Morgunblaðið - 04.12.2013, Síða 23
23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2013
Fróðleiksfús Höfði laðar að sér ferðamenn allt árið um kring enda höfðar hann sterkt til þeirra sem vilja fræðast um söguna, m.a. um fund Ronalds Reagans og Mikhaíls Gorbatsjovs árið 1986.
Golli
Í kynningarefni með
skýrslu sérfræð-
ingahóps um höfuðstóls-
lækkun húsnæðislána er
sýndur samanburður á
vaxtagreiðslum íbúða-
lána á Norðurlöndum.
Þar kemur fram að
vaxtakostnaður og
greiðslubyrði íslenskra
heimila af íbúðalánum sé
tugum prósenta hærri
en annars staðar á Norð-
urlöndum. Þessu til stuðnings er sýnt
línurit með þróun vaxtagreiðslna
íbúðalána á Norðurlöndum þar sem
gengið er út frá 3,85% raunvöxtum á
verðtryggðu láni á Íslandi, 4,5% vöxt-
um í Svíþjóð og Danmörku og 4,25%
vöxtum í Noregi, þar sem lán í þessum
þremur löndum eru óverðtryggð. Þeg-
ar vaxtaferlar eru teiknaðir með þess-
um hætti og út frá sömu forsendum
kemur fram allt önnur mynd en sýnd
er í kynningarefninu. Nauðsynlegt er
reyndar að gefa sér viðbótarforsendu
um verðbólgu þar sem lán eru óverð-
tryggð. Í útreikningum á bak við þær
myndir sem hér fylgja var reiknað
með því að verðbólga héldist 2% á ári
næstu 40 árin í Danmörku, Svíþjóð og
Noregi. Allar fjárhæðir eru sýndar á
föstu verði, enda er samanburður yfir
svona langt tímabili annars marklaus.
Á mynd 1 sést samanburður á
vaxtagreiðslum 40 ára jafngreiðslu-
lána. Til að byrja með vega vaxta-
greiðslur minnst af íslenska láninu
enda er það verðtryggt. Með tímanum
léttist byrði vaxta-
greiðslna hinna lánanna
hraðar, m.a. vegna þess
að verðbólga rýrir virði
greiðslnanna.
Mynd 2 sýnir mán-
aðarlega greiðslubyrði
lánanna, þ.e. summu
vaxtagreiðslna og afborg-
ana (á föstu verði). Þar
sést að greiðslubyrði ís-
lenska lánsins er léttust
til að byrja með. Hún
helst síðan óbreytt út líf-
tímann, enda lánið verð-
tryggt. Þróun greiðslubyrði hinna lán-
anna er óviss enda háð verðbólgu í
löndunum. Ef gert er ráð fyrir 2%
verðbólgu næstu 40 árin verður með-
algreiðslubyrðin eins og sýnt er (með
rauðu súlunum) á myndinni. Ef verð-
bólgan verður að jafnaði minni þá
verður greiðslubyrðin þyngri, en reyn-
ist verðbólga að jafnaði meiri þá léttist
greiðslubyrðin.
Eftir Lúðvík
Elíasson
» Þegar vaxtaferlar eru
teiknaðir með þessum
hætti og út frá sömu for-
sendum kemur fram allt
önnur mynd en sýnd er í
kynningarefninu.
Lúðvík
Elíasson
Höfundur er hagfræðingur og starfs-
maður fjármálastöðugleika Seðlabanka
Íslands. Skoðanir sem koma fram í
greininni eru höfundar og ber ekki að
túlka sem skoðanir Seðlabankans.
