Morgunblaðið - 04.12.2013, Síða 24

Morgunblaðið - 04.12.2013, Síða 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2013 Fyrir skömmu var haldin kynning á veg- um Landverndar á kostum og göllum loft- lína og jarðstrengja vegna flutnings raf- orku á hærri spennu- stigum. Niðurstöður hins kanadíska sér- fræðifyrirtækis, sem kynninguna hélt, var á þá lund, að líf- tímakostnaður við jarðstrengi sé um 4-20 prósentum hærri en fyrir loftlínur. Stofnkostnaður sé hins vegar talsvert hærri við jarðstrengi eða um 70-100 prósent. Þess ber að geta, að þá er eftir að taka tillit til umhverfiskostn- aðar, sem er nánast enginn sé um jarðstrengi að ræða, en verulegur, sé um loftlínur að ræða, kostnað við landakaup, en helgunarsvæði loftlína er allt að áttfalt miðað við jarðstrengi og síðast en ekki sízt hins dæmalausa 15% vöru- gjalds, sem leggst á jarðstrengi en ekki á loftlínur við innflutn- ing. Ekki verður sagt að framkvæmdavaldið sé sérlega vinveitt nátt- úru landsins. Hvernig væri annars að leggja vörugjald á efni í loft- línur líka? Það þarf hvorki að búa yfir miklu ímyndunarafli né kunnáttu í reiknilist til að komast að þeirri niðurstöðu, að jarð- strengir séu í reynd, ef allt er með talið, ekki aðeins ódýrari en loftlín- ur heldur talsvert ódýrari sé horft á heildarmyndina. Það vekur nokkra athygli, að það er ekki sá opinberi aðili, sem á að gæta hagsmuna þjóðarinnar í þessu máli, sem stofnar til kynningar af þessu tagi. Það gerðu frjáls fé- lagasamtök fólksins í landinu. Ein- okunar- og orkudreifingarfyr- irtækið Landsnet, taglhnýtingur Landsvirkjunar, sá ekki ástæðu til að hlutast til um að ferskar upplýs- ingar væru lagðar fram. Taglhnýt- ingurinn flaggar þess í stað úrelt- um upplýsingum, hálfsannleik og blekkingum um þessi þýðing- armiklu mál, er varða ásjónu og ímynd landsins. Tekinn er aðeins hluti af heildarmyndinni, þ.e. stofn- kostnaður, og því ranglega haldið fram að hann sé rösklega þrisvar sinnum hærri við jarðstrengi en loftlínur sbr. viðtal við aðstoðarfor- stjóra Landsnets í Bændablaðinu 31. okt. 2013. Hagstæðari reksturs- kostnaður jarðstrengja látinn lönd og leið, kostnaður vegna landa- kaupa, helgunarkostnaður og um- hverfiskostnaður sömuleiðis, að ógleymdu 15% vörugjaldinu. Ekki verður komist hjá að líta svo á, að vinnubrögð og framkoma Landsnets í máli þessu séu ekki að- eins ófagmannleg heldur einnig ámælisverð og einkennist af kredd- um, vankunnáttu og þekking- arskorti. Ekki virðist litið á jarð- strengi á þeim bæ sem raunhæfan kost, þegar hann vissulega er það, heldur er farið er fram á ofbeldis- aðgerðir á borð við eignarnám jarða undir loftlínur. Slíkar aðgerð- ir eyðileggja jarðir og lönd langt umfram helgunarsvæði eins og allir hljóta að sjá. Leikur einn væri að ná hagstæðum samningum um jarðstrengi en það er ekki einu sinni reynt. Þess í stað eru bornar á borð gagnslausar og í meira lagi hallærislegar hugmyndir um minna ljót möstur og áform um að leggja loftlínur þar sem þær sjást síður málaðar í felulitum. Spyrja mætti hvernig það sé nú hægt á víðerninu á Sprengisandi eða jafnvel hvort menn séu með öll- um mjalla. Spyrja mætti líka, hvort það sé ekki meira en nóg fyrir