Morgunblaðið - 04.12.2013, Page 22
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Kúabændur telja að bjartaritímar séu framundan íbúrekstrinum eftir varn-arbaráttu undanfarin ár.
Því veldur einkum lækkun á verði
aðfanga eins og áburðar og kjarn-
fóðurs og tækifæri til að auka fram-
leiðsluna og fá fyrir fullt verð.
Niðurstöður búreikninga fyrir
árið 2012 liggja enn ekki fyrir,
hvorki hjá Hagstofu Íslands né
Bændasamtökunum. Niðurstöð-
urnar fyrir 2011 sýndu að verð-
hækkun á mjólkurlítranum hafði
heldur bætt hag þeirra. Sigurður
Loftsson, formaður Landssambands
kúabænda, telur að þróunin sé held-
ur í jákvæða átt þótt fyrirvara þurfi
að hafa um þróun gengis. Hann get-
ur þess jafnframt að aðstæður
bænda séu mismunandi og afkoman
breytileg, eins og hjá öðrum stétt-
um.
Þróunin snýst við
Verð á aðföngum hefur hækkað
á hverju ári frá hruni, verð á áburði,
kjarnfóðri og rekstrarvörum búvéla
hafa margfaldast á þessum tíma.
Umskipti hafa orðið á þessu ári, ekki
síst vegna breytinga á heimsmark-
aði fyrir hrávörur. Kjarnfóðurverð
hefur heldur lækkað og stærsti inn-
flytjandi á tilbúnum áburði, SS, hef-
ur tilkynnt 8-12% lækkun á áburð-
arverði. Þessir liðir skipta milljónum
í rekstri búanna og breytingin lækk-
ar kostnaðinn því um hundruð þús-
unda.
„Það hefur jákvæð áhrif á bú-
reksturinn hjá mér, eins og öðrum
þegar aðföngin lækka,“ segir Eirík-
ur Egilsson, kúabóndi á Seljavöllum
í Hornafirði.
Bændur hafa möguleika til að
auka tekjurnar vegna mikillar sölu-
aukningar á feitum mjólkurafurðum
á þessu ári. Mjólkurkvótinn eykst
um 7 milljónir lítra á næsta ári.
Mjólkursamsalan vill því til viðbótar
kaupa 4-5 milljónir lítra og hefur í
þeim tilgangi lýst því yfir að hún vilji
kaupa við fullu afurðastöðvaverði
alla þá mjólk sem bændur geta
framleitt á næsta ári.
Sigurður segir að sumir bænd-
ur séu með sín bú fullnýtt en aðrir
hafi rými til að auka framleiðsluna.
Það eigi helst við þá sem hafi verið í
fjárfestingum og ekki verið búnir að
kaupa kvóta til að auka framleiðsl-
una. Eiríkur segir að auknar fram-
leiðsluheimildir muni nýtast mest
þeim bændum sem framleitt hafi ríf-
lega umfram greiðslumark. Hann
segir að Mjólkursamsalan hafi greitt
allt of lágt verð fyrir mjólk umfram
kvóta. Hann hafi ákveðið að laga
framleiðsluna að innanlandsmarkaði
og slátrað kúm í vor. Því hafi hann
minni möguleika til aukningar en
ella.
„Ég fagna þessari söluaukningu
en er jafnframt svekktur með það að
forystumenn Mjólkursamsölunnar
skuli hafa sofið á verðinum. Birgðir
minnkuðu mikið um síðustu áramót
og segja má að í þetta hafi stefnt.
Forystumenn kúabænda hafa held-
ur ekkert verið að fylgjast með
þessu, allavega hafa þeir ekki verið
menn til að þrýsta á að brugðist yrði
tímanlega við. Það var hálfpartinn
verið að gera grín að Norðmönnum í
fyrra þegar þeir urðu smjörlausir en
nú erum við að komast í sömu stöðu
og þurfum að flytja inn,“ segir Ei-
ríkur.
Þess ber að geta að heildar-
stuðningur ríkisins við mjólk-
urframleiðslu breytist ekki þótt
kvótinn sé aukinn. Því verður
minna greitt út á hvern innveginn
lítra en bændur halda þó
sama stuðningi að öllu
óbreyttu.
Bjartari tímar fram-
undan hjá kúabændum
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Seljavellir Verð á aðföngum er að lækka en framleiðsluheimildir aukast.
Eiríkur Egilsson gagnrýnir forystumenn fyrir að draga að hækka verðið.
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2013
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Stækkunar-stjórinn Stef-
an Füle hefur nú
ákveðið einhliða
að hætta öllum
IPA-verkefnum
sem hér var unnið
að í tengslum við umsóknina
um aðild Íslands að Evrópu-
sambandinu. Styrkir vegna
IPA-verkefnanna eru greidd-
ir vegna aðlögunar umsókn-
arlanda að ESB og af þeirri
ástæðu er vitaskuld engin
ástæða til að halda áfram með
styrkina eða verkefnin þegar
engin áform eru lengur uppi
um að Ísland gerist aðili að
ESB.
