Morgunblaðið - 04.12.2013, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2013
Opið: Mán - Fim 11:00 - 18:00
Fös 10:00 - 18:30 & Lau 11:00 - 16:00
Hátíðarkörfur
Ostabúðarinnar
eftir þínu höfði
Við erum byrjuð að taka á móti
pöntunum í síma 562 2772,
ostabudin@ostabudin.is
og á ostabudin.is
Hringdu núna og pantaðu
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Nokkuð hefur verið rætt um ör-
yggishlutverk Ríkisútvarpsins í
kjölfar harmleiksins á mánudag
þegar sérsveit lögreglunnar endaði
á að skjóta vopnaðan mann eftir
nokkurra klukkustunda umsátur í
Árbænum.
Bent hefur verið á að fyrsta frétt
af málinu birtist á vef RÚV um
klukkan hálfsjö um morguninn,
þremur og hálfri klukkustund eftir
að lögreglu barst fyrst tilkynning
um manninn.
Óðinn Jónsson, fréttastjóri RÚV,
gagnrýndi í kjölfarið lögregluna
fyrir að hafa ekki látið vita af
ástandinu sem skapaðist enda var
ljóst að fólki stafaði hætta af vopn-
uðum manninum. Lokaði lögreglan
meðal annars tiltölulega stórum
hluta Árbæjar meðan á aðgerðum
stóð.
Ber að birta tilkynningar
Í lögum um RÚV segir að því
beri að halda uppi nauðsynlegri ör-
yggisþjónustu á sviði útvarps. Í
greinargerð með frumvarpi laganna
er öryggishlutverkið frekar skýrt.
Þar segir að RÚV beri skylda til að
koma á framfæri „tilkynningum frá
almannavörnum, löggæslu, slysa-
varnafélögum eða hjálparsveitum
og gera hlé á auglýstri dagskrá ef
brýna nauðsyn ber til og almanna-
heill krefst“.
Einnig er kveðið á í 13. grein út-
varpslaga að útvarpsstöðvum beri
að láta lesa slíkar tilkynningar end-
urgjaldslaust við þær aðstæður.
Engin slík tilkynning barst frá
löggæslu né almannavörnum vegna
atburðarins á mánudag.
Ekki talin ástæða til virkja
almannavarnaskipulag
Í skriflegu svari embættis ríkis-
lögreglustjóra til Morgunblaðsins
kemur fram að ríkislögreglustjóri
og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
sem stjórnuðu aðgerðunum hafi
metið ástandið með þeim hætti að
ekki væri nauðsynlegt að virkja al-
mannavarnaskipulag sem Ríkis-
útvarpið er meðal annars hluti af
til að miðla upplýsingum. Því hafi
ekki verið haft samband við RÚV.
Þar kemur einnig fram að ógnir
af mannavöldum, á borð við þær
sem áttu sér stað á mánudag, geta
skapað almannavarnaástand sam-
kvæmt lögum um almannavarnir.
Það sé þáttur í mati stjórnenda að-
gerða eins og á mánudag hvort
virkja þurfi almannavarnaskipulag-
ið eða ekki. Meta þurfi hvort
fréttaflutningur geti hugsanlega
skapað frekari almannahættu, segir
í svarinu.
Meta hvort
fréttaflutningur
skapi hættu
Gagnrýnt að fjölmiðlum hafi ekki
verið tilkynnt um atburðinn í Árbæ
Morgunblaðið/Rósa Braga
Harmleikur Frá vettvangi atburð-
arins í Árbænum á mánudag.
Lög um RÚV
» Ríkisútvarpinu ber skylda til
að koma á framfæri tilkynn-
ingum frá almannavörnum,
löggæslu, slysavarnafélögum
eða hjálparsveitum og rjúfa út-
sendingu vegna þeirra þegar
brýna nauðsyn ber til.
» Almennum útvarpsstöðvum
ber einnig að birta slíkar til-
kynningar án endurgjalds.
Helgi Bjarnason
Gunnar Dofri Ólafsson
„Við verðum að læra af þessu. Verð-
um að bæta þjónustuna, hafa hana
sveigjanlega þannig að fólk falli ekki
niður á milli í kerfinu. Við verðum
líka að gera ráð fyrir að fólk geti ver-
ið einstakt og þurfi á einstakri þjón-
ustu að halda,“ segir Anna Gunnhild-
ur Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri
Geðhjálpar.
Anna Gunnhildur tekur undir þau
orð systur Sævars Rafns Jónassonar
sem lést í skotbardaga við sérsveit
lögreglunnar að kerfið hafi brugðist
honum á ögurstundu. „Það voru svo
mörg ljós sem blikkuðu að ég skil
ekki af hverju það var ekki hægt að
grípa inn í. En kerfið ræður ekki við
þetta,“ segir Sigríður Ósk Jónas-
dóttir, systir Sævars heitins.
Sigríður segir að Sævar hafi glímt
við geðsjúkdóma frá unglingsaldri.
Hann hafi þvælst á milli stofnana og
íbúða. Hann var í sjálfstæðri búsetu í
félagslegri íbúð á vegum Reykjavík-
urborgar og naut þjónustu frá bú-
setukjarna fyrir geðfatlaða í næsta
nágrenni. Systir hans segir að hann
hafi áður verið á sambýli fyrir geð-
fatlaða með meira eftirliti. Ástand
hans hafi versnað til muna undan-
farna mánuði og telur að hann hafi
þurft að vera kominn inn á geðdeild.
