Morgunblaðið - 04.12.2013, Page 12
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ný könnun Félagsvísindastofnunar
Háskóla Íslands bendir til að meiri-
hluti þjóðarinnar sé ýmist mjög
ánægður eða frekar ánægður með
aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar
um höfuðstólslækkun húsnæðislána
sem forystumenn ríkisstjórnarinnar
kynntu opinberlega sl. laugardag.
Um er að ræða netkönnun sem var
send á 1.950 einstaklinga og höfðu
þar af 811 svarað fyrir klukkan 16.00
síðdegis í gær, samtals 42% úrtaks-
ins. Allir sem tóku þátt voru 18 ára
og eldri.
Tvær spurningar voru lagðar fyrir
svarendur. Annars vegar hvort við-
komandi væri ánægður eða óánægð-
ur með aðgerðaráætlun ríkisstjórn-
arinnar um höfuðstólslækkun
verðtryggðra húsnæðislána.
Niðurstöðurnar eru sýndar á
myndrænan hátt hér til hliðar en þar
má sjá að 19% sögðust mjög ánægð
og 33,1% frekar ánægð, eða samtals
52,1% þátttakenda. Þá sagðist ríflega
fjórðungur, eða 26,2% þátttakenda,
hvorki ánægður né óánægður. Alls
12,2% þátttakenda sögðust vera
frekar óánægð með boðaðar aðgerðir
og 9,5% mjög óánægð, eða samanlagt
21,7% þeirra sem svöruðu spurning-
unni.
Svipað hlutfall kynjanna
Af þeim 811 sem tóku þátt í könn-
uninni tóku 673 afstöðu til þessarar
spurningar. Afstaða kynjanna reynd-
ist svipuð. Þannig sögðust 19% karla
sem svöruðu spurningunni vera mjög
ánægðir, 34% frekar ánægðir, 25%
hvorki ánægðir né óánægðir, 12%
frekar óánægðir og 10% mjög
óánægðir. Hlutfallið í sömu röð hjá
konunum var 19%, 32%, 28%, 12% og
8%. Var því bæði meirihluti karla og
kvenna mjög eða frekar ánægður
með boðaðar aðgerðir.
Af þeim 673 sem svöruðu þessari
spurningu búa 442 á höfuðborgar-
svæðinu, eða um 66% þeirra þátttak-
enda sem tóku afstöðu til hennar.
Þá má nefna að 769 af þeim 811
sem tóku þátt í könnuninni svöruðu
því hvort viðkomandi eða maki hefði
verið með verðtryggt íbúðalán á ár-
unum 2007 til 2010. Sagðist þar af
531 hafa verið með slíkt lán á tíma-
bilinu en 238 svöruðu spurningunni
neitandi.
Meirihluti telur áhrifin lítil
Þátttakendur voru einnig spurðir
hvort aðgerðaráætlun ríkisstjórnar-
innar myndi hafa mikil eða lítil áhrif
á fjárhagsstöðu þeirra, líkt og sýnt er
hér að ofan. Svöruðu þá 2,5% þátt-
takenda því til að áhrifin yrðu mjög
mikil og 8,3% að þau yrðu frekar
mikil, alls 10,8% þeirra sem tóku þátt
í könnuninni.
Tæpur fjórðungur, eða 24,3% þátt-
takenda, taldi að áhrifin á fjárhag
þeirra yrðu nokkur. Hins vegar
sögðu 31,2% þátttakenda að áhrifin
yrðu lítil og 33,6% þeirra að áhrifin
yrðu engin, alls 64,8% þátttakenda.
Alls svöruðu 711 af 811 þátttak-
endum í könnuninni síðari spurning-
unni. Líkt og í þeirri fyrri var skipt-
ing milli kynjanna býsna jöfn. Þannig
sögðust 3% karla sem svöruðu
spurningunni að áhrifin á fjárhags-
stöðu þeirra yrðu mjög mikil, 8% að
þau yrðu frekar mikil, 22% að áhrifin
yrðu nokkur, 32% að þau yrðu lítil og
34% að þau yrðu engin.
Hlutföllin hjá konunum voru þau
að 1% sagði að áhrifin yrðu mjög
mikil, 8% frekar mikil, 28% að þau
yrðu nokkur, 30% að áhrifin yrðu lítil
og 34% að áhrifin yrðu engin.
Samanlagt sögðust því 66% þeirra
karla sem svöruðu spurningunni að
áhrifin yrðu lítil eða engin og 64%
kvenna. Undirstrikar það að afstaða
kynja til spurningarinnar var jöfn.
Af þeim 711 sem svöruðu þessari
spurningu sögðust 474 búa á höfuð-
borgarsvæðinu en 237 á landsbyggð-
inni. Jafngildir það því að tæp 67%
þeirra búi á höfuðborgarsvæðinu.