Á hinn bóginn sýnir þessi
ákvörðun Evrópusambands-
ins að full ástæða er orðin til
að endurskoða afstöðu ríkis-
stjórnarinnar til þess hvernig
staðið verði að því að ljúka að-
lögunarferlinu og slíta aðild-
arviðræðunum við ESB.
Með þessari einhliða
ákvörðun er ESB að breyta
stefnu sinni og ganga gegn
samningi sem
gerður var um
IPA-styrkina, en í
samningnum kom
fram að ljúka ætti
verkefnunum sem
hafin væru þó að
samningnum væri sagt upp.
Af ákvörðun ESB, sem tek-
in er þrátt fyrir andstöðu ís-
lenskra stjórnvalda, er aug-
ljóst orðið að engar forsendur
eru lengur til að Ísland sé
áfram í þeirri undarlegu
stöðu að vera umsóknarríki
sem ekki vill gerast aðili.
Ákvörðun Evrópusam-
bandsins verður ekki mis-
skilin. Skilaboðin eru að sam-
bandið vilji slíta viðræðunum
og hafi ekki áhuga á að halda
Íslandi sem umsóknarríki. Sú
afstaða er út af fyrir sig
ánægjuefni og ætti að auð-
velda íslenskum stjórnvöld-
um að setja punktinn aftan
við þá ömurlegu sögu sem
umsóknar- og aðlögunarferli
Íslands að Evrópusamband-
inu hefur verið.
Nú er ekkert lengur
sem kemur í veg fyr-
ir að Ísland slíti að-
lögunarviðræðunum}
ESB tekur af skarið
Stundum erað því fund-ið að stjórn-
arandstæðingar
einbeiti sér eink-
um að því að
benda á þá galla sem sjá má á
nýkynntum tillögum, en forð-
ist að nefna það sem best er
við þær eða jákvæðast. Rök-
studdar ásakanir um þess
háttar nálgun er stjórn-
málamönnum sjálfsagt skað-
leg. En slíkar aðfinnslur eru
þó ekki endilega sanngjarnar.
Vel undirbyggð gagnrýni get-
ur ekki aðeins verið eðlileg
heldur beinlínis nauðsynleg
til að tryggja að almenningur
geti lagt sitt mat á það sem
fram er komið.
Forystumenn ríkisvalds
eða sveitarfélaga, sem kynna
tillögu sínar, hafa eðlilega
ríkan vilja til að draga upp já-
kvæða mynd á þeim takmark-
aða tíma sem þeim gefst. Það
er varla hægt að ætlast til
þess að þeir aðilar gefi kost-
um og göllum jafnmikið vægi.
Enda vissir um að „hinir“,
andstæðingarnir, einbeiti sér
ekki síst að annmörkunum.
Ögmundur Jónasson, fyrr-
verandi ráðherra, hefur iðu-
lega sýnt að hann er ekki hin
dæmigerða stjórnmálatýpa.
Hann var nýlega spurður á
útvarpsstöðinni Bylgjunni
um boðaðar aðgerðir rík-
isstjórnar fyrir skuldug
heimili. Ögmundur sagði við-
brögð sín við þeim
„almennt já-
kvæð“.
Ögmundur
sagði síðan:
„Í fyrsta lagi
finnst mér mjög gott að til-
lögurnar skuli hafa komi
fram í nóvembermánuði eins
og lofað var. Í öðru lagi finnst
mér það vera gott fyrir lýð-
ræðið, og okkur öll, hvar í
flokki sem við stöndum, að
það sé reynt að standa við lof-
orð sem gefin voru.“
Ögmundur ítrekaði hins
vegar, eins og sjálfsagt var,
að hann ætti eftir að sjá betur
hvernig skuldaleiðréttingin
yrði útfærð og sagði svo: „Al-
mennt séð er fólk að horfa já-
kvæðum augum á þetta, að
því leyti að það er þó verið að
reyna að koma á almennan
hátt á móts við skulduga og
það finnst mér bara vera
mjög gott.“
Líklegt er að Ögmundur
Jónasson hafi nálgast við-
fangsefni sitt skynsamlega,
af vinsemd og gætni í senn.
Hann sagðist ætla að fylgjast
vel með umræðunni næstu
vikur og mánuði og eins fram-
kvæmdinni. Hann áskildi sér
auðvitað rétt til að laga skoð-
anir sínar á málinu að því sem
fram kæmi, eftir því sem það
yrði ljósara og hefði áhyggjur
af því, að þetta yrði ekki eins
einfalt í framkvæmd og það
hljómaði á fyrstu skrefunum.
