Morgunblaðið - 04.12.2013, Síða 18
VIÐTAL
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
EFTA-dómstóllinn hefur úrskurðað
að íslensk lög um tekjuskatt mismuni
fyrirtækjum sem sameinast eftir því
hvort þau eru bæði íslensk eða annað
þeirra erlent og hitt íslenskt. Mis-
mununin hefur það í för með sér að Ís-
land uppfyllir ekki skuldbindingar
sínar gagnvart samningnum um evr-
ópska efnahagssvæðið.
Rúnar Örn Olsen, lögmaður sem
hóf rannsókn málsins er hann starfaði
hjá Eftirlitsstofnun EFTA í Brussel,
segir að þegar íslenskt fyrirtæki sam-
einist erlendu kveði skattalögin á um
að það eigi að greiða skatt af óinn-
leystum hagnaði sem myndist þegar
hlutabréfin eða aðrar eignir félagsins
hækki í verði. Aftur á móti sé það ekki
staðan þegar um sameiningu tveggja
íslenskra fyrirtækja er að ræða. Þá
þurfi ekki að greiða skatt af óinnleyst-
um hagnaði. Þetta hafi EFTA-dóm-
stóllinn nú staðfest að sé andstætt
ákvæðum EES-samningsins um
stofnsetningarrétt og frjálsa fjár-
magnsflutninga.
Fram hefur komið í fjölmiðlum að
boðaðar hafi verið breytingar á lögum
á yfirstandandi þingi.
- Þú ert væntanlega himinlifandi
vegna dómsins?
„Ég átti ekki von á annarri niður-
stöðu. Þetta var ekki tvísýnt enda nið-
urstaðan í samræmi við dómafor-
dæmi EFTA-dómstólsins og
Evrópudómstólsins. Einnig kemur
fram í dóminum að Ísland hafi fyrir
dómstólnum ekki mótmælt því að lög-
in fælu í sér hindrun á 31. og 40. gr.
EES-samningsins um stofnsetning-
arrétt og frjálsa fjármagnsflutninga
og væru því andstæð EES-samningn-
um,“ segir Rúnar Örn sem starfar nú
á lögmannsstofunni Lögskiptum.
- Ætli löggjöfin hafi haft þau áhrif
að stjórnendur hafi veigrað sér við að
sameina íslensk félög við erlend?
„Það hlýtur að hafa skipt máli. Aft-
ur á móti er um að ræða samruna sem
aldrei varð af og því erfitt að átta sig á
umfanginu. En það er auðvelt að
ímynda sér að stjórnendur hafi hætt
við samruna eða eigendur hafi jafnvel
greitt skatt í andstöðu við réttindi sín
samkvæmt EES-samningnum. Þeir
sem hafa lent í slíku ættu að fara
gaumgæfilega yfir þau mál.“
Rúnar Örn segir að á meðan hann
hafi starfað hjá ESA hafi svipuð atriði
komið upp varðandi norska löggjöf og
í kjölfarið hafi lögum þar í landi verið
breytt.
EFTA-dómstóllinn segir að
fyrirtækjum sé mismunað
Lögin mismuna erlendum fyrirtækjum sem sameinast íslenskum
Óinnleystur hagnaður Þegar íslenskt fyrirtæki sameinast erlendu kveða
skattalögin á um að það eigi að greiða skatt af óinnleystum hagnaði.
Morgunblaðið/Golli
Íslendingur hóf
rannsóknina
» Rúnar Örn Olsen er lögmað-
ur sem hóf rannsókn málsins
þegar hann starfaði hjá Eftir-
litsstofnun EFTA í Brussel.
» Árið 2002 hóf Rúnar störf
hjá Eftirlitsstofnun EFTA og
starfaði þar fram til loka ágúst
2003. Því næst fór hann í
meistaranám en í september
2004 hóf hann aftur störf hjá
EFTA.