Vaxtagreiðslur og
greiðslubyrði íbúða-
lána á Norðurlöndum
Mynd 1. Vaxtagreiðslur
íbúðalána á Norðurlöndum
80.000
70.000
60.000
50.000
40.000
30.000
20.000
10.000
0
Ísl
an
d
Da
nm
örk
Sv
íþj
óð
No
reg
ur
1
49 9
7
14
5
19
3
24
1
28
9
33
7
38
5
43
3
Mynd 2. Greiðslubyrði
Fyrsta greiðsla Meðalgreiðsla
100.000
90.000
80.000
70.000
60.000
50.000
40.000
30.000
20.000
10.000
0
Ísl
an
d
Da
nm
örk
Sv
íþj
óð
No
reg
ur
Leiðtogar Sam-
fylkingar og Vinstri
grænna eiga erfitt.
Þeir virðast sætta
sig illa við að rík-
isstjórn Framsókn-
arflokks og Sjálf-
stæðisflokks kynni
róttækar aðgerðir í
skuldamálum heim-
ilanna, aðeins sex
mánuðum eftir að
hafa tekið við stjórn-
artaumunum af vinstri stjórn sem
kenndi sig við norræna velferð og
skjaldborg.
Skuldamál heimilanna þvældust
fyrir vinstri stjórn Samfylkingar
og Vinstri grænna í meira en
fjögur ár. Í upphafi var því heitið
að gripið yrði til róttækra að-
gerða til að aðstoða skuldug
heimili – að slegin yrði um þau
skjaldborg.
Jóhanna Sigurðardóttir átti
fund með Ólafi Ragnari Gríms-
syni forseta 1. febrúar 2009. Eftir
fundinn héldu þau blaðamanna-
fund þar sem Jóhanna þakkaði
forsetanum fyrir það traust að
fela sér umboð til að mynda nýja
ríkisstjórn. Verkáætlun nýrrar
ríkisstjórnar væri tilbúin og síðar
sama dag myndi hún kynna ráðu-
neyti sitt fyrir forsetanum:
„Verkefnið framundan er fyrst
og fremst að reisa við atvinnu-
vegina og slá skjaldborg um
heimilin í landinu, þétta það ör-
yggisnet sem heimilin búa við og
við nauðsynlega þurfum á að
halda á þessum tímum.“
Fyrir kosningarnar í apríl 2009
héldu Vinstri grænir landsfund
og þar var sérstaklega ályktað
um skuldamál og verðtryggingu:
„Fundurinn skorar á rík-
isstjórnina að leita leiða til að
lækka höfuðstól húsnæðislána eða
frysta hluta hækkunar höfuðstóls
lána vegna verðbólguskotsins.
Einnig að gerð verði tímasett
áætlun um afnám verðtryggingar.
Ekki verði gengið lengra í inn-
heimtu skulda en að lánastofnun
leysi til sín veðsetta eign.“
Vinstri stjórnin byggði þannig
upp miklar væntingar meðal
landsmanna. Forsætisráðherra
lofaði sérstakri skjaldborg og
Vinstri grænir vildu lækka lán
eða frysta. Gefin voru fyrirheit
um tímasetta áætlun
um afnám verð-
tryggingar. Sú áætl-
un leit aldrei dagsins
ljós.
Gryfja skrifræðis
og skattahækkana
Ekki skal efast
um góðan ásetning
vinstri stjórnarinnar.
En líkt og oft áður
féllu vinstri menn í
gryfju skrifræðis og
skattahækkana. Í
stað markvissra al-
mennra lausna var gripið til sér-
tækra aðgerða, með tilheyrandi
biðröðum, endalausum flækjum í
regluverki og pappírsfargani.
Vandi heimilanna var aukinn enn
frekar með hærri sköttum og op-
inberum gjöldum.
Aðgerðir ríkisstjórnar Samfylk-
ingar og Vinstri grænna í skulda-
málum heimilanna skiluðu ekki
því sem lofað var. Dómstólar
tóku verkefnið að mestu að sér.
