Morgunblaðið - 31.10.2013, Qupperneq 44
FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 304. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Skrifaði kveðjubréf fastur í …
2. Misþyrmdu ættleiddri dóttur
3. Jón Gnarr hættir í vor
4. Búið að bjarga áhöfninni
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Kvikmyndum fransk-íslenska leik-
stjórans Sólveigar Anspach verða
gerð skil í sérstakri dagskrá á frönsk-
um kvikmyndadögum sem hófust í
Stuttgart í Þýskalandi í gær. Þá verð-
ur einnig farið yfir feril Sólveigar með
sérstakri dagskrá í nokkrum borgum
og bæjum í Frakklandi seinna á árinu,
m.a. í Mâcon, Beauvais og Caen og
m.a. varpað ljósi á þær kvikmyndir og
heimildarmyndir Sólveigar sem
tengjast Íslandi.
Farið yfir feril Sól-
veigar Anspach
Sönghópurinn Hymnodia býður
upp á fjölbragðadagskrá á átta tón-
leikum í Eyjafirði, Þingeyjarsýslu og
Vopnafirði næstu tvær vikur. Hym-
nodia mun syngja og leika á alls kyns
skrýtin og skemmtileg hljóðfæri,
hafa uppi glens og grín, leikræn til-
þrif og jafnvel dans ef vel liggur á,
eins og segir í tilkynningu. „Jóðlandi
sálfræðingurinn, drynjandi geðlækn-
irinn, fljúgandi Hollendingurinn,
sænski grunnskólakennarinn, lag-
vissi lögfræðingurinn, tölvuóði
trompetleikarinn og margir fleiri
koma fram,“ segir í tilkynningunni.
Söngmenn muni m.a. leika á rúm-
enskan dúlsímer, þrjár ólíkar afrískar
trommur, pikkolóflautu, tyrkneskt
þurrkað ávaxtahýði, ryðgaða báru-
járnsplötu, stóra sænska sálmabók,
brjóstkassa á tenórum og græna
verkfæratösku. Fyrstu tónleikar fara
fram í kvöld kl. 20 í
Tjarnarborg,
Ólafsfirði. Eyþór
Ingi Jónsson,
stjórnandi Hymno-
diu, sést hér
leika á salt-
ara.
Hymnodia heldur
„fjölbragðatónleika“
Á föstudag Norðan og norðaustan 10-18 m/s, hvassast N-til.
Þurrt á S- og SV-landi, annars slydda eða snjókoma.
Á laugardag Norðaustanátt, víða 10-15 m/s. Léttskýjað SV-lands,
annars slydda eða snjókoma en rigning austast. Hiti breytist lítið.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Allhvöss eða hvöss norðaustanátt á Vest-
fjörðum með slyddu eða rigningu. Hiti 0 til 6 stig.
VEÐUR
„Að minnsta kosti erum við
ennþá óstöðvandi en mótið
er rétt að byrja. Þetta er
langt og strangt tímabil og
til þess að vinna eitthvað
verðum við að halda út,“
sagði Bryndís Guðmunds-
dóttir, fyrirliði Keflavíkur í
körfuknattleik kvenna, en
liðið er efst og ósigrað eftir
sex umferðir í Dominos-
deildinni. Í gær vann Kefla-
vík lið KR en heil umferð fór
fram. »2
Keflavíkurliðið er
óstöðvandi
Spánverjinn Pep Guardiola, þjálfari
Evrópumeistara Bayern München,
segir knattspyrnu ekki einvörðungu
snúast um leikinn. Íþróttin sé eins og
lífið sjálft; samfélag, þar sem ástríða,
virðing og samkennd skipti
miklu máli. Blaðamaður
Morgun-
blaðsins
hitti Guar-
diola að máli
í München. Hann segir
heillandi verkefni að
gera besta lið Evrópu
ennþá betra. »2
Heillandi verkefni að
gera besta liðið betra
„Um 200 miðar fóru á fyrstu 40 mín-
útum sölunnar, sem mér finnst benda
til þess að ekki hafi verið lekið nein-
um upplýsingum um miðasölutím-
ann,“ segir Þórir Hákonarson, fram-
kvæmdastjóri KSÍ, en á honum
standa öll spjót eftir fjarðrafokið
vegna sölu aðgöngumiða á landsleik
Íslands og Króatíu. Skýrsla vegna
málsins verði lögð fyrir stjórn KSÍ. »1
Þórir segir ekkert benda
til leka á upplýsingum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Síðasti vinnudagur Guðmundar Har-
aldssonar í Héraðsdómi Reykjavíkur
er í dag og nú fer hann á eftirlaun. „Ég
hef verið dómvörður í 21 ár en nú
missir héraðsdómur eina milliríkja-
dómarann,“ segir hann.