Þeir þátttakendur sem ekki tóku
afstöðu til spurninganna sögðust ým-
ist ekki vita svarið við þeim eða að
þeir vildu ekki svara þeim.
Skipting milli höfuðborgarsvæðis
og landsbyggðar í könnuninni fer
nærri hinni eiginlegu skiptingu.
Þannig bjuggu alls 325.010 manns á
Íslandi í lok 3. ársfjórðungs og þar af
208.210 á höfuðborgarsvæðinu, eða
um 64% landsmanna, samkvæmt
nýjum tölum Hagstofu Íslands.
Ríflega helmingur ánægður
Ríflega annar hver svarenda í könnun er mjög eða frekar ánægður með boðaða leiðréttingu skulda
Hins vegar telja um tveir af hverjum þremur að áhrifin á fjárhag þeirra verði lítil eða engin
„Telur þú að aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar um höfuð-
stólslækkun verðtryggðra húsnæðislána muni hafa mikil eða
lítil áhrif á fjárhagsstöðu þína?“
Mjög mikil áhrif
Frekar mikil áhrif
Nokkur áhrif
Lítil áhrif
Engin áhrif
2,5%
8,3%
24,3%
31,2%
33,6%
„Ert þú ánægð(ur) eða óánægð(ur) með aðgerðaráætlun ríkis-
stjórnarinnar um höfuðstólslækkun verðtryggðra húsnæðis-
lána, sem kynnt var um síðustu helgi?“
Mjög ánægð(ur)
Frekar ánægð(ur)
Hvorki ánægð(ur) né óánægð(ur)
Frekar óánægð(ur)
Mjög óánægð(ur)
19,0%
33,1%
26,2%
12,2%
9,5%
Morgunblaðið/Ómar
Reykjavík séð frá Hallgrímskirkjuturni Um tveir þriðju þátttakenda í könnuninni búa á höfuðborgarsvæðinu.
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2013
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
BHM, heildarsamtök háskóla-
menntaðra á vinnumarkaði, vilja
að farið verði með námslán eins og
verðtryggð húsnæðislán – að þau
verði færð niður til jafns við hús-
næðislánin og hægt verði að nota
skattfrjálsar greiðslur, sem ella
hefðu runnið í séreignarlífeyris-
sjóð, til að greiða niður höfuðstól
námslánanna.
Guðlaug Kristjánsdóttir, for-
maður BHM, bendir á að 40.000
manns séu með námslán frá Lána-
sjóði íslenskra námsmanna.
„Námslán eru hluti af skuldum
heimilanna og eru vegna langtíma-
fjárfestingar. Þau tóku líka breyt-
ingum í hruninu,“ segir hún. Rík-
isstjórnin vilji minnka skuldabyrði
heimilanna. Námslánin séu hluti af
þeirri byrði og eðlilegt að taka
hana með. Með þessu myndu að-
gerðirnar líka ná til stærri hóps.
Námslán eru tekjutengd og af-
borganir af þeim nema um það bil
einum mánaðarlaunum á ári, minn-
ir Guðlaug á. Eftir því sem þau
hækki, því lengur þurfi lántakend-
ur að borga af þeim.
Samkvæmt ársskýrslu LÍN fyrir
árið 2011-2012 námu útlán sjóðsins
um 185 milljörðum. Langflest lán-
in bera 1% vexti, auk verðtrygg-
ingar sem vegur auðvitað þyngst.
Guðlaug segir að BHM hafi
komið þessum sjónarmiðum á
framfæri áður en ríkisstjórn
kynnti fyrirhugaðar aðgerðir, m.a.
á fundi með fjármálaráðherra í
síðustu viku. Enn sem komið er sé
aðeins um tillögur ríkisstjórnar-
innar að ræða og því sé enn svig-
rúm til breytinga.
Sigurður Hannesson, formaður
sérfræðingahóps um höfuðstóls-
lækkun húsnæðislána, segir að
hópurinn hafi ekkert fjallað um
námslán enda hafi stjórnvöld ekki
falið hópnum það verkefni.
Láti sama gilda
um námslán
Guðlaug
Kristjánsdóttir
Myndi ná til um 40.000 lánþega LÍN
Sigurður
Hannesson
Komdu við og kynntu
þér samskiptatæki
sem gætu opnað nýjan
heim fyrir þig og þína.
Ellisif Björnsdóttir
heyrnarfræðingur
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur
Sími 534 9600 · heyrn.is
Opið kl. 9.00-16.30
Verð frá
32.810 kr.
Einfalt
og ódýrt
samskiptatæki
með
15% jólaafslætti
til áramóta
Jólagjöfin fyrir þá sem vilja heyra betur