Hataði lögregluna
Sigríður segir að lögreglan hafi oft
þurft að hafa afskipti af Sævari í
gegnum tíðina og hann hafi hatað
lögregluna meira en allt annað. Tel-
ur hún að hann hafi brjálast þegar
hann sá hana koma. Anna Gunnhild-
ur leggur áherslu á að geðveikt fólk
sé ekki líklegra en annað fólk til að
beita ofbeldi. Einhverjir aðrir þættir
geti haft áhrif. Hún segir að sjálf-
ráða fólk sé ábyrgt gerða sinna. Þeg-
ar það geri eitthvað á hlut annarra,
angri eða ógni nágrönnum, beri að
tilkynna það. Þannig sé auðveldara
að fylgjast með þróun mála og grípa
inn í áður en málin fari úr böndun-
um.
Anna Gunnhildur segir ýmsum
spurningum ósvarað um atburða-
rásina sem leiddi til þess að lögregl-
an kom á staðinn og sjúkur maður
lést. Mikilvægt sé að fram fari hlut-
laus rannsókn á málinu.
Björk Vilhelmsdóttir, formaður
velferðarráðs, segist hafa beðið um
það strax í fyrradag að skoðað yrði
hvort einhverju hefði verið ábóta-
vant í þjónustu Reykjavíkurborgar,
vegna þessa hörmulega atburðar.
Rétt sé að skoða málin þegar svona
alvarlegir atburðir gerist.
Velferðarsvið er nú með tólf íbúðir
í fjölbýlishúsum fyrir geðfatlaða ein-
staklinga, allar í göngufæri við sér-
staka búsetukjarna sem ætlað er að
veita íbúunum þjónustu. Þegar vel-
ferðarsvið úthlutar íbúðunum fer
fram mat á viðkomandi sjúklingi,
hvort sjálfstætt búsetuform henti
honum, og gerður samningur um
hvaða stuðning skuli veita. Stuðning-
urinn er mismunandi eftir högum og
þörfum viðkomandi einstaklinga.
Morgunblaðið/Júlíus
Rannsókn Nemar í Lögregluskólanum aðstoðuðu lögregluna við að fínkemba svæði fyrir utan húsið í Hraunbæ.
Segja að kerfið hafi
brugðist á ögurstundu
Velferðarráð kannar hvort þjónustu hafi verið ábótavant
Ríkissaksóknari hefur hafið
rannsókn á láti Sævars Rafns
Jónassonar sem lést í lögreglu-
aðgerð í Árbæjarhverfi að
morgni mánudags. Sævar skaut
með haglabyssu að lög-
reglumönnum og út um glugga.
Við rannsókn sína mun rík-
issaksóknari, með aðstoð lög-
reglumanna við embætti sér-
staks saksóknara, taka skýrslur
af lögreglumönnum sem voru á
vettvangi. Samkvæmt tilkynn-
ingu verður farið yfir aðgerðir
lögreglu með hliðsjón af al-
mennum hegningarlögum, lög-
reglulögum og verklagsreglum
ríkislögreglustjóra um beitingu
skotvopna.
Atriði sem varða forsögu
mannsins sem lést, handhöfn
og meðferð hans á skotvopni,
sem og annað er hann varðar, er
á forræði lögreglustjórans á
höfuðborgarsvæðinu að rann-
saka.
Skýrslur
teknar af
lögreglu
SKOTIÐ Í ÁRBÆ
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Til stendur að setja tóngjafa sem
hermir eftir háhyrningahljóðum í
Kolgrafafjörð á fimmtudag að sögn
Sigmars Guðbjörnssonar, fram-
kvæmdastjóra Stjörnu-Odda sem sá
um þróun tóngjafans.
Eins og fram hefur komið er til-
gangur háhyrningahljóðanna að
smala síldinni saman og fæla burt úr
firðinum. „Við höfum verið að þróa
þetta tæki sem getur gefið talsvert
lága tíðni á mjög háum tónstyrk,“
segir Sigmar en búnaðurinn er að
hans sögn sá eini sinnar tegundar í
heiminum. Hann segir að búnaður-
inn hafi upphaflega verið hugsaður
til þess að kalla á þorska í þorskeldi í
opnum fjörðum. „Þá var meiningin
að kalla á þorska í matinn í meira en
kílómetra radíus,“ segir Sigmar.
Hann segir að Björn Björnsson
hjá Hafrannsóknastofnun hafi þjálf-
að 20 þorska. „Þeir vöndust hljóðinu
og fóru á réttu staðina þegar það var
matur. Svo tók hann út þessa vönu
og setti einn þorsk í hvern hóp sem
var mjög fljótur að kenna hinum að
þekkja hljóðið til að fá mat,“ segir
Sigmar.
Eins og í vísindaskáldsögu
Hann viðurkennir að þetta hljómi
eins og eitthvað sem búið sé til í vís-
indaskáldsögu en tilraunir hafi gefið
góða raun. Hann segir að ein slík hafi
verið gerð í vor í Kolgrafafirði. „Við
náðum að hafa áhrif á síldina sem var
nærri bátunum með hljóðunum,“
segir Sigmar en óljóst hafi verið hve
stórt svæði hljóðið hafi náð til.
Háhyrningatóngjafi settur
í fjörðinn á fimmtudag
Tilraun gerð til þess að reka síld úr Kolgrafafirði
Morgunblaðið/Ólafur Benóduss.
Háhyrningur Notast er við tóngjafa.