Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.11.2013, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.11.2013, Blaðsíða 55
10.11. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 55 Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar efnir í þrettánda sinn til árlegrar ljóðasamkeppni undir heitinu Ljóðstafur Jóns úr Vör. Veitt verða vegleg verðlaun og fær verðlaunaskáldið auk þess til varðveislu, í eitt ár, göngustaf áletraðan með nafni sínu. Dómnefnd velur úr þeim ljóðum sem berast. Öllum skáldum er velkomið að senda ljóð í keppnina en skilafrestur rennur út 21. desember. Ljóðum skal skilað með dulnefni. Nafn, heimilisfang og símanúmer skálds- ins skal fylgja með í lokuðu umslagi, sem auðkennt er með sama dulnefni. Ljóðin mega ekki hafa birst áður. Utanáskrift er: Ljóðstafur Jóns úr Vör, lista- og menningarráð Kópavogs, Fannborg 2, 200 Kópavogur Greint verður frá niðurstöðum samkeppninnar og verð- laun veitt á afmælisdegi Jóns úr Vör 21. janúar 2014. Jón úr Vör bjó nánast allan sinn starfsaldur í Kópavogi en tilgangur keppninnar er að efla og vekja áhuga á íslenskri ljóðlist. kopavogur.is LJÓÐSTAFUR Jóns úr Vör PI PA R\ TB W A -S ÍA -1 23 15 4 Á kveðið hefur verið að auka fjárframlög til menningarmála í löndum Evrópusam- bandsins. Á sama tíma og fjárhagsáætlun þess ein- kennist í fyrsta skipti af sam- drætti, hefur því verið ákveðið að láta aukið fé renna til menningar- lífsins og hinna skapandi greina, enda sýna rannsóknir fram á að það eru þau svið efnahagslífsins sem skila hvað mestum vexti og fleiri gæðastörfum en önnur á þessum krepputímum. Ný menningarstefna sambands- ins, sem Íslendingar tengjast ásamt hinum EFTA-löndunum með gagnkvæmum samningum, kallast „Creative Europe“ og á næstu sjö árum verður framlag til málaflokksins hækkað um níu pró- sent. Verður 1,46 milljörðum evra varið til hans á tímabilinu frá 2014 til 2020. Fyrirhugað er að „Creative Eu- rope“ muni á næstu sjö árum styðja 250.000 listamenn og sér- fræðinga í menningarmálum og hjálpa til við að koma verkum þeirra á framfæri utan heimaland- anna; auðvelda dreifingu yfir 800 evrópskra kvikmynda út um Evr- ópu og til annarra heimsálfa; styðja við rekstur yfir 2.000 kvik- myndahúsa þar sem að minnsta kosti helmingur sýndra kvikmynda er evrópskur; yfir 4.500 bækur munu njóta góðs af þýðingastyrkj- um; og þúsundir menningarstofn- ana og listamanna í ýmsum geirum verður gert kleift að koma sér og verkum á framfæri í öðrum lönd- um. Um 4,5 prósent samanlagðrar þjóðarframleiðslu Evrópulanda kemur frá menningargeiranum og hinum skapandi greinum; yfir 8,5 milljónir starfa eru þar að baki. Þrátt fyrir að tæplega einn og hálfur milljarða evra er nú eyrna- merktur mennningarmálum á næstu sjö árum með þessum hætti, er rétt að taka fram, að aðrir liðir sem einnig flokkast undir menn- ingu fá umtalsvert meira fjármagn. Til að mynda falla um sex millj- arðar evra undir „menningarlega arfleifð“, en þar má finna þjóð- minjasöfn og hvers kyns fornleifar. Íslendingar með Ísland mun á grundvelli EES- samningsins taka þátt í nær öllum áætlunum Evrópusambandins, sem hefjast á næsta ári, þar með talið „Creative Europe“. Áætlað er að Evrópuþingið samþykki „Creative Europe“-áætlunina 19. nóvember næstkomandi og í kjölfarið þarf að fella ákvörðun um þátttöku EFTA/ EES ríkjanna í áætluninni í EES samninginn. Það ferli tekur að jafnaði fimm til sex mánuði og því er hugsanlegt að samstarfi milli listamanna og menningarstofnana í annars vegar EES/EFTA- ríkjunum og hins vegar Evrópu- sambandinu geti ekki verið komið á við fyrstu úthlutun, sem áætlað er að verði sumarið 2014. Unnið er að því af hálfu EFTA og fram- kvæmdastjórnar ESB að flýta fyr- ir málum til að þátttaka aðila frá EFTA/EES ríkjunum verði tryggð frá byrjun. Vöxturinn er í menningu Í vikunni kynnti Androulla Vassi- liou, kýpverskur menningar- og menntunarstjóri Evrópusambands- ins, meginhugmyndir og áherslur að baki „Creative Europe“ fyrir menningarblaðamönnum frá öllum