opinberra stofnun að vera hugmyndasnauð og vond í reikningi. Þarf hún líka að beita blekkingum og rangfærslum til að vinna draumum sínum braut- argengi um að stórskemma að óþörfu náttúru og ímynd landsins aðeins til að draumar hennar sjáist ofanjarðar. Svo kostar það líka meira, ef allt er talið. Ekki verður heldur komist hjá að álykta, að Landsnet hafi til að bera einlægan illvilja gagnvart ásjónu og ímynd landsins með því að tyggja rangfærslurnar nógu oft op- inberlega þannig að stjórn- málamenn, ráðuneytisskriffinnar og vitleysingar fari að trúa þeim og halda þeim til streitu. Komið hefur fram, að Landsnets- mann hafa þótzt vera að kanna möguleika jarðstrengja að und- anförnu. Það virkar í bezta falli sem aumlegt yfirklór til að reyna að láta þjóðina halda, að þar í bæ sé unnið af heilindum. Slíkt klór hefur engan trúverðugleika eftir það sem á undan er gengið. Það hefur lengi vafizt fyrir mönnum hvernig eigi að reikna umhverfiskostnað. Hvers virði er það að halda ásjónu landsins ómengaðri af óþörfum raflínum? Vilja hundruð þúsunda ferða- manna, sem hingað koma til að sjá óspillta náttúru, berja þess í stað augum ryðgaða mastraskóga? Hætt er við að þeir komi þá ein- faldlega ekki aftur. Það mætti al- veg gæla við þá hugmynd að um- hverfiskostnaður sé jafn hár stofnkostnaði loftlínu. Sé línan grafin í jörð er enginn slíkur kostn- aður og ásjóna landsins söm og fyrr. Þetta ætti ekki að vera erfitt að skilja. En Landsnet vill fá landið og umhverfið fyrir ekki neitt eins og það hefur jafnan verið og með ofbeldi ef það næst ekki öðru vísi. Því fráleita viðhorfi verður að breyta fyrir milligöngu fólksins í landinu og Græna hersins, ef skrif- finnarnir sjá ekki að sér. Hér er um mun stærra mál að ræða en hryðjuverkin óþörfu í Gálgahrauni. Í ljósi þess, sem á undan er gengið má velta því fyrir sér hvort Landsnet er til þess bært að fjalla um og vera til ráðuneytis í þessum málum. Nær væri að til þess bærir aðilar væru til kvaddir. Það mundi vera landi og þjóð til farsældar. Jarðstrengir eru ódýrari Eftir Sverri Ólafsson »Ekki verður komist hjá því að álykta, að Landsnet hafi til að bera einlægan illvilja gagnvart ásjónu og ímynd landsins. Sverrir Ólafsson Höfundur er viðskiptafræðingur. Félag eldri borgara Reykjavík Fimmtudaginn 28. nóvember var spilaður tvímenningur hjá bridsdeild Félags eldri borgara, Stangarhyl 4, Rvk. Spilað var á 10 borðum. Efstu pör í N/S: Ingibj. Stefánsd. - Margrét Margeirsd. 251 Örn Ingólfsson - Örn Isebarn 237 Bjarni Þórarinss. - Oddur Halldórss. 233 Friðrik Jónss. - Jóhannes Guðmannss. 223 A/V Helgi Hallgrímss. - Ægir Ferdinandss. 253 Björn Pétursson - Ólafur Ingvarsson 243 Helgi Samúelsson - Sigurjón Helgason 237 Magnús Jónsson - Gunnar Jónsson 236 „Nýir“ menn á toppnum Hafsteinn Ögmundsson og Guðjón Ósk- arsson urðu efstir í þriggja kvölda sveita- keppni sem lauk sl. fimmtudag. Spilaðir voru fimm leikir og hlutu þeir 109 stig. Í öðru sæti voru Ingimar Sumarliðason og Sigurður Davíðsson með 104, þriðju Arn- ór Ragnarsson og Gunnlaugur Sævarsson með 100 og Karl G. Karlsson og Svala Páls- dóttir fjórðu með 99. Keppnisformið var nokkuð óvanalegt en pörum var skipt í tvo hópa og