Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.11.2013, Page 60
A
S Roma er komið með 28 stig eftir 11 leiki í
ítalska boltanum og hefur ekki enn tapað leik.
Liðið gerði jafntefli um síðustu helgi en þar áð-
ur höfðu komið 10 sigrar. Slík sigurganga var
met. Á síðustu leiktíð var félagið nánast fram í
janúar að kroppa í 30 stig. Þeir enduðu 25 stigum frá meist-
urum Juventus og komust ekki í Evrópukeppni annað árið í
röð á síðasta tímabili og þjálfarinn, Zdenek Zeman hætti.
Í júní gaf Max Allegri Roma afsvar um þjálfun liðsins, kaus
að vera áfram með AC Milan enda Roma ekki beint spenn-
andi kostur á þeim tímapunkti. Walter Mazzarri sagði sömu-
leiðis nei takk og tók við Inter. Liðið var búið að selja þá
Marquinhos, Éric Lamela og Pablo Osvaldo sem voru þeirra
bestu menn á síðustu leiktíð og þá hurfu Bojan Krkic og Ma-
arten Stekelenburg einnig á braut. Félagið í heild virtist vera
frekar óspennandi kostur. Allt gott var selt og gamlir sótraft-
ar dregnir á sjó. Markvörðurinn Morgan De Sanctis var kom-
inn í rammann, Maicon í hægri bakvörðinn og ungstirnið
Adem Ljajiã var mættur á miðjuna ásamt Kevin Strootman.
En ljósið í myrkrinu reyndist vera franskur þjálfari með
spænska nafnið Rudi Garcia. Hann var langt frá því að vera
fyrsta nafn á blaði amerískra eigenda Roma og mótmæltu
nokkrir grjótharðir Rómverjar ráðningu þessa óþekkta manns
sem er þó langt frá því að vera óþekktur eða einhver nýgræð-
ingur.
Ráðinn, rekinn en ráðinn aftur
Garcia þessi sló fyrst í gegn sem þjálfari Lille í heimalandinu
en hann lék einnig með liðinu um sex ára skeið. Garcia spilaði
sóknarbolta og leyfði ungum mönnum eins og Eden Hazard
að fá sínar fyrstu mínútur. 2009 var hann svo rekinn frá félag-
inu þrátt fyrir frábæran árangur vegna þess að skoðanir hans
og stjórnarmanna fóru ekki saman. Forseti félagsins, Michel
Seydoux, var ekki sáttur við að Garcia væri sá sem þyrfti að
taka pokann sinn og tíu dögum síðar rak hann stjórnina og
réð Garcia aftur! Hann hélt áfram að spila sóknarbolta og
skoraði liðið 72 mörk tímabilið 2009-2010. Var liðið nefnt
Barcelona norðursins af frönskum fjölmiðlum og komst liðið
alla leið í Meistaradeildina. 2010-2011 fór Lille hamförum og
hampaði bæði deildar- og bikartitlinum í Frakklandi og Garcia
var kosinn besti þjálfari Frakklands. Þrátt fyrir að ferill hans
sé nánast flekklaus tóku Rómverjar Garcia ekki opnum örm-
um, langt í frá. Trúlega eru þeir ánægðir í dag.
Töfrar Totti
Francesco Totti hefur fengið mikið hrós fyrir sinn leik það
sem af er tímabili. Totti hefur svo sem aldrei verið fótfráasti
leikmaður heims en hann er kvikur í kollinum. Hann er orðinn
37 ára og eldist eins og gott vín frá Toscana-héraði. Totti er
hjartað og sálin í liði Roma og Garcia gerði sér grein fyrir
því. Spjallaði við Totti sem var hrifinn af því sem Garcia
hafði fram að færa og hefur spilað eins og engill.
