Morgunblaðið - 31.10.2013, Page 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2013
Danir og Finnar skiptu á milli sín
verðlaunum Norðurlandaráðs sem
afhent voru á verðlaunahátíð í Osló í
gærkvöldi. Verðlaunin eru veitt í
tengslum við þing Norðurlandaráðs
í borginni.
Skáldsagan Spámennirnir frá Ei-
lífðarfirði eftir Kim Leine hlaut bók-
menntaverðlaunin en Leine er af
dönskum og norskum ættum.
Danska kvikmyndin Veiðin (d. Jagt-
en) eftir leikstjórann Thomas Vin-
terberg hlaut kvikmyndaverðlaunin
en handritið skrifaði hann í sam-
starfi við Tobias Lindholm. Þeir
unnu einnig til verðlaunanna árið
2010 fyrir kvikmyndina Submarino
ásamt framleiðandanum Morten
Kaufmann sem kom einnig að gerð
Veiðinnar.
Þá hlaut Selina Juul frá dönsku
neytendahreyfingunni Hættum að
láta mat fara til spillis (d. Stop spild
af mad) náttúru- og umhverfis-
verðlaun Norðurlandaráðs en sam-
tökin berjast gegn sóun á mat.
Finnski fiðluleikarinn Pekka
Kuusisto hlaut tónlistarverðlaun
ráðsins og bókin Blindsker (f. Kar-
ikko) eftir finnska rithöfundinn
Seita Vuorela, sem Jani Ikonen
myndskreytti, barna- og unglinga-
bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs, en þau voru veitt í fyrsta
skipti í ár.
Af hálfu Íslands voru tilnefnd
kvikmyndin Djúpið eftir Baltasar
Kormák, bækurnar Konan við 1.000°
eftir Hallgrím Helgason og Valeyr-
arvalsinn eftir Guðmund Andra
Thorsson, barnabækurnar
Skrímslaerjur eftir Áslaugu Jóns-
dóttur, Kalle Güettler og Rakel
Helmsdal; Ólíver eftir Birgittu Sif,
kammersveitin Nordic Affect,
hljómsveitin Mezzoforte, fyrirtækið
Carbon Recycling International og
Jarðhitaskóli Sameinuðu þjóðanna.
Verðlaun Norðurlandaráðs
fóru til Dana og Finna
Ljósmynd/Magnus Froderberg, Norden.org.
Sigurvegarar Handhafar verðlauna Norðurlandaráðs á sviðinu í Osló í gær-
kvöldi. Fimm verðlaun voru afhent fyrir listir og umhverfisstörf.
Íslendingar
unnu ekki til
neinna verðlauna
Björn Thorodd-
sen heldur tón-
leika í Hannesar-
holti í kvöld kl.
21. „Bítlalögin
hafa gegnum ár-
in verið á efnis-
skrá Björns, oft í
mögnuðum út-
setningum,“ seg-
ir m.a. í tilkynn-
ingu frá tón-
leikahaldara, en Björn sendi ný-
verið frá sér plötu þar sem hann
leikur Bítlalögin. „Á nýrri plötu
sinni spilar hann lögin einn og
óstuddur þótt stundum hljómi þau
eins og í flutningi hefðbundinnar
Bítlahljómsveitar með tveimur gít-
urum, bassa og trommum.“
Björn
Thoroddsen
Bítlalög á gítar
í túlkun Björns
Thor: The Dark World
Um er að ræða sjálfstætt framhald
á myndinni Thor frá árinu 2011.
Sem fyrr er þrumuguðinn í aðal-
hlutverki, en að þessu sinni þarf
hann að kljást við hinn forna, illa og
valdagráðuga Malekith. Sá hefur
heitið því að eyða veröld guðanna
eins og hún leggur sig þannig að
heimurinn verði aftur hluti af
Svartálfaheimum þar sem myrkrið
ríkir. Til að berjast við þessa ógn
neyðist Þór til að leita til Loka og
biðja hann um aðstoð. Leikstjóri er
Alan Taylor og með aðalhlutverkin
fara Chris Hemsworth, Natalie
Portman, Tom Hiddleston, Chri-
stopher Eccleston, Anthony Hopk-
ins og Idris Elba.
Rotten Tomatoes: 83%, Imdb: 8,1.
Þrumuguðinn snýr aftur
Hörkupar Chris Hemsworth og Na-
talie Portman sem Þór og Jane.