spiluðu pörin „aldrei“ með sama parinu í sveit. Tókst þetta keppnisform ágætlega en mætti fín- pússa. Næsta fimmtudag hefst þriggja kvölda jólatvímenningur þar sem tvö efstu kvöldin telja til sigurs. Spilað er í félagsheimilinu á Mánagrund kl. 19. Tekið skal fram að allir fá að vera með jafnvel þótt þeir geti aðeins spilað eitt kvöld- anna. Magnús og Halldór efstir hjá Breiðfirðingum Nú er lokið hjá okkur fjögra kvölda tví- menningskeppni þar sem þrjú bestu kvöldin gilda til verðlauna. Röð efstu para varð þessi. Magnús Sverriss. - Halldór Þorvaldss. 809 Guðm. Sigursteinss. - Unnar A. Guðmss. 780 Oddur Hannesson - Árni Hannesson 778 Björn Arnarson - Halldór Þórólfss. 734 Friðrík Jónss. - Jón V. Jónmundss. 708 Þórður Ingólfsson - Hörður Gunnarss. 706 Sunnudaginn 1/12 var spilað á 11 borðum . Hæsta skor kvöldsins í N/S Oddur Hanness. - Árni Hannesson 293 Guðm. Sigursteinss. - Unnar A. Guðmss. 263 Magnús Sverriss. - Halldór Þorvaldsson 224 Austur/Vestur Þórður Ingólfss. - Hörður Gunnarsson 240 Birna Lárusd. - Sturlaugur Eyjólfsson 237 Kristján Albertss. - Guðjón Garðarss. 235 Næsta sunnudag 8/12 verður spilaður eins kvölds tvímenningur. Það er síðasta spilakvöld fyrir jól. Við byrjum aftur að spila 5/1 2014. Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, á sunnudögum kl. 19. Félag eldri borgara Reykjavík Mánudaginn 2. desember var spilaður tvímenningur hjá bridsdeild Félags eldri borgara, Stangarhyl 4, Reykjavík. Spilað var á 12 borðum. Efstu pör í N/S: Siguróli Jóhannss. – Auðunn Helgason 259 Helgi Hallgrss. – Ægir Ferdinandss. 256 Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 241 Kristín Óskarsd. – Gróa Þorgeirsd. 238 A/V Hrafnhildur Skúlad. – Soffía Daníelsd. 268 Björn E. Péturss. – Ólafur Ingvarss. 264 Gunnar Jónsson – Magnús Jónsson 249 Friðrik Jónss. – Jóhannes Guðmannss. 235 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is VIÐ ERUM SÉRFRÆÐINGAR Í GASI Þú getur verið afslappaður og öruggur við grillið með AGA gas. Öruggur um að þú ert að nota gæðavöru og að þú fáir góða þjónustu þegar þú þarft áfyllingu á gashylkið, hvort sem þú nýtir þér heimsendingarþjónustu á höfuðborgarsvæðinu eða þegar þú heimsækir söluaðila AGA. Farðu á www.gas.is og finndu nálægan sölustað eða sæktu öryggisleiðbeiningar og fáðu upplýsingar um AGA gas. www.GAS.is fi p y j g p C p i ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lam Villibráðar-paté prikmeð pa Bruchetta tarsmeð tvíreyktu hangikjöti, balsamrauðlauk og piparró Bruchetta með hráskinku, balsam nmog grill uðu Miðjarðarhafsgræ - salat skufer ðbo arðameð Miðj kjRisa-ræ með peppadew iluS ajónmeð japönsku m het Hörpuskeljar má, 3 s Frönsk súkkulaðikaka skum/rjóma og fer Vanillufylltar vatnsdeigsbollur arbSúkkulaðiskeljar með jarð Kjúklingur-satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti R ahörpuskel maríneruð á pinna Túnfiskur í sesamhjúp á spjóti mSími 511 8090 • www.yndisauki.is Veitingar fyrir öll tækifæri, stór og smá, fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Markmið okkar er alltaf það sama, glæsilegar veitingar og ómótstæðilegt bragð. Persónuleg og góð þjónusta.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.