» Á árinu 2011 starfaði hann
við ráðgjafastörf á sviði Evr-
ópuréttar þar til hann hóf störf
sem lögmaður á Lögskiptum.
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2013
STUTTAR FRÉTTIR
● Jón S. von
Tetzchner fjárfestir
hefur keypt 10%
hlut í íslensku flug-
leitarvélinni Dohop.
Jón er þriðji
stærsti hluthafi fé-
lagsins en stærri
eru Nýsköp-
unarsjóður með
10,8% og Frosti
Sigurjónsson,
stofnandi félagsins og alþingismaður,
með 19,4%, segir í tilkynningu frá félag-
inu. Dohop var stofnað árið 2004 og
hefur verið rekið með hagnaði und-
anfarin tvö ár. Það hefur opnað skrif-
stofu í Osló og hyggur á frekari land-
vinninga á Norðurlöndunum.
Jón S. von
Tetzchner
Jón von Tetzchner
keypti 10% hlut í Dohop
Jakob Sigurðsson, forstjóri Pro-
mens, gangsetti nýja verksmiðju
Promens í Taicang í Kína í síðustu
viku. Opnunarathöfnin markar
upphaf framleiðslu Promens í Kína,
auk þess sem drög að frekari fjár-
festingum Promens á svæðinu voru
kynnt. Meðal gesta voru Stefán
Skjaldarson, sendiherra Íslands í
Kína, Lu Yan, varaborgarstjóri Ta-
icang, Wang Hong Xing, formaður
kínverska kommúnistaflokksins í
Chengxiang, og Hu Jie, borgar-
stjóri Chengxiang.
Þetta kemur fram í fréttatilkynn-
ingu.
Jakob Sigurðsson lagði í ávarpi
sínu áherslu á að verksmiðja Pro-
mens í Taicang marki stórt skref í
framtíðaráætlunum félagsins við að
styrkja stöðu sína á ört vaxandi
mörkuðum.
„Framleiðslueining Promens í
Taicang skapar góðan grundvöll
fyrir bætta þjónustu við bæði kín-
verska og alþjóðlega viðskiptavini
fyrirtækisins, þar sem við vinnum í
nánu samstarfi við viðskiptavini allt
frá frumhugmynd til framleiðslu,“
er haft eftir Jakobi í fréttatilkynn-
ingu.
Við lok opnunarathafnarinnar
undirrituðu Hermann Þórisson,
stjórnarformaður Promens, og
Wang Hong Xing, formaður komm-
únistaflokksins í Chengxiang, vilja-
yfirlýsingu um stækkun verksmiðj-
unnar og aukin umsvif Promens í
Taicang. „Við val okkar á staðsetn-
ingu fyrir framleiðslueiningu Pro-
mens í Kína, skipti stuðningur
stjórnvalda í Taicang miklu máli og
því gleðiefni að geta tilkynnt frek-
ari fjárfestingar og mögulega
stækkun verksmiðjunnar við opn-
unina,“ er haft eftir Hermanni í til-
kynningu.
Nánar á mbl.is
Gangsetning Jakob Sigurðsson, forstjóri Promens, gangsetti nýja verk-
smiðju Promens í Taicang í Kína í síðustu viku.
Promens opnar
verksmiðju í Kína
Markar upphaf framleiðslu í Kína
!"# $% " &'( )* '$*
++,-.,
+,/-01
+++-,2
3+-2,,
+,-4,,
+0-3+,
+.+-20
+-+25,
+03-,,
+2+-,
+++,-21
+,2-./
++3-3,
3+-123
+,-//2
+0-313
+.3-5/
+-+24.
+0.-/4
+23-./
3+2-35,4
++,-,/
+,2-0.
++3-23
3+-03/
+,-2+.
+0-.3/
+.3-43
+-+211
+04-5,
+23-0
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Munið að slökkva
á kertunum
Forðist að hafa kerti í dragsúgi
Slökkvilið
höfuborgasvæðisins