Bíófrumsýning
Still rafmagns og dísellyftarar
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Hús Bernhörðu Alba - Glæsileg sýning – afrek“
BS, pressan.is“
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Fim 31/10 kl. 19:00 aukas Sun 10/11 kl. 13:00 Sun 24/11 kl. 13:00
Fös 1/11 kl. 19:00 aukas Fim 14/11 kl. 19:00 aukas Fim 28/11 kl. 19:00 aukas
Lau 2/11 kl. 13:00 aukas Fös 15/11 kl. 19:00 aukas Fös 29/11 kl. 19:00
Sun 3/11 kl. 13:00 aukas Sun 17/11 kl. 13:00 Lau 30/11 kl. 13:00
Fim 7/11 kl. 19:00 aukas Fim 21/11 kl. 19:00 aukas Sun 1/12 kl. 13:00
Fös 8/11 kl. 19:00 aukas Fös 22/11 kl. 19:00
Lau 9/11 kl. 13:00 Lau 23/11 kl. 13:00
Súperkallifragilistikexpíallídósum! Leiksýning á nýjum skala.
Jeppi á Fjalli (Nýja sviðið)
Fös 1/11 kl. 20:00 18.k Þri 19/11 kl. 20:00 aukas Fim 12/12 kl. 20:00 37.k
Lau 2/11 kl. 20:00 19.k Mið 20/11 kl. 20:00 28.k Fös 13/12 kl. 20:00 38.k
Sun 3/11 kl. 20:00 20.k Fim 21/11 kl. 20:00 29.k Lau 14/12 kl. 20:00 39.k
Mið 6/11 kl. 20:00 aukas Fös 22/11 kl. 20:00 30.k Sun 15/12 kl. 20:00 40.k
Fim 7/11 kl. 20:00 23.k Mið 27/11 kl. 20:00 aukas Þri 17/12 kl. 20:00
Fös 8/11 kl. 20:00 21.k Fim 28/11 kl. 20:00 31.k Mið 18/12 kl. 20:00
Lau 9/11 kl. 20:00 22.k Fös 29/11 kl. 20:00 32.k Fim 19/12 kl. 20:00
Sun 10/11 kl. 20:00 24.k Sun 1/12 kl. 20:00 33.k Fös 20/12 kl. 20:00
Mið 13/11 kl. 20:00 25.k Fim 5/12 kl. 20:00 34.k Fim 26/12 kl. 20:00
Fim 14/11 kl. 20:00 26.k Fös 6/12 kl. 20:00 35.k Fös 27/12 kl. 20:00
Fös 15/11 kl. 20:00 27.k Sun 8/12 kl. 20:00 36.k Lau 28/12 kl. 20:00
Epískur tónsjónleikur. ATH! Ekki unnt að hleypa inní sal eftir að sýning hefst
Mýs og menn (Stóra sviðið)
Lau 2/11 kl. 20:00 4.k Lau 16/11 kl. 20:00 7.k Sun 24/11 kl. 20:00 10.k
Lau 9/11 kl. 20:00 5.k Sun 17/11 kl. 20:00 8.k Lau 30/11 kl. 20:00
Sun 10/11 kl. 20:00 6.k Lau 23/11 kl. 20:00 9.k
Meistaraverkið eftir John Steinbeck aftur á svið í takmarkaðan tíma
Hús Bernhörðu Alba (Gamla bíó)
Sun 3/11 kl. 20:00 6.k Lau 16/11 kl. 20:00 9.k Sun 24/11 kl. 20:00
Lau 9/11 kl. 20:00 7.k Sun 17/11 kl. 20:00 10.k Lau 30/11 kl. 20:00
Sun 10/11 kl. 20:00 8.k Lau 23/11 kl. 20:00
Sígilt verk Lorca í kraftmikilli nálgun okkar fremstu listakvenna
Saumur (Litla sviðið)
Sun 10/11 kl. 20:00 3.k Fim 21/11 kl. 20:00 4.k Fös 22/11 kl. 20:00 5.k
Nærgöngult og nístandi verk eftir eitt magnaðasta samtímaleikskáld Bretlands
Haustsýning ÍD: Tímar Sentimental, again (Stóra sviðið)
Sun 3/11 kl. 20:00 5.k
Tímar eftir Helenu Jónsdóttur; Sentimental, again eftir Jo Strömgren
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is
Pollock? (Kassinn)
Fim 31/10 kl. 19:30 2.sýn Mið 20/11 kl. 19:30 Aukas. Fim 5/12 kl. 19:30 Aukas.
