Morgunblaðið - 04.12.2013, Qupperneq 17
17100 ÁRA
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2013
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Skemmtistaðurinn Glaumbær við
Fríkirkjuveg var á sínum tíma einn
vinsælasti skemmtistaðurinn í
Reykjavík. Segja má að heil kynslóð
hafi farið á böll í Glaumbæ um
hverja einustu helgi á mektarárum
staðarins á sjöunda áratugnum. En
aðfaranótt 5. desember 1971 dundi
yfir reiðarslag, þegar eldsvoði kom
upp á staðnum og eyðilagði þar allt
innbúið, en steinveggir hússins, sem
upphaflega var íshús, héldu.
Færri komust að en vildu
Sigursteinn Hákonarson, betur
þekktur sem Steini í hljómsveitinni
Dúmbó og Steini, minnist Glaum-
bæjar með hlýhug. „Við spiluðum
mjög mikið þar á árunum 1966-1968,
oft tvö kvöld í viku,“ segir Steini sem
bætir við að Glaumbær hafi áður
verið djassklúbbur fyrir fólk á
miðjum aldri. „En svo kom upp sú
hugmynd að gera hann að unglinga-
stað og það má segja að við höfum
komið staðnum á kortið þó að ekki
hafi verið talað mikið um það í sög-
unni,“ segir Steini.
Glaumbær varð fljótt mjög vin-
sæll og margir eyddu öllum helg-
arkvöldunum frá föstudegi til sunnu-
dags á Glaumbæ. „Portið varð
troðfullt upp úr kl. níu á kvöldin og
komust ekki allir að sem vildu,“ seg-
ir Steini. Böllin voru þá til klukkan
eitt eða tvö um nóttina. Steini segir
að mjög mörg sambönd hafi mynd-
ast á staðnum og enst lengi. „Unga
kynslóðin safnaðist þarna saman, en
fólk kom þangað til þess að skemmta
sér og dansa frekar en til að fara á
fyllirí,“ segir Steini.
Eftir því sem leið á sjöunda ára-
tuginn og upp úr 1970 fóru fleiri af
vinsælustu hljómsveitum landsins að
spila á Glaumbæ. Þegar staðurinn
brann í desember 1971 voru Dúmbó
og Steini því alveg hættir að spila
þar. „Það var skelfilegt þegar þetta
hús fór,“ segir Steini um fréttirnar
af brunanum, „og margir unglingar
sem misstu sinn samastað.“
En Glaumbær brann
Segja má að Dúmbó og Steini hafi
haldið minningu staðarins einna
mest á lofti, og ekki síst með lagi
sínu „Glaumbær“ sem enn er eitt af
vinsælli lögum hljómsveitarinnar.
„Þegar við gáfum út plötuna Dúmbó
og Steini árið 1977, þá vantaði okkur
lag og við fengum Jóhann G. Jó-
hannsson heitinn til að semja lag um
Glaumbæ, sem varð svona rosalega
vinsælt,“ segir Steini. Lagið Glaum-
bær varð eitt af þekktustu lögum
hljómsveitarinnar. „Jóhann þekkti
staðinn og mundi þetta og gat gert
þetta svona vel eins og hann gerði,“
segir Steini.
Segja má að lagið hafi snortið
streng hjá þeim sem sóttu Glaumbæ
á árum áður. „Þetta er eitt af þess-
um lögum sem hafa lifað allan þenn-
an tíma, allavega hjá þessari kyn-
slóð, og er vinsælt ennþá í dag.“
Steini segir minningu Glaum-
bæjar enn vera sterka hjá þeim sem
muna staðinn. Það hafi sést glöggt
þegar hljómsveitin fagnaði hálfrar
aldar afmæli sínu í september síð-
astliðnum. „Eftir tónleikana í Hörp-
unni kom fólk saman og þar sá mað-
ur fólk hittast sem hafði kannski
ekki sést síðan í Glaumbæ forðum,
og það var eins og það hefði hist í
gær.“
Í hugum margra
var þá brotið blað
42 ár frá brunanum í Glaumbæ
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Glaumbær brennur Eldtungurnar leika um skemmtistaðinn Glaumbæ, sem
þá hafði verið einn vinsælasti samkomustaður ungs fólks í Reykjavík.
Á baksíðu Morgunblaðsins
sunnudaginn 5. desember 1971
mátti sjá fréttina um brunann
mikla. Kom fram að allt slökkvi-
lið Reykjavíkur hefði verið kallað
út eftir að boð barst frá bifreiða-
stöðinni Hreyfli um að eldur væri
laus um átta mínútur yfir fjögur.
Um klukkan sex var slökkvistarfi
lokið. Í fréttinni var rætt við Sig-
urbjörn Eiríksson, veitingamann
í Glaumbæ, og sagði hann að allt
benti til þess að tjónið vegna
brunans næmi mörgum millj-
ónum króna. Ekki var ljóst hvað
olli brunanum. Hljómsveitin
Náttúra missti öll hljóðfæri sín
og Sigurður Rúnar Jónsson,
hljómborðs- og fiðluleikari
sveitarinnar, sagði að þau væru
metin á um eina milljón króna.
Þar af hefði orgelið hans verið
metið á um 300.000 krónur.
Allt slökkvi-
liðið kallað út
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið 5. desember 1971
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-1
3
-3
1
4
8
www.postur.is
HVERSU HRATT ÞURFA
A-póstur
Dreifing fyrsta virka dag eftir póst-
lagningu. Síðasti skiladagur fyrir:
A-póst utan Evrópu er 10. des.
A-póst til Evrópu er 16. des.
A-póst innanlands er 19. des.
B-póstur
Dreifing innan 3 virkra daga eftir
póstlagningu. Síðasti skiladagur fyrir:
B-póst utan Evrópu er 3. des.
B-póst til Evrópu er 10. des.
B-póst innanlands er 16. des.
VIÐ KOMUM ÞVÍ TIL SKILA
jólakortin að berast?