Tillögur ríkisstjórn-
arinnar hafa fengið
jákvæð viðbrögð}
Málefnaleg viðbrögð
Þ
egar elsta barnið fór í barnaskóla
var meðal kennara maður á
miðjum aldri sem dormaði yf-
irleitt í tímum á milli þess sem
hann sagði samhengislausar sög-
ur af sjálfum sér. Gott ef það var ekki stund-
um vínlykt af honum.
Miðbarnið byrjaði í sama skóla þremur ár-
um síðar og fékk sama kennara sem hafði ekki
batnað í millitíðinni.
Þegar það yngsta hóf sína skólagöngu
þremur árum á eftir miðbarninu lenti það á
sama kennara, nema hvað hann varð heldur
óhrjálegri með árunum.
Nokkrum árum síðar gengu svo dætur syst-
ur minnar í sama skóla um stundarsakir og
það var ekki að sökum að spyrja; sami ómögu-
legi kennari kenndi þeim og kennt hafði
frændsystkinum þeirra forðum.
Næst elsta barnabarn mitt byrjaði svo í þessum sama
skóla fyrir nokkrum árum en þá var kennarinn, sem
hafði ekki kennt börnum mínum og systur minnar þó
hann hafi mætt í tíma, kominn á aldur og horfinn á braut
– sem betur fer.
Þessi saga rifjast upp fyrir mér árlega þegar kynntar
eru niðurstöður alþjóðlegrar rannsóknar sem kennd er
við próf sem þau veita, PISA (en ekki samnefnda ítalska
borg). Það er þó ekki vegna rannsóknarinnar sjálfrar
sem þetta rifjast upp; það er umræðan sem fer af stað í
kjölfar þess að allir átta sig á að íslensk ungmenni eru
varla læs eða skrifandi, hvað þá reiknandi, í samanburði
við jafnaldra sína víða um heim. Í þeirri um-
ræðu hefja menn nefnilega upp sömu raust
og vanalega (og dæmi um það er eflaust að
finna í blaðinu í dag): Íslendingar verja of
litlu til menntunar, niðurskurður kemur nið-
ur á gæði menntunar, laun kennara eru
skammarlega lág, hefja verður kenn-
arastarfið til meiri virðingar og svo framvegis
og svo framvegis.
Nú geri ég ekki athugasemd við það að
kennarar eigi skilið að fá hærra kaup og ekki
dreg ég í efa að þeir séu almennt stórmerki-
legir í alla staði, sannkallað salt jarðar. Ég
set aftur á móti fyrirvara við þá staðhæfingu
að samasemmerki sé á milli þess fjár sem
varið er til menntunar og árangurs nemenda
og lít þá til þess að lítið samhengi virðist á
milli þess hlutfalls af þjóðarframleiðslu sem
varið er til menntunar og árangurs á PISA-prófum,
hvort sem litið er til Íslands eða annarra landa. (Norð-
menn eyða meira fé en nokkur önnur þjóð til skólamála
og skora þó hörmulega á síðasta PISA-prófi og sama má
segja um Breta, þar í landi var gríðarleg hækkun á fjár-
veitingum til menntamála, en Bretar hafa aldrei staðið
eins illa.)
Undanfarin ár og áratugi hefur stéttarfélag kennara
barist ötullega fyrir því að kennarar gjaldi ekki getuleys-
is síns. Það er trúa mín að beiti samtökin sér fyrir því að
félagsmenn njóti getu sinnar og taki þátt í endur-
skipulagningu menntakerfisins muni takast að bæta
menntun á Íslandi, en ekki fyrr en þá. arnim@mbl.is
Árni
Matthíasson
Pistill
PISA-sorgarsöngvasinfónía
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
Sigurður Loftsson telur ekki
tímabært að ræða um að lækka
heildsöluverð mjólkur þótt að-
föng séu byrjuð að lækka. Op-
inber verðlagning ræður heild-
söluverði flestra mjólkurafurða.
Mjólkin hækkaði síðast 1. októ-
ber og hefur hækkað yfirleitt
einu sinni á ári og þá miðað við
hækkanir á aðföngum og vinnu-
launum árið á undan.
Sigurður bendir á að verðið
hafi ekki fylgt kostnaðarhækk-
unum. Eiríkur Egilsson bætir því
við að mjög hafi hallað á bænd-
ur við verðlagninguna á und-
anförnum árum. Verðlags-
grundvöllurinn hafi
verið endurskoðaður
fyrir fjórtán árum.
Síðustu þrjú ár hafi
verið sérstaklega erf-
ið og nú vanti 10
milljónir upp á tekjur
til að grundvallarbúið
komi út á sléttu.
Ekki fylgt
verðlagi
EKKI VERÐLÆKKUN
Sigurður Loftsson