Morgunblaðið - 04.12.2013, Síða 11
Íslandssaga Þeim Ragnari og Stefáni þykir saga ákaflega skemmtileg og ætla að sýna öðrum það með spilinu.
reiti eða eins og spjaldið segir til
um. Þar sem markmiðið er ekki
síst það að fræða er vænn fróð-
leiksmoli á spjaldinu og hér er
hann svona: „Á tímum Kalda
stríðsins eignuðust Íslendingar
fiskmarkaði í Austur-Evrópu.
Verslunarsamningar þessir byggð-
ust á flóknum vöruskiptum þar sem
austantjaldsríkin greiddu fyrir með
olíu, tækjabúnaði og Prins-Póló-
súkkulaðikexi.“
Auðvitað er hægt að spila Ís-
landsspilið nokkuð hratt eins og
hvert annað teningaspil en svo er
líka hægt að staldra við skemmti-
legar staðreyndir eins og í ofan-
greindu dæmi. Auk þess fylgir
spilinu vandaður söguannáll sem
hægt er að renna yfir hvað gerðist
á hverjum tíma.
Spil sem
kennslugagn
Stefán segist vel
geta séð fyrir sér að Ís-
landssöguspilið kæmi til
greina sem viðbótar-
kennslugagn í grunn-
skólum. „Við sjáum það nú dálítið
fyrir okkur að þetta sé spil sem
skólum þætti akkur í að eiga,“ seg-
ir Stefán sem myndi gjarnan vilja
spilavæða kennslu í grunnskólum
enn betur.
„Þeir kennarar sem hafa séð
spilið hjá okkur hafa sýnt því mik-
inn áhuga og sagt að þetta sé ein-
mitt eitthvað sem vanti og sé
hægðarleikur að bæta inn í skóla-
starfið.“
Fyrir nokkrum áratugum kom
Námsgagnastofnun aðeins að spila-
útgáfu og hver veit nema það verði
reynt aftur þegar fram líða stundir,
svo ekki sé talað um þegar hægt er
að gera námsefnið eins lifandi og
skemmtilegt og þeim Stefáni og
Ragnari tókst.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2013
Góðar uppskriftir ganga kynslóð fram af kynslóð og
minningin um uppáhaldskökuna sem amma bakaði
fylgir okkur alla tíð. Bragðið, lyktin úr ofninum ...
Kökurnar verða ljómandi með Ljóma.
Ljóminn á skilið
það lof sem hann fær
transfitu.
Taktu þátt í Ljómaleiknum á Facebook
– Facebook.com/ljomasmjorliki
Glæsileg Kenwood hrærivél í verðlaun.
•
•
Hönnunar- og sprotafyrirtækið As We
Grow var stofnað seint á síðasta ári.
Hugmyndin að fyrirtækinu varð í
raun til vegna peysu sem ferðaðist á
milli barna innan vinahóps. Mörg
börn notuðu peysuna á níu ára ferða-
lagi hennar og varð hún eftirlætisflík
barnanna allra. Raunar er peysan enn
í notkun þannig að ferðalaginu er enn
ekki lokið.
Í hönnuninni er hugsað um nýtingu
og sniðin miðuð við að hver flík geti
vaxið með barninu og fylgt því í nokk-
ur ár. Með því að nota fatnaðinn oft
og í langan tíma er umhverfinu sýnd
virðing um leið og verið er að skapa
tilfinningalegt gildi hverrar flíkur.
Nú stendur fyrirtækið á ánægju-
legum tímamótum og fagnar árs-
afmæli sínu. Bæði af því tilefni og í
aðdraganda jóla vilja þær Gréta Hlöð-
versdóttir, Guðrún Ragna Sigurjóns-
dóttir og María Th. Ólafsdóttir, eig-
endur As We Grow, láta gott af sér
leiða ætla að gleðja börnin á Barna-
spítala Hringsins. Allur ágóði af húf-
um og treflum sem seljast í Spark
Design Space á Klapparstíg 33 annað
kvöld rennur því óskiptur til spít-
alans. Salan stendur frá klukkan 17-
20 á morgun, fimmtudaginn 5. des-
ember.
Styrkja Barnaspítala Hringsins á ársafmælinu
Jólaandi Allur ágóði af húfum og treflum frá As We Grow rennur til styrktar
Barnaspítala Hringsins. Vörurnar verða seldar á morgun milli kl. 17 og 20.
As We Grow fagnar ársafmæli
Þeir Ragnar og Stefán muna vel
eftir borðspili sem kom út fyrir
jólin 1973. Þórarinn Þór-
arinsson, skólastjóri á Eiðum,
gaf spilið út í tilefni af 1100 ára
afmæli Íslandsbyggðar og seld-
ist það nokkuð vel. Stefán segir
að þótt það hafi á vissan hátt
verið barn síns tíma hafi það
orðið mörgum minnisstætt. Það
er einmitt kjarni málsins: Spil
sem er eftirminnilegt hlýtur að
hafa lærdómsgildi og það er nú
megintilgangur spilsins.
Góð leið til
lærdóms
SÖGUSPILIÐ VAR SNJALLT
Gott tækifæri gefst í kvöld til að
læra handtökin við að þrykkja af
dúk. Myndlistarkonan Magdalena
Margrét Kjartansdóttir miðlar þekk-
ingu sinni á Handverkskaffi í Gerðu-
bergi og er aðgangur ókeypis.
Listin að þrykkja af dúk með
nuddi og tvíbendisvalsi er vanda-
söm og því ætti gestum Gerðubergs
að vera ljúft að fá að læra hana í
notalegu andrúmslofti í aðdraganda
jóla.
Ekki er hægt að segja að saga
grafíklistarinnar sé sérlega löng hér
á landi en þó má rekja hana allt aft-
ur til ársins 1584 þegar skornir voru
út upphafsstafir og smámyndir í
Guðbrandsbiblíu sem þrykkt var á
Hólum. Í kringum
1900 tóku lista-
menn hér á landi
að nýta sér graf-
íktæknina til list-
sköpunar og ber
þar einna helst
að nefna dúkrist-
una sem er ein-
faldasta aðferð
við handprentun.
Dúkrista verður
meðal annars kennd í kvöld með til-
liti til jólaskrauts.
Listakonan Magdalena Margrét
lauk námi frá Myndlista- og hand-
íðaskóla Íslands 1984 og hefur hald-
ið fjölda listsýninga víða um heim.
Tækifæri til að læra að þrykkja af dúk og fleira fyrir jólin
Magdalena Margrét kennir list-
sköpun í Gerðubergi í kvöld
Magdalena Margrét
Kjartansdóttir
Grafíklist Listakonan Magdalena Margrét kennir gestum að þrykkja af dúk.