp á trimform
Jólatilboð frá
1. nóvember
kr. 18.900
þriggja mánaða ko
rt
HJÁ AÐALSKOÐUN ERT ÞÚ
Í GÓÐUMHÖNDUM
Snjallt að
kíkja á okkur
á adal.is
Við erummeð fjórar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og eina í
Reykjanesbæ. Þaulreyndir og þjónustuliprir fagmenn taka á móti þér á
þeim öllum. Hlökkum til að sjá þig!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3
-0
4
6
7
Aðalskoðun, faggildur skoðunaraðili í 19 ár
Reykjavík
Grjóthálsi 10
Sími 590 6940
Reykjavík
Skeifunni 5
Sími 590 6930
Hafnarfjörður
Hjallahrauni 4
(við Helluhraun)
Sími 590 6900
Kópavogur
Skemmuvegi 6
(bleik gata)
Sími 590 6935
Reykjanesbær
Holtsgötu 52
(við Njarðarbraut)
Sími 590 6970
www.adalskodun.is og www.adal.is
Við getum minnt þig á þegar þú þarft að láta skoða bílinn
á næsta ári. Skráðu þig á póstlistann hjá okkur þegar þú kemur með
bílinn í skoðun og þú gætir unnið 200 lítra eldsneytisúttekt.
Opið kl. 8-17 virka daga – sími 590 6900