Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.11.2013, Page 59
10.11. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59
LÁRÉTT
1. Lýsing á hári Medúsu og sumra kvenna. (12)
7. Kennitala Berba án reiðvers. (7)
8. Láta löður ekki ná með því að verða reiður. (10)
10. Borg í Texas er enn við bátaskýlin. (7)
12. Gráða snýst um snakk og hávaða í óhappi. (8)
14. Fenjasóði sér fugl. (9)
15. Farsótt máleininga sést hjá þeim sem talar ekki mikið. (6)
16. Skíta úr mót með því að forsníða. (7)
18. Tafðist Rós einhvern veginn þegar hún ólst upp annars stað-
ar. (10)
20. Eltingaleikur missir unga í pott. (9)
22. Land átrúandans. (6)
24. Klíkan sem ól einhvern veginn af sér þunglynda. (11)
27. Peninga íþróttafélags má sjá í blómi. (5)
28. Jafnvel skaði þegar unni. (7)
31. Kjaftæði stórveldis um vél. (7)
33. Það er ekki styrkur sjá tákn spila við tré. (14)
35. Eðlilegt er númer 0 rugli íslenskan gosdrykk. (7)
36. Kvartil tekið einhvern veginn úr kastalanum. (12)
LÓÐRÉTT
2. Hús fyrir sánur á Snæfellsnesi. (10)
3. Eitt orð tekið út og annað sett í staðinn í rifrildi. (10)
4. Skrúfa og kúlulegur hjá afslöppuðum. (7)
5. Fyrsta flokks tuskurnar eru sagðar vera partarnir af óp-
erunni. (8)
6. Stuna út af erlendum gögnum og fleiru og tímaáætlun. (11)
7. Þráð spinnur í því sem er hluti líkama okkar. (9)
9. Mikil tíska fyrir ofnum veldur truflun. (5)
11. Fjallahestur reynist vera fiskur. (11)
12. Brot flugvélar og örin eftir ferðina. (10)
13. Sérstök telpa nær að lesa út úr hátterni málms. (10)
17. Karlar fá tak eftir erfidrykkjuna eftir skipulagið á fræðslunni.
(12)
19. Illur draugur er kreatífur. (8)
21. Drengur snýr rósaílepp við. (5)
23. Mótsetning hverfanda í rugli. (9)
24. Menntastofnun fyrir eyðsluseggi í Reykjavík. (9)
25. Djarfur vatt gufuna. (8)
26. Réðst ekki við að giftast. (6)
29. Karlkyn fær karlmann með hóst. (5)
30. Sjá lítinn mink með förðun. (5)
32. Hálsmen í líki bókstafs gert úr kryddi. (5)
34. Eyja sem er alltaf í skuld. (4)
Eitt það fyrsta sem Magnús Carl-sen og fylgdarlið hans gerði eft-ir að hafa skráð sig inn á Hyatt
Regency-lúxushótelið í Chennai í Ind-
landi þar sem einvígið um heimsmeist-
aratitilinn hefst um helgina, var að
leita að hlerunar- og njósnabúnaði í hí-
býlum sínum. Prúðmennið Anand er
manna ólíklegastur til að hafa rangt
við en Magnús hefur lært lexíu sem
skáksagan hefur kennt honum og vill
bægja frá sér öllum grunsemdum.
„Ofsóknarbrjálæði“ hefur alltaf ver-
ið fylgifiskur heimsmeistaraeinvígja.
Sundurhlutun ljósahjálms og stóla í
„einvígi aldarinnar“ í Laugardalshöll
1972 er frægt dæmi; í þriðja einvígi
Kasparovs og Karpovs í Leningrad
haustið 1986 knúðu dyra hjá aðstoð-
armanninum Vladimirov „górillur“
tvær og Kasparov sjálfur og veiddu
upp úr farangri hans „grunsamlegar
glósur“. Vladimirov var rekinn úr liði
Kasparovs – alsaklaus að flestra mati.