Sun 3/11 kl. 19:30 3.sýn Fim 21/11 kl. 19:30 9.sýn Fös 6/12 kl. 19:30 13.sýn
Fim 7/11 kl. 19:30 Aukas. Fös 22/11 kl. 19:30 10.sýn Lau 7/12 kl. 19:30 20.sýn
Lau 9/11 kl. 19:30 4.sýn Lau 23/11 kl. 19:30 Aukas. Sun 8/12 kl. 19:30 21.sýn
Sun 10/11 kl. 19:30 5.sýn Fim 28/11 kl. 19:30 Aukas. Fim 12/12 kl. 19:30 22.sýn
Fim 14/11 kl. 19:30 Aukas. Fös 29/11 kl. 19:30 Aukas. Fös 13/12 kl. 19:30 23.sýn
Lau 16/11 kl. 19:30 6.sýn Lau 30/11 kl. 19:30 11.sýn Lau 14/12 kl. 19:30 24.sýn
Sun 17/11 kl. 19:30 7.sýn Sun 1/12 kl. 19:30 12.sýn Sun 15/12 kl. 19:30 25.sýn
Vel skrifað verk og frábærir karakterar. Aukasýnigar komnar í sölu!
Englar alheimsins (Stóra sviðið)
Fim 31/10 kl. 19:30 44.sýn Lau 16/11 kl. 19:30 48.sýn Fös 6/12 kl. 19:30 56. sýn
Fim 7/11 kl. 19:30 45.sýn Fim 21/11 kl. 19:30 52.sýn Lau 28/12 kl. 19:30 58.sýn
Lau 9/11 kl. 19:30 46.sýn Fös 22/11 kl. 19:30 53.sýn
Fim 14/11 kl. 19:30 47.sýn Fös 29/11 kl. 19:30 55.sýn
Leikrit ársins 2013 - fullkomið leikhús. Ekki missa af viðburði á leiksviðinu.
ÓVITAR (Stóra sviðið)
Sun 3/11 kl. 13:00 7.sýn Sun 24/11 kl. 13:00 13. sýn Sun 8/12 kl. 14:00 17.sýn
Sun 3/11 kl. 16:00 8.sýn Sun 24/11 kl. 16:00 14. sýn Sun 8/12 kl. 17:00 18. sýn
Sun 10/11 kl. 13:00 9.sýn Lau 30/11 kl. 17:00 Aukas. Lau 28/12 kl. 13:00 21. sýn
Sun 10/11 kl. 16:00 táknm. Sun 1/12 kl. 14:00 15.sýn Sun 29/12 kl. 13:00 22. sýn
Sun 17/11 kl. 13:00 11.sýn Sun 1/12 kl. 17:00 16. sýn Mán 30/12 kl. 13:00 23. sýn
Sun 17/11 kl. 16:00 12.sýn Lau 7/12 kl. 17:00 Aukas.
Kraftmikil og litskrúðug sýning, þar sem börn á öllum aldri fara á kostum!
Maður að mínu skapi (Stóra sviðið)
Lau 2/11 kl. 19:30 14.sýn Fös 8/11 kl. 19:30 16.sýn
Síðustu sýningar! Samtímaspegill og snilldarleikur sem þú mátt ekki missa af.
Harmsaga (Kassinn)
Fös 1/11 kl. 19:30 Fös 8/11 kl. 19:30
Samskipti og samskiptaleysi, rerk sem hittir í hjartastað.Örfáar sýningar eftir.
Karíus og Baktus (Kúlan)
Lau 2/11 kl. 13:30 103.sýn Lau 2/11 kl. 15:00 104.sýn
Síðustu sýningar fyrir jól - sýningar hefjast aftur í jánúar.
Aladdín (Brúðuloftið)
Lau 2/11 kl. 13:30 Lau 9/11 kl. 13:30 Lau 16/11 kl. 13:30
Lau 2/11 kl. 16:30 Lau 9/11 kl. 16:30 Lau 16/11 kl. 16:30
1001 galdur - brúðuleiksýning fyrir 4ra til 94 ára
Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið)
Lau 30/11 kl. 11:00 200.sýn Sun 1/12 kl. 12:30 Sun 8/12 kl. 11:00
Lau 30/11 kl. 13:00 Lau 7/12 kl. 11:00 Sun 8/12 kl. 12:30
Lau 30/11 kl. 14:30 Lau 7/12 kl. 13:00
Sun 1/12 kl. 11:00 Lau 7/12 kl. 14:30
Sívinsælt aðventuævintýri Þjóðleikhússins. Miðasala er hafin.
ÓVITAR – „Kraftmikil og litskrúðug sýning.“ JVJ Fréttablaðið