Sá sem hefur hinsvegar gengið í endurnýjun lífdaga und-
ir stjórn Garcia er miðjumaðurinn Daniele De Rossi. Sá var
frystur undir stjórn Zemans og gat lítið undir stjórn Luis
Enrique. Ástæðan fyrir því að De Rossi er aftur orðinn frá-
bær leikmaður er frekar einföld. Hann var ekki að spila sína
stöðu. Hjá Garcia er De Rossi djúpur á miðjunni og ekkert
kjaftæði. Þá hefur Mehdi Benatia (hver?) spilað eins og engill
og lokað vörninni. Bara gamla góða mottóið. Lok lok og læs
og allt í stáli. Svo virðist sem Garcia hafi náð til leikmanna
Roma sem engum öðrum hafði tekist.
Stóra prófraunin kom gegn Inter
Rómverjar höfðu aldrei unnið fyrstu fjóra leiki sína í deildinni
frá upphafi og þegar það tókst var bent á að þeir hefðu átt
náðuga byrjun gegn veikari andstæðingum. Fyrsta alvöru
prófið var gegn Inter í sjöundu umferð. Skömmu áður lék
Inter við meistarana í Juventus og varð þá jafntefli. Garcia
lofaði öllu fögru fyrir leikinn, sagðist ætla að sækja stigin
þrjú en ekki sætta sig við stigið sem öll lið byrja með í upp-
hafi leiks. Sannfærði alla um að Rómverjar væru komnir til
Milan til að sjá og sigra. Og það tókst svo eftirminnilega.
Totti skoraði strax eftir 18 mínútur eftir sendingu frá Gerv-
inho (þessum sem var í Arsenal) og bætti öðru marki við rétt
fyrir hálfleik. Totti var svo arkitektinn að þriðja marki Roma
þar sem hann tók boltann niður á kassann og sendi glæsilega
sendingu á Kevin Strootman upp völlinn. Hollendingurinn gaf
tuðruna fyrir fætur Alessandro Florenzi sem skoraði þriðja og
síðasta markið.
Þúsund mættu klukkan tvö um nótt
Totti er arkitektinn að flestum sóknum Roma. Hann spilar
sem framherji í leikkerfinu 4-3-3 sem Garcia notar en kemur
Okkar maður í ítalska boltanum, Emil Hallfreðsson, reynir að ná boltanum af Francesco Totti.
AFP
BESTA LIÐ EVRÓPU ÞESSA DAGANA ER ÍTALSKA LIÐIÐ AS ROMA EN LIÐIÐ HEFUR EKKI ENN TAPAÐ
Á LEIKTÍÐINNI. RÓMVERJAR SELDU ÞRJÁ BESTU LEIKMENN SÍNA FYRIR TÍMABILIÐ, RÉÐU NÝJAN FREK-
AR ÓÞEKKTAN ÞJÁLFARA OG BJUGGUST FLESTIR VIÐ AÐ AS ROMA YRÐI ENN Á NÝ HÁLFGERT AÐ-
HLÁTURSEFNI ÍTALSKA BOLTANS – SLÍKT HEFUR ÞÓ EKKI VERIÐ RAUNIN.
Rómverjar gera miklar kröfur til liðs síns sem hefur ekki staðið undir þeim væntingum í mörg ár.
AFP
* Totti hefur svo sem aldrei veriðfótfráasti leikmaður heims en hanner kvikur í kollinum. Hann er orðinn 37
ára og eldist eins og gott vín frá Toscana-
héraði. Totti er hjartað og sálin í liði
Roma og Garcia gerði sér grein fyrir því.
Rudi Garcia gerði
Lille að frönskum
meisturum og hef-
ur byrjað með lát-
um í ítalska bolt-
anum. 11 leikir, 10
sigrar og eitt jafn-
tefli.
AFP
Bylting í Rómarborg
60 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.11. 2013
Orðasambandið Róm var ekki byggð á einum degi þýðir; Mikil
verk taka langan tíma. Orðasambandið er vel þekkt í Evrópu-
málum og eru elstu heimildir raktar til 12. aldar. Vísindavefurinn
Boltinn
BENEDIKT BÓAS
benedikt@mbl.is