Allt í einu rankar Guðmundur við
sér. „Drottinn minn dýri, 21 ár,“ segir
hann og bætir svo við: „Ég hefði svo
sem getað verið eitt ár í viðbót, en nú
er brýnast að lækka forgjöfina í golf-
inu. Hún er 21 eins og árin hérna.
Þetta er skelfilegt og segir meira en
mörg orð.“
Hvernig þekkirðu hann?
Mikil depurð og leiðinleg mál fylgja
starfsemi dómstóla en Guðmundur,
sem er mikill reglumaður, segir að
tíminn þar hafi verið geysilega
skemmtilegur. „Starfsfólkið er svo
gott og hefur gert staðinn að áhuga-
verðum vinnustað, þótt hér fari fram
óskaplega leiðinlegir gjörningar,“ seg-
ir hann. „Þegar ég byrjaði ákvað ég að
skilja vinnuna eftir að vinnudegi lokn-
um og það hefur mér tekist.“ Hann
segist samt hafa kynnst mörgum sem
hafi farið út af beinu brautinni og
stundum hafi komið upp vandræðaleg
augnablik. „Þegar ég var nýbyrjaður
var útigangsmaður heilan dag í aðal-
meðferð. Skömmu síðar var ég á gangi
með konunni í miðbænum og þá mætt-
um við manninum. Hann var illa á sig
kominn, blessaður karlinn, skítugur og
ekki frýnilegur. „Blessaður Guð-
mundur og þakka þér fyrir síðast,“
kallaði hann. Konan leit á mig, byrsti
sig og sagði: Guðmundur! Hvernig í
ósköpunum þekkirðu þennan mann?“
Þetta eru samt yfirleitt sómadrengir
sem koma hingað en flestir því miður
með dapra sögu.“
Guðmundur segir að lögmenn og
dómstjórar gantist mikið með það að
dómvörðurinn sé merkilegri en þeir
sem milliríkjadómari. „Þeir gera enda
mikið úr dómverðinum þegar þeir
kynna skjólstæðinga sína fyrir mér
og árétta að ég sé eini milliríkjadóm-
arinn á svæðinu.“
Dómararnir fara ekki í spor Guð-
mundar sem milliríkjadómara en
hann hefur verið dómari í einu dóms-
máli. „Leikmaður fótbrotnaði í innan-
hússfótbolta í Kópavogi, málið fór
fyrir Héraðsdóm Reykjaness og ég
var kallaður til sem sérfróður með-
dómandi,“ rifjar hann upp. „Þegar
búið var að yfirheyra ákærða sagði
dómarinn: „Þá skulum við bara fá inn
fyrsta vitnið.“ Mér rann blóðið til
skyldunnar, ætlaði að fara að ná í
fyrsta vitnið og var að standa á fætur
þegar ég áttaði mig á því að ég var
dómandi en ekki dómvörður. Vitnið
sem slíkt var mér því óviðkomandi.
Aðalmeðferðin tók heilan dag og síð-
an tók tíma að semja dóminn. Þetta
var gaman og ekki skemmdi fyrir að
ég fékk mjög góð laun – þau slöguðu
hátt upp í mánaðarlaun mín sem
dómvörður.“
Enginn milliríkjadómari eftir
Guðmundur
hættir í Héraðs-
dómi Reykjavíkur
Morgunblaðið/Kristinn
Héraðsdómur Reykjavíkur Guðmundur Haraldsson dómvörður á eftir að sakna vinnufélaganna.
Guðmundur Haraldsson er prent-
ari að mennt og starfaði lengi sem
slíkur með meðeigendum sínum í
Víkingsprenti. Þegar þeir seldu
prentsmiðjuna gerðist hann sölu-
maður hjá Sambandinu og fljót-
lega eftir að það fór í þrot fór hann
í Héraðsdóm Reykjavíkur. Einna
þekktastur er hann fyrir dómara-
störf í fótbolta. Hann var virtur
knattspyrnudómari í þrjá áratugi,
dæmdi í efstu deild karla í 23 ár og
var UEFA- og FIFA-milliríkjadómari
í 22 ár.
„Nú hætta menn eftir 10 til 15 ár
af því að þeir hafa verið svo lengi í
þessu,“ segir hann. Athygli vakti
að áður en Guðmundur flautaði af
í síðasta sinn stöðvaði hann leik
FH og ÍA og sýndi Skagamanninum
Karli Þórðarsyni, einum prúðasta
manni sem vitað er um innan sem
utan vallar, gula spjaldið og svo
það rauða. Karl vissi ekki hvaðan á
sig stóð veðrið og allt varð hrein-
lega vitlaust í herbúðum Skaga-
manna. „Hann missti alveg andlit-
ið enda ekkert gert til þess að fá
spjald en þegar ég gaf honum árit-
uð spjöldin með þökkum til hans
og flautaði leikinn af áttaði hann
sig á gríninu.“
Sýndi þeim prúðasta rautt
KUNNUR OG VIRTUR KNATTSPYRNUDÓMARI