Langstærsti hluti lækkunar
skulda heimilanna á síðustu árum
er vegna þess að dómstólar kom-
ust að því að gengistryggðar
skuldir væru í mörgum tilfellum
ólöglegar. Í skriflegu svari at-
vinnuvegaráðherra við fyrirspurn
Einars K. Guðfinnssonar þing-
manns Sjálfstæðisflokksins, í lok
nóvember 2012, kom fram að
endurútreikningur erlendra fast-
eignalána banka og sparisjóðs og
endurútreikningur bílalána hefðu
lækkað skuldir heimilanna um
148,2 milljarða króna. Svokölluð
110%-leið sem ríkisstjórnin beitti
sér fyrir skilaði aðeins 46 millj-
arða lækkun og sérstök skulda-
lækkun 7,3 milljörðum.
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurð-
ardóttur og Steingríms J. Sigfús-
sonar hafði lítinn skilning á sam-
hengi á milli fjárhagsstöðu
heimilanna og velgengni atvinnu-
lífsins. Samhengið milli hófsemd-
ar í skattheimtu, öflugs atvinnu-
lífs og aukins kaupmáttar
almennings var þeim hulin ráð-
gáta. Þess vegna voru nær öll op-
inber gjöld hækkuð og því miður
fylgdu mörg sveitarfélög fordæm-
inu. Frá ársbyrjun 2009 og fram
til byrjun þessa árs var lögum
um tekjuskatt breytt 28 sinnum.
Staðgreiðsla sem var 35,7% árið
2008 hækkaði í 37,32% til 46,22%.
Allir urðu að greiða hærri skatta,
þeir sem lægstu launin hafa sem
og þeir sem hærra eru launaðir.
Stöðugt var þrengt að heim-
ilunum og þeim gert erfiðara fyr-
ir að standa undir skuldbind-
ingum. Ráðstöfunartekjur
lækkuðu vegna hækkunar op-
inberra gjalda, minni vinnu og
lægri launa. Kreppan varð dýpri
en ella, ekki síst vegna eðlislægs
fjandskapar ríkisstjórnarinnar
gagnvart atvinnulífinu.
Fleira þarf að leiðrétta
Auðvitað er hægt að hafa
skilning á því að þeir sem bera
ábyrgð á árum hinna glötuðu
tækifæra frá árinu 2009, séu ekki
kátir þegar þeir horfa á nýja rík-
isstjórn taka til hendinni. Þess
vegna kvarta þeir yfir að fá ekki
sérstaka kynningu á aðgerðunum
og leggja inn langar fyrirspurnir
á Alþingi. Að horfa í eigin barm
kemur ekki til greina.
Róttækar tillögur ríkisstjórn-
arinnar um að rétta við hlut
heimilanna eru aðeins hluti af
þeim verkefnum sem bíða. Með
þeim er verið að leiðrétta það
sem kallað er forsendubrestur
vegna falls krónunnar og mikillar
verðbólgu. En þá er eftir að leið-
rétta annan forsendubrest sem
er síst minni: Gríðarlega hækkun
skatta, minni atvinnu og lægri
laun. Slíkur forsendubrestur
verður ekki leiðréttur nema með
því að koma hjólum atvinnulífs-
ins aftur af stað, auka fjárfest-
ingu og lækka skatta og opinber
gjöld.
Leiðrétting á skuldum heim-
ilanna skiptir litlu til lengri tíma
ef ekki tekst að byggja upp hag-
vöxt og auka kaupmátt heim-
ilanna, samhliða því að tryggja
jafnvægi í búskap hins opinbera.
Þetta á borgaraleg ríkisstjórn að
skilja, þó þessi einföldu sannindi
hafi verið hulin vinstri mönnum.
Eftir Óla Björn
Kárason »En þá er eftir að
leiðrétta annan for-
sendubrest sem er síst
minni: Gríðarlega
hækkun skatta, minni
atvinnu og lægri laun.
Óli Björn
Kárason
Höfundur er varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Leiðrétta þarf annan for-
sendubrest en hækkun lána