„Toilet-gate“, speglunargleraugu,
dulsálfræðingurinn Zoukhar, kaffi-
brúsar, tvö umslög fyrir einn biðleik,
jógúrt. Þetta eru hugtök og nöfn sem
tengjast öll tortryggni heimsmeist-
araeinvígja.
Magnús Carlsen sem er 22 ára er
mættur á heimavöll Anands með
tölvuver í farangrinum, norskan kokk,
foreldrana Henrik og Sigrúnu og
systurnar Ellen og Ingrid, umboðs-
manninn Espen Agdestein og aðstoð-
armennina Jon Ludwig Hammer og
Laurent Fressinet. Ýmsir fleiri verða
„á kantinum“, Kasparov hefur boðað
komu sína og Anand hefur ekki vand-
að honum kveðjurnar en það mun
eiga rætur að rekja til ummæla sem
Garrí lét falla um taflmennsku hans
meðan á HM-einvíginu við Gelfand
stóð.
Það er skoðun undirritaðs að nokk-
ur mikilvæg atriði gefi heimsmeist-
aranum Anand von þó hann sé 95 stig-
um lægri á stigalista FIDE. Í fyrsta
lagi er það heimavöllurinn sem fyrir
Magnús Carlsen og þá sem koma til
Indlands í fyrsta sinn er framandi
menningarsvæði sem tekur tíma að
aðlagast. Í öðru lagi reynsla Anands
og frábær árangur í heimsmeist-
araeinvígjum og snilldar undirbún-
ingur. Hafa ber í huga að Magnús er
að heyja sitt fyrsta alvöru einvígi á
ferlinum. Anand hefur hinsvegar háð
HM-einvígi við Kasparov, Shirov,
Kramnik, Topalov og Gelfand.
Engu að síður spá flestir því að
Magnúsi sigri og hann verði þannig
fyrsti Norðurlandabúinn til að verða
heimsmeistari. Í breskum veðbönkum
eru sigurhorfur hans taldar 3:1. Til
samanburðar má geta þess að sig-
urhorfur Kasparovs gegn Short árið
1993 voru 4:1.
Norska pressan stendur á öndinni
og flykkist til Indlands. Magnús og
Anand munu tefla 12 kappskákir með
venjulegum umhugsunartíma og hefj-
ast þær kl. 9.30 að íslenskum tíma.
Skákirnar eru á dagskrá 9. nóv-
ember, 10. nóvember, 12. nóvember,
13. nóvember, 15. nóvember, 16. nóv-
ember, 18. nóvember, 19. nóvember,
21. nóvember, 22. nóvember, 24. nóv-
ember og 26. nóvember.
Verði jafnt eftir 12 skákir tefla þeir
fjórar at-skákir. Verði enn jafnt taka
við tvær hraðskákir, síðan Armaged-
don-skák. Verðlaunaféð deilist í hlut-
föllunum 60% – 40%, en 55% – 45%
verði jafnt eftir 12 skákir hafa verið
tefldar.
Heimasíða einvígisins er:
http://chennai2013.fide.com.
Hægt verður að fylgjast með ein-
víginu á fjölmörgum vefsíðum.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
SKÁK
Magnúsi Carlsen spáð sigri í HM-einvíginu við Anand
Viswanathan Anand og Magnus Carlsen við taflborðið í Bilbao 2010.
AFP
Verðlaun eru veitt fyrir
rétta lausn krossgátunnar.
Senda skal þátttökuseð-
ilinn með nafni og heim-
ilisfangi ásamt úrlausninni
í umslagi merktu: Kross-
gáta Morgunblaðsins, Há-
degismóum 2, 110
Reykjavík. Frestur til að
skila úrlausn krossgátu
10. nóvember rennur út á
hádegi föstudaginn 15.
nóvember. Vinningshafi krossgátunnar 3. nóv-
ember er Jón Guðmundsson, Öldugranda 7,
Reykjavík. Hlýtur hann í verðlaun bókina Vín –
frá þrúgu í glas eftir Steingrím Sigurgeirsson.
Vaka-Helgafell gefur út.
KROSSGÁTUVERÐLAUN
Nafn
Heimilisfang
Póstfang