Evrópulöndunum. Hún sagði afar mikilvægt að styðja við menn- inguna í öllum löndum Evrópu og ekki síst á þessum erfiðleikatím- um. „Hinar skapandi greinar eru gríðarlega mikilvægar fyrir menn- ingarlegan fjölbreytileika Evrópu. Sá fjölbreytileiki er mikilvægasta auðlind álfunnar og það er skylda okkar bæði að vernda hann og kynna,“ sagði Vassiliou. Hún bætti við að nú væri þó enn ríkari ástæða til að standa vel að baki hinum skapandi greinum, því þar væri einhver mesti vöxturinn í at- vinnusköpun álfunnar í dag. „Mörgum hættir til að líta fram hjá því að menningin og hinar skapandi greinar og framleiðsla þeim tengd er nú meðal öflugustu atvinnugreina Evrópu. Við skap- andi greinar verður til sívaxandi fjöldi gæðastarfa fyrir fólk í öllum þessum löndum,“ sagði hún. Skýra listina fyrir bönkum „Nú höfum við í höndum kannanir sem leiða í ljós að þessi svið efna- hagslífsins eru kraftmeiri og skapa meiri vöxt en til að mynda bílaiðn- aðurinn, plastframleiðsla og efna- iðnaðurinn. Sumir neita að trúa þessu og á ráðstefnu, sem ég tal- aði nýlega á og sagði að hinar skapandi greinar ættu að fá enn meira vægi, þá voru mér send skilaboð með spurningunni hvort ég hefði ekki eitthvað nytsamlegra við tímann að gera en halda öðru eins fram.“ Hún brosir. „En töl- urnar ljúga ekki. Þær sýna að hin- ar skapandi greinar eru í dag leið- andi í efnahagsvexti og fjölgun starfa. Það er engin ímyndun held- ur niðurstaða vandaðra kannana. En það má ekki bara halda menningunni fram sem mikilvægu efnahagsafli, því má ekki gleyma að hún er ómetanlegur þáttur í sjálfsmynd þjóðanna.“ Vassiliou segir að þótt máttur menningar sé mikill og sívaxandi í álfunni, þá séu engu að síður víða hindranir á veginum þegar kemur að því að miðla sköpuninni milli landa og til stærri áhorfendahópa. Markmiðið er að nota „Creative Europe“-áætlunina til að fjarlægja þessar hindranir. Það felst meðal annars í því að hjálpa hinum skap- andi greinum að „sigrast á“ höml- um sem hinir einstöku markaðir og tungumál skapa. Þá er stefnt að því að nýta sem best möguleika net- og hnattvæðingar og auðvelda aðgengi að nauðsynlegu fjármagni til framkvæmda í þessum geira. „Í því skyni mun umsækjendum í fyrsta skipti gert kleift að fá bankaumsögn. Eitt af vandamálum listamanna og þeirra sem standa að allrahanda menningarfram- kvæmdum, er að bankar eru hik- andi við að lána þeim fé því bankamenn skilja ekki hvert gildi þeirra er og hvernig meta má óefniskennd verðmæti verkanna og framkvæmdanna. Því bjóðum við bönkum nú sérfræðiþekkingu okk- ar við að skilja betur þau verð- mæti sem hinar skapandi greinar búa til. Í kjölfarið eiga möguleikar á lánveitingum að aukast.“ Sótt í menningarviðburði Vassiliou segir að hún hafi vonast eftir enn meira fé til málaflokks- ins, byggt á mikilvægi hans í sam- tímanum; hún fór fram á 37 pró- sent aukningu en fékk níu. Hún segist þó ánægð með það, eins og staða mála er. Athyglisvert var að heyra á fundinum mál blaðamanna og sér- fræðinga í menningargeiranum, víða að úr Evrópu, því sagan er sú sama og hér á landi: fjöldi gesta á leiksýningar hefur aukist, sama má segja um myndlistarsýningar, bókasöfn, listasöfn, og framleiðsla kvikmynda, oft og tíðum mjög metnaðarfullra og persónulegra, hefur færst í vöxt. Kannanirnar sem menningarstjórinn kynnti staðfesta það. Menningin er í sókn. Auknu fé varið til menningar Á NÆSTU ÁRUM Á AÐ AÐSTOÐA 250.000 EVRÓPSKA LISTAMENN VIÐ AÐ KOMA VERKUM Á FRAMFÆRI, AUÐ- VELDA DREIFINGU 800 KVIKMYNDA, STYÐJA VIÐ 2.000 KVIK- MYNDAHÚS OG STYRKJA ÞÝÐINGU 4.500 BÓKA. „SKAP- ANDI GREINAR ERU NÚ MEÐAL ÖFLUGUSTU ATVINNUGREINA EVRÓPU,“ SEGIR MENNINGARSTJÓRI ESB. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Tölurnar ljúga ekki. Þær sýna að skapandi greinar eru í dag leiðandi í efnahagsvexti og fjölgun starfa,“ sagði Vassiliou. Morgunblaðið/Einar Falur NÝ MENNINGARSTEFNA EVRÓPUSAMBANDSINS, CREATIVE EUROPE, GERIR RÁÐ FYRIR NÍU PRÓSENTA AUKNINGU FRAMLAGA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.