Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.11.2013, Side 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.11.2013, Side 34
*Græjur og tækniNBA deildin hefur innleitt nýtt kerfi sem kann að bylta hvernig við fylgjumst með íþróttum »36 N eytendastofa Bandaríkjanna birti sölutölur um tæki og tól á haustmánuðum. Þar kemur svo sem ekki margt á óvart. IPhone og aðrir snjallsímar sem og spjald- tölvur tróna efst á listanum og selst nýtæknin sem aldrei fyrr. En eftir að hafa rýnt í listann kemur í ljós að Bandaríkjamenn nota enn fjölmörg raftæki sem finnast ekki lengur á flestum heimilum. NBC-fréttastofan rýndi í listann og fann nokkuð áhugaverðar sölutölur. Enn er keypt mikið af segulbandsspólum, faxtæki seljast sem aldrei fyrr og vínyl- platan er auðvitað komin aftur í tísku eins og menn vita. Plötuspilarar eru aftur orðnir kúl og það þykir miklu meira töff að skipta um plötu en að fletta í símum eða tónlistarspilurum sem eru fastir í dokkum. Það er saga í hverjum tóni í plöt- unum en í stafræna forminu er búið að taka allt snark og allar rispur burt. Símaklefi og vínyl Fyrir suma er enn hluti af lífinu að vera ekki með GSM-síma heldur stoppa við símaklefa og hringja úr þeim. Bíða eftir són, setja smámynt í raufina og heyra í fjölskyldu eða vinum hinum megin línunnar. Símaklefinn er eins og vín- yllinn. Það heyrist kannski ekki hvert einasta orð en sambandið er samt betra. Í tölum neyt- endastofu Bandaríkjanna segir að aðeins 13-15% af neytendum séu nýjungagjarnir en 60% bíða frekar og sjá hvort tæknin sé komin til að vera. 14 símaklefar og 39 tíkallasímar standa hér á landi en eru lítið notaðir. Þegar árið 2013 er liðið verður búið að fjarlægja alla klefana. 2004 voru þeir 485, hvorki fleiri né færri. Nú rífa Íslendingurinn og túristinn bara upp snjallsímann og ganga framhjá klefanum. 4% Bandaríkjamanna nota enn 56,6 kb/s módem til að komast leiðar sinnar á rnetinu. Bandaríkjamenn keyptu sjö milljónir símboða árið 2012. 20 þúsund glænýir matrix prentarar seldust árið 2012, en þeir voru valdir bestu prentararnir árið 1983. 13 milljón glænýjar og galtómar VHS kas- ettur seldust í fyrra í Bandaríkjunum. 35 milljón filmna voru seldar á árinu 2012. Faxsala hrundi á árinu 2012 en þó seldust 700 þúsund faxtæki. Salan fór niður um 14%. Vínylplatan er orðin vinsæl á ný og nú koma flestar plötur einnig út á vínyl. Bandaríkjamenn keyptu 4,6 milljónir platna á síðasta ári og fór salan upp um 17,7%. Símaklefinn er enn klassísk leið til að hringja. Bandaríkin eru með 305 þúsund almenn- ingssíma sem virka. Síminn vinnur nú að því að taka niður þá 14 símaklefa og 39 tíkalla- síma sem enn standa uppi hér á landi. Morgunblaðið/Ómar GÖMUL OG GÓÐ TÆKI TÆKNIN HEFUR ÞRÓAST GÍFURLEGA Á UNDANFÖRNUM ÁRUM OG HRAÐINN Í ÞEIRRI ÞRÓUN ER EINSTAKUR. ÞÓ ERU SUMIR SEM KJÓSA AÐ SENDA FAX, HORFA Á TÚBUNA OG HLUSTA Á VÍNYL ÞVÍ NÝTT ER EKKI ALLTAF BETRA. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is 26,5 milljónir landlínusíma seld- ust í fyrra. 5 milljónir voru með snúru, 21,5 m þráðlausir. Gamalt selst enn í bílförmum

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.